Morgunblaðið - 21.11.2013, Qupperneq 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
✝ Dórótea Guð-mundsdóttir,
hússtjórnarkennari
og húsmóðir á
Laugabóli í Ísafirði,
fæddist á Ytri-
Veðrará í Önund-
arfirði 22. janúar
1931. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á
Akranesi 9. nóv-
ember 2013.
Foreldrar Dóróteu voru Guð-
mundur Þorkell Jónsson, f. 14.
september 1896 á Kroppsstöðum
í Önundarfirði, d. 24. febrúar
1975, og kona hans Ásta Ólöf
Þórðardóttir, f. 22. mars 1905 í
Neðri-Breiðadal í Önundarfirði,
d. 7. nóvember 1998. Dórótea átti
sjö systkini, þau eru: Jón, f. 1927,
d. 2013, Ásmundur, f. 1929, d.
2012, Þórður, f. 1933, Gunnar, f.
1936, d. 2011, Steinar, f. 1945,
Gústaf, f. 1947, og Þórdís, f.
1949.
Hinn 9. maí 1956 giftist Dóró-
tea Jóni Guðjónssyni, f. 11. febr-
úar 1926, frá Hermundarstöðum
í Þverárhlíð. Foreldrar hans
voru Guðjón Jónsson, f. 30. októ-
september 1965, giftur Heiðu
Björk Jósefsdóttur, f. 1969. Börn
Inga Rúnars og Heiðu Bjarkar
eru Ólöf Rún, f. 1999, og Dalrós
Inga, f. 2003. Stjúpdóttir Inga
Rúnars, dóttir Heiðu Bjarkar, er
Dagný Elva Þorsteinsdóttir, f.
1989. 5) Arngerður, f. 7. október
1972, gift Þorkeli Heiðarssyni, f.
1970. Börn Arngerðar og Þor-
kels eru Jón Heiðar, f. 2002, Þor-
gerður, f. 2004, Ásbjörn Grétar,
f. 2008, og Arnkell Ingi, f. 2010.
Dórótea ólst upp á Flateyri við
Önundarfjörð. Hún lauk námi frá
Gagnfræðaskólanum á Ísafirði
1950, Húsmæðraskólanum á
Varmalandi 1952 og Hús-
mæðrakennaraskóla Íslands
1954. Dórótea starfaði á Hótel
Borgarnesi 1954-1955 og í fram-
haldi á hótelum í Danmörku og
Noregi. Dórótea og Jón bjuggu í
Noregi 1956-1958. Þau fluttu til
Ísafjarðar 1958 og þaðan að
Laugabóli í Ísafirði vorið 1967,
þar sem þau stunduðu búrekstur
fram yfir síðustu aldamót. Fluttu
þá í Borgarnes, þar sem þau
héldu heimili síðan. Um tíma
samhliða búrekstrinum starfaði
Dórótea sem hússtjórnarkennari
við Húsmæðraskólann Ósk á Ísa-
firði, Gagnfræðaskóla Ísafjarðar
og Héraðsskólann í Reykjanesi.
Útför Dóróteu fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 21. nóv-
ember 2013, og hefst athöfnin
klukkan 13.
ber 1892 á Her-
mundarstöðum, d.
18. febrúar 1982, og
kona hans Lilja
Ingveldur Guð-
mundsdóttir, f. 27.
júní 1899 á Branda-
gili í Hrútafirði, d.
19. október 1987.
Börn Dóróteu og
Jóns eru: 1) Guðjón,
f. 23. júlí 1956, í
sambúð með Guð-
laugu Vilbogadóttur, f. 1958.
Börn Guðjóns og fyrrverandi
eiginkonu hans Ásdísar Þor-
steindóttur, f. 1953, eru Jón, f.
1989, og Lilja Snædís, f. 1991.
Stjúpsonur Guðjóns, sonur Ásdís-
ar, er Guðmundur Júlíus Gísla-
son, f. 1975. 2) Ásta, f. 18. nóv-
ember 1959. Börn Ástu og
fyrrverandi sambýlismanns
hennar Arnars Guðmundssonar,
f. 1956, eru Dórótea, f. 1989, og
Axel Már, f. 1991. 3) Þorkell, f. 7.
janúar 1961. Börn Þorkels og
fyrrverandi eiginkonu hans Sig-
ríðar Þráinsdóttur, f. 1967, eru
Andrea, f. 1987, Gunnhildur, f.
1989, Bryndís, f. 1991, og Þorkell
Máni, f. 1997. 4) Ingi Rúnar, f. 11.
Mamma ólst upp á Flateyri við
Önundarfjörð og voru þau átta
systkinin, sex bræður og tvær
systur. Mamma menntaði sig
sem hússtjórnarkennari og hafði
mikinn áhuga á því sviði. Hún var
hæglát og prúð kona, vildi lítið
láta á sér bera. Hún var einstak-
lega samviskusöm og vandvirk í
öllu sem hún tók sér fyrir hendur.
Mamma var fróð kona og las mik-
ið og hafði áhuga á að þekkja til
fólks. Hún hafði sínar föstu skoð-
anir á lífinu og tilverunni.
Eftir skólagöngu sína vann
mamma á Hótel Borgarnesi, en í
Borgarnesi kynntist hún pabba.
Hún fer til Kaupmannahafnar
með vinkonu sinni undir lok árs
1955 og kynnir sér danska mat-
argerð. Þaðan fer hún til Noregs
og starfar á fjallahóteli.
Mamma og pabbi hefja sinn
búskap í Noregi 1956 og búa þar í
rúm tvö ár eða meðan pabbi er
þar við nám. Þau flytjast til Ísa-
fjarðar 1958, búa þar til 1967. Um
vorið 1967 kaupa þau jörð inni í
Ísafjarðardjúpi, Laugaból í Ísa-
firði, og hefja þar búskap.
Mikið verk var þar fyrir hönd-
um að byggja upp búskapinn og
oft langur vinnudagur. Heimilið
var mannmargt, börn í sveit og
vinnumenn nær alltaf. Mikill
gestagangur var alltaf heima, og
voru allir kærkomnir í mat og
gistingu á hvaða tíma sem var.
Mamma lagði mikið upp úr að
hafa góðan og hollan mat á borð-
um og láta fólki líða vel á heimili
okkar. Barnabörnin voru henni
kærkomin og dekraði hún við þau
á allan hátt. Börn mín, Dórótea
og Axel Már, dvöldu oft hjá
ömmu og afa í sveitinni, og alltaf
var jafnmikil tilhlökkun hjá þeim
að vera hjá afa og ömmu. Hugur
mömmu stóð alltaf til þess að fá
tækifæri til að starfa við sína
menntun og fékk hún það þegar
við börnin vorum vaxin úr grasi.
Hún kenndi matreiðslu við Hús-
mæðraskólann Ósk og Gagn-
fræðaskólann á Ísafirði, einnig
við Héraðsskólann í Reykjanesi
um árabil.
Foreldrar mínir fluttu í Borg-
arnes eftir síðastliðin aldamót, en
áttu alltaf sitt annað heimili á
Laugabóli og dvöldu þar oft lang-
dvölum. Mamma greindist með
staðbundið krabbamein fyrir um
það bil tólf árum. Síðastliðin tvö
ár ágerðust veikindi hennar.
Veikindum sínum vildi hún lítið
gera úr og tók þeim með æðru-
leysi og miklum dugnaði.
Mamma naut þeirrar gæfu að
hafa pabba sér við hlið í veikind-
um sínum, en hann hefur staðið
eins og hetja við hlið hennar og
fylgt henni í gegn um hennar
veikindi og gaf henni mikinn
stuðning í einu og öllu. Eins og
mamma sagði við mig í lokin: „Ég
skil ekki úr hverju pabbi þinn er
búinn til.“ Þar átti hún við hversu
heilsugóður og duglegur hann er
þrátt fyrir háan aldur.
Mamma var með sterkar
taugar til æskustöðva sinna Ön-
undarfjarðar. Ég sjálf var hjá
móðurömmu minni og -afa á Flat-
eyri í fimm vetur og fékk að
kynnast hennar æskustöðvum
aðeins. Þær voru ófáar stundirn-
ar sem við mamma töluðum um
heimaslóðir hennar og hvernig
lífið var á uppvaxtarárum hennar
á Flateyri.
Ég kveð móður mína með
miklum söknuði og þakka fyrir að
hafa orðið þeirrar gæfu aðnjót-
andi að eiga hana að eins lengi og
raun bar vitni.
Blessuð sé minning elsku
mömmu minnar.
Ásta.
Elsku amma, takk fyrir allar
stundirnar sem við fengum að
njóta með þér. Þú varst með gott
og stórt hjarta og við eigum eftir
að sakna þín.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Kveðja
Ólöf Rún, Dagný Elva
og Dalrós Inga.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Guð geymi þig elsku amma.
Dórótea og Axel Már.
Það var alltaf svo ánægjulegt
að koma til ömmu og afa í sveitina
þar sem þau tóku svo vel á móti
okkur. Amma var alltaf á fullu að
hugsa um aðra, undantekningar-
laust með eitthvað girnilegt á
boðstólum og ávallt gengu allir
saddir frá borði á hverjum degi.
Við erum svo þakklát fyrir að
hafa komið í heimsókn til þeirra í
sveitina síðasta sumar og fengið
að eyða þar með þeim nokkrum
dögum. Þó að það hafi verið langt
síðan seinast var eins og við hefð-
um aldrei farið neitt, svo sterkar
eru minningar okkar þaðan. Okk-
ur þótti sérstaklega vænt um að
þau hefðu gefið sér tíma til að
keyra með okkur í gegnum Ísa-
fjarðardjúpið og að Snæfjalla-
strönd þar sem þau sýndu okkur
marga fallega staði og lýstu því
hvernig þeir hafa sumir breyst í
gegnum árin. Það var rosalega
gaman að heyra sögur af gömlum
tíma og af fólkinu í sveitinni. Það
var ómetanlegt að fá að fara til
þeirra upp í sveit sem krakkar og
við eigum eftir að sakna þess
mikið að hitta hana þegar við
komum í heimsókn til afa. Þetta
eru góðar minningar sem við eig-
um eftir að geyma með okkur og
aldrei gleyma. Takk fyrir tímann
sem við áttum með þér. Hvíldu í
friði, elsku amma.
Andrea, Gunnhildur,
Bryndís og Þorkell Máni.
Sem barn dvaldi ég mörg sum-
ur hjá afa og ömmu á Laugabóli.
Það kom þá að mestu í hlut ömmu
að hafa hemil á mér og tryggja
það að ég hegðaði mér skikkan-
lega. Það reyndist þó oft erfitt
þar sem ég átti það til að vera
frekar óþekkur.
Amma tók þó flestum mínum
skammarstrikum með miklu
jafnaðargeði og þótt hún hafi
stundum reiðst mér fyrir þau
verstu (t.d. þegar mér tókst að
hella úr fötunni sem hún hafði
eytt dágóðri stundu við að tína
bláber í – sem ég held reyndar að
hafi gerst oftar en einu sinni)
varði sú reiði sjaldan lengi og ég
var fljótlega aftur tekinn í sátt.
Ég minnist þess ekki að amma
hafi nokkru sinni talað illa um
nokkurn mann svo að ég heyrði
til. Henni samdi vel, að mér sýnd-
ist, við alla sem hún þekkti og var
yfirleitt vön því að setja annarra
hag framar eigin. Þegar hún eld-
aði fyrir heimilisfólkið settist hún
yfirleitt ekki að borði fyrr en hún
var viss um að aðrir hefðu fengið
nægju sína og ef gesti bar að
garði gerði hún allt sem hægt var
til þess að tryggja það að þeir
væru sem ánægðastir.
Eins – þrátt fyrir mikil veik-
indi – kvartaði amma aldrei und-
an verkjum eða neinu slíku þegar
ég heimsótti hana þessa síðustu
daga hennar nú í vetur heldur
gerði hún sitt besta til þess að
halda uppi samræðum um allt
annað en sig og sín veikindi.
Þannig vildi hún e.t.v. hlífa mér
og öðrum og setti þannig mína
líðan framar sinni eigin.
Og þannig mun ég minnast
ömmu. Ekki aðeins sem uppal-
anda sem hélt mér innan við
strikið og átti stóran þátt í að ala
úr mér óþekktina, heldur líka
sem einstaklega fórnfúsrar og
óeigingjarnar konu sem átti sér
enga óvini og bar ávallt annarra
hag fyrir brjósti.
Jón Guðjónsson.
Eitt það mikilvægasta í lífi
manna er að eiga trausta og góða
vini. Vini sem standa með manni,
ráðleggja og styrkja á lífsins
göngu.
Við hjónin erum svo heppin að
hafa eignast slíkan vinskap hjá
þeim Dóru og Jóni. Vinskapurinn
hófst þegar við bjuggum í
Reykjanesi við Ísafjarðardjúp.
Með árunum styrktist vináttan
og varð órjúfanleg og erum við
þakklát fyrir það.
Nú, þegar við kveðjum elsku-
lega Dóru, leitar hugurinn óhjá-
kvæmilega vestur í Djúp. Fegurð
Djúpsins birtist á bæjarhlaðinu á
Laugabóli og horft er yfir speg-
ilsléttan fjörðinn. Fegurðin er
líka til staðar um hávetur, allt á
kafi í snjó og vindurinn gnauðar
úti. Þessa fegurð horfði Dóra á út
um eldhúsgluggann sinn mörg
sín bestu ár.
Það var sama á hvaða tíma
maður kom að Laugabóli, alltaf
ríkti hlýja og ávallt var okkur
fagnað. Þar áttum við margar
skemmtilegar stundir með þeim
Laugabólshjónum. Dóra var ein-
stök manneskja sem endalaust
gaf af sér á sinn hógværa hátt.
Eins og tíðkast á stórbýlum
voru verkin mörg sem þurfti að
sinna. Vorið var tími frjóseminn-
ar og þá fjölgaði í fjárhúsunum. Á
sumrin var iðandi mannlíf við
heyskap og undirbúning fyrir
veturinn. Haustin voru tími smöl-
unar og heimaslátrunar. Á þess-
um tímum fjölgaði mannfólkinu á
bænum og sá Dóra um velgjörðir
fyrir alla. Hún stóð við allan dag-
inn og matarborðið svignaði af
veitingum. Allt var rausnarlega
gert, það var hennar háttur.
Eitt haustið varð allt hljótt í
fjárhúsunum og ljósin slökkt á
Laugabóli, eins og víða í þessari
fallegu sveit. Dóra og Jón óku
suður í Borgarnes, þangað sem
þau hittust fyrst og settust þar
að. Ekki var síður notalegt að
koma í Réttarholtið og fá hlýtt
faðmlag og eiga góða stund með
vinum sínum. Margt var skrafað,
um alvöru lífsins auk þess sem
slegið var á létta strengi. Alltaf
fór maður endurnærður frá þess-
um samverum.
Dóra var fremur fámál um
veikindi sín og gerði lítið úr þeim.
Á skömmum tíma breyttist allt
og ekki varð við neitt ráðið. Þetta
voru fremur stutt en snörp átök
og Dóra mátti þola miklar þraut-
ir.
Við dáðumst að henni hvernig
hún tók þeim aðstæðum sem nú
voru orðnar. Ekki síður dáðumst
við að Jóni sem vart vék frá Dóru
sinni og reyndi sem fremst hann
mátti að gera henni eins gott og
hægt var.
Í perlufesti daganna er alltaf einn og
einn,
sem eitthvað sérstakt hefir manni að
færa.
Í minningunni ljómar hann sem ekta
eðalsteinn
og angar eins og lambagrasið skæra.
(ÁG.)
Já, hún Dóra var svo sannar-
lega eðalsteinn sem færði og gaf
okkur svo mikið.
Hugur okkar er hjá Jóni, börn-
um og barnabörnum. Þið hafið öll
misst svo mikið og við vitum að
söknuðurinn er sár.
Elsku Dóra, síðasta faðmlagið
var hlýtt, eins og alltaf en við
vissum að þetta var kveðjustund-
in enda kvöddumst við þannig.
Við hjónin vorum döpur og með
tár á hvörmum, þegar við yfirgáf-
um Réttarholtið í þetta sinn.
Guðs friður um eilífð þér fylgi og leiði,
til fagnaðarljóssins, þér brautina greiði.
(ÁG.)
Með saknaðarkveðju,
Þorkell og Gunnþóra.
Dórótea
Guðmundsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Nú er vík milli vina
vermir minningin hlýja.
Allra leiðir að lokum
liggja um vegi nýja.
Við förum til fljótsins breiða
fetum þar sama veginn.
Þangað sem bróðir bíður
á bakkanum hinum megin.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Með þökk fyrir allt og
allt.
Kristmundur Hannesson
og fjölskylda.
Röng undirskrift
Undir einni af minning-
argreinum um Önnu Bjarna-
dóttur sem birtust í gær, mið-
vikudaginn 20. nóvember, var
rangt föðurnafn. Rétt höfund-
arnöfn eru Guðrún Ágústs-
dóttir og Bjarni Ágústsson.
LEIÐRÉTT
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR
frá Haga í Þjórsárdal,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
mánudaginn 18. nóvember.
Útför fer fram frá Stóra-Núpskirkju laugar-
daginn 23. nóvember kl. 14.00.
Jóhanna Haraldsdóttir, Rúnar Andrésson,
Jóhann Þór Rúnarsson, Hrönn Arnardóttir,
Haraldur Rúnarsson,
Sverrir Rúnarsson, Eygló Rún Karlsdóttir,
Anna Margrét Rúnarsdóttir, Bergsveinn B. Theodórsson
og barnabörn. ✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
sonur,
GAUTI GUNNARSSON
bóndi,
Læk,
Flóahreppi,
lést á Sjúkrahúsinu á Selfossi föstudaginn
15. nóvember.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 23. nóvember
kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á styrktarreikning í vörslu
Kvenfélags Hraungerðishrepps, rn. 0152-05-070009,
kt. 590592-2349.
Guðbjörg Jónsdóttir,
Gísli Gautason,
Jón Gautason,
Eyrún Gautadóttir,
Gunnar Mar Gautason,
Sigríður Guðjónsdóttir.
✝
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR HELGASON
tæknifræðingur,
er látinn.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Helgi Guðmundsson,
Katrín Guðmundsdóttir,
Sverrir Guðmundsson,
Guðmundur Guðmundsson,
Eyjólfur Guðmundsson,
Guðrún Guðmundsdóttir Thoroddsen
og fjölskyldur
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGURBJÖRG SVEINSDÓTTIR
frá Sauðárkróki,
Lönguhlíð 3,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn
18. nóvember.
Stella E. Kristjánsdóttir,
Elsa Pálsdóttir, Edvard Lövdahl,
Magnús Pálsson, Ingun Vilhjálmsdóttir,
Kristín Pálsdóttir, Guðjón Guðlaugsson,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.