Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 40
Menning
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Þessi upplýsandi, veglega ogfallega hannaða sýnisbóker gefin út í tilefni þess að350 ár eru liðin frá fæðingu
Árna Magnússonar handritasafnara.
Markmiðið er að kynna lesendum
þau fjölskrúðugu og ólíku verk sem
Árni bjargaði frá glötun á sínum
tíma en alls munu vera í safni hans,
hér í Reykjavík
og í Kaupmanna-
höfn, um 3.000
handrit frá mið-
öldum og síðari
tímum.
Bókin hefst á
líflegri og upplýs-
andi grein Svan-
hildar Óskarsdóttur, „Með handrit á
heilanum – Safnarinn Árni Magn-
ússon“. Er þar dregin upp skýr
mynd af manninum og söfnunar-
ástríðu hans, auk þess sem for-
vitnileg dæmi um aðdáunarvert
kappið og eftirfylgnina við söfnunina
má lesa um í brotum úr sendibréfum
sem hann hefur ritað. Bókin endar
síðan á umfjöllun Soffíu Guðnýjar
Guðmundsdóttur og Laufeyjar
Guðnadóttur um handverkið sem
beitt var við bókagerðina á miðöld-
um. Er það ekki síður upplýsandi
kafli.
Meginhluti bókarinnar er umfjöll-
un um 66 handrit úr safni Árna og
miðast talan við að hann lifði í jafn
mörg ár. Einnig er sagt frá nokkrum
þeirra fjölda fornbréfa sem varðveitt
eru í safninu. Jafn mörg handrit, eða
33 úr hvoru safni, eru kynnt, og hafa
margir fræðimenn skrifað textana.
Við hönnun og frágang bók-
arinnar hefur verið haft að leið-
arljósi að hafa hana sem fallegasta
og gleðja þannig lesandann með því
að færa honum þennan fyrirmynd-
arprentgrip. Oftast takmarkast um-
fjöllun um hvert handrit við eina
textasíðu og er ljósmynd af því á síð-
unni á móti. Þá fylgir hverri kynn-
ingu staðreyndaborði neðst á síð-
unni, þar sem fram koma
upplýsingar á borð við síðufjölda
hvers handrits, efni þess, innihald,
varðveislustað, upprunastað og
skrifara – ef þær liggja fyrir.
Allt myndefni skilar sér vel, hvort
sem um er að ræða myndir af máð-
um og klipptum blöðum Reykja-
fjarðarbókar, glæsilegum síðum
Stjórnar, upprúllað Tröllkonurímið
eða myndlýsingarnar sem skreyta
síður bókarinnar. Lengi er hægt að
rýna í þessar síður og dást að þeim –
og er um að gera að nota tækifærið
hér, því ekki er unnt að ganga inn á
safn að skoða handritin sjálf. Sem er
vitaskuld óboðlegt.
Allur textinn er læsilegur og upp-
lýsandi, eins og vera ber í sýnisbók
sem þessari. Hér er ljósi varpað á
þennan stórkostlega arf, sem stofn-
anirnar tvær varðveita fyrir heiminn
– og lesendur geta nú fræðst um á
aðgengilegan hátt.
Morgunblaðið/Ómar
Upplýsandi Svanhildur Óskarsdóttir sá um útgáfu þessarar vönduðu sýn-
isbókar, þar sem ljósi er varpað á þann stórkostlega arf sem Árnastofn-
anirnar í Reykjavík og Kaupmannahöfn varðveita.
Fjársjóðurinn sem Árni
bjargaði frá glötun
Sýnisbók
66 handrit úr fórum Árna Magn-
ússonar bbbbm
Svanhildur Óskarsdóttir sá um útgáf-
una. Hönnun og umbrot: Líbía Ásgeirs-
dóttir, Næst. Prentvinnsla: Prent-
smiðjan Oddi.
Útgefendur: Den Arnamagnæanske
Samling, Nordisk forskningsinstitut;
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum; bókaútgáfan Opna.
Reykjavík 2013. 232 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Þriggja mínútna hljóðlaus kafli úr
kvikmyndaverki breska listamann-
inn Isaac Julien, Playtime, er nú
sýndur á hverju kvöldi á risaskjáum
Times-torgs í
New York, fram
til 30. desember.
Sýningin er hluti
af verkefninu
Midnight Mo-
ment sem hóf
göngu sína í maí í
fyrra og hafa
verk fjölda
þekktra lista-
manna verið sýnd
á skjáum torgsins
á vegum þess, m.a. myndband við
lag Bjarkar Guðmundsdóttur, „Mu-
tual Core“. Kvikmynd Juliens var að
hluta til tekin hér á landi og Ingvar
E. Sigurðsson og Hollywood-
stjarnan James Franco meðal leik-
ara í henni. Myndinni er skipt í þrjá
hluta sem gerast í jafnmörgum
borgum: Lundúnum, Reykjavík og
Dubai og segir á vef Midnight Mo-
ment að í henni kanni Julien tengsl
fjármagns, listheimsins og ein-
staklingsins. Sá hluti sem snýr að
Reykjavík snýst um lífið eftir efn-
hagshrunið árið 2008. Í galleríinu
Metro Pictures í New York má nú
finna innsetningu eftir Julien þar
sem Playtime er sýnd tvískipt og
önnur mynd henni tengd, Kapital, á
einum skjá auk ljósmynda.
Kvikmyndatökumaðurinn Hákon
Pálsson kom að tökum Playtime,
bæði á Íslandi og í Lundúnum.
„Þessi bútur sem er á Times Square
er úr „single screen“ kvikmyndainn-
setningu sem ég kom að,“ segir Há-
kon og er sú innsetning á sýningunni
í Metro Pictures. Sýningin í Lund-
únum muni fara fram á sex skjáum
og þar af einum sem sé „super
wide“, þ.e. sérstaklega breiður
þannig að tvo myndvarpa þurfi til að
varpa á hann. „Hann er það sem
maður myndi kalla kvikmyndainn-
setningalistamann. Hann notar
kvikmyndatækni og í rauninni var
þetta stórt skref hjá honum því
þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur
upp stafrænt í stað þess að nota
filmu,“ segir Hákon um Julien og
Playtime. Meðal íslenskra tökustaða
í verkinu eru Mývatn og yfirgefið
hús í Mosfellsbæ. Í húsinu fóru fram
tökur með Ingvari en hann leikur
listamann sem fengið hefur að kenna
á kreppunni, að sögn Hákonar. Juli-
en hafi lýst því svo fyrir honum að
hann vildi gera húmaníska mynd um
fjármagn. „Fjármagn sem einhvers
konar afl, nánast eins og þyngdarafl
og hvernig það hefur áhrif á þig.
Hvernig við flæðum öll með því,“ út-
skýrir Hákon. „Íslenski hlutinn
fjallar um það hvað gerist þegar
þetta flæði stöðvast allt í einu.“
Frekari upplýsingar má finna á
vef Julien: isaacjulien.com.
Ísland eftir hrun á risa-
skjáum Tímatorgs
Íslenskur kvikmyndatökumaður vann með Isaac Julien
Ljósmynd/Ka-Man Tse
Tímatorg Verk Julien er sýnt á risaskjáum Times Square á kvöldin, þriggja
mínútna útgáfa sem var útbúin sérstaklega til sýninga þar. Hákon Pálsson
Tölvuleikjaheyrnatól
Þráðlaust heimabíó
Snertiskjár
Verð: 79.990 kr.
Verð: 29.877 kr.
Verð: 154.900 kr.
Heyrnartól á hærra plani
• Fyrir leikina og snjallsímann.
• Hljóðmixer fylgir.
Hefur þú heyrt af nýjasta barnum?
• Mikill hljómur fyrir lítið pláss.
• Aðeins einn hátalari og þráðlaust bassabox.
Yoga er teygjanlegt hugtak
• Fartölva og spjaldtölva í einni græju.
• i3 örgjörvi og 11,6“ skjár.
Allt sem þú
óskar þér
Nýherji / Sími 569 7700 / Borgartúni 37 / Kaupangi Akureyri / netverslun.is
Kláraðu kaupin í verslunum okkar eða á netverslun.is