Morgunblaðið - 21.11.2013, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hugleiddu að afla þér þjálfunar eða
menntunar sem eykur gagnsemi þína í ver-
öldinni. Ekki efast um getu þína, hún er meiri
en þú heldur.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú beygir og sveigir framhjá hindr-
ununum eins og vínviður og hefur kraftinn
sem þarf til þess að brjóta niður veggi. Burt
með glundroðann, í hvaða mynd, sem hann
kann að birtast.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert tilbúin/n til að taka stórt
skref fram á við. Reyndu að draga úr spenn-
unni á heimilinu með því að sýna sveigj-
anleika. Við annað skaltu leita þér nauðsyn-
legrar aðstoðar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Taktu það ekki of mikið inn á þig, þótt
einhver vinur þinn hlaupi út undan sér. Ekki
taka neitt sem sagt er persónulega og hugs-
aðu áður en þú talar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Að eðlisfari veistu nákvæmlega hver þú
ert og vilt fara. Ræddu framtíðardrauma þína
við aðra og vittu hvað þeir segja.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ákaflega gefandi að aðstoða
aðra þegar aðstæður eru til þess. Leitaðu
uppi gleði því hún bætir og kætir. Allt er auð-
veldara ef þú hugsar jákvætt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er eðlilegt að vera smá taugatrekkt/
ur í atvinnuviðtali. Taktu þér tíma til að sinna
heilsurækt og íhugun.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Himintunglin hvetja til þess að
hið óskilgreinda verði neglt niður. Hvort sem
gengur vel eða illa viltu að það verði eft-
irminnilegt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er tíminn til þess að fara í
gegnum fjármálin og setja sér fjárhags-
áætlun fyrir næsta ár. Vertu samkvæm/ur
sjálfum þér hvað sem á dynur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er góður dagur til að skipu-
leggja einhvers konar samvinnu. Taktu samt
enga óþarfa áhættu. Hlustaðu á það sem
sagt er við þig, það gæti komið þér að góðum
notum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú finnur til samkenndar með öðr-
um og vilt leggja þitt af mörkum. Gerðu þér
glögga grein fyrir tilfinningum þínum áður en
þú lætur til skarar skríða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú lagðir hart að þér í gær og ættir
því að leyfa þér að slaka svolítið á í dag.
Hugsanlega þýðir kannski nánast alltaf nei.
Mikil umræða spannst um lands-leikinn meðal hagyrðinga í
gær. Þórarinn M. Baldursson skrif-
aði á Boðnarmjöð:
Hyggnir taka krók í kring
um knattspyrnunnar forað.
Aðrir gráta Íslending
sem ekki getur skorað.
Hreinn Guðvarðarson var stóísk-
ur eftir tapið:
Lukkan hverful, lánið valt
en ljúft að standa saman.
Þótt við gætum unnið allt
væri ekkert meira gaman.
Davíð Hjálmar Haraldsson kast-
aði fram heilum brag um leikinn eft-
ir að hafa lýst honum í bundnu máli
á Leirnum, póstlista hagyrðinga.
Íslenska þjóðin var heltekin fótboltafári
og fullviss um sæti á HM í knattspyrnu
að ári
en fyrst þurftu Strákarnir okkar við Króata
að keppa
þótt klaufarnir úti í Zagreb því helst vildu
sleppa.
Og Strákarnir okkar við strangasta aga
og prúðir
í sturtubað fóru í Zagreb og litu í búðir,
það gildir hjá öllum – jafnt formanni,
fjármálastjóra
og fótboltakappa – að ekki má drabba
og þjóra.
Þeir stunduðu jóga, með þjálfara fóru
á fundi,
fengu sér porra, við krossgátu hópurinn
undi,
og forsetinn borðaði með þeim og hönd
þeirra hristi,
þeim hitnaði öllum er Dorrit þá blíðlega
kyssti.
Og Strákarnir okkar, svo státnir og fríðir
og rjóðir,
standa í ójafnri keppni við milljónaþjóðir
en heimurinn dáir þær hetjur er geta og
þora.
Svo hófu þeir leikinn og Króatar náðu
að skora.
Og Króata-liðið af krafti og ákafa sótti
uns knattspyrnudómara nóg um þá
einstefnu þótti
og meistari tuðrunnar, Mandzukic, látinn
var róa;
hann miðaði á punginn – en sparkaði
í lærið á Jóa.
Nú voru þeir tíu en mikill var Króata kraftur
og knattleiknin slík að þeir skoruðu fljótlega
aftur
sterkir sem tígrisdýr – strákarnir íslensku
bráðin –
staðan var vonlaus og úrslitin því miður
ráðin.
Draumur um HM varð martröð sem má þó
af læra,
mörgu er áfátt, því hnika má til eða færa.
Hér eftir skyldi því úrslit við mannfjölda
miða
en mörk telji ekki í kappleikjum fótboltaliða.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af landsleik, Mandzukic og fótbolta
Í klípu
„ÉG VINN HÉRNA MEÐ LÆKNANÁMI.
ÉG KEM EFTIR SMÁSTUND OG TEK
BLÓÐÞRÝSTING HJÁ YKKUR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG SKAL GEFA ÞÉR SAMBAND VIÐ
SALERNISSÉRFRÆÐING.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá faðmlag og hrós
á hverjum degi.
UPPLÝSINGAR
LÁTUM
ÆFINGARNAR
BYRJA!
ÉG KEYPTI MÉR
LYFTINGALÓÐ.
HNNNNNG! ÉG
LOFTA ÞEIM EKKI
ÚR BÍLNUM!
LÁTUM
ÆFINGARNAR
ENDA!
ÞAKVIÐGERÐARMAÐURINN
SAGÐIST KANNSKI ÆTLA AÐ
KÍKJA VIÐ HJÁ OKKUR Í DAG ...
Víkverji hefur átt það til að takaþátt í starfi Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann hefur mætt á einstaka
fundi og jafnvel verið kjörinn að-
alaukavaraendurskoðunarmaður
reikninga eins félagsins, til-
tölulega mikilvægt embætti ef svo
færi að aukaaðalendurskoð-
unarmennirnir segðu sig úr
flokknum áður en til næsta aðal-
fundar kæmi. Víkverji hefur því
átt það til að sækja fundi á vegum
flokksins ef áhuginn hefur kvikn-
að, og ef ekkert annað áhugaverð-
ara hefur átt sér stað sama kvöld.
x x x
Víkverji ákvað þó að sleppa ein-um fundi í Valhöll, sem settur
var á þriðjudagskvöldið. Klukkan
átta. Sem sagt í miðjum mikilvæg-
asta leik karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu. Hætt er við því að meira
að segja heitustu áhugamenn um
stöðu Þjórsárvera hafi valið leik-
inn framyfir þennan annars
áhugaverða fund. Stundum hefur
verið spurt út í jarðtengingu
stjórnmálaflokka, og víst er að
hún hefur oft verið meiri en þetta
kvöld.
x x x
Daginn eftir leik mátti alveggreina vonbrigðin ennþá á
samstarfsmönnum Víkverja. Sum-
ir sögðust alltaf hafa vitað að
svona færi. Víkverji reynir samt
bara að hugsa til þess tíma þegar
landsliðið tapaði 3-0 fyrir Liech-
tenstein. Ekki eru liðin meira en
sex ár síðan og þá hefðu menn
hlegið að þeim sem hefði sagt að
svo stuttur tími myndi líða áður
en liðið væri hársbreiddinni frá
því að komast á mesta stórmót
sem íþróttaheimurinn hefur upp á
að bjóða að frátöldum Ólympíu-
leikum.
x x x
Þá er það einnig vert að getaþess að við Íslendingar getum
nú stært okkur af því að vera óop-
inberir Norðurlandameistarar í
knattspyrnu. Það voru bara við og
Svíar sem komust í umspilsleikina
af frændþjóðunum, og þar af töp-
uðu Svíar báðum sínum leikjum,
en við náðum þó einu jafntefli. vík-
verji@mbl.is
Víkverji
Treystu Drottni af öllu hjarta en
reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
(Orðskviðirnir 3:5)