Morgunblaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.12.2013, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Sérnámslæknar í heimilislækning- um horfa fæstir til þess sem mögu- leika að starfa í Reykjavík að námi loknu. Þetta er meðal þess sem kom fram í könnun sem var gerð í haust á meðal þeirra fjörutíu lækna sem eru nú í sérnámi í heimilis- lækningum. Ástæðan er aðallega launin en laun lækna hafa dregist aftur úr launum annarra stéttum hin síðari ár, segir í ályktun sem læknarnir sendu frá sér. Einnig er óánægja með starfsaðstæður, ósveigjanleika yfirmanna varðandi fjölskylduað- stæður lækna með ung börn, óá- þreifanlega yfirmenn í stjórnsýslu, skipulagsleysi við framkvæmdir, skort á samvinnu milli stétta og milli sérfræðinga. Læknarnir gera kröfu á úrbætur á þessu án tafar. Yfirbygging og miðstýring Margrét Ólafía Tómasdóttir, um- sjónardeildarlæknir sérnámslækna í heimilislækningum, segir vaxandi óánægju með þróun mála og ástandið í heilsugæslunni sem og heilbrigðiskerfinu í heild, það hafi komið skýrt fram á fundi sem lækn- arnir héldu í október um framtíð- armál heilsugæslunnar og kjaramál. „Samkvæmt starfsánægjukönn- uninni eru mjög fáir í hópnum sem geta hugsað sér að vinna eingöngu hjá heilsugæslunni í Reykjavík í framtíðinni. Þess vegna ákváðum við að koma fram með hugmyndir um hvernig væri hægt að endur- bæta heilsugæsluna til þess að gera hana að fýsilegri vinnustað,“ segir Margrét. Flestir sérnámslæknarnir eru ánægðir með eðli vinnunnar og samstarfsfólk sitt. „Hinsvegar er greinilegt að fjárframlög til heilsu- gæslunnar hafa verið lítil og tækja- kosturinn er orðinn mjög lélegur. Auk þess er mikil yfirbygging og stærð Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins gefur mjög lítið svigrúm til að hafa áhrif á starfið sitt. Það er þessi yfirbygging og miðstýring sem læknarnir hafa mestar áhyggj- ur af að þurfa að starfa í í framtíð- inni.“ Þá segir Margrét launin fæla unga lækna frá Íslandi yfir höfuð. „Laun almennra lækna eru algjör- lega hræðileg. Grunnlaun nýút- skrifaðs læknis eru vel undir fjög- ur hundruð þúsund krónum og eftir þrjú ár í skipulögðu sérnámi er maður kominn í 410.000 kr. Inn- an heilsugæslunnar er minna um vaktir heldur en inni á spítalanum þannig að það eru minni mögu- leikar á að hífa upp launin. Eftir sex ára háskólanám eru launin engan veginn samanburðarhæf við aðrar stéttir með sambærilegt nám að baki. Auk þess er skamm- arlegt og erfitt að standa undir fjölskyldu með þessi laun,“ segir Margrét og bætir við að margir sérnámslæknar í heimilislækning- um taki reglulega vaktir á heilsu- gæslustöðvum úti á landi til að hífa launin upp. Þykir ekki fýsilegur vinnustaður Þá hafa sérnámslæknarnir mikl- ar áhyggjur af lítilli endurnýjun í stétt heimilislækna. Sérnámslækn- ar í heimilislækningum séu um fjörutíu talsins og sérnámið taki um fjögur og hálft ár. Nýliðunin hafi ekki dugað til að fylla í skarð þeirra sem hverfa úr stéttinni fyrir aldurs sakir eða vegna brottflutnings. „Árið 2009 voru starfandi sér- fræðingar undir 50 ára aldri um 93 talsins en eru í dag 47, það gerir fækkun upp á 50%. Á sama tíma hefur starfandi sérfræðingum yngri en 40 ára fækkað um 71%. Það er grafalvarlegt í ljósi þess að um 30% af þeim ríflega 180 heim- ilislæknum sem eru á landinu hætta störfum á næstu tíu árum vegna aldurs,“ segir í ályktun læknanna um ástandið. Meiri starfsánægja úti á landi Af fjörutíu sérnámslæknum í heimilislækningum starfar einn fjórði úti á landi og eru þeir ánægð- ari í starfi en þeir sem starfa á höf- uðborgarsvæðinu. „Staðan úti á landi er líka erfið, þar er líka skort- ur á nýliðum en hinsvegar er vinnu- aðstaðan og frelsið til að hafa áhrif á vinnuna sína miklu meiri heldur en í Reykjavík, auk þess að launin eru betri. Starfsánægja þeirra sem hafa valið að fara út á land er mun meiri og það kom mjög skýrt fram í könnun okkar.“ Í kjölfarið á könnuninni áttu sér- námslæknar í heimilislækningum fund með yfirlæknum hjá Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. Mar- grét segir að þau finni fyrir miklum meðbyr frá eldri heimilislæknum. „Þeir sýna okkur fullan stuðning enda erum við að benda á sömu vandamál og þeir hafa talað um í fjölda ára. Nú verður bara að fara að gera eitthvað í þessu ef það á ekki að stofna framtíð heimilis- lækninga í hættu.“  Sérnámslæknar í heimilislækningum hafa áhyggjur af framtíð heilsugæsl- unnar  Þykir betra að vinna úti á landi en í borginni  Starfandi sérfræðingum yngri en 40 ára fækkað um 71% frá 2009 Morgunblaðið/Eggert Heilsugæsla Sérnámslæknar í heimilislækningum segja í ályktun, sem var send til heilbrigðis- og fjármálaráð- herra, að stærsti vandi íslenska heilbrigðiskerfisins sé að það sé ekki fýsilegur vinnustaður fyrir lækna. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013 Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150 60 ára reynsla á Íslandi Russell Hobbs í jólapakkann Útsölustaðir: Verslanir Húsasmiðjunnar um land allt Verslanir ELKO Byggt og Búið, Kringlunni Í ályktun sem sérnámslæknar í heimilislækningum sendu frá sér segir: „Sérnámslæknar í heimilislækn- ingum vilja minna heilbrigðisyfir- völd á að núverandi vandi heilbrigð- iskerfisins var fyrirséður. Eigi ekki að fara illa fyrir heilsugæslunni þarf þegar í stað að grípa til aðgerða til þess að tryggja að heilsugæslan verði ákjósanlegur vinnustaður fyrir heimilislækna. Sérnámslæknar skora á heilbrigðisyfirvöld að grípa til eftirfarandi að- gerða: 1. Tryggja öllum Íslendingum skráningu hjá heim- ilislækni, þó þannig að stærð samlags sé faglega verjandi. 2. Ljúka við samtengingu rafrænnar sjúkraskrár yfir allt landið svo læknar geti nálgast upplýsingar um lyf, rannsóknir og heilsufarsvandamál sjúklinga sinna á rauntíma, fljótlega og auðveldlega. 3. Draga úr miðstýringu heilsugæslunnar. 4. Standa við fyrirheit um fjölbreyttari rekstrarform. 5. Gera starf læknis á heilsugæslu að fjárhagslega fýsi- legum valkosti og stuðla að því að hún verði sam- keppnishæfur vinnustaður, bæði innanlands og í samanburði við nágrannaþjóðirnar. 6. Efla og tryggja sérnám í heimilislækningum.“ Þá segir: „Mikilvægt er að hver heilsugæslustöð fái tækifæri til að koma með lausnir á sínum vandamálum og ljóst er að sú miðstýring sem nú er við lýði er óhag- kvæm og ekki í stakk búin til að leysa fljótt og vel úr þeim ólíku vandamálum sem heilsugæslustöðvarnar stríða við.“ ÁLYKTUNARTILLAGA SÉRNÁMSLÆKNA Í HEIMILISLÆKNINGUM Þarf þegar í stað að grípa til aðgerða svo ekki fari illa Margrét Ólafía Tómasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.