Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 46
46 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Að minnsta kosti fimm mótmælendur biðu bana, fjórir þeirra af skotsárum, þegar lög- reglumenn réðust á götuvígi mótmælenda í miðborg Kíev í gær. Þetta eru fyrstu dauðs- föllin í götumótmælunum í borginni frá því að þau hófust fyrir tveimur mánuðum vegna þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnar Úkraínu að hætta við samning um aukið samstarf við Evr- ópusambandið. Mótmælendur í miðborg Kíev köstuðu grjóti og eldsprengjum að lögreglumönnum sem svöruðu með því að beita táragasi, kasta högg- sprengjum og skjóta gúmmíbyssukúlum. Þús- undir manna hafa tekið þátt í mótmælunum síðustu þrjá daga og tekist á við svipaðan fjölda lögreglumanna. Viktor Janúkovítsj, forseti Úkraínu, ræddi í gær við leiðtoga stjórnarandstöðunnar, þeirra á meðal hnefaleikakappann Vítalí Klítsjkó, sem er nú vinsælasti stjórnmálamaður Úkra- ínu. Ekki var vitað hvort viðræðurnar hefðu borið árangur. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar virtust ekki geta haft mikil áhrif á þá mótmælendur, sem höfðu sig mest í frammi í átökunum við lögregluna, og þeir lýstu ekki yfir stuðningi við árásir þeirra á lögreglumenn. Janúkovítsj forseti hvatti mótmælendur til að taka ekki þátt í ofbeldi „pólitískra róttæk- linga“ og vottaði fjölskyldum þeirra sem létu lífið samúð sína. Mylola Azarov, forsætisráð- herra Úkraínu, sagði að róttækustu mótmæl- endurnir væru „hryðjuverkamenn“. Hermt er að flestir þeirra mótmælenda, sem ganga harðast fram í átökunum, séu í nýrri hreyfingu ungra hægriöfgamanna sem nefnist Hægri geirinn. Hreyfingin er skipuð jafnt rússnesku- sem úkraínskumælandi stjórnar- andstæðingum sem nota hjálma og andlits- grímur til að verja sig og beita bareflum í átök- um við lögregluna. Margir félaga hreyfingarinnar í Kíev koma úr röðum ungra rússneskumælandi fótboltabullna og þjóð- ernissinna. Flestir mótmælendanna í Kíev eru andvígir því að Úkraína gangi í tollabandalag með Rússlandi, Hvíta-Rússlandi og Kasakstan, eins og rússnesk stjórnvöld hafa beitt sér fyrir. Ólíkt öðrum mótmælendum í Kíev eru flestir félaganna í Hægri geiranum andvígir því að Úkraína gangi í Evrópusambandið. Hreyfingin lítur á mótmælin í Kíev sem tækifæri til að koma úkraínska ríkisvaldinu fyrir kattarnef og hefja uppbyggingu nýs ríkis, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Hundruð manna hafa særst í átökunum, auk þess sem minnst fimm hafa látið lífið. Átökin hafa vakið mikinn óhug meðal Úkraínumanna sem hafa aldrei orðið vitni að slíkum blóðs- úthellingum í mótmælum, að meðtalinni rauð- gulu byltingunni árið 2004 sem fór friðsamlega fram að mestu. Stjórnin sökuð um að koma á lögregluríki Ráðamenn í öðrum löndum hafa vaxandi áhyggjur af átökunum í Kíev. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins, varaði í gær við því að hún myndi meta „hugsanlegar aðgerðir“ gegn úkraínsk- um yfirvöldum. Bandaríkjastjórn ógilti í gær vegabréfsáritanir nokkurra Úkraínumanna sem tengjast átökum öryggissveita og mót- mælenda í nóvember og desember, að sögn bandaríska sendiráðsins í Kíev í gær. Yfirvöldin byggja aðgerðir sínar á nýjum lögum sem banna nær hvers konar mótmæli í landinu. Lögin kveða meðal annars á um að mótmæli fyrir utan opinberar byggingar varði allt að fimm ára fangelsi og mótmælendum er bannað að vera með hjálma eða andlitsgrímur. Andstæðingar laganna segja að með þeim sé stjórnin að koma á lögregluríki. AFP Stál í stál Konur úr röðum mótmælendanna fyrir framan lögreglumenn við þinghúsið í Kíev þar sem hörð átök geisuðu í gær. A.m.k. fimm menn biðu bana og hundruð manna særðust. Mannskæð átök í Kíev vekja ugg  Blóðug átök vekja mikinn óhug meðal Úkraínumanna  Stjórnvöld hvetja mótmælendur til að taka ekki þátt í ofbeldi „róttæklinga“  Ungir hægriöfgamenn á meðal þeirra sem hafa sig mest í frammi Kenna vestrænum ríkjum um » Forseti framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins, Jose Manuel Barroso, var- aði yfirvöld í Úkraínu við því að hún kynni að grípa til refsiaðgerða gegn þeim vegna átakanna í Kíev. » Rússar sökuðu hins vegar vestræn ríki um að hafa kynt undir óeirðum í Kíev. „Lögmæt yfirvöld Úkraínu standa frammi fyrir utanaðkomandi íhlutun í innanríkismál landsins,“ sagði Grígorí Karasín, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. Átökin í Kíev hófust eftir að ríkis- stjórn Úkraínu tilkynnti 21. nóv- ember að hún hefði ákveðið að slíta viðræðum um aukið samstarf við Evrópusambandið og auka þess í stað samstarfið við Rússland. Stjórnarandstæðingar, sem vilja að Úkraína gangi í Evrópusambandið, boðuðu þá til götumótmæla. Tugir þúsunda manna tóku þátt í mótmælum á Sjálfstæðistorginu í Kíev 24. nóvember og fámennari mótmælafundir voru haldnir í öðr- um borgum. Hermt er að allt að hálf milljón manna hafi tekið þátt í mótmælum í Kíev 1. desember. Hundruð manna særðust þá í átök- um við lögreglu og margir mótmæl- endur réðust inn í ráðhús borgar- innar. Um 200.000 manns söfnuðust saman á Sjálfstæðistorginu á sunnudaginn var eftir að þingið samþykkti lög sem banna nær hvers konar mótmæli. Deilt um hvort auka eigi samstarfið við Evrópusambandið eða Rússland AFP Hörð átök Mótmælendur takast á við lögreglumenn í miðborg Kíev. Mótmælendur beittu m.a. eldsprengjum í átökunum og lögreglumenn hleyptu af byssum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.