Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl. Lítill fiðraður ferðalangur frá Am- eríku sást í Gróðrarstöðinni Þöll í Hafnarfirði síðastliðinn laugardag. Smáfuglinn hleypti miklu fjöri í umræður í hópi íslenskra fugla- áhugamanna. Spurningin var hvað fuglinn ætti að heita. Tilefnið var enda ekki lítið því þetta var í fyrsta skipti sem fugl af þessari tegund sást hér á landi og í fyrsta skiptið sem hann fannst í Evrópu, að und- anskildum Azoreyjum. Latneskt heiti fuglsins er Mel- ospiza lincolnii og á ensku heitir hann Lincoln’s Sparrow. Hann er kenndur við Thomas Lincoln, ferðafélaga James Audubons í leið- angri til Labrador 1833. Audubon var fuglafræðingur og listamaður. Verk hans Fuglar Ameríku (Birds of America) með litmyndum af am- erískum fuglum var tímamótaverk. Að nefna tegundirnar Gunnlaugur Pétursson, verk- fræðingur og fuglaáhugamaður, hefur tekið saman skrá yfir íslensk fuglaheiti. Hann segir að til séu um 10.000 fuglategundir, þar af eiga um 2.700 tegundir íslensk heiti. Engin nefnd eða stofnun ber ábyrgð á því að gefa fuglateg- undum íslensk heiti. „Skáldið Jónas Hallgrímsson nefndi margar fuglategundir eins og t.d. gráþröst og vepju,“ sagði Gunnlaugur. Til eru Fuglaheita- orðabók Páls Þorkelssonar frá 1916 og eins bókin Fuglar eftir Bjarna Sæmundsson sem kom út 1936. Dr. Finnur Guðmundsson fuglafræð- ingur þýddi og staðfærði Fugla Ís- lands og Evrópu, sem kom út 1962, og bjó til íslensk heiti á fjölda fugla- tegunda. Friðrik Sigurbjörnsson þýddi Fuglabók Fjölva sem kom út 1971 og samdi ný fuglanöfn. Óskar Ingimarsson var einnig ötull við að nefna fuglategundir. Hann þýddi og staðfærði Fuglabók Veraldar ásamt Þorsteini Ó. Thorarensen, 4. útgáfu Fuglabókar AB 1989 og samdi sérstaka orðabók yfir dýra- og plöntuheiti sem kom út 1989. Atli Magnússon og Örnólfur Thorlacius þýddu og staðfærðu bókina Lífshætti fugla sem kom út 1999 og þar var nokkuð um ný fuglanöfn. Þá hafa einnig birst ný fuglanöfn í tímaritunum Blika og eins í Náttúrufræðingnum. Gunnlaugur á nokkur íslensk fuglaheiti í bókinni European Bird Names sem kom út 1990. Hann hef- ur einnig skráð fuglaheiti sem komu fram í sjónvarpsþáttum sem m.a. Óskar Ingimarsson þýddi á sínum tíma. Ónefndur fugl á hugmyndaflugi  Amerískur smáfugl, Lincoln’s Sparrow, sást hér í fyrsta sinn í Hafnarfirði á laugardag  Það var í annað skiptið sem fuglinn sást í Evrópu  Fuglaáhugamenn leita að íslensku nafni á fuglinn Ljósmynd/Sindri Skúlason Fuglinn Heitið brjósttittlingur hefur verið algengasta heitið í umræðunni um ameríska flækinginn í Hafnarfirði. Mörgum hugmyndum að ís- lensku nafni á fuglinum fágæta sem fannst í Þöll í Hafnarfirði hefur verið kastað fram. Hann fékk raunar nafnið brjóst- tittlingur fyrir ellefu árum. Þeg- ar fugl af tegundinni kom til landsins tóku hugmyndirnar flugið. Meðal nafna sem stungið hafa upp kollinum í umræðunni eru: Barmtittlingur, bringu- tittlingur, brjósttittlingur, garð- tittlingur, kjarrtittlingur, mýr- tittlingur, rákatittlingur, saur- tittlingur, seyltittlingur, seylu- tittlingur, sníputittlingur, Tommatittlingur, þallar- tittlingur og þrastittlingur. Þessi tegund verpir gjarnan í kjarri við votlendi. Sumar til- lagnanna vísa til þess, t.d. fyrri- hlutarnir saur-, seyl- og mýra-. Fjöldi tillagna að fuglsheiti FÉKK HEITIÐ BRJÓST- TITTLINGUR Á SÍNUM TÍMA Nýrri neyðarmiðstöð Rauða kross- ins á Íslandi er ætlað að samhæfa betur neyðarviðbrögð félagsins á tímum áfalla. Þar verða sameinuð undir einum hatti verkefni Rauða krossins í neyðarvörnum, skyndi- hjálp, áfallahjálp og sálrænum stuðningi og svörun í upplýsinga- síma fyrir almenning í almanna- varnaástandi stjórnað. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði neyðarmiðstöðina formlega í gær. Hún er í húsi Rauða krossins í Efstaleiti 9 í Reykjavík. Sólveig Ólafsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Rauða krossins, vekur at- hygli á því að neyðarvarnir séu stærsta verkefni Rauða krossins á landsvísu. 750 sjálfboðaliðar fé- lagsins um allt land eru til taks ef hamfarir eða skyndileg áföll dynja yfir. Þeir hafa verið þjálfaðir til að setja upp fjöldahjálparstöðvar og veita sálrænan stuðning, áfalla- hjálp og skyndihjálp þegar mikið liggur við. Á þetta reynir ekki aðeins við náttúruhamfarir og stórslys. Þann- ig bendir Sólveig á að algengustu verkefni viðbragðshóps félagsins á höfuðborgarsvæðinu séu vegna bruna, ekki síst í fjölbýlishúsum. Sjálfboðaliðarnir taki á móti fólki í strætisvagninum, hlúi að þeim með teppum og fatnaði og útvegi gist- ingu og áfallahjálp eða sálrænan stuðning eftir þörfum. Þá hefur óhöppum og slysum vegna fólks- flutningabíla fjölgað og þar eru önnur verkefni vegna þess að oft eru útlendingar á ferð sem tala mismunandi tungumál. Við opnun neyðarmiðstöðvarinn- ar í gær var undirritað samkomu- lag um að fela Rauða krossinum samhæfingu áfallahjálpar í skipu- lagi almannavarna á Íslandi. Sól- veig segir að með þessu sé verið að staðfesta skipulag sem unnið hafi verið eftir í raun. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Rósa Braga Rauði Krossinn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, opnaði neyðarmiðstöðina formlega í gær. Betri samhæfing neyðar- viðbragða í áföllum  Neyðarmiðstöð Rauða kross Íslands opnuð formlega Rauði krossinn mun reyna að kenna allri þjóðinni skyndihjálp á næsta ári. Notaðar verða fjölbreyttar að- ferðir til að ná til fólks, meðal annars sérstakur vefur, skyndihjálparapp, tónlist, teiknimyndir og stutt- myndir. Skyndihjálparátakið er mikilvægt verkefni á afmælisári Rauða kross- ins á Íslandi sem verður 90 ára 10. desember á næsta ári. Ólafur Ragn- ar Grímsson forseti opnaði vefsíðuna skyndihjálp.is í gær. Þar kemur meðal annars fram að með kunnáttu í skyndihjálp sé hægt að aðstoða og jafnvel bjarga lífi einstaklings í neyð. Skyndihjálparappið mun fólk geta sett í síma og fartölvur. Það verður gagnvirkt þannig að notendur munu geta aukið þekkingu sína og prófað kunnáttuna. Þá verða einfaldar leið- beiningar um hvað beri að gera í neyð. Hægt er að ná í appið á vefsíðunni skyndihjálp.is og þar eru aðgengi- legar hagnýtar upplýsingar um skyndihjálp og unnt að bóka sig á námskeið. Rauði krossinn er með 12 tíma skyndihjálparnámskeið. Sól- veig Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, segir að á afmæl- isárinu sé fyrirhugað að bjóða einnig upp á styttri námskeið. Vilja kenna allri þjóðinni skyndihjálp  Skyndihjálp kennd með appi og vef Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |www.eirvik.is Miele þvottavélar og þurrkarar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.