Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nýjar
umbúðir
– sama
innihald
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
Polarolje
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
,,Við endurtökum nú það sem við
gerðum fyrir tveimur árum og bjóð-
um háskólastúdentum iPad-tölvur
með áskrift að Morgunblaðinu fyrir
2.990 krónur á mánuði, sem greiðast
án vaxta á 30 mánuðum,“ sagði Ósk-
ar Magnússon, útgefandi Morgun-
blaðsins.
Hafa verið á vaktinni
Óskar rifjar upp að síðast þegar
stúdentum var gert slíkt tilboð seld-
ist allt upp á augabragði og ný send-
ing sem fékkst nokkru síðar seldist
líka upp. ,,Við
höfum verið á
vaktinni og beðið
eftir nýjum tækj-
um og nú höfum
við fengið nýjustu
iPad-tölvuna,
iPad Air, í tak-
mörkuðu magni,“
sagði Óskar. ,,Ég
geri ráð fyrir að
það falli í frjóan
jarðveg að verðið er óbreytt á þess-
um dögum þegar kröfur eru gerðar
um að verð sé ekki hækkað. Samt er
nýja tölvan fullkomnari.“
IPad Air er þannig 20% þynnri,
28% léttari og 80% hraðvirkari en
fyrri gerðir iPad. Rafhlöður eru
sagðar endast í tíu tíma. Þráðlaust
net er líka hraðvirkara en í eldri
gerðum. Nýja tölvan, iPad Air, leys-
ir af hólmi fjórðu kynslóð, iPad 4.
Hefur alltaf selst upp
Háskólanemum stóð þetta fyrst
til boða í maí 2012. Tilboðið var
endurtekið í lok sama mánaðar og
seldist tækið þá aftur upp. Almenn-
um áskrifendum bauðst svo að fá
iPad á sérkjörum í september 2012
og var magnið þá líka takmarkað.
Sem fyrr er nú enginn lántökukostn-
aður og er takmarkað magn í boði.
Háskólanemum býðst á
ný að fá iPad á sérkjörum
Óskar
Magnússon
Fylgir með áskrift Morgunblaðsins Sama verð og 2012
Þorsteinn Ásgrímsson
Baldur Arnarson
Forsvarsmenn Eykon, kínverska
orkufyrirtækisins CNOOC og
norska olíufélagsins Petoro fengu af-
hent leyfi til olíuleitar og -vinnslu í
dag, en um er að ræða síðasta leyfið
af þremur í annarri úthlutun á
Drekasvæðinu. Sendiherra Kína og
fulltrúi sendiherra Noregs voru við-
staddir undirritunina, en hún mark-
ar tímamót eftir að samskipti
ríkjanna hafa verið stirð síðustu ár.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, segist
binda miklar vonir við rannsóknirn-
ar. Aðkallandi sé að halda áfram að
undirbúa stjórnsýslu og regluverk
fyrir mögulega vinnslu.
Ragnheiður Elín sagði þennan
dag vera stóran dag fyrir íslenskan
iðnað og nú hæfist mikil vinna við leit
og rannsóknir. Hún sagði mikilvægt
að í þriðja leyfinu fengi íslenskt
fyrirtæki sterka, alþjóðlega sam-
starfsaðila sem veittu verkefninu
mikinn styrk. Átti hún þar við CNO-
OC, en það er eitt stærsta fyrirtæki í
heimi, markaðsverðmæti þess er 80-
90 milljarðar bandaríkjadala.
Heiðar Már Guðjónsson, einn eig-
enda Eykon, segir samstarfið við
kínverska fyrirtækið tryggja metn-
aðarfullar rannsóknir og sterkan
bakhjarl þegar kemur að borunum.
Næstu fjögur til átta ár muni fara
í rannsóknir, en að því loknu verði
vonandi hægt að fara í boranir.
Vill stofna ríkisolíufélag
Með því að fá stór og sterk fyrir-
tæki að verkefninu segir Ragnheiður
að tekist hafi að ýta því úr vör án
nokkurrar áhættu fyrir almenning.
„Við erum búin að tryggja íslenska
hagsmuni þar sem við erum ekki að
leggja út í mikinn kostnað, áhættan
er hjá þeim fyrirtækjum sem fara að
leita og það er gríðarlega kostnaðar-
samt,“ segir hún, en bendir á að stór
hluti mögulegs hagnaðar af olíu-
vinnslu renni til íslenska ríkisins.
Næsta skref í olíuleit sé að undir-
búa stjórnsýsluna betur og sækja
þekkingu og reynslu til annarra
landa. Nefnir hún Norðmenn í því
samhengi, þeir hafi reynst Íslend-
ingum afar hjálplegir. Þá sé í smíð-
um frumvarp um ríkisolíufélag að
norskri fyrirmynd, sem ráðherra
segir stefnt að því að leggja fram í
vor.
Miklar deilur urðu hér á landi þeg-
ar Huang Nubo ætlaði að kaupa
jörðina Grímsstaði á Fjöllum. Þá er
erlendum ríkisborgurum ekki heim-
ilt að eiga meirihluta í íslenskum út-
gerðum. Aðspurð hvort hún telji
þörf á að endurskoða löggjöf um ís-
lensk kolefnisfyrirtæki segir Ragn-
heiður að ólíklegt sé að íslensk fyr-
irtæki hafi burði í slík verkefni án
erlendrar aðstoðar. „Þetta er svo
gríðarlega fjárfrekt að það er ekki
fyrir íslensk fyrirtæki af okkar
stærðargráðu að takast á við slík
verkefni. Við þurfum því að vera í er-
lendu samstarfi.“
Því sé skynsamlegt að nýta sér
reynslu og þekkingu erlendra fjár-
festa í þessum efnum.
Sendiherrann var erlendis
Athygli vakti að Dag Wernø Hol-
ter, sendiherra Noregs á Íslandi,
skyldi ekki vera viðstaddur athöfn-
ina. Per Roald Landrö, menningar-
fulltrúi norska sendiráðsins, sagði
það eiga sér eðlilegar skýringar.
Holter hefði verið erlendis vegna
ráðstefnunnar Arctic Frontiers í
Tromsö. Því hefði Marit Lillealtern,
sendiráðsritari, verið fulltrúi sendi-
ráðsins. Lillealtern sé að jafnaði
staðgengill sendiherrans.
Fjarvera Holters tengist því ekki
á þeim stirðleika sem hafi verið í
samskiptum Kína og Noregs, í kjöl-
far þess að kínverska andófsmann-
inum Liu Xiaobo voru veitt friðar-
verðlaun Nóbels 2010.
Ljósmynd/Petra Steinunn Sveinsdóttir
Eftir undirritun samkomulagsins Marit Lillealtern, staðgengill sendiherra Noregs á Íslandi, Ma Jisheng, sendi-
herra Kína, Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Guðni Jóhannesson, orkumálastjóri.
Nýr kafli hefst í olíuleitinni
Kínverski orkurisinn CNOOC, Eykon og norska olíufélagið Petoro fá leyfi til að
leita að olíu á Drekasvæðinu Við taka fjögur til átta ár af rannsóknum á svæðinu
Nokkrir tugir mótmælenda söfnuðust saman við Þjóðmenningarhúsið í
gær og kröfðust þess að hætt yrði við olíuleit. Sendu þeir frá sér sameig-
inlega yfirlýsingu þar sem sagði m.a.:
„Undirrituð samtök krefjast þess að ríkisstjórn Íslands og Alþingi
hætti tafarlaust við allar áætlanir um vinnslu olíu innan efnahagslögsögu
landsins. Íslensk stjórnvöld myndu með því sýna ábyrgð og senda skýr
skilaboð um allan heim að Ísland ætli sér að vera í fararbroddi í loftslags-
málum.“
Undir yfirlýsinguna eru skrifuð félögin Alda – félag um sjálfbærni og
lýðræði, Breytendur – Changemaker Iceland, Grugg – vefrit um
umhverfisvernd, Eldvötn, Fuglavernd, Framtíðarlandið, Landvernd, Lofts-
lag.is, NSÍ, Náttúruverndarsamtök Suðurlands, Nemendafélagið Gaia (við
Háskóla Íslands) og Ungir umhverfissinnar.
UMHVERFISSINNAR MÓTMÆLA
Mótmæli Umhverfissinnar við Þjóðmenningarhúsið í gær.
Morgunblaðið/Golli
Hætt verði við olíuleit
Nýskráningar nýrra fólksbifreiða
voru 259 á tímabilinu frá 1. til 20.
þessa mánaðar og því nákvæmlega
jafnmargar og sama tímabil í fyrra.
Þetta kemur fram í samantekt
starfsmanna Umferðarstofu sem
gerð var að beiðni Morgunblaðsins.
Sú breyting hefur orðið í bílasölu
á milli ára að í byrjun þessa árs fór
BL að bjóða vaxtalaus bílalán. Í kjöl-
farið buðu Brimborg og Toyota á Ís-
landi sambærileg vaxtakjör. Þá má
nefna að gengi krónu er nú talsvert
sterkara en í fyrra. Evran kostaði
171 krónu 22. janúar 2013 en tæpar
157 kr. í gær. Ætti það að koma fram
í lægra innkaupsverði og þar með
söluverði á nýjum tegundum, líkt og
dæmi eru um, t.d. hjá Bílabúð
Benna. baldura@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Umferð Á annasömum degi.
Bílasalan er
nákvæmlega
jafnmikil
Atvinnuleysi í
desember var
4,4%, borið sam-
an við 5,5% at-
vinnuleysi í des-
ember 2012 og
5,9% atvinnuleysi
í sama mánuði
ársins 2011.
Þetta kemur
fram í nýrri
vinnumarkaðskönnun Hagstofu Ís-
lands. Atvinnuþátttaka var áætluð
80,9% í desember sl., 80,1% árið áð-
ur og 79,4% í desember 2011. Þá er
áætlað að 8.200 hafi verið án vinnu í
síðasta mánuði, samanborið við 9.900
árið áður og 10.500 í desember 2011.
Samkvæmt Hagstofunni var at-
vinnuleysið því meira en Vinnu-
málastofnun áætlar. Skráð atvinnu-
leysi hjá Vinnumálastofnun í des-
ember 2013 var 4,2%, en að meðaltali
voru 6.829 atvinnulausir í mánuð-
inum, samkvæmt skránni.
baldura@mbl.is
Atvinnu-
leysið er
áætlað 4,4%
Úr miðbæ
Reykjavíkur.