Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Það hefur sýnt sig að þegar stór- atburðir verða sækir fólk inn á mbl.is,“ segir Soffía Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri mbl.is. Í síðustu viku sóttu 540 þúsund notendur fréttavefinn heim. Það er næst- mesta notkun á vefnum frá stofnun hans fyrir 15 árum. Notkunin mánudaginn 2. desem- ber réð úrslitum um góða aðsókn þótt vikan í heild hafi verið sterk, líkt og undanfarnar vikur. Þess má geta að um nóttina og morguninn var lögreglan með umsátur við fjöl- býlishús í Árbæjarhverfi vegna byssumanns. Þann dag sóttu rösk- lega 258 þúsund stakir notendur mbl.is og náði fjöldinn hámarki á milli klukkan ellefu og tólf. Á þeirri klukkustund voru rösklega 43 þús- und notendur á vefnum. Óvenju- snemma morguns var umferðin orðin viðlíka og um miðjan venju- legan dag. Flettingar á vefnum fóru yfir 2,5 milljónir þennan sólar- hring. Á hefðbundnum mánudegi eru 185 þúsund notendur á mbl.is og 1,6 milljónir flettinga. „Vefurinn hefur sýnt að hann er öflug fréttaveita sem hefur verið í fararbroddi fréttaflutnings á þeim fimmtán árum sem hann hefur ver- ið rekinn,“ segir Soffía. Aðsóknarmet á mbl.is var sett í maí 2011 þegar gaus í Gríms- vötnum. Þá sóttu 584 þúsund not- endur vefinn og voru innan við 60% þeirra á Íslandi. Í síðustu viku voru hins vegar 82% umferðarinnar frá Íslandi og er það í takt við venju- lega umferð. helgi@mbl.is Fólk sækir inn á mbl.is þegar stóratburðir verða  540 þúsund notendur í síðustu viku  Næstmest í 15 ár Notendur á mbl.is 2. des. á hverri klst. 50 40 30 20 10 0 00-01 11-12 23-24 þús. Nú standa yfir framkvæmdir í skíðabrekkunni í Ártúnsholti og samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg er hugmyndin að breikka brekkuna og fylla upp í dæld efst í henni. „Krakk- arnir runnu allir á einn punkt efst í brekkunni og með þessu er verið að koma í veg fyrir slysa- hættu,“ segir Jón Halldór Jónasson, upplýsinga- fulltrúi borgarinnar. Kostnaður við framkvæmd- ina er áætlaður fjórar milljónir króna. Fylla upp í dæld til að koma í veg fyrir slys Morgunblaðið/Golli Framkvæmdir í skíðabrekkunni í Ártúnsholti Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Til stendur að skera niður þróunar- aðstoð, vaxtabætur og á aðalskrif- stofum ráðuneyta í fjárlögum ársins 2014 til þess að rýma fyrir tæplega fjögurra milljarða króna aukningu í framlagi til heilbrigðismála, að sögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- ráðherra. Horfið hefur verið frá áformum um lækkun barnabóta. Bjarni segir að til standi að skera niður um 460 milljónir til þróunarað- stoðar. „Það verður samt sem áður þannig að framlögin verða mun hærri en árin 2011 og 2012, bæði sem hlutfall af þjóðarframleiðslu og í krónutölu,“ segir Bjarni Skorið verður niður um 500 millj- ónir af vaxtabótum. „Við ákváðum að leggja til lækkun á vaxtabótum hjá tekjuhæstu einstaklingunum,“ segir Bjarni spurður um útfærslu á skerð- ingu vaxtabóta. Hann segir að nið- urskurður á aðalskrifstofum ráðu- neytanna sé um 5%. Bjarni segir að þetta séu þrír stærstu niðurskurð- arliðirnir en bendir jafnframt á að fjárlaganefnd eigi eftir að klára um- fjöllun um málið. Á hann von á því að hún muni skila lokaútfærslum að breytingartillögum á fjárlögum næsta árs á morgun. Í framhaldinu verður tillaga að fjárlögum fyrir árið 2014 sett í aðra umferð á þinginu. Mishá framlög til stofnana Segir hann að tillögurnar muni skila upp undir fjórum milljörðum króna, sem lagðar verði í heilbrigð- ismál. „Við ákváðum að hreyfa ekk- ert við barnabótum en þær hafa hækkað verulega og eru langt um- fram verðlag og þær verða miklu hærri en þær voru árin 2011 og 2012,“ segir Bjarni. Hann segir að hugmyndir um út- deilingu fjár til heilbrigðisstofnana verði unnar í samvinnu við heilbrigð- isráðuneytið. Framlög til stofnan- anna verði mishá en hann nefnir þó sérstaklega heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni í þessu samhengi. Hallalaus fjárlög „Aðalmálið tel ég vera að þrátt fyrir stóraukin framlög til heilbrigð- ismála erum við að standa við áform um hallalaus fjárlög. Það er þrátt fyrir að við höfum fyrr á árinu aukið framlög til eldri borgara og öryrkja um 6 milljarða, lækkað skatta á laun- þega og sett 20 milljarða í skulda- lækkanir,“ segir Bjarni. Barnabætur lækka ekki  Þróunaraðstoð, vaxtabætur og aðalskrifstofur ráðuneyta stærstu liðir sem fara undir niðurskurðarhnífinn í fjárlögum næsta árs  Fjórir milljarðar í heilbrigðismál Morgunblaðið/Ómar Fjárlögin Bjarni Benediktsson vinn- ur að breytingum á fjárlögum. Hin heimskunni bandaríski tón- smiður og píanóleikari Philip Glass kemur fram á tónleikum í Hörpu 28. janúar næstkomandi, ásamt Víkingi Heiðari Ólafssyni og japanska píanó- leikaranum Maki Namekawa. Glass, sem er 76 ára, er að mestu hættur að koma fram á tónleikum en mun flytja hér óútgefin píanóverk eftir sig og er það frumflutningur í Evrópu. Á efnisskránni verður flokk- ur 20 etýðna fyrir einleikspíanó. Sex- tán þeirra samdi hann á tíunda ára- tugnum en síðustu fjórar samdi hann í tilefni af 75 ára afmælinu og voru þær frumfluttar í Ástralíu í febrúar. Munu þau Glass, Víkingur og Namekawa öll leika á hljóðfærið og hafa gagnrýnendur og blaðamenn er- lendra fjölmiðla þegar boðað komu sína á tónleikana. „Það er ómetanlegt tækifæri fyrir íslenskt tónlistarlíf að fá þennan virta listamann, sem er goðsögn í lif- anda lífi, til að frumflytja óútgefin verk nú þegar við loksins eigum hús- ið til að taka á móti bestu listamönn- um sem völ er á,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri Hörpu. Glass og Víkingur í Hörpu Víkingur Heiðar Ólafsson  Ný tónverk Glass Philip Glass Heildarfjárhæð vinninga í síðasta út- drætti Happdrættis Háskóla Íslands 2013, sem fram fór í gærkvöldi, nam rúmum 107 milljónum króna. Fimm milljóna vinningur í aðalútdrætti kom á trompmiða og hlýtur hinn heppni miðaeigandi 25 milljónir en fjöldi vinninga var alls 2.849. Margra ára vinningamet happ- drættisins, sem verður 80 ára á kom- andi ári, var slegið í ár en heildar- upphæð vinninga 2013 nam rúmum 1,1 milljarði króna. Ágóði happdrætt- isins rennur til góðra nota en 22 há- skólabyggingar hafa verið byggðar eða keyptar fyrir happdrættisfé. 107 milljónir í vinninga Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00 Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00 Hátíðarkörfur Ostabúðarinnar eftir þínu höfði Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum í síma 562 2772, ostabudin@ostabudin.is og á ostabudin.is Hringdu núna og pantaðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.