Morgunblaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 7. D E S E M B E R 2 0 1 3
dagar til jóla
7
Hurðaskellir
kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
JÓMFRÚARFERÐ
Í ÍSKLIFRI TÓK
TÖLUVERT Á
RAFBÍLAKAPP-
AKSTUR HEFST
Á NÆSTA ÁRI
GJÖFUM SAFNAÐ
HANDA FÁTÆKUM
BÖRNUM
NÝ FORMÚLA BÍLAR JÓLASVEINUM HJÁLPAÐ 17FÍFA Í JÓLAFERÐ 10
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Norska stór-
þingið sam-
þykkti í at-
kvæðagreiðslu í
gær þátttöku
norska ríkis-
olíufélagsins
Petoro í olíuleit
á Íslandshluta
Drekasvæðisins.
Áður hafði verið
samþykkt þátt-
taka norska fyrirtækisins í tveimur
rannsóknarverkefnum á svæðinu.
Reiknað er með að Orkustofnun
gefi fljótlega á nýju ári út form-
legt sérleyfi til olíu- og gasleitar á
tilteknu svæði til kínverska
ríkisolíufélagsins CNOOC og ís-
lenska félagsins Eykon Energy.
Það er þriðja leyfið á Drekasvæð-
inu.
Nú hefur þingið staðfest ákvörð-
un norska olíumálaráðuneytisins
um að nýta heimild til 25% þátt-
töku í verkefninu, á grundvelli
gagnkvæmra samninga ríkjanna.
Norðmenn vinna
með Kínverjum
Norðmenn eru stór-
tækir í olíuvinnslu.
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi búa um 70 eldri borgarar,
en Kristján Þór Júlíusson, heilbrigð-
isráðherra, segir að framtíð íbúanna
verði tryggð, þrátt fyrir rekstrarerf-
iðleika heimilisins. „Við verðum fyrst
og fremst að hugsa um þá öldruðu
einstaklinga sem eru á Sunnuhlíð.
Þeir eru þar á ábyrgð ríkisins og það
verður að gera þeim mögulegt að
dvelja á því heimili þar sem fólkið
býr. Ef staðan kallar á úrræði til að
fólkið á Sunnuhlíð sé öruggt á sínu
heimili, að svo miklu leyti sem það
snýr að ríkinu, þá munum við að
sjálfsögðu tryggja það.“
„Það yrði öllum sagt upp,“ segir
Guðjón Magnússon, formaður
stjórnar, spurður um hvað muni ger-
ast ef velferðarráðuneytið svarar
ekki erindi stjórnarinnar á morgun,
en 140 manns starfa á hjúkrunar-
heimilinu í 83 stöðugildum. „Ráð-
herra lýsti því yfir að hann myndi
ábyrgjast það að íbúarnir þyrftu
ekki að óttast neitt. Ég treysti hon-
um og hans orðum,“ segir Guðjón.
Sunnuhlíðar, en þau hafnað því boði.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
mun velferðarráðuneytið funda með
stjórn Sunnuhlíðar í vikunni.
Sveitarstjórnarmenn sögðu að
ábyrgð á málefnum aldraðra væri al-
farið hjá ríkinu og því þess að greiða
úr þeim vanda sem skapast hefur.
Forsvarsmenn hjúkrunarheimila
sögðu við sama tilefni að lágur dag-
gjaldagrunnur væri ástæða rekstr-
arörðugleika heimilanna.
Búseta tryggð á Sunnuhlíð
Ráðherra segir að ríkið muni tryggja öryggi íbúa Sunnuhlíðar Öllum starfs-
mönnum, 140 manns í 83 stöðugildum, sagt upp störfum berist ekki jákvæð svör
Morgunblaðið hefur heimildir fyr-
ir því að öðrum hjúkrunarheimilum
hafi verið boðið að taka yfir rekstur
Óvissa á Sunnuhlíð
» Önnur hjúkrunarheimili
höfnuðu boði um að taka
reksturinn yfir.
» Velferðarráðuneytið fundar
með stjórn Sunnuhlíðar í vik-
unni.
MNærri helmingur látist… »16
Morgunblaðið/RAX
Karphús Sest að samningaborði.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verkalýðsforingjar telja að Samtök
atvinnulífsins verði að leggja meira
fram til að koma hreyfingu á samn-
ingaviðræður um nýjan kjarasamn-
ing. Framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins segir að samtökin vilji
ekki gera samning sem komi verð-
bólunni á skrið á nýjan leik.
Upp úr viðræðum fjögurra lands-
sambanda ASÍ við SA slitnaði síð-
degis í gær. SA lögðu fram tillögu
um sérstaka hækkun lægstu launa,
eins og ASÍ hefur farið fram á.
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar
töldu að það væri gert á kostnað al-
mennra launahækkana sem væru
langt undir verðbólguspám. Þor-
steinn Víglundsson, framkvæmda-
stjóri SA, segir að strandað hafi á því
að verkalýðshreyfingin kæmi með
útspil um almennar launahækkanir í
framhaldi af tillögum SA um krónu-
töluhækkanir fyrir þá launalægstu.
Kjaradeilan er hjá ríkissáttasemj-
ara. Ekki hefur verið boðaður nýr
fundur. Aðilar telja ólíklegt að hægt
verði að ljúka samningum fyrir ára-
mót. Við það dregst að launþegar fái
launahækkanir. Guðbrandur Einars-
son, formaður Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna, segir að
snúið geti verið að semja þegar
samningar opinberra starfsmanna
verði jafnframt lausir. Björn Snæ-
björnsson, formaður Starfsgreina-
sambands Íslands, reiknar með að
skoðað verði hvernig hægt sé að
setja þrýsting á viðræðurnar og úti-
lokar ekki verkfall. »4
Tillögur féllu í grýttan jarðveg
Ólíklegt talið að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði náist fyrir áramót
Strákarnir þutu sem elding niður brekkuna efst í
Seljahverfinu í gærkvöldi og ljósin í Breiðholt-
inu glömpuðu í baksýn. Þeir nutu þess að hafa
brekkuna út af fyrir sig og kunnu vel að meta
snjóinn og gott sleðafæri. Talsvert frost beit
ekki á félagana og þó svo að hvessi og aðeins
hlýni í veðri í dag, er ekki líklegt að snjórinn gefi
mikið eftir næstu daga. Í gær fór frostið mest
niður í 18,5 gráður í Mývatnssveit.
Sem elding niður brekkuna í Seljahverfinu
Morgunblaðið/Golli
Frostið beit ekki á strákana sem kunnu vel að meta snjóinn
Sérnáms-
læknar í heim-
ilislækningum
horfa fæstir til
þess sem mögu-
leika að starfa í
Reykjavík að
námi loknu.
Þetta er meðal
þess sem kom
fram í könnun
sem var gerð í
haust á meðal þeirra fjörutíu lækna
sem eru nú í sérnámi í heimilis-
lækningum. Einn fjórði þeirra
starfar úti á landi og eru þeir
ánægðari í starfi en þeir sem starfa
á höfuðborgarsvæðinu. Óánægjan
snýr aðallega að laununum en sér-
námslæknar hafa líka miklar
áhyggjur af lítilli endurnýjun í stétt
heimilislækna. »14
Horfa fæstir til starfa
í höfuðborginni
Meiri ánægja er í
störfum úti á landi.
293. tölublað 101. árgangur