Morgunblaðið - 17.12.2013, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Útfærslan er svipuð frá einum stað
til annars. Samkvæmt því reglu-
verki sem Alþingi samþykkti í vor
höfum við heim-
ild næstu fimm
fiskveiðiár til út-
hlutunar afla-
heimilda sem
nema 1.800
þorskígildistonn-
um á ári. Er
þeim ætlað að
styðja byggðar-
lög sem eru í
vanda vegna
samdráttar í
sjávarútvegi,“ segir Aðalsteinn Þor-
steinsson, forstjóri Byggðastofnun-
ar.
Í síðustu viku var gengið frá sam-
komulagi sem miðar að eflingu
Raufarhafnar. Byggðastofnun legg-
ur til aflaheimildir sem nema 400
þorskígildistonnum en á móti koma
átta útgerðarfyrirtæki með 1.200 t.
kvóta auk annars framlags. Er leit-
ast við hvatningu til sjósóknar á
haustmánuðum, en á þeim tíma hef-
ur oft verið erfitt að fá fisk til
vinnslu á Raufarhöfn. „Að útgerðin
fái þessa meðgjöf sem kvótinn er,
skapar hvata enda hafa menn verið
áhugasamir um þátttöku,“ segir
Aðalsteinn.
Góðir hlutir á suðurfjörðum
Byggðastofnun hefur skilgreint
nokkra staði á landinu sem brot-
hættar byggðir og hyggst á næstu
misserum fara í aðgerðir þar sem
verða bæði sókn og vörn. Þannig
hefur útgerð á Tálknafirði og Suð-
ureyri verið eyrnamerktur kvóti frá
Byggðastofnun sem nemur 400
þorskígildistonnum, Flateyri fær
300 t. og Bakkafjörður og Drangs-
nes 150 t. hvort byggðarlag um sig.
Allt er þetta þó undirorpið því að
samkomulag takist við heimamenn
um verkefnið sem þarf að fela í sér
að byggð á hverjum stað verði
öruggari í sessi.
„Síðustu árin hefur verið nokkuð
stöðugt ástand á Suðureyri og á
sunnanverðum Vestfjörðum hafa
góðir hlutir gerst, svo sem með fisk-
eldinu og uppbyggingu kalkþör-
ungaverksmiðju á Bíldudal. Þar um
slóðir er viss áhætta þegar allt að
60% vinnuafls á staðnum starfa hjá
einu og sama fyrirtækinu en sú er
t.d. raunin á Tálknafirði. Með tilliti
til þess höfum við aðkomu að mál-
um þar og aflaheimildir eru bundn-
ar staðnum,“ segir Aðalsteinn.
Auk sjávarbyggða sem fyrr eru
nefndar er Skaftáhreppur talinn
brothætt byggð. Engin er þar út-
gerðin og því munu aðgerðir þar
felast í stuðningi við annars konar
verkefni, að sögn Aðalsteins.
Á dögunum var haldið íbúaþing á
Kirkjubæjarklaustri og voru þátt-
takendur þar sammála um að ýmsir
möguleika til sóknar væru fyrir
hendi til þess að styrkja helstu at-
vinnugreinarnar á svæðinu, sem eru
ferðaþjónusta og landbúnaður.
Fólk segi hins vegar að ferða-
þjónustan verði ekki efld nema
ferðamannatíminn lengist og í land-
búnaði eru sögð til staðar ýmis
tækifæri í fullvinnslu og markaðs-
setningu afurða. Hins vegar vantar
bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði á
svæðinu. Þá séu innviðir samfélags-
ins á margan hátt veikir, því bæta
þurfi afhendingaröryggi raforku,
vegi og koma fjarskiptum í gott lag.
Meðgjöfin ýtir undir
áhuga útgerðarinnar
Aðgerðir í brothættum byggðum Kvóti bundinn stöðum
Aðalsteinn
Þorsteinsson
Morgunblaðið/Golli
Fiskvinnsla Víða úti um land, s.s. á Suðureyri, hverfist allt um sjávarútveg.
Nú á að styrkja stöðuna með samstarfi Byggðastofnunar og útgerðar.
Hugljúfar gjafir
Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011
Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303
101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is
Hádegistilboð