Morgunblaðið - 21.11.2013, Síða 31
Reiknistofu bankanna og starfaði
þar til 1996.
Í ársbyrjun 1997 var Gísli feng-
inn til að koma á stofn Fræðslu-
miðstöð sparisjóðanna sem hann
veitti síðan forstöðu allt til 2012:
„Fræðslumiðstöðin hafði það meg-
inhlutverk að fræða starfsfólk
sparisjóðanna um margs konar
nýjungar í rekstri og almennri
bankastarfsemi og viðhalda þannig
og bæta góða þjónustu. Auk þess
var henni ætlað að fræða við-
skiptavini sparisjóðanna um nýj-
ungar eins og t.d. heimabanka.
Þetta var mikilvæg og vel metin
þjónusta enda voru sparisjóðirnir
efstir í ellefu ár samfellt á ánægju-
voginni, en hún mældi ánægju við-
skiptavinanna með þjónustu við-
skipta- og fjármálastofnana.“
Auk þess að sinna fræðslu-
miðstöðinni sinnti Gísli ýmsum öðr-
um störfum hjá sparisjóðunum,
einkum eftir 2005, og var m.a.
markaðsstjóri og
aðstoðarframkvæmdastjóri Sam-
bands sparisjóðanna. Hann starfar
nú hjá Valitor og sinnir ráðgjöf.
Gísli starfaði í Samtökum banka-
manna, sat í varastjórn þeirra og
sat um skeið í stjórn Ámanns.
Áhugamál Gísla snúast um
sumarbústaðinn og trjárækt: „Við
komum okkur upp bústað austur á
Rangárvöllum 1989 sem við köllum
Efstabæ. Ég datt inn í landnema-
hlutverkið, kom þarna að örfoka
landi og hef breytt því í gróðurvin.
Ég hafði fyrst ekkert vit á trjá-
rækt en hef verið að lesa mér til
og er bara stoltur af því sem ég
hef komið þarna í verk í gegnum
árin.
Við förum mikið í bústaðinn, all-
an ársins hring, og það er alltaf
jafn notalegt að skreppa austur og
skipta um umhverfi.“
Fjölskylda
Eiginkona Gísla er Anna Antons-
dóttir, f. 31.3. 1957, viðurkenndur
bókari. Hún er dóttir Antons Sig-
urðssonar, fyrrv. skólastjóra Ísaks-
skóla, og Önnu Þóru Ólafsdóttur
húsfreyju, sem nú er látin.
Börn Gísla og Önnu eru Elva, f.
20.12. 1973, líf- og næringarfræð-
ingur hjá Embætti landlæknis, bú-
sett í Reykjavík, en maður hennar
er Gunnar Már Pedersen fjármála-
stjóri og eru börn þeirra Anna
Alexandra, Steinar og Brynjar;
Þóra Björk, f. 17.10. 1984, lögfræð-
ingur hjá umboðsmanni skuldara,
en maður hennar er Ólafur Már
Ólafsson og er sonur hennar Gísli
Þór; Anna Lilja, f. 6.6. 1987, læknir
í Reykjavík, en maður hennar er
Ottó Michelsen fjármálaverkfræð-
ingur og er dóttir þeirra Helga
Björk.
Hálfsystir Gísla, samfeðra, er
Anna Margrét Jafetsdóttir, f. 29.5.
1932, fyrrv. kennari og skólastjóri,
búsett í Reykjavík.
Hálfbróðir Gísla, sammæðra, er
Hilmar Bergsteinsson, f. 5.7. 1934,
fyrrv. flugstjóri í Reykjavík.
Alsystkini Gísla eru Elín Jafets-
dóttir, f. 17.11. 1941, sagnfræð-
ingur og viðskiptafræðingur í
Bandaríkjunum, og Hendrik Ja-
fetsson, f. 21.11. 1945, fyrrv. kenn-
ari, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Gísla voru Jafet Egill
Ottósson, f. 4.9. 1906, d. 13.3. 1990,
bifreiðastjóri í Reykjavík, og Fjóla
B. Gísladóttir, f. 14.7. 1913, d. 16.3.
1994, húsfreyja.
Úr frændgarði Gísla Jafetssonar
Gísli
Jafetsson
Ástríður Magnúsdóttir
bústýra á Kaldbak
Árni Árnason
b. á Kaldbak á Rangárvöllum
Guðbjörg Árnadóttir
húsfr. á Seyðisfirði
Gísli Eiríksson
verkam. og sjóm. í Keflavík
Fjóla Blomkvist Gísladóttir
húsfr. í Rvík
Guðríður Jónsdóttir
húsfr. í Nýjabæ
Eiríkur Jónsson
sjóm. í Nýjabæ í Miðneshreppi
Anna Margret Siemsen
húsfr. í Rvík
Hendrik Jón Siemsen
kaupm. í Rvík
Carolina Emelía Rósa Siemsen
húsfr. í Rvík
Ottó N. Þorláksson
skipstj. og fyrsti forseti ASÍ, búsettur í Rvík
Jafet Egill Ottósson
vörubílstj. í Rvík
Elín Sæmundsdóttir
húsfr. á Korpúlfsstöðum
Þorlákur Sigurðsson
b. á Korpúlfsstöðum
Afmælisbarið Gísli í golfi.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Kristín Ólafsdóttir læknirfæddist í Lundi í Lund-arreykjadal 21.11. 1889.
Hún var dóttir Ólafs Ólafssonar,
prests í Lundi í Lundarreykjadal og
síðar prófasts í Hjarðarholti í Döl-
um, og k.h., Ingibjargar Pálsdóttur
húsfreyju.
Ólafur var sonur Ólafs Jónssonar,
kaupmanns í Hafnarfirði, og Mettu
Kristínar Ólafsdóttur húsfreyju, en
Ingibjörg var dóttir Páls Jónssonar
Mathiesen, prests í Hjarðarholti, og
Guðlaugar Þorsteinsdóttur hús-
freyju.
Kristín var systir Jóns Foss lækn-
is; Ástu, móður Ólafs Ólafssonar,
fyrrv. landlæknis; systir Guðrúnar,
móður Ólafs Björnssonar hagfræði-
prófessors, og systir Páls, föður
Ólafar myndhöggvara.
Metta Kristín var systir Maríu,
ömmu Lilju Petersen læknis, Unu,
móður Ástríðar Thorarensen hjúkr-
unarfræðings, Birnu, móður Guð-
rúnar Agnarsdóttur læknis, sem er
móðir Kristjáns Orra læknis, en
systir Guðrúnar er Elín, móðir
Birnu Óskar læknis.
Kristín var eiginkona Vilmundar
Jónssonar landlæknis en börn
þeirra: Guðrún, móðir Þorsteins
heimspekings, Vilmundar ráðherra
og Þorvalds hagfræðiprófessors
Gylfasona; Ólöf, móðir Ólafs fram-
kvæmdastjóra og Kristínar, fyrrv.
fréttamanns Þorsteinsbarna, og
Þórhallur prófessor.
Kristín lauk stúdentsprófi frá MR
1911, var fyrsta konan til að ljúka
embættisprófi í læknisfræði frá HÍ,
1917, og var kandídat við Rigs-
hospitalet í Kaupmannahöfn og
Ullevål Sykehus í Osló. Hún var
starfandi læknir á Ísafirði með
manni sínum þar, 1917-31, og í
Reykjavík 1931 og til æviloka.
Kristín sat m.a. í skólanefnd Hús-
mæðraskólans í Reykjavik og í
barnaverndarnefnd Reykjavíkur um
skeið.
Þau Vilmundur héldu gestkvæmt
menningarheimili á Ísafirði og í
Reykjavík og Kristín var afkasta-
mikill þýðandi og höfundur, m.a. al-
þýðlegra rita um heilsufar.
Kristín lést 20.8. 1971.
Merkir Íslendingar
Kristín
Ólafsdóttir
102 ára
Áslaug Thorlacius
90 ára
Guðrún Magnúsdóttir
Hilmar Hafsteinn Júlíusson
80 ára
Leifur Einarsson
Ragnheiður
Sigurgrímsdóttir
Sigurlaug Guðvarðsdóttir
75 ára
Jónasína S.
Hallmundsdóttir
Svanborg Erla
Ingvarsdóttir
Örn Þorleifsson
70 ára
Guðný Pálsdóttir
Gunnar Valur Jónsson
Hafdís Rut Pétursdóttir
Jón Aðalsteinsson
Steinþóra Vilhelmsdóttir
Vilhjálmur Björnsson
60 ára
Arnheiður Matthíasdóttir
Áskell Másson
Barbara Wieslawa
Kalbarczyk
Danuta Janina Ostolska
Guðmundur Hafþór
Þorvaldsson
Gunnar Bjarnason
Halldór Eiríksson
Halldór Snorri Gunnarsson
Íris Ægisdóttir
Jónína Guðný Bjarnadóttir
Kolbrún Árnadóttir
Kristín H. Karvelsdóttir
Kristján Arnar Helgason
Oddur Ólason
Sigurbjörn Geirsson
Sigurður A. Þorsteinsson
Wanphen Suriyot
Þorvaldur Kjartansson
50 ára
Anna Bjarney
Sigurðardóttir
Anna Lilja Guðjónsdóttir
Ásgeir Ásgeirsson
Benedikt Einarsson
Bjarni Ármannsson
Halldór Torfi Torfason
Ingunn Pálsdóttir
Karl Kristján Hermannsson
Kristinn Þór Guðbjartsson
Sigríður Gunnarsdóttir
Sigríður H. Hálfdánardóttir
Sigrún Pálsdóttir
Sigurgeir Steinar
Þórarinsson
Sindri A. Sigurgarðarsson
40 ára
Bjarni Róbert Blöndal
Ólafsson
Björn Steinar Grétarsson
Borghildur
Guðmundsdóttir
Brynhildur Guðmundsdóttir
Carmelo Berte
Guðmundur G. Reynisson
Guðmundur Kristjánsson
Guðrún Þóra Jónsdóttir
Harpa Barkar Barkardóttir
Hlöðver Sigurðsson
Laimonas Rimkus
Ragnar Heiðarsson
Steinunn Ósk Arnarsdóttir
30 ára
Aldís Gunnarsdóttir
Anna Irena Zieba
Björk Ellertsdóttir
Björk Gunnarsdóttir
Gunnar Örn Birgisson
Inga Fanney Gunnarsdóttir
Ingi Mar Jónsson
Jónína Þ. Friðjónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Guðný ólst upp í
Vesturbænum í Reykjavík,
er þar búsett, lauk MSc-
prófi í markaðsfræði og
alþjóðaviðskiptum frá HÍ
og starfar sem sérfræð-
ingur.
Maki: Haukur Heiðar
Hauksson, f. 1982, læknir
og tónlistarmaður.
Börn: Birna, f. 2006, og
Hrafn, f. 2012.
Foreldrar: Kjartan Már
Friðsteinsson, f. 1951, og
Nína Ólafsdóttir, f. 1955.
Guðný
Kjartansdóttir
40 ára Katrín ólst upp í
Grundarfirði, lauk BEd-
prófi frá KHÍ og er að
ljúka MA-prófi í sér-
kennslufræði frá HA.
Systkini: Valdimar, f.
1963; Jóhanna, f. 1964;
Ragnheiður, f. 1966; Hug-
rún, f. 1970, og Gísli Kar-
el, f. 1977.
Foreldrar: Hulda Valdi-
marsdóttir, f. 1936, fyrrv.
fiskverkakona og skólaliði,
og Elís Gíslason, f. 1932,
fyrrv. skipstjóri..
Katrín
Elísdóttir
30 ára Grétar ólst upp í
Þorlákshöfn, er þar bú-
settur, lauk stúdentaprófi
frá FSU og er leiðbeinandi
við Grunnskólann í Þor-
lákshöfn.
Maki: Júlíana Ármanns-
dóttir, f. 1987, BS í sál-
fræði og leiðbeinandi.
Dóttir: Sólveig, f. 2010.
Foreldrar: Sólveig Páls-
dóttir, f. 1955, fisk-
vinnsluk. og Erlendur Óm-
ar Óskarsson, f. 1950,
fiskv.m. og fyrrv. sjóm.
Grétar Ingi
Erlendsson