Morgunblaðið - 11.12.2013, Qupperneq 38
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hallur Ingólfsson sendi í haust frá
sér breiðskífuna Öræfi og hefur hún
að geyma níu lög án söngs með titl-
um sem vísa í
náttúruna.
Plötuna vann
Hallur í eigin
hljóðveri og
naut liðsinnis
Þorbjörns Sig-
urðssonar sem
lék á píanettu. Hallur lék á öll önnur
hljóðfæri, stýrði upptökum og sá um
hljóðblöndun en „mastering“ var í
höndum S. Husky Höskulds. Kápu
plötunnar prýðir ljósmynd af saltsp-
rengdum skúlptúr sem Heimir
Sverrisson gerði af Halli og minnir
á mosavaxið hraun. Skúlptúrinn
smellpassar þannig við plötutitilinn
sem vísar í samnefnt landsvæði,
Öræfi í vestasta hluta Austur-
Skaftafellssýslu.
Í texta plötuumslags segir Hallur
að hann hafi verið svo heppinn sem
barn að fá að dveljast lengi í Skafta-
felli sem sé nafli þessa svæðis.
Svartifoss og Hvannadalshnúkur
hafi orðið trúnaðarvinir hans.
„Hvergi finnur maður meira til
smæðar sinnar en í mikilfengleika
náttúrunnar á þessum slóðum. Að
öll erum við lítil og skammlíf krafta-
verk í sköpunarverkinu. Fáum að
dvelja þar okkar ör-æfi,“ ritar Hall-
ur m.a.
Í upphafi textans segir hann sögu
sem var honum hugleikin við
vinnslu plötunnar. Blaðamaður bið-
ur hann að rifja þá sögu upp fyrir
lesendum. „Sagan er í stuttu máli
þannig að það var bóndi nokkur sem
fór að leita fjár á Öræfum og féll of-
an í sprungu, sat þar fastur. Hann
tók upp á því að syngja sálma, bæði
til að ákalla almættið í örvæntingu
sinni og ekki síst fyrir leitarmenn
svo að þeir gætu gengið fram á
hann. Og náttúrlega líka til að halda
sér vakandi þannig að hann myndi
ekki líða út af. Þá myndi hann
kannski ekki finnast eða vakna aft-
ur. Það er þetta samband, að reyna
að ná sambandi við eitthvað æðra
sem var mér hugleikið,“ segir Hall-
ur.
Jarðarfararsálmar og
spagettívestrar
„Þetta er náttúrlega fyrst og
fremst óður til tónlistar,“ segir Hall-
ur, spurður að því hvort platan sé
óður til öræfa. Hann segist hafa
fengið svipaða tilfinningu þegar
hann fór að hlusta á lögin eftir upp-
tökur og hann fékk sem barn í
Öræfum. „Vinnan er kannski líkari
manninum sem situr í sprungunni
og er að reyna að hrópa sér til lífs,“
bætir Hallur við og hlær. „Þetta er í
rauninni eitthvað sem kom eftir á,
ég var ekki endilega með þetta í
huga á meðan ég var að vinna plöt-
una. Tilfinningin kom eftir á og þess
vegna fannst mér þetta nafn eiga
svo vel við. Konseptið féll saman í
þessu orði, öræfi,“ segir Hallur.
-Þú líkir útsetningunum við lífs-
hlaup, geturðu útskýrt það frekar?
„Laglínan fer af stað með einu
hljóðfæri og síðan er hún meira og
minna endurtekin, þetta eru hringir
sem eru aldrei eins. Í þeim eru þró-
un og háski og áföll og gleði inn á
milli, allt til loka. Hvort þeir fá svip-
legan endi eða friðsælan er svo ann-
að mál. Þetta var alveg meðvitað hjá
mér og ágætt að segja frá því að
innblásturinn að þessari tónlist, að
hluta til, er annars vegar jarðarfar-
arsálmar, þ.e. óður til liðinnar ævi,
og síðan spagettívestrar. Einhvers
staðar þarna á milli kom kveikjan að
því að gera þetta,“ útskýrir Hallur.
Hallur heldur útgáfutónleika á
Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld
kl. 20.30. Með honum leikur hljóm-
sveit skipuð Halldóri Lárussyni
trommuleikara, Herði Inga Stef-
ánssyni bassaleikara og Jóhanni
Ingvasyni píanóleikara.
Öræfi, ör-æfi og
óður til tónlistar
Hallur Ingólfsson gefur út breiðskífuna Öræfi
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Hlé Hallur Ingólfsson tónlistarmaður fyrir utan hljóðverið heima hjá sér.
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2013
Tilnefningar til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna 2013 voru kynntar í
gær og hlaut hljómsveitin Hjaltalín
flestar, átta talsins, í flokki popp- og
rokktónlistar og óperan Ragnheiður
flestar í flokki sígildrar og samtíma-
tónlistar, þrjár alls. Tilnefningarnar
í heild má finna á iston.is en hér
verða birtar tilnefningar í völdum
flokkum.
Tónhöfundur ársins – djass og
blús: Kristján Tryggvi Martinsson,
Samúel Jón Samúelsson, Sunna
Gunnlaugsdóttir og Tómas R. Ein-
arsson.
Tónhöfundur ársins – sígild og
samtímatónlist: Atli Ingólfsson,
Gunnar Andreas Kristinsson, Gunn-
ar Þórðarson, Hugi Guðmundsson,
Haukur Tómasson og Páll Ragnar
Pálsson.
Hljómplata ársins – sígild og
samtímatónlist: Daníel Bjarnason –
Over Light Earth, Hugi Guðmunds-
son – Djúpsins ró, Emilía Rós Sig-
fúsdóttir og Ástríður Alda Sigurð-
ardóttir – Portrait, Vincent d’Indy -
Orchestral Works 5 – Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og Þórður Magn-
ússon – La Poesie.
Söngkona ársins – sígild og sam-
tímatónlist: Hallveig Rúnarsdóttir,
Hanna Dóra Sturludóttir og Þóra
Einarsdóttir.
Söngvari ársins – sígild og sam-
tímatónlist: Ágúst Ólafsson, Bjarni
Thor Kristinsson og Eyjólfur Eyj-
ólfsson.
Lagahöfundur ársins – popp og
rokk: Drangar, Emilíana Torrini,
Hjaltalín, John Grant og Mammút.
Tónlistarflytjandi ársins – popp
og rokk: Áhöfnin á Húna, Hjaltalín,
Mammút, Of Monsters And Men og
Skálmöld.
Söngvari ársins – popp og rokk:
Egill Ólafsson, Högni Egilsson,
John Grant, Pálmi Gunnarsson, Jök-
ull Júlíusson og Eyþór Ingi.
Söngkona ársins – popp og rokk:
Emilíana Torrini, Jóhanna Guðrún,
Sigríður Thorlacius, Katrína Mog-
ensen, Lay Low og Andrea Gylfa-
dóttir.
Hljómplata ársins – popp og
rokk: Drangar – Drangar, Tookah –
Emilíana Torrini, Enter 4 – Hjaltal-
ín, Íkorni – Íkorni, Pale Green
Ghosts – John Grant, Komdu til mín
svarta systir – Mammút og Kveikur
– Sigurrós.
Hljómplata ársins – opinn flokk-
ur: Days of Grey – Hjaltalín, For
Now I am Winter – Ólafur Arnalds
og The Lighthouse Project – Am-
iina. Tilnefningar í flokkunum Bjart-
asta vonin, Plötuumslag ársins og
Tónlistarmyndband ársins verða
birtar eftir áramót og hefst þá líka
kjör á vinsælasta flytjandanum.
Verðlaunin verða afhent í Eldborg í
Hörpu 14. mars.
Tilnefnd Högni og Sigríður á tónleikum með Hjaltalín á Menningarnótt.
Hjaltalín með átta,
Ragnheiður þrjár
Tilnefningar til ÍTV kynntar
Morgunblaðið/Rósa Braga
Kórar Margrétar J. Pálmadóttur,
Stúlknakór Reykjavíkur, Vox fem-
inae og Cantabile, halda sína árlegu
aðventutónleika í Hallgrímskirkju í
kvöld kl. 20.30. Einsöngvarar eru
þau Hanna Björk Guðjónsdóttir og
Maríus Sverrisson. Stjórnandi er
Margrét J. Pálmadóttir en hún
fagnar þessa dagana 20 ára afmæli
sem stjórnandi kvennakóra.
Aldursbreidd Alls koma fram yfir 200 söngkonur á tónleikunum, þær yngstu 4 ára.
Aðventutónleikar kóra Möggu Pálma
Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Haf-
dís Vigfúsdóttir flautuleikari,
Kristján Karl Bragason píanóleik-
ari og Grímur Helgason klarinettu-
leikari flytja tónlist sem tengist jól-
unum á hádegistónleikum í
Dómkirkjunni í dag kl. 12.15.
Á tónleikunum hljóma verk eftir
m.a. Jórunni Viðar, Hugo Wolf, Jo-
hannes Brahms og Georges Bizet.
Tónleikarnir eru endurómur af tón-
listarhátíðinni Bergmáli sem fram
fór á Dalvík um síðastliðna helgi. Jólatónlist Hallveig Rúnarsdóttir.
Hádegistónleikar í
Dómkirkjunni