Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 14
VIÐTAL Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Inni við beinið er ég kannski sveita- maður í mér,“ segir Grímsnesingur- inn Magnús Kjartansson tónlistar- maður. Í flestra vitund er hann tengdur Keflavík, enda af bítlakyn- slóð þess bæjar. Langt er síðan Magnús flutti þaðan og árin í Norð- urbænum í Hafnarfirði urðu mörg. Áhugi á hrossum og löngun að komast í nýtt umhverfi – réðu því að Magnús og Sigríður Oddsdóttir eig- inkona hans reru á ný mið. Þau leit- uðu lengi eftir jarðnæði og teiknuðu upp ýmsar hugmyndir. Lendingin varð sú að byggja heilsárshús í Grímsnesi ekki langt frá Kerinu, þ.e. í landi Snæfoksstaða. Lóðin er við sumarbústaðalönd fjölskyldu Sigríð- ar. Var afi hennar síðasti ábúandi á Snæfoksstöðum áður en Skógrækt- arfélag Árnesinga eignaðist jörðina. Bætir og kætir „Við erum alflutt í sveitina. Verk- efni mín í tónlistinni eru þannig að ég get sinnt þeim að stórum hluta hér. Svo er ekki nema um klukkutíma akstur í bæinn,“ segir Magnús sem stjórnar tveimur kórum í Reykjavík og þeim þriðja í Keflavík. Sigríður hefur lengi verið flugfreyja hjá Ice- landair. Tekur vinnulotur en á milli koma svo ágæt frí. Fyrir vikið hentar þeim ágætlega að búa utan borgar. Um það bil 25 ár eru síðan Magnús og Sigríður hófu landnám sitt í Grímsnesinu. Þar höfðu þau unað sér við gróðursetningu þar til þau létu teikna hús og hófst bygging þess árið 2011. „Það ýtti á mig að komast í annað umhverfi að ég fékk hjartaáfall fyrir réttu ári,“ segir Magnús. „Í kjölfar þess fór ég í hjartaþræðingu og var nokkra daga á sjúkrahúsi. Eftir út- skrift gerði ég mér fyrst ljóst hvert ástand mitt var orðið við áfallið. Var oft slappur, mæddist fljótt og var orðinn alltof þykkur. Þetta var eins og ég hefði borðað fleiri kíló af írsku smjöri, sem hurfu með aðhaldi og breyttum lífsstíl. Og stresslítið um- hverfið í sveitinni bætir og kætir.“ Kórar þurfa ný viðfangsefni Magnús, sem er 62 ára, hefur komið víða við í tónlistinni. Var í hljómsveitum eins og Trúbroti, Óð- mönnum og Júdasi. Einnig Brunalið- inu, HLH-flokknum, Sléttuúlfunum og fleirum. Eru ónefndar sýningar, sjónvarpsþættir, tónleikar og svo mætti lengi telja. Í seinni tíð hefur Magnús í æ ríkari mæli snúið sér að kórstjórn og útsetningum og undir hans stjórn syngur Flugfreyjukór Icelandair, Sönghópur Suðurnesja og Brokkkórinn sem er skipaður hestafólki á höfuðborgasvæðinu og víðar. „Kórstarfið er skemmtilegt og að vinna með fólki sem hefur músíkina í blóðinu. Hins vegar þurfa kórar á Ís- landi stöðugt ný og nútíma viðfangs- efni,“ segir Magnús. Vegna þessa segist hann nú beina kröftum sínum í æ ríkari mæli að útsendingu þekktra íslenskra dægurlaga, svo þau hæfi kórum. Af lögum sem Magnús hefur farið um höndum í þessu skyni eru til dæmis Ferðalok (Ég er kominn heim) sem Óðinn Valdimarsson söng; Samferða eftir Magnús Eiríks- son, Bláu augun þín eftir Gunnar Þórðarson við texta Ólafs Gauks og Lítill drengur Vilhjálms Vilhjálms- sonar. Það lag samdi Magnús á sín- um tíma en textann gerði söngvarinn ástsæli. „Ungt fólk í kórstarfi langar að glíma við eitthvað annað en Brennið þið vitar eða Hraustir menn, sem Karlakór Reykjavíkur og Guð- mundur Jónsson tóku svo frábær- lega um árið að enginn toppar það. Og svo eitthvað nýtt gerist og efnis- skrárnar verði við hæfi nýrra kyn- slóða eigum við margar frábærar perlur,“ segir Magnús. Viðfangsefnum útsetjarans lýsir hann þannig að stundum þurfi að færa lög eða einstaka raddir milli tóntegunda, finna hvar hljómum má bæta við. Síðast en ekki síst þurfi sá sem útsetur að skynja hvar hjartað slái í hverju lagi; hin grípandi lína og stef eru það sem fangar athygli hlustans. Með klára á húsi Þegar Grímsnesið og mannlíf þar ber á góma er stundum talað um Grímsævintýri með vísan til sagn- anna skemmtilegu sem allir krakkar lásu forðum daga. Í lífi Magnúsar er upphaf Grímsævintýrisins fyrst og fremst hestamennskan. „Afi og frændur mínir í Keflavík héldu hross. Þannig komst ég á bragðið. Það var svo fyrir um sautján árum sem ég byrjaði í þessu af al- vöru. Núna er ég með klára á húsi hjá nágrönnum mínum í Miðengi í Grímsnesi. Þá er ég með nokkur hross í vetrarbeit sem sótt eru undir vorið. Og það er fátt skemmtilegra en útreiðartúrar með góðu fólki. Fyrir utan tónlistina finnst mér hestamennskan gefa lífinu gildi.“ Grípandi línur í Grímsævintýri  Keflavíkurpopparinn fluttur á Snæfoksstaði úr Hafnarfirði  Hjartaáfall hvatti til breytinga  Þrír kórar og gömul lög útsett að nýju  Margar perlur  Hestamennskan gefur lífinu gildi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sveitafólk Magnús og Sigríður Oddsdóttir, kona hans, við húsið sem þau reistu í Grímsnesinu, skammt frá Kerinu. Músík „Verkefni mín í tónlistinni eru þannig að ég get sinnt þeim að stórum hluta hér,“ segir Magnús Kjartansson sem er með mörg járn í eldinum. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Skapandi opinber þjónusta Afhending nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu föstudaginn 24. janúar 2014 kl. 11:45-14:00 á Grand hótel Reykjavík Skráning: www.stjornsyslustofnun.hi.is, þátttökugjald 5400.- , hádegisverður innifalinn. 1. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra flytur ávarp. 2. Dr. Marga Pröhl framkvæmdastjóri European Institute of Public Administration EIPA. 3. Dr. Hilmar Bragi Janusson forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. 4. Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og Valgerður Stefánsdóttir forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra en verkefni þeirra komust í úrslit Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna í opinberum rekstri 2013 (European Public Sector Awards). 5. Afhending nýsköpunarverðlauna. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Fundarstjóri: Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Fjármála- og efnahagsráðuneytið Félag forstöðumanna ríkisstofnana Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála Nýtt tengivirki Landsnets á Stuðl- um í Reyðarfirði var tekið í notkun í gær. Samhliða hefur Stuðlalína 1 verið spennuhækkuð. Þessar fram- kvæmdir eru fyrsti áfanginn í að- gerðaáætlun Landsnets til að auka getu raforkukerfisins á Austur- landi. Þarna er verið að mæta auk- inni eftirspurn eftir raforku hjá fiskimjölsverksmiðjum eystra, þar sem olíukötlum hefur verið skipt út fyrir rafskautakatla. Á Stuðlum var fyrir 66 kV úti- tengivirki og þar fer einnig fram afhending á raforku til Rarik, sem er dreifingarfyrirtæki orku eystra. Nú hefur verið bætt við 132 kV úti- tengivirki á sömu lóð ásamt tveim- ur 132/66 kV aflspennum. Stuðlalína 1 er 132 kV jarð- strengur sem liggur frá tengivirki Landsnets á Hryggstekk í Skriðdal að tengivirkinu á Stuðlum. Streng- urinn var tekinn í notkun árið 2005 og er nú 132 kV spennu. Stuðlavirki Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri Fjarðabyggðar tekur endur- bætt tengivirki formlega í notkun. Settu straum á Stuðlavirkið í gær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.