Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 CRONUT Opnunartími Dalvegi: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Frá Bandaríkjunum til Evrópu og nú hjá Reyni Bakara í Kópavoginum! CRONUT er snilldar blanda af Crossant og Donut. Nýbakaður og fylltur með vanillufyllingu Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Sími: 564 4700 Laugavegi 174 Sími 590 5040 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 12-16 Einstakt tækifæri til að eignast Audi eðalvagn Við fjármögnum bílinn fyrir þig lykill.is Milano leðurinnrétting Audi A4 2.0 TDI AT Árgerð 2012, dísil Ekinn 35.500 km, sjálfsk. Ásett verð 5.290.000,- Audi A4 Avant 2.0 TDI Árgerð 2011, dísil Ekinn 45.500 km, sjálfsk. Ásett verð 4.790.000,- Audi A4 2.0 TDI Árgerð 2011, dísil Ekinn 57.000 km, beinsk. Ásett verð 4.190.000,- Audi A4 Avant 2.0 TDI AT Árgerð 2012, dísil Ekinn 24.500 km, sjálfsk. Ásett verð 6.250.000,- Krossgátubók ársins 2014 er komin í verslanir. Þetta er 31. árgangur bókarinnar sem hefur ætíð notið mikilla vinsælda hjá áhugafólki um krossgátur. Krossgátubókin er mikil að vöxt- um, 68 síður, og eru gáturnar bæði fyrir nýliða í fræðunum og þá sem lengra eru komnir. Lausnir ann- arrar hverrar gátu eru aftast í bók- inni. Forsíðumyndin er að venju eftir Brian Pilkington teiknara. Hún er af þekktri persónu, Sig- mundi Davíð Gunnlaugssyni for- sætisráðherra. Krossgátubók ársins 2014 fæst í bókaverslunum og öllum helstu blaðsölustöðum landsins. Útgefandi sem fyrr er Ó.P.-útgáfan, Granda- garði 13, Reykjavík, en eigandi hennar er Ólafur Pálsson. Prent- tækni ehf. prentaði. Krossgátubók árs- ins 2014 komin út Jólasveinarnir byrja að tínast til byggða í nótt og sá fyrsti, Stekkj- arstaur, mun hitta börn í Þjóð- minjasafninu í fyrramálið klukkan ellefu. Bræður hans munu síðan koma þar við daglega til jóla og syngja og spjalla við börnin. Grýla og Leppalúði komu í Þjóðminjasafnið um síðustu helgi og á laugardaginn mun Grýla skemmta þar aftur ásamt Stúfi. Dagskráin er öllum opin og er aðgangur ókeypis. Stekkjarstaur í Þjóðminjasafninu Landspítalinn, Þjóðkirkjan og Ný dögun, samtök um sorg og sorg- arviðbrögð, efna til samveru fyrir syrgjendur í Grafarvogskirkju á morgun, fimmtudag, og hefst hún kl. 20. Þar verða sungnir jólasálmar og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð flytur jólalög undir stjórn Þorgerð- ar Ingólfsdóttur. Sr. Sigfinnur Þor- leifsson sjúkrahúsprestur flytur hugvekju og þá verður minning- arstund þar sem kirkjugestir geta tendrað ljós og minnst látinna ást- vina. Samverustund fyrir syrgjendur STUTT Stefnt er að því að opið verði fyrir almenning á skíða- svæðinu í Bláfjöllum í dag. Þegar rætt var við Magnús Árnason, framkvæmdastjóra skíðasvæðanna, í gær sagði hann að þokkalega liti út með skíðaveður næstu daga og bæta myndi í snjóinn. Til þessa hefur aðeins verið opið einn dag fyrir almenning í Bláfjöllum í haust. „Það getur orðið breytilegt veður á næstunni, en snjórinn er ekkert að fara frá okkur,“ sagði Magnús. Vonandi getum við haft sem mest opið næstu daga og um jól og áramót,“ sagði Magnús. Hann sagði að síðustu viku hefði bætt í snjóinn sem fyrst settist í girðingar og manngerðar brekkur. „Þess- ar brekkur eru núorðið opnaðar á undan þeim sem allt- af voru fyrstar hér áður,“ sagði Magnús. aij@mbl.is Opið fyrir almenning í Bláfjöllum í dag Morgunblaðið/Ómar Á uppleið Talsvert hefur bætt í snjóinn í Bláfjöllum síðustu vikuna og verður opið þar í dag fyrir almenning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.