Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Smáauglýsingar Antík Úrval af borðstofuhúsgögnum, stólum, skápum, borðum. Gjafavörur, postulín, kristall, silfur, styttur, kertastjakar o.fl. Opið frá kl. 10 til 18. Laugardaga frá kl. 11 til 16. Skúlatúni 6. Sími 553 0755 – antiksalan.is Hljóðfæri Tómstundir Borðtennisborð frá Adidas Ti.200 roller-borðtennisborð. www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920. Frábært fótboltaspil Svo fer ekkert fyrir því eftir notkun. FFT13-4LN Verð: 39.900 kr. m/vsk. www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920. Til sölu Kristalsljósakrónur, glös, skart- gripir. Glæsilegar kristalsljósakrón- ur, veggljós, matarstell og kaffistell, kristalsglös, styttur og skartgripir til sölu. BOHEMIA KRISTALL, Grensásvegi 8. S. 571 2300. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is s. 551-6488. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Ýmislegt Teg. KENZA Vandaðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 37–40. Verð: 21.850. Teg. 06023 Þægilegir og vandaðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Stærðir: 37–40. Verð: 17.900. Teg. 0191 Flottir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Vetrarsóli. Stærðir: 37–40. Teg. 0327 502 Vandaðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 37–40. Verð: 18.885. Teg. 01327 Vandaðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 37–40. Verð:16.985. Teg. 0327 504 Vandaðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 36 –40. Verð: 18.885. Bílar Skoda Octavia 1,9 Diesel 5/2010 Ekinn 96 þús. km. Eyðsla 5,1 L í blönduðum akstri. Skynsamlegur bíll á lægra verði en flestir meira eknir 2008 Skodar. Verð: 2.225.000. www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið kl. 12-18 virka daga. BílaþjónustaHúsviðhald Tek að mér ýmis verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Glerjun og gluggaviðgerðir Lása- og hurðaviðgerðir ásamt öðrum smíðaverkefnum. Kortaaðgangskerfi fyrir húsfélög/ sameignir - engir lyklar. Glugga- og hurðaþjónustan, s. 895 5511, smidi.is Daewoo Nubira árg. 2004 til sölu Ek. 83.000 km. Sjálfsk. Leður inn- réttingar. Topplúga. Rafmagn í öllu. DVD spilari m/magasíni. Verð 850 þús. Tilboð 590 þús. Upplýsingar í síma 866 0784. Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga urferðina og allar þær yndislegu stundir sem við áttum á fallega heimili þeirra Andrésar, ömmu okkar eða foreldra minna. Elsku Andrés, Andrés yngri, Íris, Bergþór og fjölskyldur, hug- ur okkar er hjá ykkur. Megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Guð varðveiti þig, elsku frænka. Kjartan, Berglind og Jóhanna Lóa. Elsku Dóra vinkona mín er dá- in. Við höfum þekkst frá því við vorum í 7 ára bekk í Miðbæjar- skóla þar sem við vorum saman í leikfimi. Við fluttum báðar inn í Voga þegar við vorum 10 ára og fórum í Langholtsskóla. Við vor- um oft samferða í strætó og kynntumst betur. „Bestu bestu vinkonur“ urðum við í Vogaskóla er við lentum saman í „öðrum bekk í Gaggó“. Þegar skóla lauk og við tók vinna, vann ég inni í Vogum en Dóra í miðbænum, ég var svo heppin að hafa bíl til um- ráða á vinnutíma og gátum við hist og borðað saman í hádeginu nán- ast alla daga í miðbænum, svo á kvöldin hafði Dóra bíl til umráða og fórum við saman allflest kvöld á „rúntinn“ og svo í Glaumbæ um helgar eins og unglingar gerðu í þá daga. Við fórum saman í ferðir til Akureyrar, í Borgarnes, Skorradal, Þórsmörk og til Lond- on, svona mætti lengi telja. Þetta voru yndisleg ár. Ef við ekki gerð- um eitthvað saman, töluðum við saman í síma. Þegar við svo hittum maka okkar og stofnuðum heimili flutti ég út á land, þá urðu sam- verustundirnar færri eins og gengur, en við héldum samt góðu sambandi. Við fórum saman í úti- legur með börnin og ég fór yfirleitt í heimsókn til Dóru og Andrésar eins oft og ég gat. Eftir að börnin fluttu að heiman, og við komin á jeppa, fórum við í bíltúra, skoðuð- um gosið á Fimmvörðuhálsi, Landeyjahöfn í byggingu, Veiði- vötn og fleiri staði, slógum svo upp sameiginlegri matarveislu þegar heim var komið. Dóra og Andrés fóru mjög oft í sumarbústað í Þjórsárdalinn, alltaf létu þau mig vita og fór ég þangað ýmist ein eða við hjónin og nutum við yndislegr- ar samveru Dóru, Andrésar og barnanna og ekki má gleyma elda- mennsku Andrésar, sem er algjör listakokkur. Það er erfiðara en tárum taki að missa bestu vinkonu sína á besta aldri, en minningarn- ar lifa. Við Dóra töluðum mjög oft saman í síma og rifjuðum upp ung- lingsárin, mikið gátum við hlegið og skemmt okkur við það. Við gát- um líka talað saman um allt og treyst hvor annarri. Andrés hefur ekki bara misst eiginkonu sína, heldur einnig allra besta vin sinn. Elsku Andrés, Andrés jr., Íris, Bergþór, Jón Þór og fjölskyldur, elsku Lóa, Olli, Nanna og fjöl- skylda, við Garðar og börnin okkar vottum ykkur okkar innilegustu samúð, megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Elsku Dóra, hvíl þú í friði, þakka þér trausta og frá- bæra vináttu sl. 50 ár. Þín vinkona, Erla. Lífið er dans á þyrnum en ein- staka sinnum rekst maður á rós. Svo segir í dönsku máltæki. Þetta átti svo sannarlega við þegar ég kynntist sómakonunni Halldóru Bergþórsdóttur fyrir um það bil 13 árum. Leiðir okkar lágu saman á sameiginlegum vinnustað hér í borg. Með okkur tókst fljótt sönn vinátta sem hélst alla tíð upp frá því. Halldóra var trú og trygg vin- kona sem vildi ávallt vel. Hún var jákvæð, glaðlynd, viðræðugóð og átti gott með að setja sig í spor annarra. Hún dæmdi aldrei, heldur lagði gott til málanna. Við gátum oft rætt um alla heima og geima. Það brást ekki að maður fylltist betri líðan eftir samtöl við Hall- dóru. Halldóra var falleg kona, mikil reisn yfir henni og brosið ósvikið. Hún var stolt af fjölskyldu sinni, eiginmanni, börnum, tengdabörn- um og barnabörnum. Full þakk- lætis fyrir þau öll og þreyttist aldr- ei á að segja frá þeim sem voru henni svo kær. Það er erfitt að sætta sig við að Halldóra sé nú horfin á braut svo snemma en enginn veit sinn næt- urstað. Að endingu vil ég þakka fyrir það lán að hafa fengið að kynnast Halldóru. Fjölskyldu hennar bið ég guðs blessunar. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri’ en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Blessuð sé minning Halldóru Bergþórsdóttur. Elín Davíðsdóttir Aðventan er að byrja og jólin, hátíð ljóss og friðar, eru að nálg- ast þegar við fáum þá harma- fregn að Dóra vinkona okkar sé látin. Hrifin brott frá eiginmanni, börnum, barnabörnum og allri fjölskyldunni sem hún unni svo mjög. Á lífsleiðinni kynnumst við fjölda fólks sem kemur og fer en á milli annarra myndast bönd sem ekki slitna. Slík vinátta er svo óendanlega mikilvæg þar sem vinir fylgjast að og taka þátt í gleði og sorgum hver annars. Þótt tími líði á milli samfunda skiptir það ekki meginmáli en ánægjan verður því meiri þegar fólk hittist. Því er það svo á tíma- mótum sem þessum að söknuður- inn brýst fram og við þráum fleiri samverustundir. Leiðir okkar lágu fyrst saman á Kanaríeyjum árið 1977 þar sem Dóra og Andrés voru ásamt frumburðinum Andrési yngri. Þar hófst vinátta sem hefur hald- ist síðan. Minnisstæðar eru sum- arbústaðaferðir í Þjórsárdalinn og norður í land ásamt nokkrum ferðum í Grafninginn en þá höfðu Íris og Bergþór bæst í hópinn. Samvera á tímamótum í lífi okkar allra var líka fastur liður í tilver- unni. Dóra var einstaklega hlý manneskja, líka mikill húmoristi og með létta lund. Hún var við- kvæm en að sama skapi sterk sem kom best fram í veikindum hennar á yngri árum. Fjölskyld- an var henni allt og var sérlega fallegt samband milli þeirra Andrésar og barnanna. Móður sinni reyndist hún af- skaplega vel og er sorg hennar mikil. Við sendum henni okkar bestu kveðjur. Dóru þökkum við hlýju í okkar garð og umhyggju, en í fjölda- mörgum samtölum okkar í gegn- um tíðina sýndi hún alltaf einlæg- an áhuga á velferð okkar og barnanna okkar. Við sendum Andrési, börnun- um og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Góð kona er gengin. Hennar verður sárt saknað. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Sigrún og Ævar. Halldóra Bergþórsdóttir ✝ Elín Magn-úsdóttir fædd- ist 21. maí 1933 í Reykjavík og lést 29. nóvember 2013 á Elliheimilinu Grund. Foreldrar hennar voru Magn- ús Guðsteinn Snorrason Weld- ing, f. 4.10. 1906, d. 8.8. 1966 og Guðný Theodóra Guðna- dóttir, f. 3.5. 1908, d. 8.3. 1999. Elín óst upp hjá föður sínum og eiginkonu hans, Maríu Amalíu Antonsen Theodórsdóttur, f. 7.11. 1908, d. 18.11. 1962. Systk- ini Elínar eru: Snorri, f. 15.4. 1932, lést á öðru ári, sammæðra eru Sjöfn, f. 22.8. 1935 og Gunn- ar, f. 8.8. 1953. Systkini Elínar samfeðra eru Snorri, f. 17.2. 1934, Theodór, f. 3.5. 1940, d. 15.10. 1961, Auður, f. 16.7. 1942, d. 2.2. 1998, Karen, f. 24.9. 1945, Unnur, f. 26.9. 1948, María, f. 9.8. 1951. Elín giftist Jóhannesi Jós- efssyni þann 6.11 1953. Jóhannes var fæddur 15.2. 1930, d. 30.4. 2008. Þau eignuðust fimm börn og þau eru: Sjöfn, f. 9.3. 1954, Gunnar Jósef, f. 14.3. 1956, Elín Theodóra, f. 17.9. 1957, Jóhann Snorri, f. 5.2. 1961, Jóhannes Örn, f. 5.2. 1968. Fyrir átti Elín soninn Magnús Welding Jóns- son, f. 28.1. 1950, d. 31.1. 2013. Barnabörnin eru 12 og lang- ömmubörnin 15. Elín starfaði hjá Sælgætisgerðinni Völu, JL húsinu og svo á Elliheimilinu Grund. Elín verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í dag, 11. desember 2013, og hefst athöfn- in kl. 13. Margar góðar minningar koma upp í hugann þegar ég hugsa til baka. Brúðkaupsferðin okkar til Kanarí árið 2000 og tengdapabbi sjötugur. Ferðin til Benedorm um vorið 2003 þegar þú varst sjötug og við dönsuðum gömlu dansana niðri á strönd við undirleik tveggja harmonikku- leikara sem komu þar óvænt að. Og svo síðasta ferðin okkar sam- an til Tenerife í júní 2010 þegar við öll börnin þín vorum saman með þér í ógleymanlegri ferð. Þú varst svo jákvæð og dugleg að ganga með göngugrindina þína, lestarferðin um bæinn, saltkjöts- veislan og svo gaman hvað allir voru samhentir og svo góðir vin- ir. Þegar ég sat hjá þér nokkrum vikum fyrir andlát þitt og við hlustuðum á jólalögin sendir þú mig út í Melabúð eftir sviðasultu og rófustöppu og við héldum partí í fallega herberginu þínu á Grund. Ótrúlegt en satt var það síðasta máltíðin okkar saman. Þú varst svo hress og kát. Þann 27. nóvember sat ég við rúmið þitt og þú varst svo veik, eitt- hvað svo fjarlæg, en á smá tíma- punkti hresstist þú við, opnaðir augum og baðst mig um að gefa þér að drekka .Við spjölluðum um jólin og sokkaprjón. Þú ætl- aðir að rífa þig upp úr þessum veikindum og koma til okkar um jólin. Elsku Ella mín, takk fyrir allar góðu stundirnar okkar saman. Ég veit að þú ert komin á betri stað og laus við þjáningar þínar. Þú verður í hjarta okkar allra um jólin. Guð blessi minningu þína. Þín tengdadóttir, Anna Guðrún Kristinsdóttir. Elín Magnúsdóttir  Fleiri minningargreinar um Halldóru Bergþórs- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.