Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 1. D E S E M B E R 2 0 1 3
288. tölublað 101. árgangur
HÁKON PÁLSSON
VANN MEÐ
ISAAC JULIEN
HJALTALÍN
MEÐ ÁTTA
TILNEFNINGAR
JANA BYRJAR AÐ
HLUSTA Á JÓLA-
LÖGIN Á HAUSTIN
VERÐLAUN 2013 38 TÓNLEIKAR 10VERK Í NEW YORK 40
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Tugþúsundir Suður-Afríkubúa og nærri 100 þjóðarleiðtogar sóttu minningarathöfn um Nelson Mandela, fyrrver-
andi forseta Suður-Afríku, á íþróttaleikvanginum í Soweto í gær. Viðstaddir létu úrhellisrigningu ekki á sig fá og
sungu og dönsuðu til að heiðra ævi mannsins, sem samlandar hans kölluðu Madiba eða Tata, „föður“. Fjöldi fyr-
irmenna ávarpaði viðstadda og Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði meðal annars að
Mandela hefði tekist látnum það sem honum tókst í lifanda lífi, að sameina fólk með ólíkar skoðanir. »24
Lofsungu hetjuna Madiba
EPA
Tugþúsundir minntust friðarleiðtogans Nelsons Mandela
Afli línuskipa og togara hefur yfirleitt
verið góður í haust og upp á síðkastið
hafa mörg skipanna verið að veiðum
norður af Horni. Gott verð fæst nú
fyrir fersk flök í Bretlandi og Banda-
ríkjunum og saltfiskmarkaðir hafa
heldur rétt úr kútnum að und-
anförnu, að sögn Gunnars Tóm-
assonar, framkvæmdastjóra hjá Þor-
birni í Grindavík. Hann segir að
eftirspurn sé greinilega að aukast á
Spáni og Ítalíu og áætlar að í ár verði
saltfiskur seldur frá Íslandi fyrir um
30 milljarða króna.
„Aflabrögð hafa verið mjög góð í
haust og ekki betri í langan tíma,“
segir Gunnar. Línuskip fyrirtækisins
landa nú yfirleitt á þriggja til fjög-
urra daga fresti til að tryggja sem
mestan ferskleika. Fyrst í haust var
landað á Djúpavogi en síðustu vik-
urnar aðallega á Skagaströnd. Aflan-
um er síðan ekið til vinnslu hjá Þor-
birninum í Grindavík. aij@mbl.is »18
Aflabrögð
með besta
móti í haust
Markaðir fyrir
saltfisk á uppleið
Ljósmynd/Kristinn Benediktsson
Á línuveiðum Um 45 þúsund krók-
ar og 20 kílómetra lína er algengt.
Amerískur
flækingsfugl,
sem heitir Lin-
coln’s Sparrow í
Vesturheimi,
hefur hleypt
miklu fjöri í hug-
myndaflug ís-
lenskra fugla-
áhugamanna.
Fugl af þessari
tegund sást í
fyrsta skipti á Íslandi í Hafnarfirði
á laugardaginn var. Það var einnig
í fyrsta skiptið sem hann sást í Evr-
ópulandi, að undanskildum Azor-
eyjum.
Fuglinn var nefndur brjósttitt-
lingur fyrir 11 árum en þegar
fulltrúi tegundarinnar kom til
landsins skutu enn fleiri nafna-
tillögur upp kollinum. Þeirra á
meðal eru mýrtittlingur, rákatitt-
lingur, seylutittlingur og þallartitt-
lingur, svo nokkuð sé nefnt. »4
Leitað að nafni á
nýjan landnema
Fuglinn Margar til-
lögur eru á sveimi.
Samkvæmt
nýrri tilskipun
Evrópusam-
bandsins stendur
til að takmarka
afl í ryksugum.
Frá og með
næsta hausti
verður aflið tak-
markað við 1.600
vött en algengt er að ryksugur til
heimilisnota séu í dag á bilinu 1.800
til 2.000 vött. Þessar reglur ESB
eiga svo aftur að breytast 1. sept-
ember árið 2017 þegar hámarks-
aflið verður minnkað niður í 900
vött. Tilgangurinn með þessu nýja
regluverki er að stuðla að minni
raforkunotkun. Í reglugerð ESB
kemur fram að árið 2005 notuðu
ryksugur í Evrópu árlega 18 tera-
wattstundir af raforku, en til sam-
anburðar er árleg raforkufram-
leiðsla Landsvirkjunar um 12
terawattstundir. »6
ESB minnkar aflið
í ryksugunum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Um síðustu mánaðamót var samn-
ingum lokið hjá 806 einstaklingum í
greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni
skuldara og lauk þar af 665 málum
með 100% eftirgjöf skulda. Jafngild-
ir það því að 82% þeirra sem hafa
lokið samningi fái fulla eftirgjöf.
Um er að ræða skuldir án veðs en
fasteignalán heyra einnig undir
greiðsluaðlögunina. Geta þeir sótt
um greiðsluaðlögun sem ráða ekki
lengur við afborganir lána og eru í
verulegum greiðsluerfiðleikum.
Til viðbótar hafa um 1.250 um-
Allt að 100% afskrifað
Alls 665 umsóknum um greiðsluaðlögun hefur lokið með fullri eftirgjöf skulda
Umboðsmanni skuldara hafa borist alls 5.000 umsóknir um greiðsluaðlögun
sækjendur fengið samning um
greiðsluaðlögun sem gildir í að há-
marki 36 mánuði. Renna nýjustu
samningarnir því út í árslok 2016.
Þessar upplýsingar fengust hjá
umboðsmanni skuldara en alls hafa
embættinu borist um 5.000 umsóknir
um greiðsluaðlögun síðan árið 2010.
Hundruðum mála lýkur 2014
Á næstu tólf mánuðum lýkur 628
samningum með ákveðnu uppgjöri
skulda en á þeim tíma taka einnig
gildi samningar þar sem tímabil
greiðsluaðlögunar er ekkert eða
styttra en tólf mánuðir. Af málunum
806 þar sem búið er að semja um
málalok greiðsluaðlögunar voru 274
tilvik þar sem kröfur í fasteignaveð
komu við sögu. Af þeim fóru 50 mál
til sýslumanns og lauk 33 þeirra með
niðurfellingu fasteignaveðkrafna.
Var niðurfellingin að meðaltali 7,4
milljónir. Spurð hvaða áhrif boðuð
leiðrétting á íbúðalánum muni hafa á
eftirspurn eftir greiðsluaðlögun seg-
ir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðs-
maður skuldara, að aðgerðin gagnist
ekki öllum. Hins vegar skapi fyrir-
huguð frestun nauðungarsölu skjól.
Hún hafði heildarupphæð af-
skrifta ekki á takteinum.
MMargir bíða »6
Langflestir fá eftirgjöf
» Hinn 30. nóvember sl. var
806 samningum lokið og af
þeim eru 665 með 100% eftir-
gjöf, 113 með hlutfallslega
eftirgjöf og 28 með enga.
» Meðallengd samnings um
greiðsluaðlögun á árinu 2013
er 21,1 mánuður.
» Það voru, til samanburðar,
30,5 mánuðir árið 2011 og 24,3
mánuðir í fyrra.
Stekkjastaur kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
dagar til jóla
13