Morgunblaðið - 11.12.2013, Side 35
900 blaðsíðna bók í tveimur bind-
um, myndskreytt með 84 ljóð-
myndum eftir höfundinn.
Fjölskylda
Fyrri kona Ingimars var Ragn-
heiður Jónsdóttir, f. 20.11. 1935,
fyrrv. kennari í Reykjavík. Hún er
dóttir Jóns Eiríkssonar, bónda á
Svertingsstöðum í Húnavatns-
sýslu, og k.h., Hólmfríðar Björns-
dóttur húsfreyju.
Börn Ingimars og Ragnheiðar
eru Huld Ingimarsdóttir, f. 7.4.
1956, yfirmaður fjármálasviðs al-
þjóða Rauða krossins í Afríku, bú-
sett þar og á hún einn son; Frið-
björg Ingimarsdóttir, f. 8.8. 1959,
félagsfræðingur og forstöðumaður
Reykjavíkurakademíunnar en
maður hennar er Gunnar Her-
sveinn, heimspekingur og rithöf-
undur, og á hún tvö börn; Helga
Ingimarsdóttir, f. 23.2. 1962, skrif-
stofumaður í Reykjavík en maður
hennar Ævar Einarsson fram-
kvæmdastjóri og eiga þau fjögur
börn; Þóra Ingimarsdóttir, f. 11.11.
1963, búsett í Reykjavík.
Seinni kona Ingimars var Mar-
grét S. Blöndal, f. 7.12. 1939, d. 9.4.
2006, geðhjúkrunarfræðingur. Hún
var dóttir Sölva Blöndal hagfræð-
ings og Elsu Maríu Blöndal, f.
Hedberg, húsfreyju.
Börn Ingimars og Margrétar eru
Sigríður Freyja Ingimarsdóttir, f.
18.8. 1970, píanókennari, búsett í
Hafnarfirði og á hún tvö börn; Sig-
urður Vífill Ingimarsson, f. 8.4.
1977, framkvæmdastjóri verslunar-
innar Iceland, búsettur í Kópavogi
og á hann fjórar dætur með fyrri
konu en kona hans er Ingibjörg
Karlsdóttir verslunarmaður.
Systkini Ingimars: Birgir Sig-
urðsson, f. 28.8. 1937, rithöfundur í
Reykjavík; Sigríður Freyja, f. 23.7.
1931, d. 15.6. 1970, var búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Ingimars voru Sig-
urður Ingimar Helgason, 1.3. 1906,
d. 2.1. 1940, myndlistarmaður í
Reykjavík, og k.h., Friðbjörg Jóns-
dóttir, f. 25.8. 1900, d. 19.9. 1995,
húsfreyja.
Úr frændgarði Ingimars Erlends Sigurðssonar
Ingimar Erlendur
Sigurðsson
Þorbjörg Magnúsdóttir
húsfr. í Hátúni
Jónasína Friðfinnsdóttir
húsfr. í Sörlatungu
Jón Alexander Guðmundsson
b. í Sörlatungu í Hörgárdal
Friðbjörg Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigríður Ásmundsdóttir
húsfr. á Stóra-Grindli
Guðmundur Hafliðason
b. á Stóra-Grindli í Fjótum
Helga Bjarnadóttir
húsfr. á Heimabergi
Hannes Jónsson
b. á Heimabergi á Skarðsströnd
Helga Hannesdóttir
húsfr. í Rvík
Helgi Jakobsson
sjóm. Í Rvík
Sigurður Ingimar Helgason
myndlistarmaður í Rvík
Þórunn Þorvaldsdóttir
húsfr. í Berjanesi
Jakob Sigurðsson
söðlasmiður í Berjanesi
undir Eyjafjöllum
Birgir Sigurðsson
rithöfundur
Jón Jakobsson
útvegsb. í Mjóafirði
Þórarinn Jónsson
tónskáld
Sigríður Jakobsdóttir
húsfr. í Giljum í Mýrdal
Sigríður
Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Jón Aðalsteinn
Jónsson
orðabókarstjóri
Magnús
Friðfinnsson
b. á Skriðu í
Hörgárdal
Septína Friðfinnsdóttir
húsfr. á Neðri-Vindheimum
í Glæsibæjarhreppi
Þórbjörg
Sigursteins-
dóttir
húsfr. á
Akureyri
Bernharð
Haraldsson
fyrrv.
skólameistari
VMA Friðfinnur Gíslason
b. í Hátúni í Hörgárdal
Lilja Gísladóttir
húsfr. á Kotá
Friðfinnur
Guðjónsson
prentari og
leikari í Rvík
Aðalsteinn Valdimar
Friðfinnsson
verslunarm. í Rvík
Ragnar
Aðalsteinsson
hrl.
Skúli Magnússon
kennari á Akureyri
Páll Skúlason
heimspekingur og
fyrrv. rektor HÍ
Höskuldur Magnússon
b. og kennari á Skriðu
Þórhallur
Höskuldsson
pr. á Akureyri
Fljúga skal á einni fjöður Kápu-
mynd Ingimars Erlendar á nýjustu
ljóðabókinni hans, Ljóðdómur.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Hörður Þórðarson, sparisjóðs-stjóri SPRON, fæddist áKleppi í Reykjavík 11.12.
1909. Hann var sonur Þórðar
Sveinssonar, yfirlæknis á Klepps-
spítalanum, og k.h., Ellenar Johanne
Sveinsson húsfreyju.
Þórður var sonur Sveins, b. á
Geithömrum í Svínadal Péturssonar,
b. á Refsstöðum, bróður Kristjáns,
afa Jónasar Kristjánssonar læknis.
Móðir Þórðar var Steinunn Þórð-
ardóttir frá Ljótshólum.
Ellen Johanne var dóttir Jens
Ludvigs Joachims Kaaber, forstjóra
í Kaupmannahöfn, bróður Ludvigs
Kaaber bankastjóra.
Bræður Harðar urðu allir þjóð-
kunnir menn, þeir Úlfar augnlæknir;
dr. Sveinn, skólameistari og prófess-
or; Agnar, rithöfundur og bókavörð-
ur; Gunnlaugur, hrl., faðir Hrafns
kvikmyndaleikstjóra og Tinnu þjóð-
leikhússtjóra, og Sverrir, blaðamað-
ur við Morgunblaðið, faðir Þórðar
augnlæknis og Ásgeirs blaðamanns.
Eiginkona Harðar var Ingibjörg
Oddsdóttir húsfreyja, dóttir Odds
Jóns Bjarnasonar og Andreu Guð-
laugar Kristjánsdóttur.
Börn Harðar og Ingibjargar:
Þórður, hjartasérfræðingur, yf-
irlæknir og prófessor, og Anna,
skrifstofustjóri.
Hörður lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1927
og embættisprófi í lögfræði við Há-
skóla Íslands 1933. Hann stundaði
almenn bankastörf og starfaði í lög-
fræðideild Landsbanka Íslands frá
1933 en var síðan sparisjóðsstjóri
SPRON frá 1942 og til æviloka.
Hörður var í hópi þekktustu
bridsleikara hér á landi um langt
árabil. Hann var fyrsti formaður
Bridgefélags Reykjavíkur og síðar
kjörinn heiðursfélagi þess og sinnti
fjölda trúnaðarstarfa fyrir brid-
samtökin. Hann var í landsliði Ís-
lands í brids um árabil og sveit hans
vann margsinnis Íslands- og
Reykjavíkurmót.
Þá var Hörður lengi forseti
íþróttadómstóls ÍSÍ og sat í yfir-
kjörstjórn Reykjavíkur.
Hörður lést 6.12. 1975.
Merkir Íslendingar
Hörður
Þórðarson
100 ára
Guðrún Valborg
Finnbogadóttir
85 ára
Gunnar Árnason
80 ára
Garðar Guðjónsson
Inga Magnúsdóttir
Kristján Sveinsson
Pálmi Kristinn Jóhannsson
75 ára
Elín Kristín Halldórsdóttir
Jóhann Tryggvason
Páll Hjartarson
Ragnhildur Hallgrímsdóttir
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
Þórdís Jónsdóttir
70 ára
Bjarni O.V. Þóroddsson
Dóra Haraldsdóttir
Harvey G. Tousignant
Hjalti Steinþórsson
Hólmfríður Jónsdóttir
Kristbjörg Ámundadóttir
Óskar Mikaelsson
60 ára
Árni Sigursveinsson
Brynja Garðarsdóttir
Elísabet H. Hreinsdóttir
Herdís Gunnarsdóttir
Hilmar Jónsson
Hörður Ingþór Tómasson
Jóhann Ólafsson
Jón Rósmann Ólafsson
Linda Guðbjörg Leifsdóttir
María M. Lange
Sesselja Sveinbjörnsdóttir
Sigrún Elísabet Einarsdóttir
Stefán Hans Stephensen
Þorsteinn Þórarinsson
50 ára
Anna Finnbogadóttir
Einar Geir Hreinsson
Elín Ívarsdóttir
Gunnhildur B.
Jóhannsdóttir
Hanna Guðrún
Sigurjónsdóttir
Hulda Kristín
Hermannsdóttir
Ingibjörg S.
Runólfsdóttir
Margrét Björk
Svavarsdóttir
Margrét Kristín
Sigurðardóttir
Stefán Pétur Hauksson
40 ára
Benedikta Birgisdóttir
Berglind Jóhannsdóttir
Dröfn Stína
Guðmundsdóttir
Eydís Björk
Guðmundsdóttir
Guðlaug Anna
Stefánsdóttir
Guðlaug Auður
Guðnadóttir
Harpa Gunnur
Aðalbjörnsdóttir
Hróar Þór Reynisson
Hulda Klara Ormsdóttir
Húbert Ágústsson
Jóhann Styrmir Sophusson
Linda Antonsdóttir
Lóa Dís Finnsdóttir
Piotr Malesa
Sigríður Guðný
Sigurðardóttir
Þórhildur Rúnarsdóttir
30 ára
Andri Freyr Ólason
Arnar Þór Sigurjónsson
Bjarki Rafn Kristjánsson
Leó Kristófersson
Pétur Pétursson
Soffía Kristjánsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Guðmundur ólst
upp á Patreksfirði, er nú
búsettur í Hafnarfirði,
lauk vélstjóraprófi frá Vél-
skólanum og prófum frá
Lögregluskólanum og er
lögreglumaður í Hafn-
arfirði.
Maki: Jóhanna Skjön-
haug, f. 1988, lög-
reglumaður.
Foreldrar: Skúli Berg, f.
1963, lögreglufulltrúi, og
Anna Guðmundsdóttir, f.
1962, bankastarfsmaður.
Guðmundur
Viðar Berg
30 ára Ásgeir ólst upp í
Reykjavík, er þar búsettur
og starfar nú á lager hjá
Nóa-Síríusi.
Systkini: Hólmfríður
Gísladóttir, f. 1982, blaða-
maður; Eggert Þorbergur,
f. 1986, nemi, og Ásdís, f.
2003, nemi.
Foreldrar: Gísli Karel
Eggertsson, f. 1961, við-
skiptastjóri hjá Odda, og
Steinunn Ásgeirsdóttir, f.
1963, starfsmaður Hag-
stofunnar.
Ásgeir Júlíus
Gíslason
30 ára Elvar ólst upp á
Seltjarnarnesinu, lauk
sveinsprófi í húsasmíði og
starfar við smíðar og
ferðaþjónustu.
Maki: Laufey Sif Lár-
usdóttir, f. 1986, umhverf-
is- og skipulagsfræðingur.
Sonur: Haraldur Fróði, f.
2013.
Foreldrar: Þóra Kristín
Björnsdóttir, f. 1961,
hjúkrunarfr., og Þröstur
Már Sigurðsson, f. 1961,
húsasmíðameistari.
Elvar
Þrastarson
Takk hreinlæti ehf – Viðarhöfða 2 – 110 Reykjavík – Sími 577 6500 – www.takk.is – takk@takk.is
Er fjáröflun á næstunni?
Takk hreinlæti er með fjölbreytt
vöruúrval fyrir fjáraflanir