Morgunblaðið - 11.12.2013, Qupperneq 27
Föst áskrift að
gjaldeyristekjum
fyrir þjóðarbúið
Þó að ál sé léttur
málmur vegur áliðn-
aðurinn þungt í ís-
lenska hagkerfinu.
Staðreyndirnar tala
sínu máli eins og und-
irstrikað er í auglýs-
ingum Samáls, sam-
taka álframleiðenda,
sem birtast í fjöl-
miðlum þessa dagana.
Innlend útgjöld ís-
lensks áliðnaðar námu
100 milljörðum í krónum talið árið
2012. Það samsvarar því að á
hverjum degi streymi um 275 millj-
ónir af erlendum gjaldeyri inn í
landið til að mæta þessum kostn-
aði. Til marks um mikilvægi þess-
ara gjaldeyristekna má nefna að
það stefnir í að viðskiptajöfnuður
þjóðarbúsins verði jákvæður um 55
milljarða á þessu ári.
Þess misskilnings hefur gætt í
umræðunni að raforkan vegi lang-
þyngst af innlendum útgjöldum ál-
iðnaðarins. Vissulega keyptu álver-
in þrjú raforku fyrir 40 milljarða
árið 2012, en aðrir innlendir þættir
vega þyngra.
Á síðasta ári greiddi áliðnaður-
inn rúmlega 60 þúsund reikninga
fyrir innlendar vörur og þjónustu,
samtals að upphæð um 40 millj-
arðar króna, fyrir utan raforku-
kaup. Til að setja þá upphæð í sam-
hengi, þá samsvarar það
heildarkostnaði við rekstur Land-
spítalans samkvæmt fjárlaga-
frumvarpinu fyrir árið 2014.
Kaup á vörum og þjónustu vega
því jafnþungt og raforkan, enda
nutu yfir 700 innlend fyrirtæki
góðs af því á síðasta ári. Þar til við-
bótar eru laun og opinber gjöld
sem námu um 20 milljörðum. Þá
veittu álverin um 250 milljónir til
samfélagsverkefna af ýmsu tagi,
s.s. íþrótta, menntunar og menn-
ingar. Þjóðarbúið fékk því alls
rúma 100 milljarða í
gjaldeyristekjur frá
áliðnaðinum.
Um þessar mundir
er unnið að skrásetn-
ingu og uppbyggingu
íslenska álklasans og
fékk álklasinn brons-
viðurkenninguna
„European Cluster
Excellence Initiative“
á klasaráðstefnu
RANNÍS á dögunum.
Við það tækifæri
fengu níu klasar viðurkenningu,
þar af tveir úr orkugeiranum sem
byggst hafa upp samhliða áliðn-
aðinum.
Vert er að geta þess að áliðn-
aðurinn hefur borið uppi erlenda
fjárfestingu á Íslandi frá hruni. Rio
Tinto Alcan lýkur á næsta ári við
60 milljarða fjárfestingarverkefni í
Straumsvík eða sem nemur 10 ára
hagnaði fyrirtækisins. Alcoa réðst í
8 milljarða fjárfestingarverkefni á
Reyðarfirði. Loks hefur Norðurál
ráðist í fjárfestingarverkefni á
Grundartanga þar sem kostnaður
er um 12 milljarðar króna og yfir
15 milljörðum hefur verið varið í
undirbúning álvers Norðuráls í
Helguvík.
Af umfangi þessara verkefna má
ráða að eigendur álveranna hér á
landi horfa til langrar framtíðar í
rekstri þeirra.
Eftir Pétur Blöndal
» Á síðasta ári greiddi
áliðnaðurinn rúm-
lega 60 þúsund reikn-
inga fyrir innlendar
vörur og þjónustu, sam-
tals 40 milljarða króna,
fyrir utan raforkukaup.
Pétur Blöndal
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samáls, samtaka álframleiðenda.
27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Beðið eftir strætó Mörgum reynist erfitt að bíða utanhúss í kulda og trekki og þegar beðið er eftir strætó á Lækjartorgi er gott að klæða sig eftir veðri. Þá verður biðin gjarnan léttari.
Ómar
Fjárlagafrumvarp
fyrir komandi ár gerir
ráð fyrir að alls verji
ríkissjóður um 10.072
milljónum króna til
listastofnana, safna og
annarrar menningar-
starfsemi. Það er sama
hvaða mælikvarði er
notaður. Þetta eru gríð-
arlegir fjármunir og
jafngilda því að hver
fjögurra manna fjölskylda greiði nær
124 þúsund krónur árið 2014 til lista
og menningarstarfseminnar.
Við Íslendingar erum gæfusöm
þjóð. Við eigum ótrúlega hæfi-
leikaríka einstaklinga á öllum sviðum
lista, allt frá tónlist til myndlistar, frá
bókmenntum til kvikmyndagerðar.
Við höfum haft skilning á því að þær
þjóðir sem glatað hafa arfleifð sinni –
sögu, tungu og menningu – hafa
misst pólitískt og fjárhagslegt sjálf-
stæði sitt. Með öðrum orðum: Öflugt
lista- og menningarlíf er ein forsenda
fyrir sjálfstæði þjóðar og þá ekki síst
fámennrar þjóðar.
Frjór jarðvegur lista
og menningar
Óhætt er að fullyrða að það sé al-
menn samstaða um að tryggja frjóan
jarðveg þannig að listir og menning
blómstri. Við deilum hins vegar um
hvernig best sé að tryggja frjósem-
ina. Margir telja nauðsynlegt að hið
opinbera verji verulegum (og jafnvel
enn meiri fjármunum en gert er) til
lista- og menningarstarfsemi. Aðrir
vilja draga úr eða jafnvel hætta öllum
stuðningi úr sameiginlegum sjóðum.
En óháð því hvar menn standa í deil-
unni um stuðning hins opinbera
hljóta allir að vera sammála um nauð-
syn þess að fjármunum, sem á annað
borð renna til lista og menningar, sé
varið af skynsemi og ráðdeild.
Vandinn er sá að við erum að sóa
fjármunum. Sá er hér ritar er t.d.
sannfærður um að stuðningskerfi við
íslenska listamenn þjóni ekki mark-
miðum um fjölbreytta og öfluga lista-
starfsemi. Þvert á móti kemur kerfið
í veg fyrir nýtt blóð og nýjar hug-
myndir. Ungir listamenn, sem eru að
stíga sín fyrstu skref,
standa ekki jafnfætis
þeim sem sitja fyrir á
fleti. Þannig er komið í
veg fyrir samkeppni og
listaflóran verður fá-
breytni að bráð.
Versta dæmið
Stuðningskerfi við
listamenn – lista-
mannalaun – er langt í
frá að vera eina eða
versta dæmið um sóun
fjármuna sem varið er í
lista- og menningarstarfsemi. Rík-
isútvarpið gerir tilkall til að hljóta
þann heiður.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi mun
Ríkisútvarpið fá í sinn hlut 3.514
milljónir króna af þeim 10.072 millj-
ónum sem mennta- og menningar-
málaráðuneytið skilgreinir að renni
til lista og menningarstarfsemi.
Þannig er hlutur Ríkisútvarpsins
nær 35% eða liðlega 43 þúsund krón-
ur á hverja fjögurra manna fjöl-
skyldu. Þá eru ótaldar auglýsinga-
tekjur.
Í kjölfar fjöldauppsagna á Rík-
isútvarpinu, þar sem Rás 1 varð sér-
staklega illa úti, hafa margir tekið til
máls. Hæst hafa þeir sem krefjast
þess að ríkissjóður auki framlög til
ríkismiðilsins. Bent er á að Rík-
isútvarpið sé mikilvægur bakhjarl
lista og menningar. Fáum dettur
lengur í hug að nefna öryggis-
hlutverk enda hafa einkaaðilar sinnt
því betur en ríkismiðillinn á undan-
förnum árum.
En jafnvel þeir sem krefjast auk-
inna fjármuna til rekstrar Ríkis-
útvarpsins taka undir gagnrýni á
starfsemi fyrirtækisins. Því verður
vart haldið fram að Ríkisútvarpið hafi
sinnt listum og menningu af myndar-
brag á síðustu árum. Sjónvarpið er að
stórum hluta endurvarp bandarískr-
ar og breskrar afþreyingar og Rás 2
er dægurlagastöð í samkeppni við
einkaaðila. Rás 1 er olnbogabarn í
léttmetisvæðingu Ríkisútvarpsins í
misskilinni samkeppni við einkaaðila.
Ég óttast að umræða um stöðu
Ríkisútvarpsins fari í gamalkunnan
farveg. Í engu verði ráðist að rót
vandans. Haldið verði áfram á sömu
braut og þegar betur árar verði aukn-
um fjármunum varið til rekstrar.
Sóun ekki fjárskortur
Í vorhefti tímaritsins Þjóðmála ár-
ið 2010 fjallaði undirritaður ítarlega
um Ríkisútvarpið og lagði fram hug-
myndir um róttæka uppstokkun á
skipulagi og starfsemi. Því var haldið
fram að tímabært væri að stjórn-
endur Ríkisútvarpsins og stjórn-
málamenn viðurkenndu að fyrirtækið
væri í svo miklum ógöngum að nauð-
synlegt væri að skilgreina hlutverk
og verksvið þess að nýju og umbylta
öllum viðteknum hugmyndum um
rekstur ríkisfjölmiðils. Að öðrum
kosti verði Ríkisútvarpið áfram vand-
ræðabarn sem þurfi að sinna á nokk-
urra ára fresti.
Ekki er rúm til þess að fjalla um
þær hugmyndir sem settar voru fram
í Þjóðmálum en þar voru færð rök
fyrir því að hægt væri að blása til
mikillar sóknar í listum og menningu.
Sé miðað við fjárlagafrumvarp kom-
andi árs má ætla að með róttækum
breytingum á skipulagi Ríkisútvarps-
ins geti fyrirtækið keypt efni af inn-
lendum kvikmynda-, dagskrárgerð-
ar- og listamönnum fyrir nær
2.300-2.400 milljónir króna á ári. Hér
væri um að ræða þætti í útvarpi og
sjónvarpi á öllum sviðum; kvikmynd-
ir, framhaldsþætti, skemmtiþætti,
umræðuþætti, fréttaskýringaþætti,
tónlist, leikrit, heimilda- og fræðslu-
þætti, svo eitthvað sé nefnt.
Ríkisútvarpið undirstrikar að það
er ekki fjárskortur sem hrjáir ís-
lenskt lista- og menningarlíf. Það er
miklu fremur sóun fjármuna sem er
innbyggð í úrelt stofnanafyrirkomu-
lag. Frjór jarðvegur verður ekki til
með auknum ríkisstyrkjum, heldur
fremur með meiri ráðdeild og minni
sóun.
Eftir Óla Björn
Kárason » Frjór jarðvegur
verður ekki til með
auknum ríkisstyrkjum,
heldur fremur með
meiri ráðdeild og minni
sóun.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Opinberum fjármunum er sóað