Morgunblaðið - 17.12.2013, Síða 46

Morgunblaðið - 17.12.2013, Síða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2013 Á síðustu fimm árum hefur Eyrún Ýr Tryggvadóttir, bókavörður á Húsavík, sent frá sér þrjár spennu- sögur sem allar voru tilnefndar til Blóðdropans, hinna íslensku glæpa- sagnaverðlauna. Nú hefur hún sent frá sér nýja bók, Annað tækifæri, sem er þó ekki ný. Hún kom nefni- lega út árið 2004 en fór aldrei í al- menna dreifingu – nú kemur hún því á markað, í endurskoðaðri út- gáfu; fær „annað tækifæri“. „Útgáfufyrirtæki sem var angi af bandaríski útgáfu auglýsti á sínum tíma eftir handritum til útgáfu og þá sendi ég þetta inn. Það vildi gefa söguna út og ég fékk tvö eintök og tíu voru send í bókabúðina hér á Húsavík en síðan var ekkert hægt að fá bókina. Skipti engu þótt reynt væri að panta hana á netinu hjá út- gáfunni,“ segir Eyrún. „Ég heyrði aldrei aftur frá útgáfunni og hún er hætt starfsemi fyrir löngu. Bókin fór ekki í neina dreifingu. Kannski voru til einhver þrjátíu eintök.“ Nú ákvað forlag Eyrúnar, Salka, að gefa bókina út að nýju. „Það var farið að spyrja eftir sögunni og þess vegna var gott að koma henni í út- gáfu,“ segir Eyrún og bætir við að þetta sé „létt afþreyingarsaga“, spennusaga og rómantík. Skáld- saga um fjölskylduleyndarmál, morð og lygar. „Ég hef verið að skrifa spennu- sögur síðan og það er heldur meiri rómantík í þessari en nýjustu sög- unum,“ segir hún. Eyrún segist ekki hafa haft næg- an tíma undanfarið til að skrifa. „En það kemur að því að ég nái að senda nýja bók frá mér, hugmynd- inar vantar ekki heldur tímann til að vinna úr þeim,“ segir hún. efi@mbl.is Hvarf Forlag sem lýsti eftir handritum gaf bókina fyrst út. „Ég fékk tvö ein- tök og tíu voru send í bókabúðina hér – síðan fékkst hún ekki,“ segir Eyrún. Annað tækifæri upp á nýtt  Saga Eyrúnar Ýrar sem hvarf komin út að nýju … skyldi það vera þrá útlagans eftir undrakrafti norðurhjarans sem fær ólgandi vatnselg í brjósti mér til að brjótast um … Þannig yrkir Stefanía Guðbjörg Gísladóttir í titilljóði bókar sinnar, Skyldi það vera, og spyr þar einn- ig hvort það geti verið útlegðin, fjarlægðin frá nándinni, sem geri sér kleift að fanga hana. Stefanía yrkir þar greinilega um eigin veruleika því svo sannarlega er hún fjarri þessum „undrakrafti norðurhjarans“, því hún er bóndi í Vestur-Ástralíu. Hún býr þar ásamt börnum og þarlendum eiginmanni og hefur sent frá sér nokkrar bækur. Er lang- ur vegur þangað frá Seldal við Norðfjörð þar sem Stefanía fæddist og ólst upp. Þessi athyglisverða bók hefst á titilljóðinu og skiptist síðan í fimm mislanga hluta. Sá fyrsti nefnist „Minningabrot og stemningar“, þá koma „Ýmis ljóð“, sá þriðji er „Seldalsbörnin“ með sex ljóðum um börn skáldsins, svo ljóðið „Til Gavins á 25 ára brúðkaupsafmæli okkar“, og loks er það bálkur fjög- urra afar persónulegra en fallegra minningarljóða sem kallast „Í minningu Dódós, Nonna, Mattýjar og mömmu í þeirri röð sem þau létust“. Fyrsti og síðasti hlutinn skera sig nokkuð frá öðru efni bók- arinnar, fyrir þá fjarlægð og á köflum sáran en um leið furðu bjartan tregann sem þar ríkir. Stefanía beitir lítið myndhverf- ingum í skáldskapnum heldur sviðsetur og lýsir; í orðum málar hún stillilegar myndir af fólki og samskiptum í liðnum tíma og eru ljóðin oft á mörkum þess að vera afar knappar örsögur. Inn á milli koma síðan myndræn smáljóð á borð við „Skæðadrífu“: Heyri óm fallandi snjókorna í snjóblindu landslagi heimurinn máist út við fergðan glugga. Í lokaljóðunum fjórum, sem öll kallast „Minning“, er hugsað til og lýst nánum ættingjum og vinum. Minningar- eða erfiljóð sjást ekki oft í dag en hér birtast í ljóðum á ljúfsáran hátt myndir og hugleið- ingar um horfna ættingja og hið óstöðvandi flug tímans. Því síðasta lýkur þannig: „einu sinni enn / hurfum við til hlýrrar nærveru / þessara fjórmenninga / hlustuðum á gamalkunnugt háreysti og hlát- ur / blandast árniðnum og þögn- inni í dalnum“. Gaman er að ljóðum um börnin í Ástralíu sem uppgötva sannleik- ann um jólasveina sem setja í skó og öðrum um upplag barnanna fjögurra. Kaflinn sem nefnist „Ýmis ljóð“ er öllu sundurlausari en þó er þar margt áhugaverðra ljóða og fínar myndir dregnar upp. Dauði og tregi er áberandi í þeim mörgun, til að mynda í „Síð- degi“ þar sem beðið er eftir sím- tali með fréttum „af óumflýj- anlegu dauðsfalli“. Meðan beðið er reynir ljóðmælandi að létta fiski- flugu dauðastríðið en þar sem flugan liggur „með fætur upp í loft / í algjörri þögn // síminn hringir“. Endurlit Stefanía Guðbjörg Gísla- dóttir er bóndi í Vestur-Ástralíu og yrkir m.a. um eigin veruleika. Þrá útlagans eftir undrakrafti norðurhjarans Ljóð Skyldi það vera bbbmn Eftir Stefaníu Guðbjörgu Gísladóttur. Salka, 2013. 78 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Movie Star hvíldarstóll Verð 439.000,- Skeifunni 8 | Kringlunni | sími 588 0640 | casa.is Opið í Skeifunni sunnudaga fram að jólum frá kl.13-16 Er á Facebook Jurtir í jólagjöf Slakandi olían er góð fyrir húðina og himnesk í baðið! – Lena Lenharðsdóttir www.annarosa.is Slakandi olían hefur róandi áhrif og er frábær nudd- og húðolía. Eftir að ég fór að nota 24 stunda kremið hurfu þurrkblettir í andliti alveg og ég er ekki eins viðkvæm fyrir kulda og áður. Það gengur mjög vel inn í húðina og mér finnst það frábært í alla staði. – Sigþrúður Jónasdóttir 24 stunda kremið er einstak- lega rakagefandi og nærandi fyrir þurra og þroskaða húð. Fótakremið er silkimjúkt, fer fljótt inn í húðina og mér finnst það alveg æðislegt. – Magna Huld Sigurbjörnsdóttir Fótakremið er kælandi og kláðastillandi, mýkir þurra húð, græðir sprungur og ver gegn sveppasýkingum. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum (Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.