Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 63
MINNINGAR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 segja mér til þegar ég fer að inn- rétta og gera fínt. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku hjartans Aubi, Magga, Sunna, Gummi, Birna, Anný Tinna, og fjölskyldur, mínar innilegustu samúðarkveðjur á sorgarstund. Góður guð styrki ykkur og leiði. Elsku Steinar minn, þín verður sárt saknað, en minning um góðan dreng lifir í hjarta mér. Með þess- um orðum kveð ég þig. Takk fyrir allt, elsku frændi, sofðu rótt. Þín elskandi frænka að eilífu, Guðrún Ósk Hermansen. Ég kveð Steinar Aubertsson vin minn með söknuði. Við Steini kynntumst þegar við vorum skóla- bræður í grunnskóla, hann var árinu eldri og reyndist hann mér vel í gegnum unglingadeildina í skólanum. Þar man ég eftir hans sterka persónuleika og hreinskilni en hann lét engan vaða yfir sig né aðra sem áttu það ekki skilið. Leiðir okkar lágu saman aftur 10 árum eftir grunnskóla, í gegn- um sameiginlegan vin. Við höfðum farið mjög ólíkar leiðir í gegnum lífið frá grunnskóla en það var kannski ástæðan fyrir að við náð- um vel saman, við gátum miðlað af reynslu okkar úr ólíkum heimum. Steini hafði lifað hratt og barist við áfengi og fíkniefni árin eftir grunnskóla en þegar leiðir okkar lágu saman aftur var hann kominn á beinu brautina í lífinu og hafði losnað undan fjötrum fíknarinnar. Steini hafði jákvæð áhrif á vini sína varðandi heilsu og mat, og vildi yfirleitt borða hollan og góð- an mat sem var í miklum gæðum og smitaði það út frá sér. Hann pældi mikið í að hafa hlutina í miklum gæðum sama hvort það var matur eða þegar horft var á kvikmyndir eða fótboltaleiki. Steini bjó yfir mjög skemmti- legum eiginleikum í mannlegum samskiptum, hann var ófeiminn og komst maður oft í gott skap við að tala við hann í síma, hann var hvetjandi og hrósaði vinum sínum mikið þegar gekk vel hjá þeim í vinnu eða námi. Hann benti vinum sínum á góðu hlutina í lífi þeirra. Kvikmyndir, tónlist og fótbolti voru í uppáhaldi hjá Steina, Steini talaði ekki oft um hvað hann ætl- aði sér í framtíðinni en hann nefndi oftar en einu sinni að hann hefði áhuga á fara í nám tengt kvikmyndum. Steinar var tryggur, vinur vina sinna, ósérhlífinn, vildi leysa hvers manns vanda og höfðingi heim að sækja. Þannig minnist ég þessa góða drengs sem var góður og traustur vinur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Hvíl í friði, kæri Steini. Þinn vinur. Guðmundur. Ég minnist Steinars fyrst þeg- ar við vorum krakkar að tefla saman í taflfélagi grunnskólans okkar. Hann var mjög góður tafl- maður og stundum óþolandi glott á honum þegar maður telfdi við hann en „priceless“ einbeitingar- svipur sem kom á hann þegar manni tókst að halda í við hann. Hann var einu ári eldri en ég og lágu leiðir okkar aftur saman eftir grunnskóla í Iðnskólanum í Reykjavík. Þar sem ég var ný- byrjaður að læra húsasmíði og fjölskylda Steinars hugðist smíða sér sumarbústað þá var hann fljótur að ákveða það að ég og hann gætum bara gert það. Það gæti ekki verið svo mikið mál að byggja eitt hús þrátt fyrir að hafa ekki gert það áður. Sem við svo gerðum og vorum stoltir af. Þetta er aðeins eitt dæmi sem lýsir þeim krafti sem bjó í honum og þeirri trú sem hann hafði á sjálfum sér og á því sem hann hugðist taka sér fyrir hendur. Á þeim tíma mynd- aðist góð vinátta með okkur sem varðveittist alla tíð þrátt fyrir að áhugamál okkar og sú braut sem við fetuðum í lífinu væri ólík. Það var alltaf gaman að vera í kringum Steinar. Hann var hress og kátur með smitandi hlátur sem heyrðist langar leiðir. Hann var svo skemmtilegur karakter og engum líkur. Í hvert skipti sem við vörðum tíma saman, hvort sem það var í vinnu eða að hanga sam- an, þá voru alltaf einhverjar nýjar og skemmtilegar pælingar í gangi hjá honum. Hann vildi hafa gott fólk í kringum sig og skipti hann miklu máli að því liði vel. Var alltaf tilbú- inn að aðstoða vini sína og stappa í þá stálinu. „Þetta er ekkert mál fyrir þig, vertu bara hress, þú ferð létt með þetta,“ sagði hann alltaf við mig þegar ég var í vafa með eitthvað og eins og hann sagði það þá trúði maður því. Það var einhver aukaorka sem fylgdi honum og átti hann auðvelt með að deila henni með sér og drífa aðra áfram. Hann hefði verið flottur hershöfðingi á tímum róm- verska heimsveldisins. Hvíldu í friði, elsku vinur, þín verður sárt saknað. Þinn vinur, Héðinn. Elsku Steini hinn eini. Ég gleymi aldrei þegar ég hitti þig fyrst þegar þú komst heim. Þú hlóst eins og brjálæðingur og ein- hvern veginn þótti mér strax vænt um þig. Að hafa orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast þér, elsku Steini, eru forréttindi. Að hugsa um öll uppátækin og allt sem við höfum gert saman gefur mér hlýju í hjartað. Því hvað er þetta líf annað en minningar og draumar? Þú gafst sko örlátlega af því. Mér fannst magnað að hlusta á þig tala um fjölskylduna þína og vini. Að heyra hvað þú varst stoltur af þeim sem þér þótti vænt um lýsir þér best. Alltaf þeg- ar eitthvað bjátaði á í mínu lífi varstu kominn til að spyrja hvað þú gætir gert til að mér liði betur. Á svona stundu er svo fátt sem maður getur sagt og maður skilur lífið bara alls ekki. Í stað þess að reyna að skilja eitthvað sem verð- ur aldrei skilgreint kýs ég að halda í góðu minningarnar um þig. Steini, þú átt engan þinn líka. Þó svo að skarðið sem þú skilur eftir sé stórt ertu samt búinn að gefa svo mikið af fallegum og góðum minningum sem sitja eftir og gefa þessu öllu gildi. Horfandi til baka minnir þú mig líka á, elsku Steini, að vera þakklátur fyrir það sem ég hef fengið að upplifa og sjá, því sannarlega er það ekki sjálfgefið. Það var sannur heiður að fá að deila með þér lífinu, Steini minn. Leiðir okkar lágu saman í þessu lífi, Steini, en þar látum við ekki við sitja. Því trú þín á himna- föðurinn hefur núna gefið þér byr undir báða vængi og þú flýgur frjáls um himininn. Þar er engin þörf á fallhlíf heldur bara frelsi. Leiðir okkar munu því liggja aftur saman og bíð ég þess fundar fullur eftirvæntingar. Þín síðustu orð til mín, þegar ég var að segja þér frá kaflaskiptum í lífi mínu, voru svo mögnuð og lýsa þér svo vel: „Bara að þú sért ham- ingjusamur, Baldur minn, það er nóg fyrir mig.“ Glettinn drengur áfram drífur dugmikill elsku Steinar var. Elsku Steinar nú á himni svífur sigurdrengur af öðrum bar. „Dýrmæt vinátta er ekki byggð á útréttri hendi, eða vingjarnlegu brosi, né af gleði í návist vinar; hún er andlegur innblástur: sem kemur þegar einhver uppgötvar að það sé trúað á hann og treyst.“ (Ralph Waldo Emerson. Þýð. BFE) Baldur Freyr Einarsson. Ég man eins og gerst hafi í gær þegar ég fyrst hitti Steinar Au- bertsson. Það var daginn sem ég og fjölskylda mín fluttum í Hjalla- hverfið í Kópavogi, en það hverfi var þá rétt að fara af stað sem byggingarland, ég var sjö ára gamall og Steinar tveimur árum yngri. Hann kallaði til mín út um eldhúsgluggann og stuttu seinna vorum við farnir að leika og urð- um óaðskiljanlegir bestu vinir upp frá því. Við Steinar vorum heima- gangar hvor hjá öðrum öll upp- vaxtarárin. Á hverjum laugar- dagsmorgni hlupum við stóri bróðir minn yfir til Steinars að horfa á „Með afa“ í barnatímanum á stöð 2. Mörg aðfangadagskvöld kíkti Steinar yfir til mín og við bárum saman gjafirnar sem við höfðum fengið fyrr um kvöldið. Síðar meir þegar við vorum orðnir eldri og komnir með bílpróf fórum við á árlegan aðfangadagskvöldsr- únt niður Laugaveginn bara til þess að sjá hvað bærinn var tóm- legur. Þetta eru ljúfar minningar sem hugurinn leitar ósjálfrátt í nú eftir að Steinar er fallinn frá. Hon- um Steinari er best lýst sem góð- um dreng með stórt gullhjarta. Hann hugsaði ávallt um náungann og vildi öllum gott gera, sérstak- lega þeim sem minna máttu sín. Steinar var besti vinur minn og við studdum ávallt hvor við annan. Við höfum alltaf haldið í vináttuna því við vorum nánast eins og bræður þegar við vorum að alast upp og mín fjölskylda hefur ávallt litið á Steinar sem einn af okkur. Ég vil þakka Steinari sam- fylgdina og sendi foreldrum hans og systkinum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Úlfar Þórðarson. tiltökumál að skipta yfir í dönsku í samskiptum við þá. Þetta hélst óbreytt jafnvel þótt hann hafi verið orðinn rúmlega hundrað ára að aldri. Að framansögðu er því ljóst að við lok langrar ævi hafði Diddi afi veitt okkur dýrmætar og ljúfar bernskuminningar. Þó munum við ekki síður minnast þín í verki, Diddi afi, með því að viðhalda þeim lærdóm sem þú veittir okkur sem fullveðja fólki. Við heitum því að gera okkar besta til að halda minningu þína í heiðri með því að temja okkur þá góðu kosti sem þú hafðir til að bera, því þannig verður minning þín með okkur um ókomna framtíð. Þín barnabörn, Eva Margrét og Kristinn Már Reynisbörn. Yndislegi afi minn er dáinn. Hann lifði í heila öld. Kristinn afi var góður afi og mikill vinur minn. Sem barn og unglingur var ég oft hjá ömmu og afa á Tjarnó. Og oftar en ekki feng- um við systkinin að fara með þeim upp í bústað að gista. Ég man að við rifumst um að fá að sofa í efri kojunni en afi var með dagbók sem hann skráði í hvort okkar fengi efri kojuna. Dagarnir í bústaðnum voru æv- intýralegir. Við fórum með afa út á bát að veiða í soðið. Við fórum með ömmu að sækja grænmeti í garðinn. Við náðum í vatn í lækinn í vatnskönnuna. Við fengum að smíða litla báta úr spýtum, svo fengu þeir að fljóta á vatninu. Við veiddum síli, fórum í feluleiki, skoðunar- ferðir niður í Falkheim í stóra skóginn, göngutúra með afa upp að hliði, tíndum ber og margt margt fleira. Þetta voru góðir dagar. Þegar ég varð eldri fór ég oft í heimsókn til ömmu og afa á Tjarnarbrautina eða upp í Dal- sel. Þá sátum við í stofunni, amma prjónaði og svo töluðum við um allt og ekkert. Afi og amma sýndu mér alltaf áhuga og afi var alltaf hreinskilinn um sínar skoðanir á hlutunum. Afi var mjög íhaldssamur og trúði á gömlu góðu gildin; góða mennt- un, standa sig vel í vinnu og reglusemi. Ég á svo margar minningar um afa og ömmu sem mér þykir svo vænt um. Ég kveð þessi sómahjón með ást, kærleika og söknuði. Hvíl þú í friði elsku afi minn. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, Síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Anna María Snorradóttir. Aldrei hefur klukkan gengið svo hægt. Aldrei hefur fjarlægðin frá Noregi heim til Íslands verið svo mikil. Aldrei áður hef ég verið svo hjálparlaus. Sonur minn er týndur og eng- inn veit hvar hann er. Það eru liðnir margir dagar en lögreglan vill ekki lýsa eftir honum. Þetta er ekki fyrsta skipti sem þetta gerist. Mamma hans hringir í lögregluna til að biðja um hjálp. Hann er jú eiturlyfjaneytandi og þá má maður bara reikna með að hann geti horfið og verið burtu í einhverja daga. Það verða að líða sex dagar frá því að hann hverf- ur þangað til við lýsum eftir hon- um. Þeir sem skrifuðu þessar reglur vita ekki hvernig það er að týna barninu sínu. Arnar Óli Bjarnason fannst látinn á heimili sínu 24. desember stendur í Morgunblaðinu. Sannleikurinn er að Arnar Óli fannst ekki fyrr en 30. desember. Með foreldra sína búsetta í Noregi og reglur, sem gera það ókleift að fá nauð- synlega hjálp, liggur sonur okk- ar dáinn í herbergi miðsvæðis í Reykjavík meðan aðrir njóta jólamáltíðarinnar í faðmi fjöl- skyldunnar. Eitthvað hefur Arnar Óli Bjarnason ✝ Arnar ÓliBjarnason fæddist í Reykjavík 26. febrúar 1983. Hann lést á heimili sínu 24. desember 2013. Útför Arnars Óla fór fram frá Hafn- arfjarðarkirkju 13. janúar 2014. gerst i þjóðfélaginu okkar sem ekki er rétt. Erum við búin að gleyma verð- mætunum sem sköpuðu landið okk- ar? Eigum við ekki að elska náungann? Það eru svo ótrú- lega margir sem ganga um göturnar á meðal okkar sem við helst viljum ekki sjá. Við reynum að líta í aðra átt þegar við mætum þeim og það sama gera þeir sem eiga að stjórna landinu okkar. Arnar var orðinn einn af þeim sem fólk vildi helst ekki sjá eða vita af. Dagurinn hans gekk út á að finna næringu til að koma sér í gegnum daginn og skaffa sér pening til að geta borgað fyrir innihaldið í næstu sprautu. Arn- ar Óli er farinn frá okkur og sleppur við að heyja fleiri orr- ustur í þessu lífi. Hann er nú kominn á stað sem er betri en sá sem hann kom frá. Hann leiðir ömmu sína sem núna passar hann og hlúir að honum. Við sitj- um eftir með allar okkar hugs- anir og tilfinningar sem við verð- um að finna út úr sjálf. Arnar Óli, elsku drengurinn minn. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem þú gafst mér. Hjartað mitt er fullt af góðum minningum um þig. Minningum sem ég tek með mér áfram í líf- inu. Megi allar góðar vættir passa þig og vera með þér, gefa þér alla þá hlýju og ást sem þú getur tekið við. Þinn pabbi, Bjarni. Fimmtudagurinn 19. desember, jólin voru að koma og þá fór amma, ég hafði sunnudaginn áður farið í heimsókn til hennar og er mjög sáttur við að hafa gert það, það var í síðasta sinnið sem ég hitti hana. Einhverju sinni eftir það rakst ég á þetta ljóð og varð strax hugsað til þess hvað það ætti vel við ömmu mína sem nú er laus við Þórdís Oddsdóttir ✝ Þórdís Odds-dóttir fæddist 22. október 1924. Hún lést 19. desem- ber 2013 og var jarðsungin 4. jan- úar 2014. við veikindin og hef- ur hitt afa á himn- um. Nú fagna þeir englarnir aðrir þeim engli sem burt héðan fór á jólum er fannhvítar fjaðrir falla til jarðar sem snjór. Svo eyðast öll erfiðu sárin. Hann yfir þig breiðir sinn væng, með þíðu svo þerrar hann tárin í þögn undir dúnmjúkri sæng. (Kristján Hreinsson) Þinn dóttursonur, Hafliði Þór Þorsteinsson Sem ferjumaðurinn mikli kall- ar okkur hvert af öðru yfir móð- una miklu, kveð ég þig félagi, Pálmi Rögnvaldsson rafvirkja- meistari, sem skaust yfir í Sum- arlandið fyrir skemmstu. Ekki þó að óvörum, því óvætturinn mikli „Alzheimer“ felldi þig eftir langa og stranga Jakobsglímu. Þú varst einn af okkur iðnaðarmönn- unum í Kópavogi sem stóðum þétt saman að uppbyggingu stað- arins uppúr 1950. Mönnum sem ekki fengu lóðir í Reykjavík vegna þess að við vorum flestir róttækir mjög, og skorti bláa fé- lagsskírteinið. Ég fullyrði að þú varst okkar allra mestur fagmað- ur. Enda hillur þínar fullar fag- Pálmi S. Rögnvaldsson ✝ Pálmi S. Rögn-valdsson fædd- ist á Akureyri 12. október 1928. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Sunnu- hlíð í Kópavogi 4. janúar 2014. Útför Pálma fór fram frá Kópavogs- kirkju 15. janúar 2014. rita í þínum geira. Við byggðum hús hlið við hlið, sólu mót í huga og sinni. Bláeygðir glókollar léku sér í hlaðvörp- um. Þetta var á vori lífsins. Við fundum okkur baráttuvett- vang með Finnboga Rút og Huldu konu hans. Félagslíf blómstraði. Konur okkar kynntust í Húsmæðraskól- anum á Akureyri, það var upp- hafið að okkar samstarfi í ára- tugi. Saman áttum við hlut í „Rafgeislahitun“, sem þú varst sérfræðingur í. Sem ég lít um öxl er tíminn sem leiftur. Leiftur sem erfitt er að skilgreina. Og enn nú erfiðara að höndla. Ég tek mér það bessaleyfi að mæla fyrir tungu okkar allra félaganna, genginna sem uppistandandi, og þakka þér samfylgdina í þessum hverfula heimi. Megi sá er tungl- ið skóp, sólina og endilanga vetr- arbrautina fagna sínum syni eftir Jakobsglímuna miklu. Sigurður Sigurðarson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, EINARS ÓSKARS ÁGÚSTSSONAR Bugðulæk 8. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heima- hjúkrunar, hjúkrunarheimilanna Markar og Droplaugarstaða og starfsfólks taugalækningadeildar og öldrunardeilda Landspítala fyrir góða umönnun. Jóna Kristín Sigurðardóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Skrifstofan verður lokuð í dag, fimmtudaginn 23. janúar, milli kl. 13–15. Vélar og skip ehf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.