Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Ferðafélag íslands • www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533 Birtist á heimasíðu FÍ fimmtudaginn 12. desember Skráðu þig inn – drífðu þig út Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands 2014 www.fi.is Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Um 5.600 einstaklingar hafa leitað til VIRK starfsendurhæfingar- sjóðsins frá því að farið var að veita þessa þjónustu haustið 2009. Að- sóknin fer vaxandi og hefur aukist um 66% nú á haustmánuðum miðað við sama tíma í fyrra, skv. upplýs- ingum Vigdísar Jónsdóttur, fram- kvæmdastjóra VIRK. Markmið VIRK er að draga markvisst úr líkum á því að launa- fólk hverfi af vinnumarkaði vegna langvarandi veikinda og bjóða upp á úrræði í starfsendurhæfingu. Meirihluti efnahags- og við- skiptanefndar bendir á í nýju nefndaráliti um forsendur fjárlaga- frumvarpsins að miklir fjármunir hafi safnast upp hjá VIRK án þess að þeir nýtist og var eigið fé sjóðs- ins 1,5 milljarðar um seinustu ára- mót. Spurð um þetta segir Vigdís í skriflegu svari til blaðamanns að samið hafi verið um stofnun VIRK – starfsendurhæfingarsjóðs í kjara- samningum á árinu 2008 og það ár hófu atvinnurekendur að greiða 0,13% gjald í sjóðinn. „Tekjur inn í sjóðinn komu því strax af fullum þunga en það tekur hins vegar tíma að byggja svona starfsemi upp. Ég var t.d. eini starfsmaður VIRK í ágúst 2008 en í dag starfa 20 manns á skrifstofu VIRK og 43 ráðgjafar eru á vegum VIRK hjá stéttar- félögum um allt land auk þess sem við kaupum þjónustu af þverfagleg- um matsteymum og fjölda mismun- andi sérfræðinga og úrræðaaðila um allt land,“ segir Vigdís „Á meðan sjóðurinn hefur verið í uppbyggingu hefur því safnast upp ákveðinn varasjóður – sem er líka nauðsynlegt því sjóðurinn er ekki með ríkisábyrgð og það eru tals- verðar sveiflur í starfseminni sem við þurfum að geta mætt og við þurfum að geta staðið við fjölda samninga sem oft eru gerðir til lengri tíma. Stjórn VIRK hefur metið það svo að fyrir hendi þurfi að vera varasjóður sem nemur 6-12 mánaða rekstri. Lífeyrissjóðirnir hófu síðan að greiða til VIRK í lok síðasta árs og starfsemin hefur áfram verið í mjög mikilli uppbygg- ingu á þessu ári og sú uppbygging mun halda áfram á næstu árum,“ bætir hún við. 70% með vinnugetu eftir að hafa notið þjónustu VIRK Í dag eru um 1.800 einstaklingar í þjónustu á vegum VIRK. Eins og fyrr segir er aðsóknin mjög mikil. „Til okkar leita líka sífellt fleiri ein- staklingar sem hafa verið frá vinnu- markaði í langan tíma og eru að glíma við mjög flókin vandamál,“ segir Vigdís. „Árangur af starfsendurhæfingu hér á landi er mjög góður og um 70% þeirra einstaklinga sem ljúka þjónustu á vegum VIRK eru með vinnugetu og fara annaðhvort í launað starf, í virka atvinnuleit eða í lánshæft nám. Það er til mikils að vinna í þessu starfi þar sem tugir og upp í hundruð milljóna sparast í bótagreiðslur fyrir hvern einstak- ling sem fer í vinnu í stað þess að vera á lífeyri og er þá ekki reikn- aður með sá ávinningur sem fæst með auknum lífsgæðum einstak- linga og minni þörf fyrir heilbrigð- isþjónustu til framtíðar. Hér er því um að ræða mikla fjárfestingu í fólki til framtíðar,“ segir Vigdís. Hún bendir líka á að þrátt fyrir að Íslendingar hafi gengið í gegn- um eina mestu efnahagslægð síðari tíma á undanförnum árum hafi ekki fjölgað mikið nýjum einstaklingum inn á endurhæfingar- og örorkulíf- eyri. „Þeir sem fengu í fyrsta sinn úr- skurðað 75% örorkumat hjá TR voru t.d. heldur færri á árinu 2012 en árið 2008. Það er líklegt að aukin starfsendurhæfing hafi þarna haft eitthvað að segja auk ýmissa ann- arra þátta,“ segir hún. Aðsókn til VIRK jókst um 66% í haust  Framkvæmdastjóri VIRK segir að þörf hafi verið á að byggja upp varasjóð sem nemur um 6-12 mánaða rekstri Úrræði Sífellt fleiri einstaklingar sem hafa verið frá vinnumarkaði í langan tíma og glíma við flókin vandamál hafa leitað til VIRK að undanförnu. Morgunblaðið/Ómar Framlag til starfsendurhæfingar- sjóða er þrískipt og kemur frá at- vinnurekendum, lífeyrissjóðum og ríkinu. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2014 er gert ráð fyrir 298 millj- ónum til VIRK – starfsendurhæfing- arsjóðs en að þreföldun greiðsln- anna, sem lög og samkomulag stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar- ins gerir ráð fyrir, verði frestað um eitt ár. Framlag ríkisins er tiltekinn hluti af gjaldstofni tryggingagjalds og hefði að óbreyttu leitt til 629 millj- óna króna hækkunar á næsta ári. Í nýju nefndaráliti meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar með frumvarpi um forsendur fjárlaga- frumvarpsins er um þetta fjallað og segir þar að komið hafi fram gagn- rýni á fundum nefndarinnar á að með því að fresta hækkun framlags- ins sé farið gegn samkomulagi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar- ins. „Þá var bent á að starf VIRK – starfsendurhæfingarsjóðs hafi ekki þróast eins og vænst var vegna þess að enn hefur ekki verið horfið frá löngu úreltu örorkumati og starfs- getumat tekið upp þess í stað. Fram kom að starfsgetumat og forsendur þess séu til umfjöllunar í nefnd sem velferðarráðherra hefur skipað,“ segir í nefndarálitinu. „Miklir fjármunir hafa safnast upp hjá VIRK – starfsendurhæfing- arsjóði án þess að þeir nýtist. Að mati meirihlutans er slíkt ekki skyn- samlegt þegar tekið er tillit til fjár- hagsstöðu ríkissjóðs. Um síðustu áramót nam eigið fé VIRK – starfs- endurhæfingarsjóðs um 1.500 millj- ónum króna og hafði vaxið um 400 milljónir á árinu 2012. Meirihlutinn gerir sér þó grein fyrir að þegar grundvöllur starfsgetumats verður treystur með lögum frá Alþingi og starfsendurhæfingarsjóðir fá eðli- lega virkni mun þörf fyrir fjármagn úr ríkissjóði verða knýjandi,“ segir þar ennfremur. „Miklir fjármunir hafa safnast upp“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.