Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 16
Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Munið að slökkva á kertunum Setjið kerti aldrei nálægt tækjum sem gefa frá sér hita s.s. sjónvarpi. Hiti frá tæki veldur aukinni hættu á óhappi. Setjið aldrei servéttu eða pappír utan á kerti. Slökkvilið höfuborgasvæðisins VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Hundrað ár eru liðin í ár frá því að framkvæmdir hófust við gerð Reykjavíkurhafnar. Af því tilefni er nú komið út ritverkið Hér heilsast skipin, eftir Guðjón Friðriksson, sagnfræðing. Í verkinu, sem telur tvö bindi, rekur Guðjón sögu hafn- anna við Faxaflóa frá því að Ing- ólfur nam land og til vorra daga. „Ráðist var í verkið að tilhutan Gísla Gíslasonar hafnarstjóra og stjórn Faxaflóahafna,“ segir Guð- jón, en hugmyndin um að rita sögu Faxaflóahafna í tilefni af ald- arafmæli hafnargerðarinnar kom upp í samtölum hans og Gísla sem Guðjón hafði unnið fyrir nokkuð áð- ur. Mikið af myndum frá höfninni Verkið ber þess glögg merki að mikil vinna höfundar liggi að baki. „Ég sat mánuðum saman, bæði á Borgarskjalasafni og í skjalasafni Faxaflóahafna, auk þess sem ég leitaði fanga upp á Akranes og víð- ar,“ segir Guðjón, en einnig fékk hann heimildir frá einkaaðilum sem sem hafa starfað í tengslum við hafnirnar. Eitt af því sem prýðir ritverkið eru margar stórglæsilegar og for- vitnilegar ljósmyndir frá höfnunum við Faxaflóa. Guðjón segir að ekki hafi verið neitt vandamál að finna myndir, en þeim mun meiri vandi að velja þar úr. „Það virðast allir ljósmyndarar hafa farið niður á höfn til þess að taka mynd,“ segir Guðjón og hlær. „Það er því til mik- ið af góðum og skemmtilegum myndum af höfnunum frá öllum tímum. Auk þess notuðu listamenn í Reykjavík höfnina oft í mál- verkum sínum, hún varð nánast að vinsælasta mótífinu.“ Guðjón segir að fátt hafi í raun komið sér á óvart við gerð bók- arinnar enda hafi hann haft nokk- urt forskot í rannsóknum á hafn- arsögunni, meðal annars þegar hann vann að Sögu Reykjavíkur á sínum tíma. „En auðvitað koma upp mörg forvitnileg skjöl þegar farið er að grannskoða sviðið. Segja má að hafnirnar hafi verið grundvöllur þéttbýlisins hér í Reykjavík og á Akranesi og víðar. Þær eru lykill- inn að því að þessir staðir eru til,“ segir Guðjón. „Nú til dags er Reykjavíkurhöfn gríðarlega mik- ilvægur þáttur í borgarlífinu, kannski miklu mikilvægari en margir Reykvíkingar almennt gera sér grein fyrir.“ Guðjón segir að það eigi ekki bara við um fragt og fiskveiðar, heldur fylgi höfninni mjög fjölbreytt afleidd starfsemi í verslun, fiskverkun, landflutn- ingum, iðnaði, þjónustu og ferða- mennsku sem Reykvíkingar njóti góðs af. „Faxaflóahafnir er líklega eitt stærsta fyrirtæki landsins og eru Reykjavíkurhöfn, sem er lang- stærsta höfn landsins, og Grund- artangahöfn, en um hana fara næstmestir flutningar að magni til, burðarásarnir í fyrirtækinu. Og gerð Reykjavíkurhafnar fyrir 100 árum, þá mesta mannvirki Íslands- sögunnar, hefur átt mikinn þátt í þeim yfirburðum sem Reykjavík hefur haft yfir aðra staði.“ Guðjón tekur fram að verkið sé ekki bara saga hafnanna sem slíkra, heldur sé það einnig víðtæk saga atvinnustarfseminnar sem þrífist við þær. „Þetta er um leið saga skipafélaganna, fiskvinnslu, eyrarvinnunnar, heildverslunar, ol- íufyrirtækja og þjónustufyrirtækja eins og vélsmiðja, slippa, veið- arfæragerða og raftækni margs konar. Meira að segja flughöfnin Reykjavík á sinn kafla en segja má að Reykjavíkurhöfn sé vagga flugs á Íslandi. Einnig er greint frá sögu- legum atburðum sem áttu sér stað við höfnina.“ Tjörnin notuð sem lón? En hafnargerðin í Reykjavík 1913-1917 var þó ekki upphafið að mikilvægi sjávarins fyrir Reykja- vík. Guðjón segir það skoðun sína að aðstæður við sundin blá hafi ráð- ið mestu um það að fyrstu land- námsmennirnir tóku sér bólfestu í Reykjavík. „Þeir vildu hafa sjáv- arlón, þar sem hægt var að draga skipin upp, því að þeir vildu síst af öllu missa skipin. Þeir voru að koma til nýs og ónumins lands og það var mikilvægt að finna skip- unum öruggt skjól yfir vetrartím- ann en tapa þeim ekki svo þeir ættu afturkvæmt ef þeim líkaði ekki vistin,“ segir Guðjón, sem ger- ir því skóna að þeir hafi dregið skipin upp lækinn og inn í Reykja- víkurtjörn þar sem þau gátu verið yfir veturinn. „Yfirleitt eru að- stæður þannig í þessum elstu höfn- um að það er sandfjara- og kambur og sjávarlón fyrir ofan sem hægt er að nota þannig.“ Ljósmynd/Magnús Ólafsson Steinbryggjan Hér sjást menn bera tunnur við gömlu steinbryggjuna á hafnarsvæði Reykjavíkur árið 1920. Skipin heilsast enn í Faxaflóahöfnunum  Guðjón Friðriksson hefur ritað sögu hafnanna Morgunblaðið/Ómar Við höfnina Guðjón Friðriksson sagnfræðingur fjallar um Faxaflóa- hafnir í nýjasta ritverki sínu. Jarðbönn og snjór eru nú víða um land og eiga fuglarnir erfitt. Í sérstakri tilkynningu hvetur Fuglaverndarfélag Íslands lands- menn til að hugsa til þessara smáu meðbræðra og ekki síst far- fuglanna sem koma langt að og þurfa orku og vatn til að lifa af. Félagið nefnir nokkur dæmi um gott fóður: Epli, fitu, kjötsag og matarafganga handa þröstum, störum og hröfnum. Sólblómafræ eða páfagaukafræ handa auðnu- tittlingum og kurlaðan maís og hveitikorn handa snjótittling- unum. Fita er það fóður sem hentar flestum fuglum vel í kuld- um og má blanda matarolíu, tólg eða smjöri við afganga og korn. Síðan þarf vatn að vera aðgengi- legt, segir í tilkynningu félags- ins. Nánari upplýsingar um hvaða matseðill hentar hvaða tegund má finna á vef Fuglaverndar, www.fuglavernd.is. Munum eftir smáfuglunum Ljósmynd/Axel Máni Guðríðarson Smáfuglar Gráþröstur eins og þessi myndi ekki fúlsa við góðu fóðri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.