Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Nú þegar rétt tæpt ár er liðið frá því að 23 ára gamalli konu var nauðgað af fimm mönnum í strætisvagni í Nýju-Delí á Indlandi með þeim af- leiðingum að hún lést af sárum sínum skömmu seinna virðist lítið hafa breyst til batnaðar hvað varðar kyn- ferðisofbeldi í landinu. Mikil reiðialda gekk yfir Indland og heimsbyggðina alla í kjölfar nauðgunarinnar hrottalegu. Í kjöl- farið virðast fleiri konur vera reiðu- búnar til að segja frá því að þeim hafi verið nauðgað og fjölmiðlar gefa slík- um málum meiri gaum en áður. Ind- versk stjórnvöld breyttu einnig lög- um um kynferðisglæpi eftir atburðinn. Tvöfalt fleiri stíga fram Engu að síður er mál stúlkunnar sem var nauðgað af hópi manna það eina af 706 nauðgunarmálum sem komu inn á borð lögreglunnar í Nýju- Delí sem endaði með sakfellingu árið 2012. Frá 16. desember 2012, þegar nauðgunin alræmda átti sér stað, til 4. janúar var lögð fram 501 kæra vegna kynferðislegrar áreitni og 64 vegna nauðgana en aðeins fjögur mál voru rannsökuð að því er segir í frétt breska blaðsins The Guardian. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa tæplega helmingi fleiri fórnar- lömb nauðgana stigið fram en á öllu síðasta ári. Könnun sem dagblaðið DNA gerði á meðal kvenna í Mumbai leiddi í ljós að aðeins 15% þeirra fannst þær öruggar þegar þær ferðuðust með al- menningssamgöngum í borginni. Meðvitaðri um ofbeldið Aukin fjölmiðlaumfjöllun hefur þó hjálpað til við að svipta hulunni af djúpstæðum kynferðisofbeldisvanda á Indlandi og fjölmiðlar hafa haldið athygli sinni á slíkum málum frá því að umræðan komst í hámæli í fyrra. „Fjölmiðlar hafa aukið vitund um að Indland á við kynbundið vandamál að stríða. Fólk á loksins í samræðum sem hefði annars verið sópað undir teppið. Þeir eru ennþá ekki að gera nóg til að fræða lýðinn um ofbeldi gegn konum en fjölmiðlaumræðan er loksins að þokast í rétta átt,“ segir Krishna Khunti, góðgerðarstarfs- maður í Mumbai. Fyrir utan að hvetja stjórnmála- menn og lögreglu til aðgerða gegn of- beldinu hefur umræðan unnið gegn því að konur sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi séu smánaðar. Sum fórnarlömb nauðgana hafa jafnvel komið fram undir nafni í sjónvarpi til að stuðla að vitundarvakningu um fjölgun kynferðisárása. Aðeins ein sakfelling í kynferðisbrotamálum  Lítið hefur breyst á Indlandi eftir nauðgunarmálið í fyrra AFP Minning Indverskar stúlkur minnast fórnarlambs nauðgunarinnar í Nýju- Delí. Fjórir nauðgaranna voru dæmdir til dauða fyrr á þessu ári. Tveir franskir fallhlífarhermenn féllu í skærum í Bangui, höfuðborg Mið-Afríkulýðveldisins, í gær. Þetta er fyrsta mannfallið sem franskar hersveitir verða fyrir í landinu frá því að Frakkar bættu við hermönn- um þar á föstudag til að bregðast við óöldinni sem ríkt hefur frá því að Michel Djotodia steypti Francois Bozize forseta af stóli í mars. François Hollande, forseti Frakk- lands, var væntanlegur til Bangui í gær til að ræða við Djotodia. Frönsk stjórnvöld höfðu á mánu- dag lýst því yfir að búið væri að reka vopnaðar sveitir að mestu leyti út úr höfuðborginni. Hátt í fjögur hundruð manns höfðu áður fallið í átökum á milli trúarhópa í borginni á þriggja daga tímabili eftir því sem Rauði krossinn komst næst. Margir þeirra voru börn. Á sumum stöðum svífur enn líklykt yfir vötnum að því er frétta- veitan AFP greinir frá. Þurfa meiri mannskap Enn ríkir mikil spenna í landinu og ætlar Afríkubandalagið að bæta við friðargæsluliðið þar úr 2.500 í 6.000 hermenn. Chuck Hagel, varn- armálaráðherra Bandaríkjanna, hef- ur þegar fyrirskipað bandarískum hersveitum að hjálpa til við að flytja afríska friðargæsluliða frá Búrúndí til Mið-Afríkulýðveldisins að beiðni Frakka. Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, telur að allt að 9.000 friðargæsluliða þurfi til að stilla til friðar í landinu. AFP Gæsla Fólk gengur hjá eftirlitsstöð Frakka í norðurhluta Bangui í gær. Friðargæsluliðar féllu í Bangui  Áfram spenna í Mið-Afríkulýðveldinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.