Morgunblaðið - 11.12.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Nýjar reglur Evrópusambandsins sem takmarka aflið í
ryksugumótorum við 1.600 W taka gildi næsta haust, þar
með talið á Íslandi, og frá og með 1. september 2017
mega ryksugur ekki vera öflugri en 900 W. Nú er al-
gengt að ryksygur til heimilisnota séu 1.800-2.000W.
Þetta þýðir þó ekki endilega að í nánustu framtíð
verði gjörsamlega ómögulegt að fá almennilega ryksugu.
Gætu orðið dýrari til að byrja með
Þorvaldur Þorvaldsson, vörustjóri heimilistækja-
deildar Elko, bendir á að til séu nýjar ryksugur t.d. frá
Electrolux sem séu 1.200-1.250W en skili nánast jafn-
miklu sogafli og 2.000W ryksugur. „Þær taka minna afl
en þær skila því sama út,“ segir Þorvaldur. „Þetta er
þessi græna bylting. En þær eru talsvert dýrari, enn
sem komið er.“ Þorvaldur býst þó við að verðið muni
lækka þegar þessar sparneytnari ryksugur komist í al-
menna framleiðslu, þótt þær verði eitthvað dýrari fyrst
til að byrja með. Þá verði aflmeiri ryksygur áfram til
sölu, a.m.k. þangað til lagerinn klárast. Svipuð þróun
hafi átt sér stað varðandi önnur heimilistæki; ísskápa,
þvottavélar og uppþvottavélar og svo framvegis, alls
staðar sé verið að innleiða strangari kröfur um raf-
magnsnýtingu.
Tilgangurinn með þessu nýja ryksuguregluverki
Evrópusambandsins er að stuðla að minni orkunotkun,
enda er mestallt rafmagn í aðildarríkjum þess framleitt
með mengandi aðferðum. Eftir töluverðu er að slægjast
því í ryksugureglugerð ESB kemur fram að árið 2005
notuðu ryksugur í ESB árlega 18 terawattstundir af raf-
orku og ef ekkert yrði að gert yrði notkunin 34 terawatt-
stundir á ári árið 2020. Raforkuframleiðsla Landsvirkj-
unar er um 12 terawattstundir á ári.
Kristján Kristjánsson, deildarstjóri heim-
ilistækjadeildar Ormsson, selur nú þegar 1.600W ryk-
sugu sem skilar álíka miklu, en þó heldur minna, sogafli
og 2.000W ryksuga. Hann segir að sogaflið þurfi að vera
á bilinu 350-380W og framleiðendur verði að finna leiðir
til þess að minnka mótorinn en halda í kraftinn.
Aflið í ryksugunni minnkar
en ekki endilega sogkraftur
Nýjar ryksugur mega
ekki vera aflmeiri en 1.600
W frá og með næsta hausti
Morgunblaðið/Jóra
Skylduverk Árangur skiptir meira máli en uppgefið afl.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ekkert lát er á umsóknum um
greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni
skuldara. Á tímabilinu frá 1. septem-
ber til 30. nóvember sl. barst 181 um-
sókn um greiðsluaðlögun, auk 232
umsókna um ráðgjöf.
Að sögn Ástu Sigrúnar Helgadótt-
ur, umboðsmanns skuldara, hefur
sýnt sig að um það bil helmingur
þeirra sem leita sér ráðgjafar fer í
greiðsluaðlögun. Því megi gera ráð
fyrir að alls 327 umsækjendur hafi
farið í greiðsluaðlögun á þeim tíma,
en á bak við hvern og einn getur verið
einstaklingur eða sambýlisfólk/hjón
með börn. Hafa umboðsmanni skuld-
ara því borist tæplega 5.000 umsóknir
um greiðsluaðlögun á tímabilinu frá 1.
ágúst 2010 til 1. desember 2013. Hluta
umsókna er synjað og geta umsækj-
endur kært þá ákvörðun til kæru-
nefndar greiðsluaðlögunarmála. Ríf-
lega 2.000 samningar hafa verið
gerðir og er rúmlega 800 lokið, þ.e.
umsaminn samningstími er liðinn og
komið að uppgjöri skulda miðað við
greiðslugetu skuldara til framtíðar.
Lög um greiðsluaðlögun einstak-
linga tóku gildi 1.8. 2010 og er mark-
mið þeirra að gera „einstaklingum í
verulegum greiðsluerfiðleikum kleift
að endurskipuleggja fjármál sín og
koma á jafnvægi milli skulda og
greiðslugetu þannig að raunhæft sé
að skuldari geti staðið við skuldbind-
ingar sínar um fyrirsjáanlega fram-
tíð,“ eins og segir í lögunum.
Ekki sama og 110%-leiðin
Tekið skal fram að greiðsluaðlögun
og svonefnd 110%-leið eru ólíkir hlut-
ir. Frestur til að sækja um niður-
færslu veðskulda af íbúðalánum skv.
110%-leiðinni rann út 1. júlí 2011. Var
það tímabundin, almenn aðgerð. Að
sögn Ástu Sigrúnar er greiðsluaðlög-
un hins vegar úrræði sem er orðið fast
í sessi: „Það verður alltaf ákveðinn
hópur þjóðfélagsins sem mun eiga í
greiðsluerfiðleikum.“
Þegar sótt er um greiðsluaðlögun
er greiðslugeta umsækjenda metin og
er greiðslum hagað í samræmi við
hana. Miðað er við að mánaðar-
greiðslur séu sem nemur 60-100% af
hæfilegri húsaleigu á almennum
markaði. Alls eru 748 mál í vinnslu hjá
umsjónarmönnum og er hlutverk
þeirra að reyna að ná frjálsum samn-
ingum við kröfuhafa fyrir hönd skuld-
ara. Ásta Sigrún segir að stærsti kúf-
urinn hafi verið tekinn af umsóknum
um greiðsluaðlögun.
„Við fórum í umfangsmiklar skipu-
lagsbreytingar í haust og með þeim
breytingum jókst mjög málshraðinn.
Mál vinnast því orðið mun hraðar.
Annað atriði er að við erum með mjög
hæft starfsfólk og málin ganga hraðar
fyrir sig. Þá eru málin orðin einfaldari
en áður. Það má líka segja að megin-
þunginn í vinnunni vegna umsókna
um greiðsluaðlögun sé farinn að fær-
ast frá því að samþykkja beiðnir yfir í
samningsgerðina sjálfa og málalok.
Verkefnið er því að vissu leyti að
breytast.
Samningar um greiðsluaðlögun eru
til allt að þriggja ára. Það getur margt
gerst á þeim tíma. Tekjur fólks geta
breyst og það orðið fyrir atvinnumissi
eða veikindum. Í slíkum tilvikum get-
ur fólk sótt um breytingar á samn-
ingi,“ segir Ásta Sigrún og bætir við
að samningar um greiðsluaðlögun
geti m.a. kveðið á um algera eða hlut-
fallslega eftirgjöf krafna, sé staðið við
samninginn.
Við lok samnings gilda reglur í lög-
um varðandi eftirgjöf veðkrafna og er
það í höndum sýslumanns að ákveða
hvernig þeim er framfylgt.
Margir bíða eftir greiðsluaðlögun
Umboðsmaður skuldara áætlar að 300 umsóknir hafi borist frá septemberbyrjun og út nóvember í ár
Alls hafa umboðsmanni því borist um 5.000 umsóknir um greiðsluaðlögun frá því í ágúst árið 2010
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vallarhverfið í Hafnarfirði Fjöldi fólks á erfitt með að greiða af íbúðaskuldum. Margir fara í greiðsluaðlögun.
Nær 8 af hverjum 10
» Að sögn umboðsmanns
skuldara hafa að jafnaði um
78% umsókna um greiðslu-
aðlögun verið samþykkt.
» Um 14% umsókna hefur ver-
ið synjað og um 8% umsókna
hafa verið afturkölluð að frum-
kvæði umsækjenda áður en af-
staða var tekin til umsóknar af
hálfu embættisins.
» Skiptingin er sýnd í töflunni
hér til hliðar.
» Af þeim 748 málum sem eru
hjá umsjónarmönnum eru 568
mál í virkri vinnslu.
» Þar af eru 145 mál hjá fjór-
um umsjónarmönnum á vegum
embættisins en 423 mál eru
hjá 41 umsjónarmanni utan
stofnunarinnar.
» Þá eru 180 mál í vinnslu hjá
umboðsmanni skuldara vegna
ábendinga um að eitthvað hafi
komið í ljós sem hindri
greiðsluaðlögun.
Greiðsluaðlögun einstaklinga*
hjá embætti umboðsmanns skuldara (UMS)
Í vinnslu hjá UMS
Í vinnslu hjá umsjónarmanni:
Vinnslu lokið
Þar af samningar
Þar af synjað
Þar af afturkallað
Þar af niðurfellt vegna aths. umsjónarmanns
Þar af staðfestir nauðasamningar af dómstólum
Þar af nauðasamningum synjað af dómstólum
Þar af lokið án samninga
Alls
276
748
3.968
4.992
2.040
672
661
506
41
11
37
3.968
*Fjöldi umsókna sem umboðsmanni skuldara hafa borist 1. ágúst 2010 til 1. desember 2013.Heimild: Umboðsmaður skuldara
tofrandi jolagjafir
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com
Andvirði: 12.320 kr.
Handkrem 30 ml - 1.250 kr | Eau de Toilette 100 ml - 7.480 kr.
Húðmjólk 75 ml - 1.360 kr. | Sturtusápa 250 ml - 2.230 kr.
.. ‘
CHERRY BLOSSOM GJ
Jólatilboð: 8.990 kr.
AFAKASSI