Morgunblaðið - 21.11.2013, Qupperneq 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
✝ Alda J. Sig-urjónsdóttir
fæddist í Neskaup-
stað 3. febrúar
1924. Hún lést á
Borgarspítalanum
12. nóvember
2013.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurjón
Stefánsson, f. á
Norðfirði 21.3.
1895, d. 16.8. 1970,
og Ólafía Kristjánsdóttir, f. í
Reykjavík 2.11. 1902, d. 3.3.
1979. Systkini: Lilja, f. 31.3.
1927, Sigríður Kristjana, f.
7.12. 1931, og Eðvarð, f. 27.4.
1936.
Átján ára kynntist Alda lífs-
förunaut sínum, Tryggva Gísla-
syni pípulagningameistara, f.
19.2. 1922, d. 16.5. 2000. Alda
og Tryggvi giftu sig hinn 30.9.
1944 og bjuggu þau í Reykja-
vík alla tíð. Alda og Tryggvi
eignuðust sex börn: 1) Gísli
14.3. 1993. Af fyrra hjónabandi
Tryggva Þórs: a) Atli Þór, f.
2.6. 1977. Hann á tvo syni. b)
Guðrún Ágústa, f. 16.9. 1978.
Hún á eina dóttur. 5) Rannveig,
f. 13.8. 1955. Maki Sigurbjörn
Kristinsson sem er látinn. Þau
skildu. Þeirra synir a) Tryggvi
Rafn, f. 1.12. 1983. Hann á eina
dóttur. b) Helgi Kristvin, f.
20.4. 1989. 6) Heimir Þór, f.
23.1. 1960. Kona hans er Ólafía
Gústafsdóttir, f. 12.3. 1965.
Börn þeirra eru a) Helga
Dögg, f. 22.6. 1993. b) Aron
Þór, f. 11.7. 1995. Barnabörnin
eru orðin 12 og lang-
ömmubörnin eru 13.
Alda bjó fyrstu æviár sín í
Neskaupstað en flutti þaðan
með foreldrum sínum til
Reykjavíkur. Alda lauk barna-
skólaprófi í Reykjavík og á
unglingsárum sínum bjó hún
tvö ár á Laugarvatni við nám í
Héraðsskólanum. Hún var virk
í félagsmálum og var m.a. einn
stofnenda Klúbbs 44 sem var
félag eiginkvenna pípulagn-
ingameistara og var hún fyrsti
formaður félagsins.
Útför Öldu fer fram frá
kirkju Óháða safnaðarins í dag,
21. nóvember 2013, kl. 15.
Þór, f. 5.4. 1945.
Kona hans Ingi-
björg St. Guð-
mundsdóttir, f.
17.5. 1936. Sonur
Gísla er Þröstur
Friðberg, f. 24.8.
1972. Hann á fimm
dætur. 2) Ólafur
Þór, f. 29.9. 1946.
Kona hans er
Svanhvít Hlöðvers-
dóttir, f. 29.10.
1947. Börn þeirra a) Alda
Björk, f. 9.7. 1966. b) Sigrún
Björk, f. 25.6. 1970. Hún á tvo
syni. c) Hlöðver Þór, f. 7.3.
1972. Hann á einn son. 3) Sig-
urjón Þór, f. 1.7. 1950. Kona
hans er Kristín Marín Siggeirs-
dóttir. Þau skildu. Sonur þeirra
er Þórarinn Björn, f. 21.12.
1984. Hann á eina dóttur. 4)
Tryggvi Þór, f. 20.5. 1952.
Kona hans er Guðfinna G. Guð-
mundsdóttir, f. 14.6. 1951. Son-
ur þeirra er Tryggvi Þór, f.
Kveðja til mömmu.
Elsku mamma, nú ert þú
lögst til hinstu hvílu. Það er
margt sem fer í gegnum hug-
ann þegar maður rifjar upp líf
sitt með þér.
Þegar ég sem yngstur sex
systkina var að alast upp í Goð-
heimunum minnist ég þess með
hlýju í hjarta, að þú varst alltaf
til staðar þegar ég kom heim.
Þó að þú hafir þurft að sjá um
stórt heimili, hafðir þú alltaf
tíma fyrir okkur systkinin og
það er ég þakklátur fyrir.
Það var oft mikið um að vera
á heimilinu. Þetta var stórt
heimili sem þú sást um, elda-
mennska, þrif og barnauppeldi.
Þú leyfðir okkur að vera frjáls
og við sjálf við leik og gleði. Í
Goðheimunum var oftast mikið
fjör og þegar veður var slæmt
vorum við krakkarnir í fótbolta,
handbolta, og einnig í golfi um
alla íbúð.
Þegar lætin urðu of mikil og
krakkahrúgan lá í einni kös á
gólfinu, komst þú æðandi með
blauta tusku til að tvístra hópn-
um og allir hlupu hlæjandi í
burtu. Ég minnist þess þegar
ég sem 9 ára pjakkur gleymdi
mér og var að veiða kola niðri í
botni á gömlum togara við
Keili, þá varst þú ekkert reið
þegar ég fannst að lokum
klukkan þrjú að nóttu, heldur
gafst mér að borða og fórst
með mig í rúmið.
Þú varst góður kokkur enda
eldandi alla daga ársins handa
stórri fjölskyldu. Ég minnist
þess þegar ég var í útlöndum
19 ára gamall og ætlaði að
bjóða stúlku í mat og vantaði
upplýsingar um hvernig maður
eldaði uppstúf. Ég hringdi í þig
og fékk að vita að það ætti að
vera slatti af þessu, örlítið af
öðru og svo smá klípa með
dassi af hinu. Útkoman var
náttúrlega eins og við var að
búast hræðileg því ég hafði
enga tilfinningu fyrir því hvað
væri dass og klípa.
Ég kem til með að sakna þín,
elsku mamma mín, ég vildi
bara þakka þér fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir mig. Ég bið
að heilsa pabba. Þinn sonur,
Heimir Þór.
Í dag er jarðsungin fyrrver-
andi tengdamóðir mín, Alda J.
Sigurjónsdóttir.
Öldu hitti ég í fyrsta skipti
nokkrum dögum fyrir sextugs-
afmælið hennar, þá önnum
kafna við að undirbúa afmæl-
isveislu. Hún var, satt best að
segja, frekar pirruð á Sigur-
jóni syni sínum að vera að
draga ókunnuga kvenpersónu í
heimsókn, þegar hann vissi að
hún væri upptekin og þar að
auki allt á hvolfi á heimilinu.
Fljótlega tók hún mér þó sem
einu af sínu eigin börnum, af
þeirri hlýju sem henni var eig-
inleg.
Alda giftist ung manni sín-
um heitnum; Tryggva Gísla-
syni. Þeim varð sex barna auð-
ið, eignuðust fimm syni og eina
dóttur. Henni þótti pillan vera
dásamleg uppfinning, sagðist
eiginlega ekkert vera fyrir
börn og hefði örugglega ekki
eignast svona mörg ef pillan
hefði verið til þegar hún var
ung.
Hún elskaði nú samt öll
börnin sín og skildi þau öll svo
vel. Hún kunni að meta hæfi-
leika þeirra en var heldur ekki
blind á bresti þeirra.
Hún var svo sem ekkert að
skammast ef henni mislíkaði,
heldur beitti eilítið kaldhæðn-
um húmor – þeir sem þekktu
hana vissu þá hvaðan vindur-
inn blés. Hún var dásamleg
tengdamóðir, skilningsrík, blíð
og hjálpsöm og gott að leita til
hennar, jafnt í blíðu sem
stríðu. Hún var ljúf og góð við
ömmubörnin sín en fannst nú-
tímabörn alls ekki vera nógu
mikið úti að leika sér.
Alda var húsmóðir upp á
gamla mátann. Hún dekraði
við karlinn sinn og ól upp af-
skaplega sjálfbjarga dóttur og
fordekraða syni sem hefur þó
eitthvað farið fram með ár-
unum. Að sjá um átta manna
heimili þykir í dag nokkuð
stórt verkefni og varla á einn-
ar konu færi.
En tíðarandinn var annar í
þá daga. Tryggva þótti und-
arlegt að 30 ára gömul ryk-
suga þarfnaðist endurnýjunar,
slík fjárfesting átti að vera
lífstíðareign. Það var ekki fyrr
en húsmóðirin þurfti að leggj-
ast inn á sjúkrahús og dóttirin
neitaði að annast uppvaskið
ein að fjárfest var í uppþvotta-
vél. Að „vaska upp og sópa“
reyndist aðeins meira í að
komast en um að tala. Alda
hefði eflaust kosið önnur við-
fangsefni hefði hún haft þau
tækifæri sem konum bjóðast í
dag, en afkomendur og
tengdabörn geta verið þakklát
fyrir umhyggju hennar og um-
vefjandi hlýju.
Þrátt fyrir að við Sigurjón
slitum samvistir héldum við
Alda áfram að vera vinkonur;
að kíkja í heimsókn til Öldu
og Tryggva og síðar bara
Öldu ömmu var fastur liður í
tilverunni í mörg ár. Í erli
dagsins hefur heimsóknum
fækkað seinni árin, einkum
eftir að sonur minn fór sjálfur
að sjá um að vitja ömmu sinn-
ar. Það gladdi mig því mjög
að hún skyldi treysta sér til
að koma í brúðkaupið hans
núna í haust.
Öldu verður sárt saknað,
ég sendi fjölskyldunni mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Kristín Marín
Siggeirsdóttir.
Alda Jóna
Sigurjónsdóttir
Kæri tengda-
pabbi. Heldur finnst mér
kveðjustundin hafa komið
snemma. Hvað ég á eftir að
sakna þín. Ég man þegar ég
hitti þig fyrst, fyrir tólf árum,
sem nýr kærasti elstu dóttur
þinnar. Endalaust í heimsókn.
Þú varst svo sem ekkert að flýta
þér að kynnast mér. Það gerðist
hægt og rólega, eins og allir góð-
ir hlutir. Sá var einmitt þinn
háttur. Þú flýttir þér að engu
verki, ólíkt mér, tókst þér góðan
tíma og gerðir hlutina vel. Þann-
ig tryggðirðu góða útkomu. Og
Kristinn J.B.
Gústafsson
✝ Kristinn fædd-ist í Reykjavík
29. júní 1958. Hann
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
við Hringbraut 8.
nóvember 2013.
Útför Kristins
fór fram frá Foss-
vogskirkju 20. nóv-
ember 2013.
aldrei stóð á hjálp-
seminni. Alltaf
varstu tilbúinn að
hjálpa mér með
hvaðeina. Og þegar
ég vildi drífa í hlut-
unum sýndirðu mér
ávallt óendanlega
þolinmæði, útskýrð-
ir fyrir mér og
passaðir að ég væri
ekki með neitt
bráðlæti.
Þar lá einmitt þinn styrkur, í
frásögninni. Þú sagðir margar
sögurnar um dagana, lýstir öllu
vel og slepptir engu; umhverfi,
klæðaburði persóna og einkenn-
um. Þannig urðu frásagnir þínar
ljóslifandi í huga hlustandans
svo honum leið eins og hann
hefði verið á staðnum.
Mér þótti ég oft sjá tvær per-
sónur í þér. Annars vegar nokk-
uð alvörugefna persónu sem
hugsaði yfirvegað og rökrétt, lét
sig varða um sanngirni hlutanna
og virðingu fyrir náunganum.
Til þessarar persónu var gott
að leita og dýrmætt að hafa sér
við hlið. Hin persónan var glett-
in, hnyttin og allnokkuð stríðin.
Hvað þér þótti gaman að stríða.
Í kringum þessa persónu, í
kringum þig, var alltaf gaman að
vera.
Sem tengdapabbi varstu frá-
bær, en sem afi varstu meira en
frábær. Það var hlutverk sem þú
fannst þig vel í. Reglulegar afa-
og ömmuhelgar fyrir barnabörn-
in með afabuff í matinn og til-
heyrandi gleði og gæðasamveru
var eitthvað sem þér þótti jafn
vænt um og börnunum. Það
mátti vel greina í þeirri vinnu
sem þú oft lagðir á þig til að
undirbúa samverustundir fjöl-
skyldunnar svo upplifunin yrði
sem mest fyrir börnin.
Mér er ofarlega í minni
söngvakeppni fjölskyldunnar í
kringum sjónvarpssöngvakeppni
með sviði og míkrafónum, verð-
launum, kosningu, skreytingum
og öllu saman. Hvað svona gaf
börnunum og okkur öllum mikla
gleði. Þú færðir okkur ómælda
gleði, stuðning og hlýju.
Mér fannst við oft tengja best
hvor við annan í gegnum verkin
og mér þótti alltaf svo vænt um
þær samverustundir okkar. Ég
man eftir einu skipti þegar við
vorum búnir að vera að vasast
saman heillengi í framkvæmdum
heima hjá þér og þú kallaðir mig
félaga. Og þetta orð sagði svo
margt. Orð sem þið Félagarnir
notuðuð ykkar á milli en þú
leyfðir þér að nota um mig.
Orð sem sagði að við værum
vinir, að þú kynnir að meta fé-
lagsskapinn, að þér þætti vænt
um mig. Og alltaf öðru hverju
kallaðir þú mig þessu orði. Fé-
laga. Orð sem þú notaðir spar-
lega en leyfðir þér að nota á góð-
um stundum til að tjá vinarþel í
minn garð. Það þótti mér vænt
um, og mér þótti vænt um þig.
Vertu sæll, elsku hjartans
besti Diddi.
Jón Ólafur Ólafsson.
✝
Ástkær eiginkona, systir og mágkona,
HREFNA BECKMANN,
Akurgerði 31,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 19. nóvember.
Jón Þór Þórhallsson,
Einar Beckmann,
Josephine Beckmann.
✝
Þökkum hlýhug og kveðjur vegna andláts
og útfarar
HELGU GUÐRÚNAR
GUÐVARÐARDÓTTUR,
Þórunnarstræti 112,
Akureyri.
Guðmundur Víðir, Sigríður Steinunn,
Sverrir, Guðvarður Már og fjölskyldur.
✝
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför
ERLENDAR RAGNARS GÍSLASONAR
bónda á Melhól.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Klausturhóla
fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðni Már Sveinsson.
✝
Bróðir okkar og frændi,
SNORRI SIGJÓNSSON,
Bjarnanesi,
Hornafirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
8. nóvember.
Útför hans fer fram frá Bjarnaneskirkju
föstudaginn 22. nóvember kl. 13.00.
Systkini og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
bróðir,
SNÆBJÖRN ERLENDSSON,
lést á Landspítalanum, deild 11G,
mánudaginn 18. nóvember.
Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn
29. nóvember kl. 13.00.
Þeir sem vilja minnast hans láti deild 11G á
Landspítala njóta þess.
Sólveig Rögnvaldsdóttir,
Pétur Heiðar Snæbjörnsson, Bára Stefánsdóttir,
Rut Hallgrímdóttir, Alexander M. Þorleifsson,
Erlendur Snæbjörnsson,
Rögnvaldur Fannar Snæbjörnsson
og systkini hins látna.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
MIKAEL ÞÓRARINSSON,
Laugavegi 37,
Siglufirði,
lést á sjúkrahúsi Siglufjarðar mánudaginn
18. nóvember.
Útför fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
30. nóvember.
Katrín Þórný Jensdóttir,
Jens Gunnar Mikaelsson, Sigrún Friðriksdóttir,
Hallfríður Emilía Mikaelsdóttir, Lars Olav Grande,
Þórdís Mikaelsdóttir, Sigurgeir Hrólfur Jónsson,
Regína Erla Mikaelsdóttir, Einar Moritz Karlsson,
Ragnar Mikaelsson, Marit Solbakken,
barnabörn, langafabörn
og langalangafabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma, langamma og systir,
ÓLÖF STEINA FRIÐRIKSDÓTTIR,
Tvååker,
Svíþjóð,
andaðist á sjúkrahúsinu í Varberg
þriðjudaginn 19. nóvember.
Sigurður Tryggvason,
Þorsteinn Sigurðsson,
Ragnar Sigurðsson,
Erna Sigurðardóttir,
Hrefna Sigurðardóttir,
Fríða Friðriksdóttir,
Örn Friðriksson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjón-
arfólki minningargreina viðvart.
Minningargreinar