Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 59
MINNINGAR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Það er með mik-
illi virðingu og
þakklæti sem ég
kveð hana ömmu
mína og nöfnu, Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur. Þakklæti fyrir að
hafa átt hana fyrir ömmu öll mín
fimmtíu æviár og fyrir þær góðu
tilfinningar sem minningarnar
kalla fram, hlýjuna og umhyggj-
una sem hún veitti mér. Ég hef á
mínum fullorðinsárum svo oft
hugsað til baka til þess góða tíma
þegar ég var barn og fékk að upp-
lifa sveitina hjá Ingu ömmu og
afa mínum, Þórarni Þorfinnssyni,
á Spóastöðum í Biskupstungum.
Býlið hefur alla tíð verið rekið af
miklum myndarskap. Vinnudag-
arnir voru langir og verkefnin
fjölbreytt enda kýr, kindur, hæn-
ur, hestar og hundur, landið
stórt, tækin mörg, veiðiá, borað
eftir heitu vatni og grænmetis-
rækt. Afi var oddviti í sveitinni og
þeim var báðum umhugað um
velferð sveitunga sinna. Þjóðveg-
urinn lá í gegnum hlaðið og það
var mikill gestagangur, vinnufólk
og fjöldi barna sem fékk að dvelja
þar. Verkaskiptingin var hefð-
bundin; amma sá um heimilið;
þrif og þvotta, matseld og bakst-
ur, og hún prjónaði og saumaði.
Hún var með fallegan blómagarð
og átti seinna gróðurhús þar sem
hún ræktaði rósir og vínberjavið.
Afskorin blóm stóðu gjarnan í
vasa sem annaðhvort voru úr
garðinum eða úr gróðurhúsinu.
Hún fór í berjamó þegar það var
hægt og það voru borðuð bláber
með rjóma og svo sultað og saft-
að. Gæði jarðarinnar voru vel
nýtt. Ég var höfð með í fjöl-
breyttum verkunum og virðingin
fyrir afa og ömmu var mikil og
mig langaði að leggja mig fram til
að standa undir þeirra vænting-
um, enda hljóp ég oftast mínar
sendiferðir. Þarna fékk ég að
upplifa margt og mörg voru tæki-
færin til að læra.
Hún amma var næm og kom til
móts við mínar þarfir án þess að
það þyrfti að orða það. Ég minn-
ist þess að mér fannst nú stund-
um meira spennandi að vera í úti-
verkunum en í inniverkunum. Í
eitthvert skiptið var sólskin og
allir í heyskapnum nema ég sem
var að hjálpa ömmu inni. Amma
skynjaði hvar áhuginn lá og sagði
að þegar við værum búnar að
brjóta saman þvottinn væri gott
að ég færi og hjálpaði til úti. Hún
vildi að ég fengi að fást við það
sem vakti áhuga minn og aldrei
skammaði hún mig. Amma var
mjög umhyggjusöm og þægileg
kona, hjálpsöm, ofurblíð og natin
við börn, ætlaði öllum gott og tók
öllum vel. Sem barn hugsaði ég að
ef eitthvað kæmi fyrir pabba og
mömmu þá vildi ég fá að búa hjá
ömmu og afa. Afi lést árið 1984 og
var hann þá 73 ára. Amma var því
ekkja í 30 ár og síðustu 15 árin
dvaldi hún á dvalarheimilinu Ási í
Hveragerði þar sem vel var hugs-
að um hana. Þar tók hún þátt í fé-
lagsstarfinu og prjónaði öllum
lausum stundum; síðustu árin
eldhúshandklæði, þvottapoka og
borðklúta. Hún lést á Ási á 98.
aldursári á friðsælan hátt með
tvær elstu dætur sínar hjá sér.
Ég vil fyrir hönd okkar systkin-
anna, Ólafs Tryggva og Ýrar,
þakka Ingu ömmu fyrir allt hið
góða sem hún færði okkur.
Ingibjörg
Gísladóttir.
Ingibjörg
Vilhelmína
Guðmundsdóttir
✝ Ingibjörg Vil-helmína Guð-
mundsdóttir fædd-
ist 12. júní 1916.
Hún lést 13. janúar
2014. Útför hennar
fór fram 18. janúar
2014.
Nú hefur hún
Inga frænka mín á
Spóastöðum kvatt
okkur í síðasta sinn,
aldurinn var farinn
að segja til sín og
árin tæplega níutíu
og átta ollu því að
margar hafa gleði-
stundirnar verið og
einnig sorgarstund-
irnar. Það hefur að
vísu verið þannig
með þau systkinin frá Innri-
Hjarðardal að þau hafa öll náð
háum aldri nema Helga systir
þeirra, sem dó ung. Guðmundur
Ingi skáld á Kirkjubóli segir í
ljóði um heimilið í Hjarðardal, við
útför Sigríðar Hagalínsdóttur
mömmu Ingu:
Þar uxu tíu bjartleit börn í röð
með brek og fjas sem móðurhjartað
skildi.
Og þú tókst öllum hlutum hæg og glöð,
þitt hjartans ráð var alltaf bros og
mildi.
Og hvað sem brást, með vissu það ég
veit,
á vinsemd þína bar ei nokkurn efa.
Ég held að engin önnur sem ég leit
jafn innilega kynni að fyrirgefa.
Líklega hefur þetta verið
veganestið sem Inga frænka
fékk þegar hún hélt úr átthög-
unum fyrir vestan, þar sem Þor-
finnur gnæfir við himin og inn-
lögnin er jafn örugg og að nýr
dagur rísi að morgni, í ferðalag
sem nú er lokið, ferðina að Spóa-
stöðum. Ég átti því láni að fagna
að vera bæði um sumar og vetur
þar og þar lærði ég margt sem
hefur komið mér vel á lífsleið-
inni. Vinnusemi var í hávegum
höfð og alltaf næg verkefni á
stóru búi. Það var tilbreyting að
koma að Spóastöðum sem lá um
þjóðbraut þvera í orðsins fyllstu
merkingu. Þar var gestkvæmt og
margan manninn sá ég þar í
fyrsta sinn, suma aldrei aftur, en
sveitungana því oftar, því Þórir
var oddviti sveitarinnar. Þetta
var samt öðruvísi en ég átti að
venjast frá þéttbýlinu í Auðs-
holti, þar sem barnafjöldinn var
meiri og túnið allt leikvöllurinn.
Þegar ég spurði Ingu frænku um
sögur að vestan sem mamma
hafði sagt mér bæði sannar og
meira sannar fannst mér Inga
frænka heldur draga úr, hún
vildi að staðreyndirnar réðu
ferðinni. En marga hluti sagði
hún mér þegar við sátum tvö ein.
Samgangurinn milli Spóastaða
og Auðsholts var talsverður enda
frændsemi og vinskapur milli
bæjanna, bæði pabbi og Þóri af
gömlu Auðsholtsættinni og pabbi
hafði verið vetrarmaður á Spóa-
stöðum hjá frænda sínum og ekki
minnkaði frændsemin þegar
mamma kom að Spóastöðum til
Ingu systur sinnar og átti eftir að
giftast út að Auðsholti
Og nú þegar daginn er örlítið
farinn að lengja og myrkrið er á
undanhaldi fyrir ljósinu kvaddi
hún Inga okkur – hvíldinni fegin.
Nú er henni Ingu frænku minni
búin hvíla austur á brún gamla
kirkjugarðsins í Skálholti við
hliðina á honum Þóra, þaðan sem
aðeins er steinsnar út að Spóa-
stöðum. Og með þessum orðum
kveð ég hana frænku mína og
ekki kæmi það mér á óvart þó að
efst í blómabrekkunni stæði hár
og grannvaxinn maður ögn lotinn
í herðum með örlítið bros á vör og
hann rétti Ingu frænku höndina
og þau leiddust inn í upprás
hækkandi sólar.
Gils Einarsson
Það er mikið lán að kynnast
góðu fólki, njóta nærveru þess og
hlýju og öðlast í tímans rás ein-
læga vináttu þess og góðvild.
Þannig er mér innanbrjósts þeg-
ar ég rita hér nokkur orð í minn-
ingu Ingibjargar Guðmundsdótt-
ur, fyrrverandi húsmóður á
Spóastöðum í Biskupstungum.
Ungur man ég þá tíð að beðið
var með óþreyju eftir vorinu,
þessum dásamlega tíma, þegar
allt lifnaði við. Skólinn loksins bú-
inn og sauðburður á næsta leiti.
Það var ekki laust við að manni
þætti Ólafur Ketilsson aka nokk-
uð hægt á rútunni sinni á leið
austur fyrir fjall, en farþegarnir,
óþreyjufullir strákpjakkar, vildu
komast sem fyrst í sveitasæluna,
þar sem vorblærinn vakti vonir
um ævintýralegt sumar. Sumar
eftir sumar átti ég þess kost að
dvelja í sveit hjá þeim heiðurs-
hjónum Þórarni og Ingu. Það var
heldur ekki amalegt að fá að vera
þátttakandi í sveitastörfunum og
sjá hversu vel búskapurinn gekk
fram frá ári til árs. Tengsl mín
við fólkið á Spóastöðum eru
sprottin af þeirri einföldu stað-
reynd að móðir mín, Ásthildur,
réð sig í kaupavinnu hjá Þórarni
og Ingu þegar hún var ung stúlka
og var hjá þeim í mörg sumur.
Þeirra góðu tíma minnist hún oft
með þakklæti og hlýju.
Ingibjörg á Spóastöðum var
vestfirsk yngismær sem flytur á
flatlendið á Suðurlandi og býr
bónda sínum gott heimili og elur
honum sex mannvænleg börn.
Það var því í nógu að snúast þeg-
ar ég strákur úr Hafnarfirði
ásamt fleirum bættust í hópinn.
Eins og kálfur á vori, sísvangur
og malandi, spyrjandi um allt
milli himins og jarðar, já og ef-
laust hefur verið lítið gagn að
stráknum til að byrja með. Aldrei
fann ég þó annað en þá hlýju og
það vinarþel sem einkenndi Ingu
mína alla tíð. Henni var annt um
að öllum liði vel og margar voru
þær stundirnar sem ég gat leitað
til Ingu minnar í blíðu og stríðu.
Fyrir það verð ég ævarandi
þakklátur. Inga skynjaði líka
fljótt að hjá þeim hjónum undi ég
hag mínum vel og ófáir eru þeir
sem heyrt hafa mig vitna til
þeirra sæmdarhjóna og góðra
búskaparhátta á Spóastöðum,
fyrr og nú. Í desember árið 1984
færði Inga mér fyrsta bindi úr
bókaflokknum Sunnlenskar
byggðir, en þar er fjallað um
Tungur, Hreppa og Skeið. Þessa
bók tek ég mér oft í hönd til að
rifja upp gagnmerkar upplýsing-
ar um bændur og búalið. Enn á
ég þess kost að fara austur að
Spóastöðum og dvelja þar í
sveitasælunni og njóta þess að
sjá afrakstur þeirra sem lögðu
grunn að myndarlegum bú-
rekstri á Spóastöðum. Reyndar
ekki í hlutverki kúasmalans sem
forðum, læt nú nægja að dásama
umhverfið úr sumarhúsi á Brúar-
árbökkum.
Með þakklæti og virðingu kveð
ég Ingibjörgu Guðmundsdóttur.
Blessuð sé minning hennar.
Magnús Gunnarsson.
Smávinir fagrir, foldarskart,
fífill í haga, rauð og blá
brekkusóley, við mættum margt
muna hvort öðru að segja frá.
Prýðið þér lengi landið það,
sem lifandi guð hefur fundið stað
ástarsælan, því ástin hans
alls staðar fyllir þarfir manns.
Faðir og vinur alls, sem er,
annastu þennan græna reit.
Blessaðu, faðir, blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.
Vesalings sóley, sérðu mig?
Sofðu nú vært og byrgðu þig.
Hægur er dúr á daggarnótt.
Dreymi þig ljósið, sofðu rótt!
Þessar fögru ljóðlínur Jónasar
Hallgrímssonar vil ég gera að yf-
irskrift minni þegar ég kveð
aldna vinkonu, Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur, sem hefur verið
kölluð á vit æðri máttarvalda.
Ung fluttist hún suður yfir
heiðar úr Önundarfirðinum. Á
hlaðinu á Spóastöðum tók á móti
henni hið fagra útsýni Vörðufell-
ið, Hestfjallið, Mosfellið og
Brúaráin himinblá sem liðast í
farvegi sínum kannski ekki alveg
eins tignarlegt og umhverfið sem
hún ólst upp í.
Hún var hjartahlý kona, mikill
dugnaðarforkur, hannyrðakona
mikil og yndi hafði hún af rækt-
un, má segja að Ingibjörg hafi
haft græna fingur, hún naut þess
að rækta falleg blóm.
Fallegi garðurinn á Spóastöð-
um og litla gróðurhúsið báru þess
glöggt merki hvað öllu var hag-
anlega fyrirkomið.
Það var mikið gæfuspor fyrir
Þórarin að hitta Ingibjörgu. Þau
byggðu upp og ræktuðu jörð sína
myndarlega, svo er enn í dag þar
sem sonurinn Þorfinnur og synir
hans hafa tekið við búskap.
Dæturnar eiga allar sína sælu-
reiti á Spóastöðum, þar kemur í
ljós hvað Ingibjörg hafði leið-
beint þeim vel með að fegra um-
hverfið.
Hún tók virkan þátt í starfi
sveitarinnar. Heimili þeirra stóð
ávallt opið, gestrisnin var mikil
því starf oddvitans var krefjandi
og margir þurftu að leita til hans.
Hún bauð upp á kaffi í borðstof-
unni og voru málin rædd og kruf-
in til mergjar. Hún hafði gaman
af að spila og minnumst við þess
þegar Skálholtssókn hélt spila-
kvöld en þá skiptust bæirnir á að
halda þau, hún naut sín vel að
taka þátt í þeim. Það voru ófáar
ferðir farnar á milli Skálholts og
Spóastaða. Mikil og góð sam-
vinna var á milli þessara tveggja
bæja og aldrei slitnuðu tengslin,
þau voru órjúfanleg heild. Við
systur nutum þess að vera send-
ar í pössun á Spóastaði og var það
alltaf tilhlökkunarefni að fá að
gista þar, ógleymanlegar stundir.
Síðustu árin dvaldi Ingibjörg á
Ási í Hveragerði. Við mæðgur
hittum hana á „Blómstrandi dög-
um í Hveragerði“ með dóttur
sinni, faðmlagið var hlýtt og
geymum við það í huga okkar.
Við fjölskyldan frá Skálholti
biðjum góðan Guð að láta nýárs-
sólina lýsa í hug og hjörtu ykkar
á sorgarstundu.
Börnum Ingibjargar og fjöl-
skyldum þeirra sendum ég inni-
legar samúðarkveðjur.
Kristín Björnsdóttir.
Nú er fallin frá húsmóðirin á
Spóastöðum þar sem ég var svo
lánsamur að fá að vera í sveit sem
krakki og unglingur. Hún og Þór-
arinn hálfpartinn ólu mig upp á
sumrin og sýndu mér mikla
manngæsku og þykir mér því
rétt að minnast hennar lítillega.
Ég byrjaði að vera í sveit hjá
þeim upp úr 1960, fyrst um sinn í
skamman tíma en síðar heil sum-
ur. Ingu aðstoðaði ég mest varð-
andi garðinn, vökvun og þess
háttar. Garðurinn var henni til
mikils sóma eins og allt annað er
hún kom nærri. Oft var þó tölu-
verður atgangur milli okkar
strákanna, sem hún leysti af
stakri prýði.
Oft sagði Inga mér sögur að
vestan, úr Önundarfirði, þaðan
sem við vorum ættuð. Bæði var
um að ræða gamansögur af fólk-
inu, sem og sögur af mannlífinu
fyrir vestan. Það voru miklar
ánægjustundir að hlusta á hana
þar sem ég var einnig ættaður
þaðan og þekkti sæmilega til.
Hún sýndi mér mikla hlýju og
væntumþykju og var mér mjög
mannbætandi, sem ég get seint
fullþakkað.
Aðstandendum hennar sendi
ég samúðarkveðjur.
Sæmundur Þ. Magnússon.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
EINAR HELGASON,
Grenimel 19,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, þriðju-
daginn 14. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 24. janúar kl. 15.00.
Hulda Marinósdóttir,
Marinó Einarsson, Margrét S. Hansdóttir,
Árni Vilhjálmsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BÁRA ELÍASDÓTTIR,
Goðabraut 3,
Dalvík,
lést þriðjudaginn 14. janúar á dvalarheimilinu
Dalbæ.
Jarðsungið verður frá Dalvíkurkirkju
laugardaginn 25. janúar kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimilið
Dalbæ, Dalvík.
Sture Karlsson,
Vignir Árnason, Petra Árnason,
Þorsteinn Árnason, María Sigurjónsdóttir,
Elías Árnason, Svandís Hannesdóttir,
Friðrika Árnadóttir, Sigurður Bjarnason
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÖRGÍNA ÞÓREY JÓHANNSDÓTTIR
frá Stóragerði,
Óslandshlíð,
Skagafirði,
lést miðvikudaginn 8. janúar á Heilbrigðis-
stofnuninni á Sauðárkróki.
Útförin hefur fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórður Eyjólfsson.
✝
Einlægar þakkir fyrir hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
GUNNLAUGS E. BRIEM,
fv. yfirsakadómara í Reykjavík,
Boðaþingi 22,
Kópavogi,
og virðingu sýnda minningu hans.
Hjördís Á. Briem,
Valgerður Margrét Briem, Guðmundur Einarsson,
Kristinn Briem, Kolbrún Sigurðardóttir,
Gunnlaugur Briem, Eva Briem Galambos,
Áslaug Briem, Tómas Jónsson
og barna- og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HULDA GUNNARSDÓTTIR,
andaðist miðvikudaginn 22. janúar að
Dvalarheimilinu Grund.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pálmi Ingólfsson og Guðrún Ingólfsdóttir.
✝
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR VALDEMARSDÓTTIR,
Böðvarsgarði,
Fnjóskadal,
sem lést 15. desember verður jarðsungin
frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 25. janúar
kl. 13.00.
Jarðsett verður í heimagrafreit.
Börn og aðrir aðstandendur.