Morgunblaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013 TWIN LIGHT GARDÍNUR Betri birtustjórnun MEIRA ÚRVAL MEIRI GÆÐI ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA EFTIR MÁLI Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18 BAKSVIÐ Hörður Ægisson hordur@mbl.is Írland varð í fyrradag fyrsta evru- ríkið til að útskrifast frá björgunar- áætlun á vegum Evrópusambands- ins (ESB) en þrjú ár eru síðan þríeykið svonefnda – ESB, Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn og Evrópski seðlabankinn – veittu Írlandi 67,5 milljarða evra neyðarlán. Þrátt fyrir miklar opinberar skuldir og halla á rekstri ríkisins eru írskir stefnusmiðir þess fullvissir að Írar geti á ný staðið á eigin fótum og fjármagnað skuldir sínar á alþjóð- legum fjármálamörkuðum. Til marks um það þá höfnuðu stjórnvöld 10 milljarða evra lánalínu sem þeim stóð til boða frá ESB og AGS. Fjárfestar virðast sömu skoðunar og írskir ráðamenn. Ávöxtunarkraf- an á tíu ára ríkisskuldabréf Írlands hefur lækkað hratt síðustu misseri og nemur nú um 3,5%. Fyrir tveim- ur árum voru vextirnir hins vegar yfir 14%. Þar skiptir ekki síst máli sú staðreynd að Írum hefur tekist að efla samkeppnishæfni sína á al- þjóðamörkuðum. Á síðasta ári nam viðskiptaafgangur Írlands ríflega 8 milljörðum evra og jókst um fjórfalt á milli ára. Spár sýna ennfremur að hagvöxtur sé að taka við sér og muni mælast um 1,7% á næsta ári. Margir greinendur benda þó á að það sé of snemmt fyrir Íra að hrósa happi – staðan sé augljóslega enn mjög viðkvæm. Í umfjöllun Finanici- al Times er haft eftir ónafngreind- um embættismönnum hjá AGS, ESB og Evrópska Seðlabankanum að þeir hafi áhyggjur af því að verið sé að draga upp of bjartsýnislega mynd af stöðu mála í pólitískum til- gangi á vettvangi Evrópusambands- ins. Enn virðist langt í land þangað til efnahagslífið komist á réttan kjöl. Skuldir ríkisins nema 124% sem hlutfall af landsframleiðslu og sam- kvæmt spám munu þær hækka í 140%. Hagvaxtarspár sem voru sett- ar fram fyrir um ári og gerðu ráð fyrir tæplega 2% í vexti í ár munu ekki ganga eftir – en nú lítur út fyrir að hagvöxtur verði lítill sem enginn. Fjárlagahalli írska ríkisins er 7,4% af landsframleiðslu en aðeins Grikk- land og Kýpur standa þar verr að vígi. Atvinnuleysi hefur sömuleiðis lítið minnkað og mælist um 13%. Ljóst þykir að hefði ekki komið til gríðarlegur brottflutningur Íra til annarra enskumælandi landa í leit að vinnu þá væri atvinnuleysi yfir 20% um þessar mundir. Samkvæmt frétt The Economist hefur um þriðj- ungur ungs fólks flust á brott frá því að fjármálakreppan skall á. Vanskil fara enn hækkandi Írska bankakerfið stendur sömu- leiðis enn höllum fæti eftir að því var forðað frá greiðsluþroti 2010. Þrátt fyrir að írsk stjórnvöld hafi sett um 64 milljarða evra til að endurfjár- magna bankakerfið þá eru stærstu bankar landsins – Bank of Ireland og Allied Irish Banks – enn reknir með tapi og mikið verk óunnið við að styrkja eiginfjárstöðu þeirra. Að sögn sérfræðinga á markaði gætu bankarnir þurft að sækja sér meira fjármagn á næsta ári. Það gæti reynst þrautin þyngri. Seðla- banki Írlands hefur varað Bank of Ireland við því að eiginfjárhlutfall bankans gæti lækkað verulega ef til þess kæmi að auka þyrfti framlög í afskriftasjóð vegna vaxandi vanskila útlána.Vanskil í írska bankakerfinu héldu áfram að aukast á þessu ári og námu tæplega 12% sem hlutfall af heildarútlánum. Á meðan bankakerfið glímir enn við djúpstæða erfiðleika verður at- vinnulífið að óbreyttu áfram í spennitreyju; bankarnir geta ekki aukið útlán til raunhagkerfisins og á meðan ríkir stöðnun í efnahagslíf- inu. Þótt Írum hafi tekist að stíga út fyrir björgunarhring Evrópusam- bandsins fyrr en margir áttu von á þá bendir því fátt til þess að í vænd- um sé öflugur efnahagsbati. AGS spáir því að næsta áratuginn muni árleg þjóðarframleiðsla aukast í mesta lagi aðeins um 2% á ári. Útskrifast frá ESB en bank- arnir standa enn höllum fæti  Írland varð fyrsta evruríkið til að ljúka björgunaráætlun á vegum ESB Standa á eigin fótum Fáni ESB við styttu af írska verkalýðsleiðtoganum James Larkin í Dublin. Írar hafa útskrifast frá björgunaráætlun ESB. AFP Staðan enn viðkvæm » Írar töldu sig ekki þurfa á að halda 10 milljarða evra lánalínu frá ESB og AGS. » Lækkandi ávöxtunarkrafa á ríkisskuldabréfum er til marks um að Írar geti fjármagnað sig á alþjóðamörkuðum. » Hagvöxtur mælist þó lítill sem enginn og atvinnuleysi er enn í hæstu hæðum. Frekara fjármagn gæti þurft til að styrkja eiginfjárstöðu stærstu banka landsins. Ekki sloppnir fyrir horn Heimild: Financial Times. Vanskilahlutföll í bankakerfinu (% af heildarútlánum) Bankar í taprekstri (í milljörðum evra) Permanent TSB Bank of Ireland Allied Irish Banks 2 0 -2 -4 -6 -8 -10 12 10 8 6 4 2 0 2007 2010 2012 2007 2009 2011 2013 Spá STUTTAR FRÉTTIR ● Nýjustu tölur yfir greiðslukorta- veltu benda til þess að þónokkur vöxtur hafi verið í einkaneyslu í nóv- ember síðastliðnum frá fyrra ári. Líkt og að undanförnu var sá vöxtur að miklu leyti drifinn áfram af aukinni veltu innlendra korta erlendis, sam- kvæmt því sem fram kemur í Morg- unkorni Greiningar Íslandsbanka í gær Þá megi lesa út úr tölunum að mikil aukning var á notkun erlendra korta hérlendis í nóvember á milli ára. Samkvæmt tölum Seðlabankans, sem birtar voru á föstudag, jókst kortavelta Íslendinga innanlands að raungildi um 0,9% í nóvembermán- uði frá sama mánuði í fyrra, en kortavelta þeirra erlendis jókst hins vegar um 15,6% á sama mælikvarða. Samanlagt jókst kortavelta ein- staklinga um 2,5% að raunvirði á milli ára í nóvember. Kortavelta einstaklinga jókst um 2,5% í nóvember ● Áætlunarflug easyJet á milli Íslands og Manchester í Englandi verður aukið frá og með febrúar þegar flogið verður fjóra daga vikunnar í stað tveggja nú. Fjölgunin markar ársafmæli Manchest- er-flugs easyJet en ástæða hennar er fyrst og fremst miklar vinsældir flug- leiðarinnar og telja forráðamenn breska flugfélagsins að eftirspurnin sé ekkert að minnka. Í fréttatilkynningu segir að flogið verði til Manchester allt árið um kring á þriðjudögum, fimmtudögum, laug- ardögum og sunnudögum. Ódýrasta fargjaldið aðra leiðina í febrúar og mars er þessa stundina um 8.500 kr. Nánar á mbl.is EasyJet flýgur til Man- chester 4 sinnum í viku                                         !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +01-0, +21-1, 3+-.14 +0-1,. +5-5./ +/+-. +-+31 +51-/, +,2-. ++,-5+ +12-/3 ++2-30 3+-440 +1-23 +5-514 +/+-55 +-+/3/ +51-01 +,2-04 3+3-,/0+ ++,-11 +12-50 ++2-, 3+-,3+ +1-25, +5-0.5 +/3-+. +-+/4, +02-.3 +,+-/ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 1,2 milljörðum króna í nóvember en þar af voru 946 milljónir króna vegna almennra lána. Í sama mánuði í fyrra lánaði sjóðurinn 1,3 milljarða króna. Meðal fjárhæð láns er 10,7 milljónir króna. Heimilum í vanskilum fækkaði áfram í nóvember, samkvæmt skýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir nóvem- ber. Þar kemur fram að það sem af er ári hefur heimilum í vanskilum fækkað um 23% eða 1.097 heimili. Færri eru í vanskilum við ÍLS Íbúðalánasjóður við Borgartún.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.