Morgunblaðið - 11.12.2013, Síða 31
sem hefur verið stór hluti af til-
veru okkar er horfin okkur sjón-
um. Eftir sitjum við og störum
skilningsvana í tómið sem hún
fyllti.
Dóra var glæsileg kona og björt
yfirlitum. Fjölskyldan var henni
allt og í faðmi hennar leið henni
best. Hún lifði fyrir börnin sín og
eiginmann og vakti yfir velferð
þeirra, ávallt trú og traust. Ást
hennar var sannarlega endurgold-
in. En fjölskyldan takmarkaðist
ekki við eiginmann og börn. Börn-
in okkar urðu sem börnin þeirra
og heimili þeirra Andrésar stóð
okkur ætíð opið. Um móður okkar
hugsaði Dóra af mikilli væntum-
þykju og ást. Föður okkar saknaði
hún alla tíð en hann lést fyrir ald-
ur fram. Hún var einstaklega
hjartahlý og átti auðvelt með að
gefa af sér. Hún gladdist með öðr-
um en var hógvær hvað hana
sjálfa varðaði.
Betri stóru systur er ekki hægt
að hugsa sér.
Dóra var mikið náttúrubarn.
Hún unni landinu sínu sem hún
þekkti svo vel. Hvergi var hún
ánægðari en á ferð um landið með
fjölskyldunni. Einn staður var
henni hugleiknari en aðrir. Í
Þjórsárdal sem hún kallaði sveit-
ina sína höfðu Dóra og Andrés að-
gang að sumarhúsi og þangað var
gaman að fara. Njóta frjálsræðis í
sveitinni, leika úti við börnin á
daginn og spila fram á nótt þegar
þau voru komin í háttinn. Við
fengum að fara með þeim í þessa
paradís á hverju sumri. Við og
börnin okkar minnumst þessara
stunda með gleði í hjarta.
Mikil tímamót urðu á síðasta
ári þegar tvö barnabörn bættust í
hópinn með mánaðar millibili.
Nýtt skeið rétt að hefjast sem
amma. Það leyndi sér ekki hversu
stolt og ánægð Dóra var með ung-
ana sína. Því miður fékk hún ekki
að njóta þeirra og þau hennar
nema í þennan skamma tíma. En
minningu hennar munum við fjöl-
skyldan halda á lofti þannig að
hún fylgi litlu ömmubörnunum
alla tíð.
Mikið er sárt að sjá á bak kærri
systur og mágkonu. Við yljum
okkur við góðar minningar sem
ekki verða frá okkur teknar. Miss-
ir Andrésar og barnanna er mikill
og þungbær. Guð gefi þeim styrk.
Megi englar Guðs vaka yfir
elskulegri systur minni.
Nanna og Ólafur.
Það var mikil eftirvænting í lofti,
þegar Andrés bróðir kynnti kær-
ustuna sína fyrir fjölskyldunni, fyr-
ir rúmlega 40 árum. Dóra, þessi
glæsilega og ljúfa stúlka, féll strax
vel inn í hópinn. Við urðum fljótt
góðar vinkonur og sá vinskapur
hélst alla tíð, án þess að nokkru
sinni bæri skugga á.
Síðustu daga hafa minningarn-
ar streymt fram, sumar tengdar
erfiðleikum og sorg, en hinar þó
miklu fleiri frá gleðilegum atvik-
um og samverustundum.
Minnisstæðar eru t.d. heim-
sóknir þeirra hjóna til okkar, fyrst
til Vestmannaeyja og síðar til
Akraness. Þá áttum við ánægju-
legar stundir saman á ættarmót-
um og í útilegum, t.d. í Loðmund-
arfirði, á Barðaströnd og þar í
nágrenni, í Skagafirði og á
Ströndum. Eftir að börn okkar
fæddust voru þau að sjálfsögðu
með. Þessum minningum öllum
fylgir mikil gleði og ánægja.
Það er sömuleiðis mjög eftir-
minnilegt þegar við mágkonurnar
vorum ófrískar á sama tíma, bár-
um reglulega saman bækur okkar
og eignuðumst dætur okkar, Írisi
og Sigrúnu, með tveggja daga
millibili í ágúst 1979. Dóra var
mikil fjölskyldukona, sem lét sér
mjög annt um velferð sinna nán-
ustu. Hún bjó yfir mikilli jákvæðni
og æðruleysi, og það var alltaf
stutt í fallegt bros hennar. Hún
var mikill fagurkeri og smekk-
manneskja.
Það hefur myndast stórt skarð í
fjölskyldu okkar við skyndilegt
fráfall hennar, sem enginn átti von
á.
Sorgin er mikil, en lífið getur
verið miskunnarlaust.
Ég á eftir að sakna mikið hvers-
dagslegra samskipta okkar Dóru,
að spjalla saman í síma eða eiga
notalega stund yfir kaffibolla.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég þakka elskulegri mágkonu
minni fyrir allar góðu samveru-
stundirnar og bið algóðan Guð að
styrkja elsku Andrés bróður,
börnin og fjölskyldur á þessari
sorgarstundu.
Vort líf er svo ríkt af ljóssins þrá,
að lokkar oss himins sólarbrá,
og húmið hlýtur að dvína,
er hrynjandi geislar skína.
Vor sál er svo rík af trausti og trú,
að trauðla mun bregðast huggun sú.
Þó ævin sem elding þjóti,
Guðs eilífð blasir oss móti.
Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást,
að hugir í gegnum dauðann sjást.
- Vér hverfum og höldum víðar,
en hittumst þó aftur – síðar.
(Jóhannes úr Kötlum)
Berglind.
Dóra tengdamamma mín,
amma barnsins míns. Nú ert þú
farin á góðan stað þar sem þér líð-
ur vel. Við hérna söknum þín samt
óendanlega mikið en leitum skjóls
í minningunum.
Ég minnist þess svo vel þegar
þú komst og hjálpaðir okkur
Begga að flytja og þú pakkaðir
eldhúsinu niður á mettíma. Við
Beggi áttum ekki orð hversu hratt
og vel gert þetta var, en þannig
varstu, allt sem þú tókst þér fyrir
hendur var vel gert. Ég man vel
þegar þú komst að kíkja á litla
ömmubarnið þitt í fyrsta sinn. Þú
ljómaðir og gerðir það í hvert sinn
sem þú sást hann. Þú varst líka
svo glöð þegar við vildum að þú
værir guðmóðir hans, en ég gat
ekki hugsað mér betri guðmóður
fyrir Alex litla þar sem kærleikur
þinn var dýpri heldur en hjá nokk-
urri manneskju sem ég hef
kynnst. Ég veit að þú munt passa
hann vel um ókomna framtíð þar
sem þú ert núna. Ég skal vera
dugleg að segja honum frá ömmu
sinni og halda minningunni um þig
á lofti, en sárast finnst mér að
hann hafi ekki fengið að njóta þín
lengur. Elsku Dóra, ég kveð þig
með söknuð í hjarta.
Erla Björk.
Minningar og hughrif sem
tengjast Halldóru Bergþórsdótt-
ur, Dóru, streyma inn. Óljósar
bernskuminningar frá fimmta
áratugnum. Dóra leiðir litlu
frænku í kringum jólatréð í stof-
unni á Nesveginum. Heitt súkku-
laði með rjóma. Spilað við borð-
stofuborðið. Í Sólheimum finnur
Dóra skókassa fyrir dúkkur litlu
stelpnanna. Hún setur band í og
þær draga kassana eftir gangin-
um. Lóa kemur með krakkana á
Nesveginn. Dóra fer með litlu
frænkuna út í mjólkurbúð að
kaupa franskbrauð fyrir mömmu
sína. Hún kennir henni hvernig
hægt er að borða innan úr brauð-
inu án þess að sjáist á því. Minn-
ingarnar eru hlýjar og kalla fram
bros. Seinna er Dóra ung stúlka á
sjötta áratugnum. Hún er í Versló.
Hún er falleg með þykkt sítt hár.
Dóra fer í skóla til Englands og
kemur heim sem fágaður heims-
borgari. Hún fer að vinna í Út-
vegsbankanum. Dóra giftist
Andrési og frænkan fylgist með
þegar brúðhjónin glæsilegu koma
út úr kirkjunni.
Nýtt tímabil hófst í lífi Dóru.
Þau Andrés stofnuðu heimili og
eignuðust þrjú börn. Stórfjöl-
skyldan stækkaði og við hittumst
æ sjaldnar. Í byrjun níunda árar-
tugarins ákváðu systkinabörnin
að hittast með fjölskyldur sínar og
foreldra í Fljótstungu í Hvítársíðu
á nokkurra ára fresti til að styrkja
fjölskylduböndin. Þar kynntist ég
nýrri hlið á Dóru. Hún var móðir
og eiginkona sem umvafði fjöl-
skyldu sína ástríki. Hún var sterk
kona sem tók ákvarðanir í lífinu.
Hún tók þá ákvörðun að setja í
forgang það sem dýrmætast er í
lífi hverrar fjölskyldu, börnin.
Dóra styrkti börnin sín í námi og
frístundum. Þau bera með sér
uppeldi þeirra Andrésar. Þau eru
sjálfstæðar, heiðarlegar og góðar
manneskjur.
Fyrir þremur árum kallaði hóp-
ur innan Fljótstunguættar saman
fulltrúa af kynslóð okkar Dóru
sem skipulögðu ættarmót niðja
Guðrúnar Pétursdóttur og Jóns
Pálssonar í Fljótstungu. Á sama
tíma var unnið að ættartré Ána-
naustaættar í Reykjavík. Við, af-
komendur Guðrúnar, vorum beðin
um að skoða okkar grein, uppfæra
upplýsingar og finna myndir.
Dóra lagðist í mikla rannsóknar-
vinnu. Hún safnaði myndrænum
og skráðum upplýsingum um ætt-
feður og -mæður, rakti flutning á
húsi afa okkar frá Lindargötu í
Stykkishólm og svo mætti lengi
telja. Við unnum töluvert saman
þar sem ég sá um tæknimál. Þá
kynntist ég enn nýrri hlið á Dóru.
Ég kynntist umhyggjusemi fyrir
aldraðri móður, frjálslyndri konu
sem tók opnum örmum nýjum
fjölskyldum inn í sína og loks
gleðinni yfir litlu barnabörnunum
sem áttu að fá að njóta yndislegr-
ar ömmu um ókomin ár. En þá var
einhver sem bankaði á og vildi fá
að njóta krafta Dóru handan
landamæra lífsins. Blessuð sé
minning Halldóru Bergþórsdótt-
ur.
Margrét Ásgeirsdóttir.
Dóra var einstök frænka, ástrík
og hjartahlý. Við erum lánsöm að
hafa átt hana að og það að geta
sagt að hún sé móðursystir okkar
fyllir okkur stolti enda vart hægt
að finna glæsilegri konu.
Dóra og móðir okkar systkina
voru mjög nánar systur og ólumst
við upp við að heimili hennar,
Andrésar og barnanna þeirra var
sem okkar annað heimili. Alltaf
var tekið á móti okkur með föstu
faðmlagi og alltaf fann maður
hversu mikla ást Dóra hafði að
gefa. Með sorg í hjarta sitjum við
eftir en yljum okkur við minning-
arnar um öll þau jól og áramót
sem við áttum saman, allar sum-
arbústaðaferðirnar og tjaldútileg-
urnar sem við fórum í, Danmerk-
SJÁ SÍÐU 32
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
UNNUR JAKOBSDÓTTIR,
áður að Digranesvegi 80,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
Kópavogi, þriðjudaginn 3. desember.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknarstofnanir.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 13. desember
kl. 13.00.
Bent Bjarnason, Helga Helgadóttir,
Anna Þórdís Bjarnadóttir, Stefán R. Jónsson,
Jakob Unnar Bjarnason, Þóra Kristín Vilhjálmsdóttir,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
✝
Elskuleg frænka okkar,
UNNUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Túni í Flóa,
áður Stigahlíð 88,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn
6. desember.
Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
12. desember kl. 15.00.
Systkinabörnin.
✝
Elskulegur sonur, bróðir og frændi,
SIGFÚS BLÖNDAL SIGURÐSSON,
Stafholtsey,
Borgarfirði,
verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju í
Borgarfirði föstudaginn 13. desember
kl. 14.00.
Sigríður Blöndal,
Jóhanna Sigurðardóttir, Knút Petur í Gong,
Jón Páll Sigurðsson,
Pálfríður Sigurðardóttir, Stefán Hafþór Guðmundsson
og fjölskyldur.
✝
Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
KARÍTAS KRISTJÁNSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést að heimili sínu föstudaginn 6. desember.
Jarðarförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn
17. desember kl. 13.00.
Kári Sigurbergsson,
Kristján Kárason, Hrafnhildur Soffía Guðbjörnsdóttir,
Sigurbergur Kárason,Guðrún Jónasdóttir,
Hrafnkell Kárason, Brynhildur Ingvarsdóttir,
Ásdís Káradóttir, Arnar Þór Másson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR BIRNU HALLDÓRSDÓTTUR,
Grænugötu 12,
Akureyri.
Útför hennar fór fram í kyrrþey frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 4. desember.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningarinnar á Akureyri
fyrir frábæra umönnun.
Ragnheiður Harðardóttir,
Halldór Jóhann Harðarson,
Sigrún Soffía Harðardóttir, Oddur Sigurðarson,
Steinberg Harðarson, Pia Mortensen,
Ragnar Harðarson,
Sigurlaug Harðardóttir, Sigmundur Hannes Hreinsson,
Hulda Ósk Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓNA BJÖRK KRISTJÁNSDÓTTIR,
Alviðru,
Dýrafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
sunnudaginn 8. desember.
Jarðarförin fer fram frá Núpskirkju
laugardaginn 14. desember kl. 11.00.
Helgi Árnason,
Sigríður Helgadóttir, Friðfinnur S. Sigurðsson,
Kristín Þórunn Helgadóttir Brynjar Gunnarsson,
Matthildur Helgadóttir Jónudóttir, Guðmundur Hjaltason,
Kristján Örn Helgason, Dagrún Matthíasdóttir,
Árni Þór Helgason, Carolin Kraus,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar elskulega og einstaka móðir, systir,
mágkona og vinur besti,
VALDÍS GUNNARSDÓTTIR,
Katrínarlind 7,
lést sunnudaginn 8. desember.
Útför auglýst síðar.
Hrafn Valdísarson,
Greta Lind Kristjánsdóttir,
Ásta Gunnarsdóttir, Oddur Halldórsson,
Jóna Björk Gunnarsdóttir,
Eyrún Gunnarsdóttir,
Trausti Már Kristjánsson, Therese Grahn,
Ragnar Þorsteinsson, Jóhann Þór Guðmundsson.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
SIGURBJARGAR SVEINSDÓTTUR
frá Sauðárkróki,
Lönguhlíð 3,
Reykjavík.
Stella E. Kristjánsdóttir,
Elsa Pálsdóttir, Edvard Lövdahl,
Magnús Pálsson, Ingunn Vilhjálmsdóttir,
Kristín Pálsdóttir, Guðjón Guðlaugsson,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, amma
og langamma,
ÓLAFÍA BJARNADÓTTIR,
Hábæ 2,
Þykkvabæ,
lést á Landspítala við Hringbraut sunnu-
daginn 8. desember.
Sverrir Gíslason,
Jóna Elísabet Sverrisdóttir, Pálmar Guðbrandsson,
Bjarni Rúnar Sverrisson,
Elín Þóra Sverrisdóttir, Einar S. Bjarnason,
Sverrir Þór Sverrisson, Brynja Sverrisdóttir,
Sigríður Helga Sverrisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEFÁN HALLDÓR HELGASON
lést föstudaginn 6. desember á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja.
Hann verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju
föstudaginn 13. desember kl. 13.00.
Droplaug G. Stefánsdóttir, Kristinn L. Matthíasson,
Margrét Stefánsdóttir, Bjarni Árnason
og barnabörn.