Morgunblaðið - 17.12.2013, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 17.12.2013, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA -1 2 -2 5 5 5 www.postur.is JÓLA VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA frímerkin Myndefni jólafrímerkjanna er fengið úr steindum glugga yfir dyrum Hallgrímskirkju eftir Leif Breiðfjörð. Svonefndur AR-kóði er byggður inn í jólafrímerkin. Með því að hlaða niður sepac stamps-appinu í snjallsíma eða spjaldtölvu má skoða gluggann í heild sinni og Hallgrímskirkju frá ýmsum sjónarhornum við undirspil Harðar Áskelssonar orgelleikara. 50 g til Evrópu í A-pósti 175 kr. 50 g innanlands í A-pósti 120 kr. 50 g innanlands í B-pósti 103 kr. Með sepac stamps appinu geturðu skoðað steinda gluggann í Hallgrímskirkju Appiðmá sækja í Play Store á Android-tækjum og App Store á Apple-tækjum. Leitið einfaldlega að sepac stamps. Þegar appinu hefur verið hlaðið niður verður það aðgengilegt með tákni á skjáborði tækisins. Skannið frímerkið og njótið upplifunar- innar. Með því að skanna QR-kóðann ferðu beint inn í Play Store (Android) eða App-store (Apple) Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Slitastjórnir fallinna fjármálafyrir- tækja geta valdið einstaklingum og lögaðilum verulegu fjártjóni en þeir síðarnefndu hafa takmarkaða mögu- leika á að leita réttar síns gagnvart þrotabúunum. Þetta segir Arnar Sigurðsson fjár- festir, sem er ósáttur við hvern- ig lögum um slita- stjórnir er háttað. Arnar telur sig eiga kröfu á þrotabú Icebank, síðar Sparisjóða- bankans, en slita- stjórnin hefur hafnað henni. Málið hefur kost- að hann tugi milljóna króna að hans eigin mati. Stefndu vegna taps Forsaga málsins er sú að Arnar átti í viðskiptum við Icebank sem fjármagnaði svonefndan skipta- samning um kaup hans á víxlum sem Exista gaf út fyrir hrun. Þegar byrj- aði að hrikta í stoðum fjármálakerf- isins og víxillinn nálgaðist gjalddaga bauð Exista uppgjör á samningnum sem fólst í því að hann væri greiddur að 40% í reiðufé og 60% í nýjum víxli. Þessa málatilhögun segir Arnar að stjórn Icebank hafi samþykkt og samningurinn hafi í kjölfarið verið gerður upp. Eftir fall bankans ákvað slita- stjórn hans að höfða mál gegn Arnari og krafðist þess að hann greiddi tap bankans af uppgjörinu. Arnar bendir á að það hafi verið gert fyrir það þriggja mánaða tíma- bil fyrir þrot fjármálastofnunar sem slitastjórnir geta rift samningum og bankinn hafi verið búinn að taka við fullri greiðslu á umræddum víxli frá útgefanda sem Arnar var í ábyrgð fyrir. Héraðsdómur Reykjavíkur gerði Arnari að greiða þrotabúinu um 100 milljónir króna og fékk slitastjórnin meðal annars veð í fasteign Arnars í kjölfarið með löggeymslu, jafnvel þótt endanlegur dómur væri ekki fallinn í málinu. Hæstiréttur sneri svo dómi héraðsdóms við í febrúar á þessu ári. Að svo komnu máli taldi Arnar sig eiga kröfu á þrotabúið vegna uppgjörs samningsins. Í kjöl- farið sendi hann slitastjórninni upp- færða kröfulýsingu í búið. Stjórnin hefur hins vegar hafnað kröfum Arn- ars en hefur þó ekki enn sent honum formlegt bréf þess efnis sem henni ber að gera. Geta dregið málin endalaust Fimm árum eftir fall bankans stendur Arnar því enn á byrjunar- reit í að endurheimta kröfu sína á þrotabúið. Hann gagnrýnir vinnu- brögð skilanefndarinnar harðlega og lögin sem gilda um slíkar nefndir. Slitastjórninni sé í sjálfsvald sett hvenær hún boði til funda til að út- kljá mál og það geti tekið marga mánuði og jafnvel ár að hans sögn. „Allt þetta ferli og flækjustig er bara til þess að þetta fólk [skila- nefndarmenn] geti skrifað á þrotabúið endalaust af tímum. Svona getur það búið til mál í ár eða áratugi og komist hjá því að borga fólki það sem því ber,“ segir Arnar. Þurfa að bugta sig og beygja Ekki er hægt að stefna slita- stjórnum fjármálafyrirtækja vegna krafna fyrr en þær hafa tekið end- anlega afstöðu til þeirra. Arnar gagnrýnir að ekki sé til neitt millistig eins og umboðsmaður skuldara eða umboðsmaður Alþingis sem hægt er að skjóta málum til. Þeir sem þurfa að eiga við skilanefndir þurfi að bugta sig og beygja fyrir þeim. „Ég hef engin úrræði til að stefna þessum aðila sem þó getur stefnt mér. Er ekki eitthvað bogið við þetta? Þessi aðili getur sannarlega valdið mér verulegum búsifjum og fjártjóni en ég get aldrei leitað réttar míns. Hvers konar lög eru þetta?“ Á byrjunarreit fimm árum síðar  Fjárfestir ósáttur við að geta ekki leitað réttar síns gegn slitastjórn Icebank  Skilanefndin hafnar kröfum eftir fimm ára málaferli  Gagnrýnir lög um slitastjórnir og tímafreka meðferð máls síns Morgunblaðið/RAX Stefna Slitastjórn Icebank á kröfuhafafundi árið 2009. Það ár stefndi stjórnin Arnari vegna uppgjörs á skiptasamningi. Arnar Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.