Morgunblaðið - 17.12.2013, Side 16

Morgunblaðið - 17.12.2013, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013 BAKSVIÐ Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Velferðarráðuneytið hefur ekki svarað erindi stjórnar hjúkrunar- heimilisins Sunnuhlíðar um að taka yfir heimilið. Í því segir að berist ekki svar við erindinu fyrir morg- undaginn verði gripið til uppsagna alls starfsfólks hjúkrunarheimilis- ins. Forsvarsmenn hjúkrunarheimila segja að daggjöld sem greidd eru til hjúkrunarheimila séu of lág. Stjórnarformaður Sunnuhlíðar segir þetta ástæðu þess vanda sem hjúkrunarheimilið sé komið í. Flest hjúkrunarheimili eru rekin með halla. Rekstrarvandi hjúkrunar- heimila hefur ekki verið bættur frá árinu 2008, en slíkt var áður gert á fjáraukalögum. Þar að auki hefur ríkið ekki gert þjónustusamning við langflest hjúkrunarheimili, sem þiggja því fé frá ríkinu samnings- laust. Gildistöku ítrekað frestað Á þetta benti Gísli Páll Pálsson, forstjóri hjúkrunarheimilisins Mark- ar og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, í grein í Morgun- blaðinu nýlega. Í daggjöldunum er til að mynda ekki gert ráð fyrir ýmsum kostnaðarþáttum, eins og meiri hátt- ar viðhaldi, húsaleigu, lífeyris- skuldbindingum, afskriftum á hús- næði og vöxtum af langtímaskuld- bindingum vegna byggingar- kostnaðar. Í IV. kafla laga um sjúkratryggingar er að finna ákvæði í þá veru að Sjúkratryggingastofnun annist samningsgerð um veitingu heilbrigðisþjónustu. Gildistöku kafl- ans hefur hins vegar ítrekað verið frestað. Lögin öðluðust gildi 1. októ- ber 2008, en þessi tiltekni kafli öðlast ekki gildi fyrr en 1. janúar 2015. Í þeim kafla er meðal annars sagt að taka eigi tillit til húsnæðiskostnaðar þegar greiðslur til heimila séu ákveðnar. Undantekning frá þessu er þjón- ustusamningur sem gerður var við hjúkrunarheimilið Sóltún árið 2001. Þeir sem Morgunblaðið ræddi við sögðu að Sóltún fengi í kringum 15 til 20% hærri greiðslur með sínum sjúklingum en önnur hjúkrunar- heimili, sem væri mun nær raun- kostnaði við dvöl á hjúkrunarheimili og bentu á að Sóltún væri í raun eins og millistig milli hjúkrunarheimilis og spítala. Viðmælendur Morgunblaðsins segja hins vegar að hjúkrunarþyngd sjúklinga á velflestum hjúkrunar- heimilum sé slík að þar séu heim- ilismenn með að minnsta kosti jafn- mikla hjúkrunarþyngd og þeir sem búi á Sóltúni. Um 90 af 200 látist á einu ári Legutími á hjúkrunarheimilum hefur styst mikið. Á Grund hafa til að mynda um 90 heimilismenn látist á einu ári, en slíkur fjöldi hefur ekki áður látist á jafnskömmum tíma í sögu hjúkrunarheimilisins. Auk þess létust tveir tilvonandi heimilismenn daginn áður en þeir áttu að fara inn á hjúkrunarheimilið. Á Grund eru um 200 hjúkrunar- rými, þannig að nærri helmingur hjúkrunarsjúklinga hefur fallið frá á þessu ári. Ástæða þessa er sögð ein- mitt vera sú að hjúkrunarsjúklingar komi seinna og veikari inn á hjúkr- unarheimilin, yfirleitt beint af spít- ala. Þannig láti nærri að 9 af hverj- um 10 sem fara inn á hjúkrunar- heimili komi þangað af spítala og fólk komi því mun veikara inn á hjúkrunarheimili en áður. Því geti verið mjög erfitt að fá vistunarmat án undangenginnar sjúkrahús- dvalar, en yfirleitt er gerð sú krafa að fullreynt sé að veita heima- hjúkrun. Aukin hjúkrunarþyngd og lægri fjárframlög geri það að verk- um að hjúkrunarheimili geti ekki sinnt þeirri þjónustu sem landlæknir gerir kröfu um. Félagslegi þátturinn líði helst fyrir það, en hjúkrunarhluti þjónustunnar sé verndaður. Ekki stafur á blaði Gísli Páll benti á að ekki væri til stafur á blaði um þá þjónustu sem ríkið kaupir af Grund, en hjúkrunar- heimilið fékk um einn og hálfan milljarð frá ríkinu á fjárlögum ársins 2013. Um 11,75 milljarðar fóru úr ríkissjóði til reksturs hjúkrunar- heimila á sama ári. Þá skipti heldur ekki máli hvort hjúkrunarsjúklingar eru einir í herbergi eða tveir, sömu daggjöld séu greidd með hverjum sjúklingi. Eftirspurn er hins vegar mun meiri eftir að búa einn í her- bergi. Á fundi nefndar um flutning öldrunarþjónustu til sveitarfélaga þann 27. ágúst var undirbúningur að innleiðingu á nýju greiðslufyrir- komulagi íbúa á hjúkrunarheimilum ræddur. Þannig myndu íbúar hjúkr- unarheimila sjálfir greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til af dvöl á hjúkrunarheimili og snýr að þeim einum, en hið opinbera greiddi sam- eiginlegan kostnað. Nærri helmingur látist á einu ári  Ríkið greiðir daggjöld til hjúkrunarheimila en ekki er gert ráð fyrir húsnæðiskostnaði  Sömu daggjöld greidd fyrir ein- og tvíbýli  Um 90 af 200 heimilismönnum á Grund látist á einu ári Morgunblaðið/Rósa Braga Sunnuhlíð Rekstrarvandi á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð hefur skapað umræður um rekstur hjúkrunarheimila. Forsvarsmenn hjúkrunarheimilisins létu meðal annars farast fyrir að skila lögbundnum lífeyrissjóðsgreiðslum. Í svari þáverandi heilbrigðisráðherra, Jóns Kristjánssonar, við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um eðli þjónustusamnings ríkisins við Sóltún er tekið fram að heilsufar vistmanna sé misjafnt milli hjúkrunarheimila. Í svarinu segir einnig: „Rétt er að benda á að í samningi um rekstur Sól- túns var gert ráð fyrir að þeir einstaklingar sem þar vistast hafi hátt RAI- mat og þarfnist mikillar hjúkrunar. Sóltún er því nokkurs konar millistig milli sjúkrahúss og hefðbundinna hjúkrunarheimila.“ Þar er RAI-mat útskýrt þannig að heilsufar vistmanna sé mælt af hjúkr- unarfræðingum. Samanlögð mæling heimilismanna hjúkrunarheimilis gefur meðaltal sem verður RAI-mat heimilisins. Þeim mun hærra sem RAI-matið er þeim mun veikari og þeim mun meiri umönnun þurfa þeir. Daggjöld eru síðan reiknuð í hlutfalli við það. Forsvarsmenn hjúkrunarheimila hafa bent á að fjárveitingar til Sóltúns, sem eru hærri en gengur og gerist, séu nær raunkostnaði hjúkrunarheim- ila af heimilismönnum. Samningur við Sóltún SAMNINGSLEYSI RÍKISINS OG HJÚKRUNARHEIMILA ÍS LE N SK A /S IA .IS /P EN 66 92 2 12 /1 3 DSR Eames stólar Sígild hönnun frá 1950 TIlboð til áramóta: DSR 35.900 kr. 39.900 kr. DSW 49.400 kr. 54.900 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.