Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 62
62 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 ✝ Steinar Au-bertsson fædd- ist í Reykjavík hinn 10. maí 1983. Hann lést 9. nóv- ember 2013. Foreldrar hans eru Margrét S. Ís- leifsdóttir, f. 20.10. 1953, og Aubert S.J. Högnason, f. 19.4. 1948. Systkini Steinars eru Guð- mar Aubertsson dýralæknir, f. 19.12. 1974, kvæntur Jakobínu Agnesi Valsdóttur, f. 25.2. 1978. Þau eiga fjóra syni, þá Ómar Högna, f. 3.6. 1998, Smára Val, f. 15.12. 2000, Grét- ar Jóhann, f. 26.6. 2002, og Jakob Agnar, f. 29.3. 2013. Birna Aubertsdóttir sjúkra- þjálfari, f. 4.2. 1977. Hennar maður er Óttarr Hrafnkelsson, f. 26.1. 1967. Þau eiga þrjá syni, þá Breka Þór, f. 2.8. 2004, Jökul Frey, f. 25.12. 2006, og Arnar Ægi, f. 26.7. 2011. Anný Tinna Aubertsdóttir háskóla- nemi, f. 14.1. 1993. Unnusta Steinars var Sigríð- ur Sunna Atladótt- ir, f. 4.7. 1988. Steinar ólst upp í Kópavogi og lauk grunnskólaprófi frá Digranesskóla árið 1998. Byrjaði í Iðnskólanum í Reykjavík en hætti þar. Starfaði af og til hjá föður sínum við vélavinnu, eitt sumar í bygging- arvinnu og um tíma hjá Marg- miðlun. Steinar háði langvinna baráttu við fíkniefni en átti góð tímabil inn á milli og naut þess þá að vera með fjölskyldu og vinum. Steinar lærði snemma að tefla og var virkur í því bæði hjá Taflfélagi Kópavogs og í grunnskólanum. Hann var Íslandsmeistari með sinni sveit og keppti á Norðurlandamóti í skák í Danmörku. Steinar stundaði fallhlífarstökk hér- lendis og erlendis sem og mót- orkross. Útför Steinars fór fram frá Digraneskirkju hinn 20. nóv- ember 2013. Elskulegur sonur okkar lést hinn 9. nóvember síðastliðinn. Upp í hugann koma ótalmargar minningar. Steinar var einstakur karakter. Hann var mjög fylginn sér og ákveðinn strax í æsku, stóð fast á sínum skoðunum. Steinar var hreinn og beinn og passaði vel upp á vini sína og frændsystkini. Hann var barngóður, vel gefinn, atorkusamur, húmoristi, orðhepp- inn og mikill karakter sem gaf mikið af sér. Hann var mikill vinur vina sinna. Steinar háði harða baráttu við fíkniefni, sem héldu honum í helj- argreipum langtímum saman. Inn á milli átti Steinar þó góð tímabil og naut þess þá að vera með fjöl- skyldu sinni og vinum. Það lýsir Steinari og þeim dyggðum sem hann var gæddur að þrátt fyrir harðvítuga baráttu við fíknina missti hann aldrei tengsl við fjöl- skyldu og vini. Sem dæmi um atorkusemi hans var að þegar ákveðið var að byggja sumarhús sagði hann: „Við Héðinn getum gert það.“ Sem þeir og gerðu af mikilli vandvirkni. Sumarbústað- urinn varð hans eftirlætisstaður þar sem hann gat slakað á og sinnt áhugamálum sínum sem voru fjöl- mörg. Ótal góðar minningar sækja á hugann. Öll símtölin sem þú byrj- aðir alltaf með orðunum: „Hvað segirðu? Ertu ekki hress?“ Elsku Steinar, við söknum þín svo mikið. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Hvíldu í Guðs friði, elsku drengurinn okkar. Mamma og pabbi. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar. Ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Þú fórst alltof fljótt úr þessum heimi elsku bróðir minn. Ég sakna þín á hverjum degi. Stundum lít ég á símann til að gá hvort þú hafir hringt. Þú gerðir það líka reglulega, bara til að heyra í mér hljóðið og ef mér leið ekki nógu vel þá varst þú fljótur að stappa í mig stálinu. Því þannig varst þú nefnilega, þú máttir ekk- ert aumt sjá. Ég minnist þeirra fjölmörgu bíóferða sem við fórum saman, og að sjálfsögðu í lúxussal þar sem þú svo sofnaðir gjarnan. Þú varst mikill nautnamaður og vildir alltaf hafa það kósí í kringum þig, enda þurfti lítið til að gleðja þig. Aðeins góða mynd í tækið og eitthvað ljúffengt að borða með. Ég hefði ekki getað beðið um betri stóra bróður með svo stórt hjarta úr gulli. Þótt þessar minn- ingar séu sárar núna held ég samt fast í þær því mér þykir svo óskaplega vænt um þær og þær hlýja mér um mínar dýpstu hjartarætur. Þín litla systir, Anný Tinna. Þann 10. maí árið 1983 eignað- ist ég lítinn bróður, hann Steinar minn. Þá var ég 6 ára hnáta og tilbúin að láta reyna á hæfileika mína sem stóra systir. Þrátt fyrir að hafa fengið ágætan undirbún- ingstíma og verið í startholunum allan meðgöngutímann, vaggað brúðu og skipt á bleyjum, komst ég fljótt að því að ég mátti hafa mig alla við. Þú varst strax ákaflega bráð- ger drengur, kröftugur með ein- dæmum, ákveðinn, uppátækja- samur og fjörugur. Þú varst ekki nema rétt þriggja ára þegar þú fannst út hvernig þú gast opnað hliðið á gæsluvellinum, alveg sjálfur. Þú beiðst færis og um leið og fóstran með kústinn lagði hann frá sér greipst þú hann og opnaðir hliðið með kústskaft- inu. Ég gleymi því ekki þegar þú svo hringdir dyrabjöllunni – með kústskaftinu og sagðir: ,,Hæ, detta er Deinar.“ Og svo var það þegar mamma sótti þig til dagmömmunnar. Þú stökkst af stað á undan henni. Skelltir þér í bílstjórasætið, skelltir aftur hurðinni og smelltir í lás. Sigrihrósandi brostir þú glað- hlakkalega til mömmu sem bað þig fagurlega um að opna. En nei, núna var tækifærið. Að prófa græjuna enda búinn að fylgjast með öðrum gera þetta aftur og aft- ur. Og viti menn, lyklinum var snú- ið, gírstöngin hrist til og hand- bremsan tekin af … til allrar lukku rann bíllinn rólega í næsta garð þar sem hann staðnæmdist. Þetta kostaði helgarvinnu í girðingar- smíði hjá pabba en lítill drengur var ánægður og stoltur með fyrsta bíltúrinn sinn, alveg sjálfur. Takkakarl varstu. Það skipti ekki máli hvort það var tölva, sími, talstöð, hljómflutningsgræjur, miðstöð eða bara barnalæsingin í bílnum. Allir takkar voru áhuga- verðir því allir takkar hafa sinn til- gang. Stundum kemur vel út að ýta á tiltekna takka en stundum ekki. Þú varst alltaf til í að taka sénsinn. Því mun ég aldrei gleyma þegar þið feðgar fóruð í bíltúr um árið, þú þá milli 3 og 4 ára gamall. Þegar þú settist í bílinn ákvaðst þú að ráðast til atlögu á hurðina og þegar pabbi renndi úr hlaði sá hann glitta í þig í baksýnisspegl- inum. Þó ekki sitjandi í aftursæt- inu heldur liggjandi á götunni. Þú hafðir nefnilega náð að opna dyrn- ar á bílnum og um leið og pabbi tók beygju rúllaðir þú út úr hon- um. Bíltúrinn breyttist í algjöra martröð fyrir pabba en þú komst alsæll heim með stærðarinnar sælgætispoka í fanginu. Vá, það var ekki laust við að örlaði á smá afbrýðisemi hjá minni enda nammi ekki auðfengin munaðar- vara í þá dagana. Og ákveðinn varstu, fórst þínu fram og fékkst þínu fram. Hver hefði getað trúað því að hægt væri að hnika til áratuga hefð móður- fjölskyldunnar sem hafði ætíð gef- ið vandaðan skrifborðsstól í ferm- ingargjöf? Þú, elsku vinur, bara þú gast breytt skrifborðsstólnum í Lazy-boy-stól. Sem stóra systir fékk ég að hugsa um þig, passa þig sem lítinn dreng, klippa neglurnar, bera á exemið, pússa gleraugun. Og þeg- ar árin færðust yfir að keppa við þig í borðtennis, púkki, körfubolta og alls kyns spilum. Þú varst ákaf- lega fljótur að ná hlutunum, keppnismaður, og þrátt fyrir ald- ursmuninn þurfti ég að hafa mig alla við. Elsku Steinar minn, það að vera stóra systir þín var í senn yndislegt og lærdómsríkt. Ég kveð þig nú með sorg í hjarta, elsku vinur, og ég veit að góður Guð geymir þig. Þín systir, Birna. Elskulegur bróðir minn og vin- ur lést á fangelsinu á Litla-Hrauni í nóvember síðastliðnum. Eftir sit- ur áfallið, úrræðaleysið og reiðin sem ég og allir þeir sem nákomnir honum voru þurfa að vinna með og vinna úr hver fyrir sig. Áleitnar spurningar eins og hvers vegna, hvernig getur þetta komið fyrir, þetta er ekki sanngjarnt, ekki rétt og hverju eða hverjum er um að kenna, leita á hugann. Við þessum spurningum fást að öllum líkind- um engin svör en eftir situr sár missir en einnig minning, minning um góðan dreng. En hvaða mann hafði Steinar að geyma, hvaða orð koma upp í hugann þegar maður hugsar til hans? Orð eins og léttlyndur og kátur, örlátur, barngóður og vinur vina sinna eru orð sem fyrst koma upp í huga minn. Steinar var mjög kátur og hress. Alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt ekki bara fyrir sjálfan sig heldur eitthvað sem hann taldi og vissi að myndi skemmta öðrum. Gott dæmi um það er að þegar við hjónin fórum að nálgast Reykjavík þá byrjuðu synir mínir alltaf að spyrja um hvort þeir myndu ekki örugglega hitta Steinar í þessari bæjarferð og ef svarið var nei þá leyndu vonbrigðin sér ekki. Ástæð- an var sú að Steinar var alltaf tilbú- inn að gera eitthvað með þeim sem þeim þótti og þykir skemmtilegt. Hvort sem það var að spila tölvu- leiki,fara í gokart, keyra um á mót- orhjóli eða fara á skyndibitastaði til að nefna eitthvað, svo ekki sé minnst á ófáar ferðir í bíó sem þeir frændurnir fóru saman. Sérstak- lega minnisstæð er mótorhjólaferð sem við feðgarnir fórum með Steinari og Sunnu unnustu hans síðastliðið sumar um syðra Fjalla- bak og það stóð til að fara aðra slíka næsta sumar. Við bræðurnir vorum búnir að ákveða það nokkr- um dögum áður en hann dó. Fjöl- skyldan var Steinari mikils virði og hann vildi allt fyrir hana gera sem hann gat og gerði allt sem hann gat fyrir hana. Mér er minnisstætt frá því að Steinar var barn að hann var mjög snemma mikill persónuleiki. Hann var mjög sjálfstæður og vissi hvað hann vildi. Hann lét ekki nokkurn hafa áhrif á það og lét engan stjórna sér. Þannig lifði hann má segja sínu lífi. Gerði það sem hann vildi þegar hann vildi og hafði engar áhyggjur af því hvað öðrum þótti um það. Svona er í mínum huga Steinari rétt lýst en á sama tíma mátti hann ekkert aumt sjá. Það er með sorg í hjarta sem ég kveð þig, Steinar minn, og ég veit að góður Guð geymir þig. Þinn bróðir. Guðmar. Núna enn, sex vikum eftir frá- fall þitt, trúi ég ekki að þú sért far- inn frá okkur. Áföllin fylgja lífinu en þetta er það erfiðasta sem ég hef upplifað, að kveðja þig langt fyrir aldur fram. Mér fannst þú vera ósigrandi. Ég hélt alltaf að við yrðum gamlir saman. En sama hvað þú tókst þér fyrir hendur hafðirðu alltaf yfirburði á þínum sviðum. Einstaklega sterkur kar- akter, hrikalega skarpur, hafðir gífurlega leiðtogahæfileika en um- fram allt hugsaðirðu svo vel um þitt fólk og væntumþykjan leyndi sér aldrei. Þú æfðir ekki í eitt og hálft ár en pumpaðir samt 160 kg í bekkn- um, vannst stórmeistara í skák og varst allra besti vinur og frændi sem hægt var að hugsa sér. Með alla þessa hæfileika hefðirðu get- að orðið hvað sem þú vildir. Stærra hjarta hef ég ekki séð. Ég var búinn að sjá okkur frændurna fyrir mér fram á elliár að brasa eitthvað saman. Við töluðum um að stofna lítið fyrirtæki þar sem við félagarnir gætum verið saman fram eftir degi og haft eitthvað fyrir stafni. Þar lá framtíðin fyrir mér. Ég, þú og félagarnir saman. Þú varst ótrúleg félagsvera og merkilegt hversu margir kölluðu þig bróður sinn á einhverjum tímapunkti, þar á meðal ég. Ein- stakur karakter, einstök sál, ein- stakur vinur og frændi. Alltaf þegar eitthvað bjátaði á hjá mér varst þú til staðar. Stapp- aðir í mann stálinu og hugsaðir um mann. Stundum var eins og þú værir stóri frændi minn en ekki öfugt. Ef þurfti lástu á bjöllunni og barðir á alla glugga þar til það var svarað, svo mikil var um- hyggja þín til þeirra sem þér þótti vænt um. Ég mun líklega aldrei jafna mig á fráfalli þínu Steini minn, ég og börnin mín munu allt- af sakna þín. Þú heimsækir mig þó reglulega enn í draumum mínum og mér þykir alltaf jafngaman að sjá þig. Það voru alger forréttindi að fá að þekkja þig og einstök upplifun. Ég skulda þér svo mikið, elsku frændi. Brynjar Unnsteinsson. Elsku hjartans frændi minn. Hver hefði getað trúað því að ég væri að kveðja þig í síðasta sinn? Ég er svo þakklát í hjarta mínu fyrir allt spjallið okkar, það er mér svo dýrmætt. Það var alltaf stutt í grínið hjá þér enda ofsalega skemmtilegur. Við grínuðumst mikið og gerðum gott úr öllu sam- an. Þig langaði svo að mennta þig og varst svo ánægður og spenntur fyrir náminu sem ég fór í. Ég veit að þú átt eftir að fylgjast með og Steinar Aubertsson Söknuður er ekki einsömul sú tilfinning sem okkur er hug- leikin er við minnumst Didda afa, heldur er þakklæti okkur einnig ofarlega í huga. Þakklæti fyrir að Diddi afi hafi fylgt okk- ur upp á fertugs- og fimmtugs- aldurinn. Þakklæti fyrir þær stundir og þá umhyggju sem við nutum og þakklæti fyrir þá fyrirmynd sem hann hefur reynst okkur. Við höfum nefni- lega orðið þeirrar einstöku gæfu aðnjótandi, sem allt of fáum hlotnast, að eiga minn- ingar um afa okkar bæði úr bernsku sem og á fullorðins- aldri. Æskuminningar okkar eru hvað sterkast tengdar Dalseli, Kristinn Guðjónsson ✝ Kristinn Guð-jónsson fæddist 27. ágúst 1913. Hann lést 5. janúar 2014. Útför Kristins fór fram frá Frí- kirkjunni í Hafn- arfirði 17. janúar 2014. sumarbústaðnum þeirra Didda afa og Tonný ömmu. Þennan bústað reistu þau við heið- arvatnið Selvatn og sá Diddi afi sjálfur um smíðina, enda var hann lærður trésmiður og starf- aði sem slíkur alla sína starfsævi. Bú- staðurinn stóð, og stendur enn, í námunda við þann stað þar sem tengdafaðir hans, langafi okkar, Lorenz H. Müller, hafði reist sér sumarbú- stað. Diddi afi átti forláta hand- smíðaðan árabát sem hann hafði eignast í skiptum fyrir innréttingu sem hann smíðaði fyrir bátasmið nokkurn. Þegar ýtt var frá bryggju út á Sel- vatnið var, í minningunni, sem tíminn stæði í stað. Þar réð ríkjum þögnin og róin, enda fiska þeir ekki sem styggja fisk- inn með brölti og látum. Hins- vegar gat gengið á ýmsu þegar skipað var í bátinn við bryggju. Sé augum aftur lygnt má því rifja upp þær stundir þar sem þögnin á heiðarvatninu, taktfast áratakið og brothljóð gáranna sem slógust við og brotnuðu á borðum bátsins mynduðu full- komið samspil sem ekki var rof- ið nema þá helst af öndum og gæsum sem héldu til á vatninu eða kríunni sem hvert einasta sumar kom sér upp hreiðri við grasflöt nokkra sem útbúin hafði verið í miðju hrauninu. Diddi afi taldi ekki eftir sér að róa einn hring til viðbótar um vatnið, já eða annan til jafnvel, svona rétt til þess að ganga úr skugga um hvort sá stóri hefði í hyggju að koma með í land. Diddi afi var enda rammur að afli, skiljum við núna, og stórar hendurnar og kröftugur skrokkurinn sem stritað hafði í trésmiðjunni Dverg í Hafnar- firði áratugum saman lét það virka áreynslulaust og fágað jafnvel að líða gegnum vatns- flötinn hvort heldur í logni, meðvindi, eða hinum alltumlykj- andi íslenska síblæstri sem virðist oftar en ekki vera mót- vindur sama hvert maður stefn- ir. Aldrei er þess að minnast að þreytu hafi verið borið við sem ástæðu þess að bátsferðum væri lokið heldur var það jafnan svo að ekki þætti rétt að láta ömmu bíða með kaffið. Þó má vissulega gera því skóna að nóg hafi þótt um síendurteknar ósk- ir um einn hring til viðbótar. Á heimili Didda afa og Tonný ömmu að Tjarnarbraut í Hafn- arfirði hafði Diddi afi ávallt lítið smíðaverkstæði. Þar gátum við dundað okkur við að sýna fram á að náðargáfa til handverks er langt því frá sjálfgefin og erfist misvel. Diddi afi var hinsvegar með eindæmum handlaginn og þótt hendurnar hafi verið býsna stórar gátu þær framkallað bæði hin fíngerðustu smáatriði og heilu húsgögnin úr viðnum. Mörg þessara húsgagna fylgja okkur enn þann dag í dag. Þegar nóg var komið af handverkstilraunum, var sem betur fer hægt að fara yfir göt- una, niður að læknum í Hafn- arfirði. Þar var hægt að kasta bæði brauði og eftir atvikum sjálfum sér út í tjörnina til and- anna – sem þó virtust kunna öllu betur við brauðmetið. Þín barnabörn, Pétur og Lísa Reynisbörn. Þær minningar sem manni hlotnast á barnsaldri eru vit- anlega mótandi og því er svo ljúft að hafa átt svo góðan mann að sem Didda afa, og minningarnar svo jákvæðar sem raun ber vitni. Slíkar minningar eru þó meðteknar af barnslegu gagnrýnileysi. Þegar við uxum úr grasi varð Diddi afi ekki lengur bara afi okkar heldur líka maðurinn sem hafði lifað tímana tvenna, í raun heims- styrjaldirnar tvær, og mótast af eigin minningum og reynslu. Þessum manni vorum við svo lánsöm að kynnast líka. Þótt himinn og haf virðist hafa að- skilið þann raunveruleika sem hann upplifði á sínum yngri ár- um og þann raunveruleika sem við upplifum, er þó ýmislegt sem kallast á yfir kynslóðabilið, t.a.m. fór hann ungur í nám til Norðurlanda og höfum við öll fylgt í þau fótspor hans. Á fullorðinsaldri vorum við loks fær um að skapa dýpri og þroskaðri minningar um þann mann sem Diddi afi hafði að geyma og vorum í stakk búin til að þiggja af honum dýpri og þroskaðri lærdóm enda var af nógu að taka. Diddi afi var heilsuhraustur langt fram eftir aldri, enda hafði hann bæði gætt þess að hreyfa sig reglulega, auk þess sem hann hafði verið í góðu yf- irlæti Tonný ömmu alla tíð. Þau hjónin höfðu ferðast víða og áttu þau vinafólk erlendis sem þau bæði heimsóttu og tóku á móti. Sú reynsla og innsýn sem öðlast má á ferðalögum ásamt því að Diddi afi hafði alla tíð yndi af lestri, svo sem bóka- safnið hans bar vitni um, gerði það að verkum að hann var furðu víðsýnn og móttækilegur fyrir nýjum hugmyndum fyrir mann á hans aldri og af hans kynslóð. Hann lét reyndar yngri kynslóðum eftir að hirða um tölvuöldina, því þegar þar var komið sögu varði hann sín- um tíma meira í að njóta kveð- skapar- og ljóðlistar. Hann tók þó nýjum hug- myndum ekki endilega gagn- rýnilaust enda væri slíkt ekki til eftirbreytni heldur er honum meira til hróss sá eiginleiki að vera tilbúinn að í.þ.m. taka til íhugunar hvort efni stæðu til að endurskoða afstöðu sína til manna og málefna í ljósi nýrra upplýsinga. Slíkt er enda hátta- lag hygginna manna sem lausir eru við þann hroka að þykjast vita endanlegan sannleik um hvaðeina málefni, vitrænni af- stöðu, ólíkt kreddunni, stafar nefnilega lítil ógn af því að vera tekin til endurskoðunar. Eflaust má gera því skóna að Diddi afi hafi með slíku hug- arfari og þeirri hugarleikfimi sem hann stundaði í formi þess að rifja upp og læra nýjan kveð- skap, viðhaldið þeim andlega þrótti sem einkenndi hann jafn- vel þótt líkaminn hafi verið orð- inn slitinn og lúinn undir lokin. Ber þess einmitt vitni að þegar Danir tóku að bætast við fjöl- skylduna þótti Didda afa lítið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.