Morgunblaðið - 11.12.2013, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
–
–– Meira fyrir lesendur
Í blaðinu verður fjallað um
þá fjölbreyttu flóru sem
í boði er fyrir þá sem stefna
á frekara nám.
Nánari upplýsingar gefur:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Pöntunartími Auglýsinga:
Fyrir kl. 12, fimmtudaginn
20. desember
Skólar & námskeið
Þann 4. janúar gefur
Morgunblaðið
út sérblað um
skóla og
námskeið
SÉRBLAÐ
Við óskum þér
GLEÐILEGRA JÓLA
Hafðu það hátíðlegt í glæsilegum nærfötum frá Change
Eve l yn k r. 1 2 .980
Thelma k r. 1 2 .980
S i lk inát tk jó l l
k r. 6 . 490
*þú greiðir aðeins fyrir dýrasta settið.
AF ÖLLUM
NÆRFATASETTUM*
2 1fyrir
Scarlet t
k r. 18 .980
CHANGE smárAliNd • sími: 5545600 • CHANGE.Com
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Aflabrögð hafa verið mjög góð í haust og
ekki betri í langan tíma,“ sagði Gunnar
Tómasson, framkvæmdastjóri hjá Þor-
birni í Grindavík, um haustvertíðina. Hann
segir að vel hafi gengið bæði hjá línuskip-
um og frystitogurum, en fyrirtækið gerir
út fjögur stór línuskip og þrjú frystiskip.
Línuskipin landa nú á 3-4 daga fresti til að
tryggja sem mestan ferskleika fisksins.
Aflinn er ýmist saltaður fyrir markaði
við Miðjarðarhafið eða flakaður og sendur
ferskur á markaði í Bretlandi og í Banda-
ríkjunum, þar sem gott verð fæst fyrir
ferskan línufisk. Gunnar segir að salt-
fiskmarkaðir hafi heldur tekið við sér og
eftirspurn aukist á ný. Útlit sé fyrir að í ár
verði saltfiskur seldur frá Íslandi fyrir um
30 milljarða króna.
Landað á Djúpavogi
og Skagaströnd
Línuskip Þorbjarnarins byrjuðu haustið
á veiðum fyrir austan land og var þá land-
að á Djúpavogi. Þar var fiskurinn bland-
aður og talsvert af smáfiski og því var
ákveðið að halda norður fyrir land.
Síðustu vikur hefur fjöldi skipa verið á
veiðum á Hornbanka, út af Hornbjargi, og
hafa skip Þorbjarnarins landað á Skaga-
strönd. Aflanum er síðan ekið til vinnslu í
Grindavík. Góður þorskur hefur fengist á
svæðinu, en hann hefur þó verið nokkuð
ýsublandaður, nokkuð sem menn reyna að
forðast.
„Tíðin hefur verið rysjótt inn á milli, en
það hefur hins vegar ekkert lát orðið á
góðum aflabrögðum,“ segir Gunnar. „Ég
held að almennt hafi gengið vel hjá línu-
skipum og togurum í haust, en það hefur
trúlega verið erfiðara hjá minni bátunum
vegna veðurs með landinu í nóvember.“
Gæði frekar en magn
Gunnar segir það ekki keppikefli í sjálfu
sér að moka upp fiski. „Þvert á móti reyn-
um við að fá ekki of mikið og kappkostum
að tryggja gæðin. 70 kör eða rúmlega 20
tonn á dag er viðráðanlegt í veiðunum og
kannski það sem mætti kalla óskaafla.“
Eins og áður sagði hefur góður afli feng-
ist á Vestfjarðamiðum undanfarið og í gær
voru þar mörg skip. Algengt er að stærri
línuskipin séu með um 45 þúsund króka og
getur línan verið um og yfir 20 kílómetrar.
Ef fiskirí er mjög gott er lögnin oft minnk-
uð, en ágætt þykir að fá fisk á 15-20% af
krókunum, að sögn Gunnars.
Saltfiskmarkaðir að glæðast
Um saltfiskmarkaði segir Gunnar að
eftirspurn sé greinilega að aukast á Spáni
og Ítalíu. Staðan sé enn erfið í Portúgal og
enn sé „kalt í Grikklandi“, en kaupendur
þar standi í skilum með allar sínar skuld-
bindingar.
„Í heildina eru markaðir fyrir saltfisk
heldur að glæðast,“ segir Gunnar. „Verðið
er enn lágt, en bæði spurn eftir saltfiski og
verð eru hvor tveggja eitthvað að koma til.
Ég gæti trúað að verðið væri nú svipað og
það var 2004 og 2005. Verð hækkaði síðan
verulega, trúlega of mikið, og náði há-
marki 2008. Á síðasta ári hafði það lækkað
um 25-30%.“
Fosföt leyfð að nýju
Frá 1. janúar verður notkun fosfata við
framleiðslu á blautsöltuðum saltfiski að
nýju heimiluð. Í aðfaraorðum breytingar á
reglugerð Evrópusambandsins er minnt á
að saltfiskur fyrir Portúgal er þurrkaður
og hefur hefðbundinn lit. Því sé ekki æski-
legt að framleiða saltfisk fyrir Portúgal
með viðbættum fosfötum.
Gunnar segir að á heildina litið hafi
mönnum tekist að halda sínu þrátt fyrir
erfiðleika samfara banni á notkun fosfata.
Fosföt viðhalda hvíta litnum og koma í veg
fyrir að fiskurinn þráni. Gunnar segir að
gæði línufisks frá Íslandi hafi tryggt við-
skiptin og Íslendingar hafi ekki misst
markaði vegna bannsins.
Aflabrögð ekki betri lengi
Ljósmynd/Kristinn Benediktsson
Á línu Í róðri með Sturlu GK fyrir nokkrum árum. Í haust hefur yfirleitt fiskast mjög vel og hafa mörg skip verið að veiðum á Hornbanka.
Saltfiskmarkaðir að rétta úr kútnum Gott verð fyrir fersk flök í Bretlandi og Bandaríkjunum
Línuskip Þorbjarnar í Grindavík landa á 3-4 daga fresti Gæði frekar en að moka upp fiski
Á aflafréttum.is er greint frá góðum afla í nóv-
ember. „Hjá stóru línubátunum vekur það athygli
hversu margar landanir voru yfir 100 tonnin. Það
er kannski lýsandi dæmi um aukinn fisk í sjónum
og þá munar þar mikið um meiri þorsk. Líka það að
línubátarnir eru orðnir það öflugir og þeir stærstu
eru með allt að 45 þúsund króka um borð.
Alls voru þrettán landanir í nóvember hjá línu-
bátunum sem voru yfir 100 tonnin sem er mjög
mikið.“ Greint er frá því að Anna EA og Jóhanna
Gísladóttir ÍS hafi báðar landað 146 tonnum úr ein-
um róðri.
Meira af fiski í sjónum
MARGAR LANDANIR YFIR 100 TONNIN