Morgunblaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 18
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013
Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á
fundi sínum sl. föstudag umsókn
Haga um lóð við Korngarða 1 við
Sundahöfn og Skarfabakka. Stjórn
Haga samþykkti síðan fjárfestingar-
áætlun í gær upp á 1,3 milljarða
króna vegna verkefnisins.
Hyggst félagið byggja nýtt vöru-
hús undir starfsemi Banana ehf.
Lóðin er samkvæmt gildandi deili-
skipulagi um 16 þúsund fermetrar
en leyfilegt byggingarmagn er upp á
8 þúsund fermetra.
Í óhentugu húsnæði
Í tilkynningu Haga til Kauphall-
arinnar síðdegis í gær kemur fram
að áætlanir eru um að reisa allt að
4.500 fermetra húsnæði í fyrsta
áfanga.
Starfsemi Banana er í álíka stóru
húsnæði við Súðarvog 2e, sem komið
er til ára sinna. Segja forsvarsmenn
Haga það óhentugt fyrir núverandi
starfsemi sem og vaxtarmöguleika
fyrirtækisins.
„Auk þess sem skipulagsmál
Reykjavíkurborgar hafa áhrif á
framtíðarmöguleika á núverandi lóð.
Gangi áætlanir félagsins eftir er gert
ráð fyrir að rekstur Banana flytji í
nýtt húsnæði á sumarmánuðum
2015,“ segir einnig í tilkynningu
Haga. bjb@mbl.is
Morgunblaðið/Rósa Braga
Lóð Starfsemi Banana ehf., dótturfélags Haga, mun flytjast að Korngörðum 1 við Skarfabakka. Áform eru um að
reisa 4.500 fermetra vöruhús í fyrsta áfanga en lóðin leyfir annað eins byggingarmagn til viðbótar.
Bananar fá vöruhús
á lóð við Korngarða
Stjórn Haga samþykkir 1,3 milljarða króna í verkefnið
„Við erum mjög ánægð með að
Hagar hafi stigið þetta skref,
starfsemin þarna styrkir innvið-
ina í Sundahöfn,“ segir Gísli
Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóa-
hafna, um umsókn Haga.
„Þetta er framtíðarlóð sem
mun vafalítið nýtast þeim mjög
vel,“ segir Gísli en önnur 16
þúsund fermetra lóð er enn á
lausu við Skarfabakka.
Styrkir
Sundahöfn
FAXAFLÓAHAFNIR
Skútuvogi 1h | 104 Reykjavík | Sími: 585 8900 | jarngler.is
Hurðapumpur
fyrir hurðir og glugga
Opið virka daga 12:30-18:00
Laugardag 21/12 12:00-16:00
Sunnudag 22/12 13:00-16:00
Þorláksmessu 11:00-19:00
Opið: má-fö. 12:30-18 | Dalvegi 16a
Rauðu múrsteinshúsunum | Kóp. 201
S. 517 7727 | nora.is | facebook.com/noraisland
Borðlampi verð kr. 14.550
Burleigh sveitastellið
Skálar verð kr. 3.590
Sjófuglar verð kr. 3.850