Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.12.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013 Perlan • Sími 562 0200 • Fax 56 2 0207 • perlan@perlan.is • ww w.perlan.is Gjafabréf Perlunnar Góð gjöf við öll tækifæri Jólahladbord í Perlunni Velkomin á Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, gerir að umtals- efni í bók sinni, Ár drekans, Dagbók utanríkisráðherra á umbrotatímum, rimmu sem hann átti við Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi forsætis- ráðherra, og Oddnýju Harðardóttur, þáverandi fjármálaráðherra. Deilur ráðherranna sneru að fyr- irætlunum þeirra tveggja síð- arnefndu um að draga úr fyrirhug- aðri hækkun til þróunaraðstoðar úr milljarði króna í 500 milljónir. Í bók- inni lýsir Össur því hvernig þær hafi stillt honum upp við vegg á síðasta degi og látið hann standa frammi fyr- ir orðnum hlut. Fallið var frá lækk- uninni. Jóhanna sammála Oddnýju Oddný sagði í frétt á vefnum eyja- n.pressan.is að „það hafi aldrei staðið til í tíð vinstri stjórnarinnar að skera niður framlög til þróunarmála, líkt og haldið er fram í bók Össurar Skarp- héðinssonar“. Þá sagði hún einnig: „Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hækkaði þróunaraðstoð um einn milljarð á árinu 2013 í samræmi við samþykkta þingsályktunartillögu, um hvernig mætti í áföngum ná markmiði Sameinuðu þjóðanna um að 0,7% af vergri landsframleiðslu fari til þróunaraðstoðar. [...] Aldrei kom annað til greina en að hækka framlag til þróunaraðstoðar og aldrei um annað rætt í ríkisstjórninni, rá- herranefnd um ríkisfjármál eða í þingflokki Samfylkingarinnar.“ Á Facebook-síðu sinni tekur Jó- hanna Sigurðardóttir undir með Oddnýju. „Það er hárrétt hjá Odd- nýju að aldrei hafi komið til greina að lækka framlög til þróunaraðstoðar. Hún var frábær fjármálaráðherra,“ skrifar Jóhanna. Atburðirnir sem Össur rifjar upp í bókinni áttu sér stað 3. og 4. júlí árið 2012 í því sem Össur lýsir sem al- gjöru tímahraki. Hann segir Jóhönnu hafa spurt sig hvað hann myndi gera yrði ekki fallist á þá afstöðu hans að hækka framlög til þróunaraðstoðar um milljarð. Össur segist algjörlega hreinskilinn mundu gera fyrirvara við þá liði fjárlaga sem varða þróun- araðstoð og áskilja sér rétt til að styðja, eða flytja sjálfur og vinna stuðning, við breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið á Alþingi. Hann segir það vera stórt skref, sem nálg- ist það að leggja fram vantraust á sína eigin ríkisstjórn. Í framhaldi af því gengur Jóhanna á hann um hvort hann hyggist gera það opinberlega. Því svarar hann óhikað játandi, eins og segir í bókinni. Ábyrgðin að fella ríkisstjórnina Össur segir forkastanlega fram- komu og vinnubrögð í tengslum við málið hafa komið mjög illa við sig. Þannig hafi þáverandi fjármála- ráðherra aldrei rætt fjárlögin við hann, þrátt fyrir margítrekuð loforð um hið gagnstæða. Eins segir hann að þróunaraðstoðin sé mikilvægur partur af erindi jafnaðarmanna í rík- isstjórnir. „Hvaðan kæmi þeim umboð til að breyta henni og gera þróunarmál að afgangsstærð?“ skrifar Össur. Enn- fremur segir hann að forsætisráð- herra hafi spurt hann hvort hann hygðist taka á sig ábyrgðina af því að fella ríkisstjórnina. „Það verða þú og fjármálaráðherra sem bera ábyrgð á því,“ svarar hann og bætir við að sér verði ekki hnikað í þessu máli. Eftir mikil átök þennan dag á Öss- ur samskipti um málið við nokkra aðra ráðherra um málið, sem og ráðuneytisstjóra sinn, Einar Gunn- arsson, sem hann segir á sínu bandi í málinu. Jóhanna bendir á að ljóst sé orðið að Össur ætli ekki að standa með sér og ríkisstjórninni. Össur kveðst hins vegar standa með sannfæringu sinni, og samþykkt alþingis. Eigi hann að velja þar á milli mætti rík- isstjórnin fara hans vegna. Daginn eftir er fjárlagafrumvarp afgreitt á ríkisstjórnarfundi. Nið- urstaðan er sú að sá hækkun fram- lagsins til þróunaraðstoðar stendur óbreytt í einum milljarði. Vildu minni hækkun þróunaraðstoðar  Össur Skarphéðinsson segir frá deilu við Jóhönnu Sigurðardóttur og Oddnýju Harðardóttur um þróunaraðstoð  Vildu draga úr hækkun  Össur hótaði stjórnarslitum væri dregið úr hækkuninni Oddný Harðardóttir Össur Skarphéðinsson Þróunaraðstoð » Össur Skarphéðinsson lýsir í bók sinni hvernig Jóhanna Sig- urðardóttir og Oddný Harð- ardóttir vildu draga úr hækkun til þróunaraðstoðar. » Hótaði að bóka fyrirvara á ríkisstjórnarfundi. » Fékk að lokum í gegn óbreytt framlög til málaflokks. „Jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér. Því ákváðum við að eiga fund með forystufólki í stjórnmálaflokkum til ræða það hvernig við getum tryggt jafnrétti í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Það hefur sýnt sig að ábyrgð flokkanna er af- gerandi en ekki kjósenda,“ segir Eygló Harðardóttir velferðarráð- herra en hún hefur ásamt Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkis- ráðherra boðað til fundar í dag um jafnrétti í kosningum. Boðaðir eru formenn og varafor- menn stjórnmálaflokka, formenn þingflokka, framkvæmdastjórar þingflokkanna, forsvarsmenn kvennahreyfinga stjórnmálaflokk- anna og framkvæmdastjórar flokk- anna. Fundurinn er í samstarfi við af- mælisnefnd 100 ára kosningaréttar kvenna. Auður Styrkársdóttir, for- maður framkvæmdanefndarinnar, tekur einnig þátt í undirbúningn- um. „Það hefur sýnt sig að til að ná sem mestum árangri skiptir veru- legu máli hvernig flokkar raða upp á listum sínum,“ segir Eygló. Í þessu samhengi bendir hún á að í síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum voru karlar í efstu sætum í 75% tilfella en konur 25%. „Konur eiga einnig erfiðara með að ná til fjölmiðla. Þrátt fyrir að atvinnuþátttaka kvenna hér landi mælist mikil eru aðeins um 30% viðmælenda í ljósvakamiðlum kon- ur,“ segir Eygló. Á fundinum verður farið yfir þessa stöðu og mikilvægi þess að flokkarnir beiti sér fyrir jafnrétt- issjónarmiðum. Þrír flokkar eru með kynjaákvæði í sínum lögum og reglum; Vinstri-græn, Samfylk- ingin og Framsóknarflokkurinn. „Það skiptir miklu máli að hvetja félögin til að huga að jafn- rétti. Það ætlum við að gera,“ seg- ir Eygló. thorunn@mbl.is Jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér Eygló Harðardóttir Hanna Birna Kristjánsdóttir  Funda með forystufólki stjórnmálaflokka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.