Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Þingflokkur Vinstri grænnakynnti í gær hvaða leið hefði verið farin í ríkisfjármálum ef flokk- urinn hefði fengið stuðning í kosn- ingunum í vor í stað þess að vera vís- að úr stjórn ásamt samstarfsflokki sínum.    Þessi kynning vargagnleg áminn- ing um að vinstri flokkarnir hafa ekk- ert lært af þeim mis- tökum sem þeir gerðu á síðasta kjör- tímabili og þeirri stöðnun í hagkerfinu sem stefnan olli.    Leið Vinstrigrænna er í anda hótunar Stein- gríms J. Sigfússonar í skattamálum, „you ain’t seen nothing yet“, og ger- ir ráð fyrir að áfram yrði haldið á braut skattahækkana fengi flokk- urinn einhverju ráðið.    Flokkurinn vill taka til baka ölláform um skattalækkanir á al- menning með því að afnema fyrir- hugaða skattalækkun á miðþrep tekjuskattsins.    Þá vill VG hækka sérstakt veiði-gjald og halda þannig áfram á þeirri leið að veikja undirstöðu- atvinnuveg þjóðarinnar og þau fyr- irtæki sem veita honum þjónustu.    Og VG vill framlengja svokallaðanauðlegðarskatt þrátt fyrir að hafa aðeins lagt hann á tímabundið á síðasta kjörtímabili. Sá tímabundni skattur hefði orðið ótímabundinn ef VG hefði fengið að ráða.    Stórfelldar skattahækkanir meðminni hagvexti eru áfram sú leið sem VG vill fara. Hreinskilni flokks- ins er þakkarverð. Katrín Jakobsdóttir Þakkarverð hreinskilni STAKSTEINAR Steingrímur J. Sigfússon Veður víða um heim 10.12., kl. 18.00 Reykjavík 1 snjókoma Bolungarvík 0 skýjað Akureyri 0 léttskýjað Nuuk -10 skafrenningur Þórshöfn 10 skýjað Ósló 8 léttskýjað Kaupmannahöfn 7 þoka Stokkhólmur 2 þoka Helsinki 1 snjókoma Lúxemborg 5 heiðskírt Brussel 7 heiðskírt Dublin 11 skýjað Glasgow 10 léttskýjað London 8 skýjað París 7 heiðskírt Amsterdam 2 heiðskírt Hamborg 7 þoka Berlín 8 skýjað Vín 5 alskýjað Moskva -12 skafrenningur Algarve 16 skýjað Madríd 12 heiðskírt Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 12 heiðskírt Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -25 skýjað Montreal -5 skýjað New York 1 snjókoma Chicago -8 skýjað Orlando 26 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 11. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:10 15:33 ÍSAFJÖRÐUR 11:54 14:59 SIGLUFJÖRÐUR 11:38 14:41 DJÚPIVOGUR 10:49 14:54 Við sérhæfum okkur í vatnskössum og bensíntönkum. Gerum við og eigum nýja til á lager. EKKI SKAFA SKÍTINN Rain-X verndar bílinn gegn frosti og tjöru Rain-X sparar tíma við að skafa Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu www.lodur.is - Sími 544 4540 Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti í gær einróma ályktun þar sem hún lýsir ánægju sinni með ákvörðun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að undirbúa byggingu nýs 6.000 rúmmetra heitavatns- geymis til viðbótar við þann tank sem fyrir er, sem tekur 2.000 rúm- metra. Til stendur að ráðast í fram- kvæmdir næsta sumar en bæjar- stjórnin leggur áherslu á að þegar verði hafist handa við að leita fram- tíðarlausna í hitaveitumálum á Akra- nesi. „Í því felst bæði að hefja til- raunaboranir eftir heitu vatni í nágrenni Akraness og að flýta end- urbótum við Deildartunguæðina eins og kostur er,“ segir í ályktun bæj- arstjórnar. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir að nýi tankurinn muni brúa ákveðið bil en leysi ekki úr þeim vanda sem stafar af háum aldri og takmarkaðri flutningsgetu Deildar- tunguæðarinnar. „Tilraunaboranir taka langan tíma þannig að við viljum að sjálfsögðu gera þetta samhliða. Það þarf að laga Deildartunguæðina því sú hitaveitu- æð er að þjóna öðrum en okkur og það er mjög mikilvægt að hún sé tek- in í gegn,“ segir Regína en af 70 km langri æðinni eigi eftir að endurnýja rúma 40 km og sú framkvæmd kosti á bilinu 3-4 milljarða. Á fundi sínum í gær ákvað bæj- arstjórn Akranesbæjar að gjald- skrár yrðu óbreyttar árið 2014, að undanskilinni hækkun á sorphirðu- gjöldum. holmfridur@mbl.is Fagna byggingu nýs heitavatnsgeymis  Gjaldskrár verða ekki hækkaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.