Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 22
Ríkissjóður Bandaríkjanna hefur samtals tapað um 10 milljörðum Bandaríkjadala við tilraunir banda- rískra stjórnvalda til að bjarga GM (General Motors). Þetta er jafn- virði um 1.180 milljarða íslenskra króna. Í frétt á fréttavef Breska rík- isútvarpsins, BBC, í gær kemur fram að bandarísk stjórnvöld hafa nú selt síðasta hlutann af hluta- bréfum sínum í General Motors, sem þau hafa haldið eftir frá því að björgunaraðgerðir þeirra hófust á árunum 2008 og 2009, en á þeim árum eyddi bandaríski ríkissjóður- inn 49,5 milljörðum Bandaríkjadala í bandaríska bílaframleiðandann General Motors og eignaðist við það 61% hlut í fyrirtækinu. Fjármálaráðherra Bandaríkj- anna, Jack Lew, sagði þegar salan var kynnt að björgunaraðgerðirnar á sínum tíma hefðu komið í veg fyrir hrun bílaiðnaðarins í Banda- ríkjunum og bjargað milljón störf- um. „Með þessari lokasölu á hluta- bréfum ríkisins í General Motors er þessum þýðingarmikla kafla í bandarískri sögu lokið,“ sagði Lew. Ríkið eignaðist 61% við fjár- hagslega endurskipulagningu GM óskaði eftir greiðslustöðvun samkvæmt gjaldþrotalögum í júní 2009 og það varð þar með stærsta iðnaðargjaldþrot bandarískrar sögu. Við fjárhagslega endurskipu- lagningu fyrirtækisins, eftir að rík- issjóður Bandaríkjanna var orðinn meirihlutaeigandi General Motors, var 13 bifreiðaverksmiðjum fyrir- tækisins lokað og 27 þúsund manns misstu atvinnu sína. Frá því að fjárhagslegri endur- skipulagningu og endurfjármögnun var lokið, hefur GM skilað hagnaði 15 ársfjórðunga í röð. Fyrirtækið hefur nú yfir 27 milljörðum Banda- ríkjadala að ráða í reiðufé, sem nemur tæplega 3.200 milljörðum króna og íhugar nú að verðlauna hluthafa sína með arðgreiðslum. Bandaríkjastjórn byrjaði að selja hlutabréf sín í General Motors í nóvember 2010 og í nóvembermán- uði sl. var greint frá því, að stefnt væri að því að ljúka sölu á öllum eignarhlut ríkisins fyrir áramót. Tilraunir bandarískra stjórn- valda til þess að bjarga bandaríska bílaiðnaðiðnum hófust í forsetatíð George W. Bush 2008. Barack Obama Bandaríkjaforseti jók við björgunaraðgerðirnar með því að taka yfir meirihlutann í General Motors og keppinautinum Chrys- ler. Kanadísk stjórnvöld tóku einn- ig þátt í aðgerðunum. agnes@mbl.is GM hefur skilað hagn- aði í 15 ársfjórðunga  Ríkissjóður Bandaríkjanna hefur selt allan sinn hlut í GM AFP Höfuðstöðvar General Motors er með höfuðstöðvar sínar í Detroit í Michig- an. Fyrirtækinu hefur tekist að umbylta rekstri sínum og hefur skilað hagn- aði í 15 ársfjórðunga. Bandarísk stjórnvöld hafa nú selt allan sinn hlut í GM. Umsnúningur » Björgunaðraðgerðir banda- rískra stjórnvalda vegna Gene- ral Motors koma til með að kosta bandaríska skattgreið- endur um 10 milljarða Banda- ríkjadala, eða sem nemur 1.180 milljörðum íslenskra króna. » Frá því að agerðirnar hófust sumarið 2008 hefur orðið mik- ill umsnúningur í rekstri GM og hefur fyrirtækið skilað hagnaði 15 ársfjórðunga í röð. 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 idex.is - sími 412 1700 framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi - merkt framleiðsla • Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf. • Hágæða álprófílkerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga ÁLGLUGGAR - þegar gæðin skipta máli www.schueco.is Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt sem hlutfall af heild- artekjum sjávarútvegs minnkaði milli áranna 2011 og 2012. Í fisk- veiðum og -vinnslu lækkaði hlut- fallið (án milliviðskipta) úr 30,3% í 30%, lækkaði í fiskveiðum úr 26,4% árið 2011 í 25% af tekjum árið 2012 og lækkaði í fiskvinnslu úr 19,1% í 17,2%. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar. Hreinn hagnaður í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 21,5% árið 2012 samanborið við 22,6% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 57,2 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 22,6 milljarðar. Sé miðað við hefð- bundna uppgjörsaðferð er nið- urstaðan 17,5% hagnaður 2012 eða 46,6 milljarðar, samanborið við 17,1% hagnað árið 2011, enda gætti ekki beinna áhrifa af breyt- ingum á gengi við mat á fjár- magnskostnaði sé árgreiðsluað- ferðin notuð. Árgreiðsla í veiðum hækkaði hinsvegar árið 2012 frá árinu áður, meðal annars vegna aukins fjölda smábáta sem voru að veiðum. Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2012 rúmir 535 milljarðar króna, heildarskuldir rúmir 429 milljarðar og eigið fé tæpir 106 milljarðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagtíðindum um hag veiða og vinnslu sem gefin hafa verið út. Minni hagnaður í sjávarútvegi  Heildareignir 2012 rúmir 535 ma. Sjávarfang Sjómenn gleðjast skilj- anlega þegar vel aflast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.