Morgunblaðið - 11.12.2013, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gefðu þér tíma til að huga að því
hvernig þú getur bætt líf þeirra sem eru þér
næstir. Leyfðu fólki að dást að þér og njóttu
þess.
20. apríl - 20. maí
Naut Rangar spurningar leiða bara til enn
meira öngþveitis. Ef undirritun samninga
stendur fyrir dyrum, skaltu vera viss um að
þú sért ánægð/ur með skilmálana - þeir eru
til langs tíma.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Stundum skilur fólk ekkert í því að
það stofnaði til sambands í upphafi, en það
er engin tilviljun hjá þér og þínum maka,
sambandið er byggt á ást.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert full/ur hugmynda og sérð ekki
hlutina í réttu ljósi. Nú er komið að því að þú
uppskerir laun erfiðis þíns. Taktu lítil skref en
fylgdu því sem þú vilt fast eftir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Eitthvað kann að kastast í kekki milli þín
og þinna nánustu. Taktu stjórnina í þínar
hendur og þá munu hjólin fara að snúast þér í
hag. Aðalatriðið er að halda sig við efnið -
ekki víkja af þeirri braut.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Slysahætta er mun meiri en venjulega
vegna stöðu himintungla. Gefðu þér tóm til
þess að svipta áhyggjum burtu svo þú sjáir
hlutina í réttu ljósi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Öll samskipti þín við aðra verða hlý og
notaleg í dag. Þú ert á uppleið í lífinu, haltu
upp á það og fáðu þér konfektbita, bara einn
þó.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekki gott fyrir heimilislífið
að taka vinnuna með sér heim. Sýndu var-
kárni því einkalíf þitt kann að skipta aðra
máli. Þú ert fær í flestan sjó.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Óvænt tækifæri mun bjóðast þér
og það ríður á miklu að þú kunnir að bregð-
ast rétt við. Persónuleg mál hvíla þungt á þér
en það birtir fljótlega til.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt öðrum lítist hreint ekki á fyr-
irætlanir þínar, máttu ekki láta það draga úr
þér kjarkinn. Samskipti þín við aðra einkenn-
ast af raunsæi og skynsemi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki er ósennilegt að þú lendir í
útistöðum við einhvern í dag. Bíttu í tunguna
á meðan þú aflar þér upplýsinga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki er ólíklegt að tafir, ruglingur og
viðlíka ergi þig í dag. Einbeittu þér að því að
efla styrk fólks.
Skáldið Þórarinn Eldjárn orti ádegi íslenskrar tungu 16. nóv-
ember síðastliðinn:
Íslenskan er okkar mál
amma og litlasystir.
Að súpa hennar sæta kál
sífellt mig í þyrstir.
Orðin hennar holt og bolt
heyrið, skoðið, rýnið.
Það er svo gott að þamba hollt
Þ og Ð-vítamínið.
Hallmundur Kristinsson bregður
á leik með limru á Boðnarmiði:
Ilmandi töðu á túnum
á Teitur Sveinsson á Brúnum.
Léttþurrkuð var.
Nú liggur hún þar;
lostæti handa kúnum.
Guðmundur Halldórsson prjónar
við hana:
Ljáin fellur í fossum
hjá Frímanni bónda á Krossum.
Hún fullþurr var snart
en farið með spart
og fráleitt boðin var hrossum.
Þá Hreinn Þorkelsson:
Á skáranum skrælþornar taðan
og skammt þar frá opin er hlaðan
að Ósk Friðjón laut
og augunum gaut:
„Þú gerir mig alltaf svo gr … ikksækinn“
Bjarki Karlsson leggur orð í
belg:
Þegar Teitur minn brunar til Brúna
að bera á túnin og frúna
er Friðjón á Hól
með flagsandi tól
frúna á Brúnum að múna.
Þorgeir Tryggvason stenst ekki
mátið:
Fúlmennið Friðjón á Hóli
flaggar í hálfa stöng tóli
meðan Teitur hann keyrir
á traktornum, heyrir
tæpast þó frúin hans góli.
Loks klykkir Hreinn út með:
Friðjón með pallsteindu priki
pikkar og heldur því striki
vel ánægð er nú
sú indæla frú
en lætur sem leitt sér það þyki.
Pisa/Písa er yfirskrift þessarar
limru Hjálmars Freysteinssonar:
Hér áhyggjum ýmsir lýsa,
á aðra sökinni vísa.
En spyrja þú skalt:
Skyldi ekki allt
vera skakkt sem kemur frá Písa?
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af íslenskunni, ilmandi
töðu og limrum
Í klípu
„ÉG HEITI RÓBERT OG VERÐ ÞJÓNNINN
YKKAR Í KVÖLD. OG ÞETTA ER HANN
KALLI, HANN PASSAR AÐ ÞIÐ BORÐIÐ
EKKI MEIRA EN ER GOTT FYRIR YKKUR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ER BARA AÐ AUKA
LÍKURNAR AÐEINS.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... neistinn sem
kveikir líf.
LÍSA ER HJÁ FORELDRUM
SÍNUM ÞESSA HELGI.
JÓN STUDDI ÞÁ
ÁKVÖRÐUN ...
... ÞAR TIL HÚN
KEYRÐI Í BURTU.
HVAÐ HELDUR
ÞÚ, ZOOK
LÆKNIR?
HMMM ... KANNSKI ER
KOMINN TÍMI TIL AÐ
DRAGA AÐEINS ÚR ÞUNG-
LYNDISLYFJUNUM.
Í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossiríkir sérstakt andrúmsloft, sem
ber því vitni að ekki þarf alltaf að
vera hátt til lofts og vítt til veggja.
Þar er að finna nýjar bækur og gaml-
ar.
x x x
Fornbókabúðir hafa alltaf haft sér-stakt aðdráttarafl á Víkverja. Í
upphafi leitaði hann þar að gömlum
hasarblöðum. Á þeim tímum voru
mýmargar slíkar verslanir í Reykja-
vík og víða um land. Nú eru fáar eftir.
Það kveikir því ákveðna fortíðarþrá
að koma inn í bókakaffið og blaða í
gömlum bókum, forvitnilegum,
skrítnum, kynlegum og skemmti-
legum. Sumt er þannig að maður
veltir fyrir sér að nokkrum manni
skyldi hafa dottið í hug að gefa það
út, annað þannig að skemmtigildið
getur bara hafa vaxið með árunum.
x x x
Gamlar bækur eru ekki jafn-verðmætar og þær voru í eina
tíð. Sumir kenna netinu um. Eftir að
það kom til sögunnar er auðveldara
að átta sig á framboðinu og eft-
irspurninni. Ef vitað er að bók, sem
talið er að fá eintök hafi verið eftir af,
sé til í öðrum hverjum kjallara dreg-
ur úr verðmætinu. Netið gæti líka
hafa haft áhrif að öðru leyti. Sumir
halda því fram að það sé vel á veg
komið með að drepa bókina, þeir sem
hangi á netinu lesi ekki bækur – fyrir
utan þá sem lesa bækur á netinu.
Netið hafi sem sagt drepið eft-
irspurnina. Bækur seljast tæplega
dýru verði ef enginn vill kaupa þær.
x x x
Ekki eru þó allar bækur verðlausarog á bókakaffinu er að finna bæk-
ur þar sem verðmiðinn nær sex stafa
tölu. Eina bók óverðlagða sýndi
Bjarni Harðarson þegar Víkverji átti
leið um. Það var þýsk þýðing á
Ferðabók Eggerts Ólafssonar og
Bjarna Pálssonar, útgefin 1774, heil-
legt eintak og vel með farið. Víkverji
fylltist andakt þegar hann fékk að
halda á þessum forláta grip. Á saur-
blaði stóð 600,-. Þegar Víkverji ætlaði
að hanka bóksalann á verðmerking-
unni var svarið að þetta væru 600 kú-
gildi. Veskið var kyrrt í vasa Vík-
verja. víkverji@mbl.is
Víkverji
Lofsöngur Maríu Og María sagði:
Önd mín miklar Drottin og andi
minn gleðst í Guði, frelsara mínum.
(Lúkasarguðspjall 1:46-47)
Hydrovane loftpressur eru lágværar,
fyrirferðarlitlar, öflugar og henta alls
staðar þar sem þörf er á þrýstilofti.
Mikið úrval af hágæðaloftpressum,
lögnum og síum. Bjóðum lausnir
í þrýstilofti fyrir allar aðstæður.
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
Allt annað líf
- með hljóðlátri loftpressu
Kynntu
þér úrvalið
á idnvelar.is