Morgunblaðið - 11.12.2013, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Ný bók að vestan
Bókin Gróa, gróusögur nútímans af heimaslóðum höfundar, eftir Jóa
bónda í Skáleyjum á Breiðafirði er komin út hjá Vestfirska forlaginu
og er þetta hans fyrsta bók. Eyjabóndinn segir hér frá sjálfum sér og
sínu fólki í eyjunum og uppi á landi. Einnig samtímamönnum og þeim
sem gengnir eru, kjörum þeirra og hugsunarhætti. Í bókinni er fjöldi
ljósmynda sem aldrei hafa birst áður.
Efnið er til orðið á mörgum árum. Þegar ég las það yfir rak ég mig á að
Gróusálminn hef ég sungið hvað eftir annað. Kannski er fréttamennska
ríkasta, gjöfulasta og kostnaðarmesta iðja heimsins. Það ætti að
reisa Gróu á Leiti minnismerki ekki minna en frelsisstyttuna,
skrifar Jóhannes Geir Gíslason í Skáleyjum.
Jói í Skáleyjum skrifar svo í kaflanum Aðdragandi að sjálfum mér:
„Formæður mínar voru stoltar af ættfeðrum sínum, Stagleyingum. Ólafur Oddsson frá Stagley bjó í
Sviðnum. Kona hans Geirþrúður var úr Dalasýslu, kölluð Geirþrúður stóra, trúlega fædd á Á á Skarðsströnd.
Henni er lýst svo af Gísla Konráðssyni: „Hún var kvenna mest vexti og allmikil fyrir sér. Hún var svo rosa-
vaxin að báðum hurðavængjum Flateyjarkirkju þurfti að slá upp þá hún gekk í hana og úr. Hún var svo
skapi farin að þá Ólafur sonur hennar las húslestur og hnökraði á lestrinum þá rak hún honum löðrung
og spurði hvort hún hefði svo illa kennt honum til bókar að hann væri ekki læs.“ Ólafur var þá fullorðinn.
– Þakka þér Gísli Konráðsson.
Afkomendur Geirþrúðar og Ólafs eru vafalaust fjöldamargir í fjöldamörgum kvíslum að vonum.
Geta því kunnugir skoðað og borið saman hversu skaplyndi hennar og vöxtur hafa erfst og varðveist.“
Fæst í bókaverslunum um land allt
Verð 3.900 kr.
VR og Landssamband íslenskra
verslunarmanna ákváðu í gær að vísa
kjaradeilu sinni við Samtök atvinnu-
lífsins til ríkissáttasemjara. Þessi
ákvörðun var tekin í kjölfar fundar
sem verslunarmenn áttu með samn-
inganefnd SA.
„Við áttum ágætan fund með Sam-
tökum atvinnulífsins en það ber
ennþá töluvert í milli miðað við okkar
kröfugerð,“ segir Ólafía B. Rafns-
dóttir, formaður VR. Hún segist von-
mótin. „Það er mikil ábyrgð í því fólg-
in að menn setjist niður og tali saman
um raunhæfar leiðir sem leiði til
kaupmáttaraukningar. Ríkisvaldið
verður að koma að því með ein-
hverjum hætti. Ekki gerum við þetta
ein en viðsemjendur okkar eru fyrst
og síðast Samtök atvinnulífsins og
það er mjög brýnt að það náist ein-
hver niðurstaða á allra næstu dögum.
Ef það gerist ekki erum við komin í
mjög slæm mál eftir áramótin.“
Í kröfugerð verslunarmanna er
megináhersla lögð á að efla kaupmátt
launafólks og leggja grunn að efna-
hagslegum stöðugleika. Ólafía segir
líka alveg ljóst að félagið gangi ekki
til samninga nema það nái að hækka
laun lægst launuðu félagsmannanna.
Auk verslunarmanna hafa bæði
Starfsgreinasambandið og Flóa-
félögin vísað kjaradeilum sínum við
vinnuveitendur til sáttameðferðar.
omfr@mbl.is
„Mjög brýnt að ná niðurstöðu“
Verslunarmenn vísa kjaradeilu sinni við SA til Ríkissáttasemjara
ast til að framhaldið skýrist á allra
næstu dögum. Hún segir það mikinn
ábyrgðarhlut að niðurstaða fáist sem
fyrst svo ekki verði allt komið í bál og
brand á vinnumarkaðinum eftir ára-
„Það ber ennþá
töluvert í milli
miðað við okkar
kröfugerð.“
Ólafía B. Rafnsdóttir
Hugmyndaríkur listamaður hefur raðað upp tómum rauðvínskössum á
ljósastaur fyrir utan Alþingi. Ekki er vitað nánar um listamanninn eða
hvaðan allt rauðvínið kom en gjörningurinn er athyglisverður.
Morgunblaðið/Ómar
Rauðvínskassar við þingið
Þingflokkur Vinstri grænna lagði í
gær fram tillögur að breytingum á
fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar
og tengdum bandormum. Með tillög-
um sínum telur flokkurinn að hægt
sé að auka tekjur um tíu milljarða
króna nettó á næsta ári og um 20
milljarða árið 2015. Lagt er til að
hætt verði við lækkun tekjuskatts á
miðþrepi. Með því aukist tekjur um 5
milljarða kr. Hækkun virðisauka-
skatts frá og með 1. mars á næsta ári
úr 7 í 14% gefi 1,8 milljarða kr.
Hækkun sérstaks veiðigjalds og inn-
heimtu leigugjalds á makrílveiðum
skapi 4,7 milljarða króna.
Hlutfall fæðingarorlofssjóðs fari
úr 0,65% í 0,75% og hluti ríkissjóðs
lækki sem því nemur. Þannig megi
lengja orlofið um mánuð og styrkja
eiginfjárstöðu sjóðsins.
Af auknum tekjum vill flokkurinn
leggja 5 milljarða í aukin framlög til
heilbrigðismála, 300 milljónir til
sjóða skapandi greina, 730 milljónir
til rannsóknasjóðs, tækniþróunar-
sjóðs og markáætlunar, 555 milljónir
til lengingar fæðingarorlofs, 525
milljónir til framhaldsskóla og 400
milljónir til sóknaráætlana lands-
hluta. Þá er tillaga um 800 milljónir
til byggðatengdra verkefna og jöfn-
unar búsetuskilyrða, 500 milljónir til
þróunarsamvinnu, 540 milljónir í
uppbyggingu ferðamannastaða og
friðlýstra svæða. 600 milljónir í Rík-
isútvarpið og 850 milljónir vegna
heimildar til lánsveða. vidar@mbl.is
VG leggur fram
breytingatillögur
Tillögurnar skapi 10 milljarða kr.
Bæjarstjórn Kópa-
vogs samþykkti ein-
róma í gærkvöldi að
hækka ekki gjald-
skrár í skólum um
áramót. Þetta þýðir
að leikskóla- og mat-
argjald verður óbreytt í leik-
skólum og matargjald óbreytt í
grunnskólum. Verðskrá dægra-
dvalar verður sömuleiðis óbreytt,
segir í tilkynningu frá Kópa-
vogsbæ.
Bæjarstjórn samþykkti ennig
að hækka ekki verð á mat fyrir
eldri borgara, heimkeyrslu á mat
né heimilishjálp. Markmiðið er að
draga úr verðbólgu og liðka fyrir
komandi kjarasamningum og
hvetur bæjarstjórnin sveitarfélög
og aðra opinbera aðila til að falla
einnig frá gjaldskrárhækkunum.
Hækka ekki gjald-
skrár í skólunum
Samkvæmt sam-
þykktri fjárhags-
áætlun Hafnarfjarð-
arbæjar fyrir árið
2014 verða allar gjald-
skrár fjölskyldu- og
fræðsluþjónustu
óbreyttar, auk þess
sem nýjar reglur taka gildi 1. janúar
um systkinaafslátt þvert á kerfið,
frá dagforeldri til frístundaheimilis.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Auknu fé verður varið til viðhalds
og framkvæmda en álagningarhlut-
fall fasteignaskatts af íbúðar-
húsnæði lækkar úr 0,30% í 0,28%.
Lóðaleiga, vatnsgjald og holræsa-
gjald helst óbreytt. Ráðgert er að
greiða niður lán og skuldbindingar
um 1,9 milljarða króna.
Nýjar reglur um
systkinaafslátt