Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 58
58 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
✝ Gísli Jón Her-mannsson
fæddist 30. júní
1932 á Svalbarði í
N-Ísafjarðarsýslu,
hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Sól-
túni 12. janúar
2014.
Foreldrar Gísla
voru Hermann
Hermannsson, út-
vegsbóndi af
Ströndum, fæddur 1893, látinn
1981, og Salóme Rannveig
Gunnarsdóttir, húsfreyja frá
Ögri, fædd 1895, látin 1977.
Systkini Gísli voru: Anna, f.
1918, d. 2002, Þuríður, f. 1921,
d. 2007, Gunnar, f. 1922, d.
1977, Þórður, f. 1924, d. 1985,
Sigríður, f. 1926, d. 1999, Kar-
itas, f. 1927, d. 1994, Sverrir,
f. 1930, Halldór, f. 1934, Guð-
rún Dóra, f. 1937 og Birgir, f.
1939.
Gísli Jón kvæntist 24. des-
ember 1957, Jónínu Margréti
Einarsdótturm húsmóður, f.
20. september 1927, d. 7. októ-
ber 2001. Foreldrar hennar
voru Einar Kristbjörn Gari-
flutti svo til Reykjavíkur og
lauk prófi frá Stýrimanna-
skóla Íslands 1957. Hann var
stýrimaður hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur 1958 til 1960 og
hjá Gunnari bróður sínum á
Eldborginni 1960 til 1963. Var
skipstjóri og útgerðarmaður á
Vigra RE-71 frá 1963 til 1970,
að hann stofnaði útgerðar-
félagið Ögurvík hf., sama ár
ásamt fleiri góðum mönnum,
en félagið hefur gert út
togarana Vigra RE71, Ögra
RE72 og Frera RE73. Gísli
Jón var framkvæmdastjóri
Ögurvíkur alla tíð, hann
gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir útgerðarmenn.
Átti um skeið sæti í stjórn Fé-
lags íslenskra botnvörpu-
skipaeigenda og sat síðar í
mörg ár í stjórn LÍÚ og stjórn
innkaupadeildar sama lands-
sambands. Hann átti einnig
sæti í stjórn Faxamarkaðar
um nokkurt skeið og sinnti
ýmsum nefndarstörfum á veg-
um LÍÚ. Þá var hann um
skeið framkvæmdastjóri fisk-
vinnslunnar Kirkjusands sem
Ögurvík átti með SÍS.
Gísli Jón og Jónína bjuggu
allan sinn búskap í Reykjavík,
lengst af í húsi sem þau
byggðu í Haðalandi 8.
Útför gísla fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 23. janúar
2014, og hefst athöfnin kl. 13.
baldason, f. 1888,
d. 1968 og Mar-
grét Jónína Ein-
arsdóttirm, f.
1895, d. 1959.
Börn þeirr eru:
1) Hjörtur, f. 1958,
kvæntur Maríu
Bjarnadóttur, börn
þeirra eru: Gísli
Jón, f. 1984, unn-
usta Sigrún Eva
Sigurjónsdóttir,
Snædís, f. 1987, unnusti Georg
Arnar Halldórsson og Einar, f.
1992. 2) Margrét Jónína, f.
1959, gift Sigurði Þ.K. Þor-
steinssyni, börn þeirra eru:
Jónína Margrét, f. 1988, henn-
ar dóttir er Þórdís Katla Ein-
arsdóttir, f. 2008, Lára Rann-
veig, f. 1990, unnusti Páll
Bragi Oddsson, og Karel, f.
1992. 3) Hermann, f. 1964,
kvæntur Ástu Finnbogadóttur,
börn þeirra eru: Finnbogi, f.
1989, Jóhannes, f. 1991, Thor
Oddi, f. 1992, og Margrét
Gígja, f. 1997.
Árið 1945 flutti fjölskyldan
út á Ísafjörð, þar lauk Gísli
Jón gagnfræðaprófi 1948,
Minn kæri bróðir og vinur
frá barnæsku, Gísli Jón, er
horfinn úr þessum heimi eftir
talsvert erfið veikindi síðustu
tvö ár. Á milli okkar var eitt og
hálft ár þannig að barnæska
okkar var mjög samofin. Við
gengum saman í barnaskóla í
Ögurvík og gagnfræðaskóla
Ísafjarðar; síðar vorum við
saman í Stýrimannaskóla
Reykjavíkur.
Báðir fórum við á sjó á
stærri skip um 16 ára aldur.
Gísli Jón var togarasjómaður
en ég bátasjómaður. Áður höfð-
um við á æskuárum verið með
föður okkar á þriggja tonna
trillu, Hermóði, sem hann átti
og gerði út í Ögurvíkinni. Á
Hermóði aflaði hann sinni
barnmörgu fjölskyldu viðværis
ásamt því að halda nokkrar
skepnur; tuttugu kindur og
eina kú er best lét. Annars var
slægja mjög erfið og rýr í Ög-
urvíkinni. Það varð því að fara
víða um Djúpið á trillunni í
slægjuleit svo hægt væri að
afla heyja fyrir þennan annars
smáa bústofn.
Fjölskyldan var stór, þrettán
manns, og hjálpaðist öll að við
beitningu og fæðuöflun. Við
bræðurnir vorum allir viðriðnir
sjóróðrana hjá pabba. Fyrst
elstu bræðurnir, Gunnar og
Þórður, og síðan við þessir
yngri, Sverrir, Gísli Jón, ég og
svo Birgir yngstur. Karítas
systir var líka meira en liðtæk
við sjóróðrana.
Í þessum stóra barnahópi
var oft mikið fjör og mikið
hlegið, enda voru þar í hópi
góðir grínistar og eftirhermur.
Vel var tekið eftir hinum ýmsu
sveitamönnum og vermönnum
sem reru með pabba. Og það
gerðist víst fremur oft en sjald-
an að þeir karakterar eignuð-
ust skemmtilegt aukalíf í til-
svörum og töktum lífmikilla
Ögursystkina.
Eftir að Gísla Jóni óx fiskur
um hrygg gerðist hann báts-
maður á síðutogurum frá
Reykjavík. Síðar gerðist hann
eigandi að 200 tonna síldarbát,
Vigra, byggðum í Noregi sem
hann átti með Pétri félaga sín-
um sem var ættaður frá Siglu-
firði. Þórður bróðir átti sams-
konar bát sem hann nefndi
Ögra. Var hann einnig á síld-
veiðum sem og öðrum veiðum
sem til féllu. Hann hafði þá
verið mikið á síðutogurum frá
Reykjavík, bæði sem stýrimað-
ur og skipstjóri. Sameignamað-
ur hans og vélstjóri var Halldór
Þorbergsson frá Súðavík.
Til þess að gera langa sögu
stutta seldu þeir bræður, Gísli
Jón og Þórður, skip sín, Ögra
og Vigra, til Afríku. Andvirði
skipanna notuðu þeir til að
byggja skuttogarana Ögra og
Vigra í Póllandi. Þeir gerðu þá
út frá Reykjavík og stofnuðu
um reksturinn hlutafélag sem
þeir nefndu Ögurvík.
Gísli Jón gerðist fram-
kvæmdastjóri Ögurvíkur. Þeg-
ar Þórður Hermannsson lést
um aldur fram gerðist Gísli Jón
aðaleigandi útgerðarfélagsins
og sinnti framkvæmdastjóra-
stöðu þar uns Hjörtur, sonur
hans, tók við. Má með sanni
segja að það hafi verið lán sem
fylgdi þessum útgerðarrekstri.
Gísli Jón kvæntist stúlku frá
Ísafirði, Jónínu Einarsdóttir.
Hún lést fyrir 13 árum. Þau
eignuðust þrjú börn, Hjört,
Margrét Jónínu og Hermann.
Enda þótt fráfall Gísla Jóns
hafi verið börnum hans erfitt
má segja að það hafi verið
lausn frá þrautum. Minningin
um góðan dreng mun lifa.
Halldór
Hermannsson.
Gísli Jón
Hermannsson
✝ Hjördís Guð-mundsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 19. mars
1936. Hún andað-
ist á Landspítal-
anum í Fossvogi
16. janúar 2014.
Foreldrar
hennar voru Þóra
Sigríður Bjarna-
dóttir, f. 15. júlí
1902, d. 11. des-
ember 1950, og
Guðmundur Ágúst Jónsson, f.
30. ágúst, 1904, d. 17. desem-
ber 1979. Hjördís giftist Birni
Ragnari Óskarssyni, bryta á
skipum Eimskipafélagsins, ár-
ið 1957, hann var fæddur 2.
janúar 1932, d. 8. júlí 2000.
Foreldrar hans voru Karólína
Benediktsdóttir og Óskar
Jónsson. Börn Hjördísar og
Björns eru: 1) Guðmundur
Þóru Dís, f. 1989, og Elvu
Dís, f. 1995. Hjördís var alin
upp í Vesturbænum á heimili
foreldra sinna. Hún gekk í
Landakotsskóla og síðan í
Gagnfræðaskólann við Hring-
braut. Eftir skólagöngu vann
hún ýmis störf þar til hún
giftist Birni, þá helgaði hún
sig heimilinu, en Björn var
oft langdvölum í siglingum.
Þau hjón ferðuðust mikið og
fóru víða. Árið 1974 settist
hún aftur á skólabekk og út-
skrifaðist sem sjúkraliði
1976. Hún vann í 20 ár á
Landakoti og eignaðist þar
marga vini. Þau hjón voru
bæði fædd og uppalin í
Vesturbænum og bjuggu þar
lengi, fyrst á æskuheimili
Hjördísar á Holtsgötu 33, síð-
an á Rauðalæk 14, en eftir lát
Björns bjó hún í 9 ár í Sóltúni
13. Hún flutti til Birnu dóttur
sinnar fyrir 4 árum og bjó
með þeim mæðgum til dauða-
dags.
Útför hennar er gerð frá
Fossvogskirkju í dag, 23. jan-
úar 2014, og hefst athöfnin
kl. 15.
Þór, f. 1957, var
kvæntur Jónu G.
Ólafsdóttur, f.
1957. Þeirra
börn eru a)
Björn Þór, f.
1978, b) Hilmar
Þór, f. 1983,
kvæntur Ásdísi
Rut Guðmunds-
dóttur, f. 1989,
þau eiga eina
dóttur, c) Hjört-
ur Þór, f. 1986, í
sambúð með Guðlaugu Ösp
Hafsteinsdóttir, f. 1988, og
eiga þau einn son, d) Hjördís
Gréta, f. 1994. Þau slitu sam-
vistum. Seinni kona hans er
Debby Björnsson og eru þau
búsett í Flórída í Bandaríkj-
unum 2) Birna f. 1960, og á
hún tvær dætur með fyrrver-
andi manni sínum Guðbjarti
B. Jónssyni, f. 1956, þær, a)
Kær vinkona er kvödd með
söknuði og líka þakklæti fyrir öll
árin , sem við áttum saman. Við
fæddumst sama árið á Holtsgöt-
unni, það eru bara tvö hús á milli
33, þar sem hún bjó og 39, þar
sem ég bjó. Þar byrjaði órjúf-
anleg vinátta, sem entist alla tíð.
Æskuárin á Holtsgötunni
voru góð, alltaf sól í minning-
unni og sameiginlegir leikfélag-
ar. Skólaganga okkar var í
Landakoti og við í sama bekk og
alltaf samferða. Við vorum einn
vetur saman í Gaggó við Hring-
braut, hún hélt svo áfram þar og
útskrifaðist þaðan, en ég fór í
annan skóla. Utan skóla vorum
við mikið saman, áhugamálin
voru mörg, bíóferðir og svo
rúnturinn. 19 ára fórum við að
heiman í fyrsta skipti og flug-
um, líka í fyrsta skipti, til Lond-
on, en þar fórum við hvor í sinn
skólann. Öllum tómstundum
vörðum við saman, margt að
skoða og upplifa á framandi stað
að ógleymdum nýjustu bíó-
myndunum.
Það hófst nýr kafli hjá báðum,
þegar eiginmenn og börn komu
til sögunnar. Hún stolt mamma
með sín tvö, Guðmund og Birnu,
og ég sömuleiðis með mínar
tvær, Hönnu Fríðu og Helgu.
Vinátta skapaðist milli heimila
og barna, en tækifærin til sam-
veru urðu færri í amstri dagsins
og ótal skyldum, sem þurfti að
sinna. Síminn er oft góður til að
viðhalda þræðinum og fylgjast
með.
Hjördís var tryggur vinur,
hún var afar reglusöm alla tíð,
samviskusöm og sjálfsöguð.
Hún kvartaði ekki og talaði
lítið um stóru áföllin, fyrst þegar
hún missti móður sína á ung-
lingsaldri, síðan áralangan
heilsubrest frá miðjum aldri,og
því næst veikindi og ótímabært
lát Björns. Elsku Birna, Guð-
mundur og fjölskyldur, megi
góður Guð styrkja ykkur nú og í
framtíðinni. Henni þótti svo
vænt um ykkur og var svo stolt
af hópnum sínum.
Eftir að við hættum báðar að
vinna varð tíminn meiri og
tengslin urðu enn sterkari.
Ég á eftir að sakna hennar
mikið, kaffifundanna okkar og
tala nú ekki um símtölin. Minn-
ingarnar eru svo ótal, ótal marg-
ar og eru nú ljúfsárar.
Takk fyrir allt. Þín vinkona
Fríða.
Þegar ég hugsa um Rauðalæk
14, mitt annað heimili í æsku, þá
streyma fram myndir í hugan-
um, sumar skýrar, aðrar óljós-
ari; lyktin hlý og notaleg, rúg-
brauð með osti og heitu
súkkulaði í morgunmat, hlustað
á Abba á gólfinu fyrir aftan
framsætin í rauða Bronconum,
dansað uppá ruslatunnum útí
garði, allar bílferðirnar og leik-
irnir með Birni, örlætið, gæskan
og hlýjan. Ég kom úr ólátagarði
en á Rauðalæk var regla og
kyrrð. Þarna kynntist ég einni af
minni nánustu vinkonum, þarna
mótaðist margt í huga lítillar
stúlku. Og nú þegar ég mörgum
árum síðar geng þar framhjá,
þegar allt það fólk sem ég þekkti
er löngu farið, finn ég fyrir hlýju
og þakklæti fyrir að hafa notið
svo góðs atlætis og mikillar ást-
ar. Hjördís tók mig að sér líkt og
væri ég hennar dóttir, heimilið
stóð mér alltaf opið þegar ég
sem barn dvaldist þar um lengri
eða skemmri tíma. Hún var mér
svo góð. Síðar sem fullorðinni
konu, þegar mig langaði að
henda betur reiður á þessari for-
tíð, þegar tíminn virtist svo óljós,
þá fyllti Hjördís í eyðurnar og
sagði mér frá, útskýrði það sem
ég skildi ekki. Hún var hrein-
skilin og næm og þekkti mig vel,
las margt ansi skýrt í mínu lífi
og sagði mér það. Ég man það
og geymi það í hjarta mínu eins
og ég geymi allt það góða sem
hún gaf mér. Ég mun aldrei geta
endurgoldið að fullu það sem
hún gerði fyrir mig en þó gaf ég
henni eitt; Dóttir mín heitir
Hjördís.
Elsku Birna og Guðmundur,
innilegar samúðarkveðjur.
Marta Nordal.
Hjördís
Guðmundsdóttir
✝
Foreldrar okkar,
FANNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR
og
REYKDAL JÓNSSON
netagerðarmeistari,
eru látin.
Þau létust á dvalarheimilinu Greenridge Estates,
Oregon-ríki í Bandaríkjunum.
Minningarathöfn fer fram í Aðventkirkjunni, Ingólfstræti 19,
Reykjavík, laugardaginn 25. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Heiðar Reykdalsson (Jonsson).
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og systir,
KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR,
Blönduhlíð 24,
lést á Landspítalanum 15. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 28. janúar kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Sigríðar Heiðberg í síma 567 2909.
Guðjón Einarsson,
Eiríkur Guðjónsson Wulcan, Anna Wulcan,
Anna Þ. Guðjónsdóttir,
Kristín Eiríksdóttir, Steinar Bragi Guðmundsson,
Oddbergur Eiríksson,
Ingibjörg Eiríksdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, afi, langafi og bróðir,
MEYVANT MEYVANTSSON,
Hringbraut 50,
áður Nesvegi 50,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 9. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Viljum við þakka starfsfólki á Vegamótum, Grund, fyrir frábæra
umönnun í hans veikindum.
Anna Meyvants,
Guðmundur Meyvantsson,
Sigurður F. Meyvantsson,
Elísabet Meyvants
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LYDÍA ÞORKELSSON,
Hamrahlíð 29,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 12. janúar á hjúkrunar-
heimilinu Eir.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 24. janúar kl. 13.00.
Oddur Carl Einarsson, Sigríður Elín Sigfúsdóttir,
Rannveig Alma Einarsdóttir, Ellert Kristján Steindórsson,
Gunnlaug Helga Einarsdóttir, Helgi Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Maðurinn minn og faðir okkar,
THEÓDÓR DIÐRIKSSON
verkfræðingur,
lést miðvikudaginn 15. janúar á Land-
spítalanum við Hringbraut.
Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Edda Kristinsdóttir,
Kristinn Theódórsson,
Jóhanna Theódórsdóttir Plant,
ættingjar og vinir.