Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Bústaðakór held- ur jólatónleika sína í kvöld kl. 20, en innkoman rennur til söfn- unar á línuhraðli Landspítalans. „Stjarna kvöldsins verður Anna Sigríður Helgadóttir söng- kona sem mun fara í skjóðu Mahaliu Jackson og jólastef kvöldsins verður mestmegn- is í hennar anda,“ segir í tilkynn- ingu. Aðrir einsöngvarar úr kórnum eru Gréta Hergils, Edda Austmann, Jóhann Friðgeir, Rósalind Gísladótt- ir, Svava Kristín Ingólfsdóttir og Sæberg Sigurðsson. Stjórnandi er Jónas Þórir, en Bjarni Sveinbjörns- son leikur á kontrabassa og Stefán S. Stefánsson á saxófón og flautu. Styrktartónleikar Bústaðakórs Anna Sigríður Helgadóttir Kór Neskirkju og Stúlknakór Nes- kirkju halda jóla- tónleika í Nes- kirkju í kvöld kl. 20. Auk þeirra koma fram bás- únuleikararnir David Bobroff, Einar Jónsson, Ingibjörg Azima Guðlaugsdóttir og Sigurður Þorbergsson. Stjórn- andi tónleikanna er Steingrímur Þórhallsson. „Fjölmörg lög eru á efnisskránni, öll til þess fallin að koma tónleika- gestum í gott jólaskap,“ segir m.a. í tilkynningu. Þar kemur fram að tón- leikunum ljúki með samsöng kórs og tónleikagesta, en boðið verði upp á kaffi og piparkökur í hléi. Miðar eru seldir hjá 12 Tónum og í Neskirkju. Jólatónleikar í Neskirkju í kvöld Steingrímur Þórhallsson Ljóðin í sjöttu ljóðabók AraTrausta Guðmundssonar,Bæjarleið, hverfast öll umlíf fullorðins trillusjó- manns í afskekktu þorpi. Í byrjun bókar er birtur stuttur texti, „Upp- haf“, þar sem tónninn er sleginn. Ljóðmælandi segir frá miðaldra náunga sem hann kynntist í þessum bæ og í síðari heimsóknum hittast þeir aftur, náunginn á gamlan bát, býr í útjaðri bæjarins, á engin skyld- menni á staðnum og er barnlaus. „Við komu til bæjarins fyrir skömmu frétti ég að hann væri lát- inn. Hefði fundist andvana á stól í eldhúsinu heima fyrir. Ég gerði mér ferð í kirkjugarðinn til að kveðja hann.“ Þar hefst síðan bálkur 55 ljóða sem skipt er í fjóra hluta eftir árstíð- unum. Einsemd og kyrrð móta hóf- stilltan ljóðheiminn þar sem lífi sjó- mannsins er lýst, og dregnar eru upp myndir þar sem náttúran end- urspeglar iðulega líðan og tilfinn- ingar, eins og í ónefndu vorljóði: fullt læðir tunglið enn einu sinni silfraðri og langri ljósár í gáraðan fjörðinn rær hægt og virðulega vestur á bóginn líkt og það verði aldrei leitt á að vekja aðdáun eitt sinn hafði ég sömu tækifæri og það svo bjartur Í upphafi verksins situr ljóðmæl- andinn í eldhúsinu, „tíufréttir hálfn- aðar / dauðinn víða að verki // dautt í pípunni …“ Bálknum lýkur á sama stað, þar sem maðurinn hyggst drífa sig af stað eftir bolla af kaffi og hvíld. En í millitíðinni eru dregnar upp meitlaðar og hófstilltar myndir af einsemdarlegu lífi milli fjalla, í þessu þorpi þar sem auð húsin eru sögð „umkomulaus // jafn gömul mér / eða eldri // eiga sér ekki við- reisnar von / en mér líður bærilega“: veit þó að lífið getur verið drjúg bæjarleið Ljóðmælandinn skynjar náttúr- una, sér „vindinn best með augun lokuð. Heyri hann spinna iðandi ský fram af fjöllunum“. Fyrir kemur að hann er ekki einn undir sænginni, þá er þar ylur sem dugir báðum og í vetrinum, í launköldu norðanbáli, þar sem „húsið líkt og svífur á úfn- um stormskýjum“ gætu þau tvö, svona nakin, „þóst vera englabörn“. En tíminn líður, bókaskápurinn á í hljóðu tali við vin sinn ljóðmæland- ann, sem þrífur seltu af rúðum, en endalokin nálgast. Lífið sem drjúg bæjarleið Ljóð Bæjarleið bbbmn Eftir Ara Trausta Guðmundsson. Uppheimar, 2013. 70 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Ari Trausti Guðmundsson „Með gleðiraust og helgum hljóm“ er yf- irskrift aðventu- tónleika Kórs Kópavogskirkju sem fram fara í safnaðarheim- ilinu Borgum í kvöld kl. 20. „Flutt verða aðventu- og jóla- lög frá ýmsum löndum. Einsöngv- arar koma úr röðum kórfélaga, þar sem kórinn hefur á að skipa mjög fjölhæfu tónlistarfólki,“ segir m.a. í tilkynningu. Stjórnandi er Lenka Mátéová, en Peter Máté leikur með á píanó. Eftir tónleikana er boðið upp á heitt súkkulaði og piparkökur. Að- gangur er ókeypis og allir vel- komnir. Með gleðiraust og helgum hljóm Lenka Mátéová EGILSHÖLLÁLFABAKKA MACHETEKILLS KL.5:40-8-10:20 MACHETEKILLSVIP KL.5:40-8-10:20 DELIVERYMAN KL.5:40-8-10:20 THOR-DARKWORLD3DKL.5:30-8-10:30 THEFIFTHESTATE KL.8 ENDER’SGAME KL.5:30 ESCAPEPLAN KL.10:40 BADGRANDPA KL.8 GRAVITY2D KL.10:20 PRISONERSSÍÐUSTUSÝNINGAR 2S KL.5 KRINGLUNNI MACHETE KILLS KL. 5:40 - 8 - 10:20 DELIVERYMAN KL. 5:40 - 8 - 10:20 ESCAPE PLAN KL. 10:30 THOR - DARKWORLD 2D KL. 5:30 - 8 MACHETE KILLS KL. 5:40 - 8 - 10:20 DELIVERYMAN KL. 8 - 10:20 ENDER’S GAME KL. 5:30 ESCAPE PLAN KL. 8 - 10:30 THOR - DARKWORLD 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 GRAVITY 3D KL. 5:50 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK MACHETEKILLS KL.8-10:20 DELIVERYMAN KL.8 HUNGERGAMES:CATCHINGFIRE KL.10:20 AKUREYRI MACHETE KILLS KL. 8 - 10:20 DELIVERYMAN KL. 5:40 - 8 ESCAPE PLAN KL. 10:20 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ERTU BÚINN AÐ SJÁ EINA AF BESTU MYNDUM ÁRSINS? EMPIRE  TOTAL FILM  VAR BARA BYRJUNIN CHRIS HEMSWORTH TOM HIDDLESTON NATALIEPORTMAN JOBLO.COM  “ELDFIM OG ÖGRANDI” “FYRSTA FLOKKS ÞRILLER” ROLLING STONE GQ MÖGNUÐ MYND SEM VAR TEKIN AÐ HLUTA TIL Á ÍSLANDI EMPIRE  “NON-STOPACTION” M.S. WVAI RADIO „SMARTANDFUN“ J.B – WDR RADIO FRÁBÆR GAMANMYND MACHETE ER MÆTTUR AFTUR Í GEGGJUÐUSTU MYND ÁRSINS! DANNYTREJO - LADYGAGA -AMBERHEARD - MICHELLERODRIGUEZ-SOFÍAVERGARA-MELGIBSON- CHARLIESHEEN-ANTONIOBANDERAS-CUBAGOODINGJR. VARIETY  FAÐIR 533 BARNA. BARA VESEN! S.B. Fréttablaðið ★★★★★ T.V. Bíóvefurinn/Vikan „ÞAÐ BESTA SEM HEFUR KOMIÐ FRÁ HOLLYWOOD Í LANGAN TÍMA“ S.B. Fréttablaðið 12 12 12 L FRÁ STEPHEN FEARS LEIKSTJÓRA THE QUEEN -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar HUNGER GAMES 2 Sýnd kl. 5 - 7 - 8 - 10 MANDELA Sýnd kl. 7 - 10 PHILOMENA Sýnd kl. 5 FURÐUFUGLAR 2D Sýnd kl. 5 BLÁTT Spírulína gefur jafna orku sem endist Aukið streituþol og bætir einbeitingu. Nærir taugakerfið. Frábær meðmæli við athyglisbrest og eirðarleysi. Fyrir þá sem eru undir miklu líkamlegu eða andlegu álagi. Inniheldur lifræna næringu samtals 29 vítamín og steinefni, aminosýrur og 50% meira af Phycocyanin en annað Spírulína. Rannsóknir hafa sýnt að það eflir ónæmiskerfið og styður getu tauga og líkama til þess að starfa eðlilega þrátt fyrir streituálag. Phycocyanin er kallað undrasameindin sem eykur virkni mikilvægra ensíma. Eingöngu ræktuð næringaefni, ekkert GMO. Gæðastaðall: ISO 14001, ISO 22000. Útsölustaðir: Lyfja, Hagkaup, Krónan, Heilsuhúsið, Fjarðarkaup og Græn heilsa. Hrein orka og einbeiting BETRI FRAMMISTAÐA, LENGRA ÚTHALD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.