Morgunblaðið - 21.11.2013, Side 40
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 325. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Fær ekki vinnu og missir bótarétt
2. „Blóðslettur um allan bíl“
3. Stefán Karl gerir allt vitlaust í ...
4. Fögnuðu sigri með fasistakveðju
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Þrír ungir kvikmyndagerðarmenn,
Akureyringarnir Þorsteinn Krist-
jánsson, Úlfur Logason og Kristján
Blær Sigurðsson, unnu til verðlauna í
flokki 14-16 ára á kvikmyndahátíðinni
Laterna Magica sem fór fram í Vest-
erålen í Noregi 18. nóvember sl. Verð-
launin hlutu þeir fyrir grínheimilda-
myndina Þórgný sem fjallar um 16
ára dreng sem telur sig vera fyrsta
íslenska mafíósann, að því er segir í
tilkynningu. Laterna Magica er svæð-
isbundin kvikmyndahátíð fyrir börn
og unglinga í Vesterålen sem fer fram
í lok nóvember á hverju ári.
Hlutu verðlaun á
Laterna Magica
Útgáfuhóf
vegna fyrstu
skáldsögu Óskars
Magnússonar,
Látið síga piltar,
verður haldið í
dag í kl. 17 í versl-
un Eymundsson í
Austurstræti. Tvö
smásagnasöfn
hafa áður verið gefin út eftir Óskar,
Borðaði ég kvöldmat í gær? og Ég sé
ekkert svona gleraugnalaus.
Útkomu skáldsögu
Óskars fagnað
Hið íslenska glæpafélag heldur í
kvöld sitt árlega glæpakvöld á Bast
Reykjavík, Hverfisgötu 20. Lesið
verður upp úr nýjum íslenskum
glæpaverkum og nokkrir erlendir
gestir alþjóðlegu glæpahátíðarinnar
Iceland Noir láta ljós sitt
skína. Kvöldið hefst með
glæpsamlegum djassleik
kl. 19.30. Stefán Máni
er meðal þeirra höf-
unda sem hefur
verið boðið að
lesa upp.
Glæpakvöld í kvöld
Á föstudag Vestlæg átt, 3-10 m/s og stöku él, en yfirleitt létt-
skýjað austanlands. Frost 0-10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norð-
an og austan, en frostlaust við suðurströndina.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan og vestan 10-20 m/s hvassast
norðantil, væta víða á landinu, síst suðaustanlands. Sums staðar
hvassari vinsdstrengir við fjöll um landið norðanvert. Hiti 1-8 stig.
VEÐUR
„Mér hefur alltaf þótt vænt
um Eið Smára, hef þekkt
hann frá blautu barnsbeini,
spilaði með pabba hans og
var svo með honum hjá
Bolton. Maður hefur miklar
taugar til hans þannig að
maður fann virkilega til með
honum einmitt á þessum
tímapunkti í gær og táraðist
með honum. Ég held að ég
hafi grátið meira í gær en
þegar ég sjálfur hætti,“ seg-
ir Guðni Bergsson. »2-3
Fann virkilega til
með Eiði Smára
„Þessi yfirvegaði og þrautreyndi Svíi
sem unnið hefur hug og hjörtu ís-
lensku þjóðarinnar á undanförnum
tveimur árum má ekki ganga Knatt-
spyrnusambandinu úr greipum. Hann
verður að halda áfram því frábæra
starfi sem hann hefur unnið að und-
anfarin tvö ár
með lands-
liðið ásamt
Heimi
Hall-
gríms-
syni,“
skrifar Ív-
ar Bene-
diktsson
m.a. í
viðhorfs-
grein frá
Zagreb. »4
Lagerbäck má ekki
ganga KSÍ úr greipum
Hólmbert Aron Friðjónsson, fram-
herjinn efnilegi, samdi í gær við
skoska stórliðið Celtic til fjögurra
ára. Hann verður fyrsti Íslending-
urinn sem spilar í Skotlandi síðan
Kári Árnason yfirgaf Aberdeen vorið
2012. Jóhannes Eðvaldsson, kallaður
„Búbbi“, spilaði í fimm ár við góðan
orðstír með Celtic og var í miklu
uppáhaldi hjá stuðningsmönnum. »1
Hólmbert mættur á
„Búbba“-slóðir
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Það er mjög gaman að sjá breyt-
inguna á börnunum, hvernig þau að-
lagast vatninu og auka þannig ör-
yggi foreldranna í leiðinni,“ segir
íþróttakennarinn Ólafur Ágúst
Gíslason um árangur sundkennslu
ungbarna, sem hann hefur sinnt í
um 12 ár á Reykjalundi. „Ég kalla
þessa nálgun, þessa samveru, óska-
stund fjölskyldunnar.“
Aðstaða til ungbarnasunds í nýju
innisundlauginni á Reykjalundi í
Mosfellsbæ er mjög góð enda allt til
alls, hvort sem um er að ræða æf-
ingalaugina eða endurhæfingarlaug-
ina, búningaaðstöðu, skiptiborð eða
rétt hitastig. „Fólk kemur enda aft-
ur og aftur eftir því sem börnunum
fjölgar í fjölskyldunni, líka á fram-
haldsnámskeið og það kemur víðs
vegar að, meðal annars frá Keflavík
og Hveragerði,“ segir Ólafur. „Ég
hef fengið um 1.800 til 2.000 börn til
mín á þessum 12 árum, ekkert
þeirra er vatnshrætt og það er næg
hvatning til þess að halda áfram.“
Einstök samverustund
Ólafur hefur verið íþróttakennari
frá 1978 og þar af í Garðaskóla í
Garðabæ frá 1980. Hann byrjaði að
kenna ungbarnasund í Noregi eftir
að hafa útskrifast þar sem ung-
barnasundskennari um áramótin
1999/2000, en hefur kennt ung-
barnasund á Reykjalundi frá 2001.
Ólafur leggur áherslu á að pabb-
arnir séu með, því þeir upplifi ekki
sömu nánd við nýfæddu börnin og
mæðurnar, sem hafi þau á brjósti og
séu því alltaf í náinni snertingu.
„Ungbarnasundið er einstök sam-
verustund barns og foreldris,“ segir
hann og leggur áherslu á að kynna
foreldrum vel efnið fyrir fyrsta tíma
í lauginni. „Ágústa Guðmarsdóttir
orðaði þetta svo vel í pistli sem hún
skrifaði 2001, þegar hún sagði að
ungbarnasund væri óskabyrjun
hvers barns út í heiminn. Hreyfingin
hefur jákvæð áhrif á barnið sem ein-
stakling, styrkir ónæmiskerfið og
það sefur betur,“ segir hann.
Síðan 1989 hafa Ólafur og Elín
Birna Guðmundsdóttir boðið upp á
líkamsrækt fyrir almenning í Garða-
bæ. Menn á öllum aldri mæta tvisvar
í viku auk þess sem félagslega þætt-
inum er vel sinnt. „Mínir menn gefa
mér mikið og það er ögrandi verk-
efni að vera kennari unglinga en
ungbarnasundið er mest gefandi.
Það jafnast ekkert á við brosið hjá
börnunum og foreldrunum þegar
barnið kemur upp úr köfun.“
Óskastund fjölskyldunnar
Hefur fengið um 1.800 til 2.000 börn
í ungbarnasund á um tólf árum
Morgunblaðið/RAX
Ungbarnasund Ólafur Ágúst Gíslason íþróttakennari með Hlöðver Gunnar Sæmundsson, um fimm mánaða gamlan, í sundtíma í innilauginni á Reykjalundi.
Ungbarnasund er fyrir börn á
aldrinum þriggja mánaða til sex
mánaða og jafnvel eldri. Til-
gangurinn með því er að barnið
aðlagist vatninu auk þess sem
öll hreyfing eflir líkamlegan og
andlegan þroska þess. Öryggi
barnsins í vatni eykst og for-
eldrar komast í aukna snertingu
við það. „Ég legg mikið upp úr
söng samfara hreyfingunni og
þessi leikur skilar sér í aukinni
vellíðan fjölskyldunnar,“ segir
Ólafur. Námskeið hans saman-
standa af tveimur tímum á viku
í fjórar vikur.
Hreyfing og
vellíðan
UNGBARNASUND