Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 76
Ef Guðjón Val-
ur Sigurðsson
landsliðsfyr-
irliði gengur
til liðs við
Barcelona í
sumar eins og
fullyrt hefur verið í
spænskum fjölmiðlum
verður hann síðasta púsl-
ið í hreint ótrúlegt hand-
boltalið.
Eina staðan þar sem
Barcelona getur mögulega
bætt sig er einmitt vinstra
hornið en þar fyrir utan er
liðið skipað mörgum af
snjöllustu handboltamönnum
heims. »4
Guðjón
síðasta
púslið í ótrú-
legt hand-
boltalið?
Snæfell
náði sex
stiga for-
ystu og
Njarðvík
vann Keflavík
Snæfell náði í gærkvöld
sex stiga forystu í Dom-
inos-deild kvenna í körfu-
knattleik með naumum
sigri á KR í Stykkishólmi,
67:65. Á meðan töpuðu
skæðustu keppinautarnir
á heimavelli því Haukar
steinlágu fyrir Valskonum
í Hafnarfirði og í Suð-
urnesjaslagnum urðu
heldur betur óvænt úrslit
þegar Njarðvíkingar, sem
sitja á botninum, lögðu
Keflvíkinga með sjö stiga
mun. Grindavík tapaði fyr-
ir Hamri á heimavelli og
fallbaráttan er nú orðin
geysilega hörð þar sem
aðeins tveimur stigum
munar á Njarðvík og
Grindavík. »3
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 23. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Aron í bandarískar sögubækur
2. Við það tók líf hans skarpa dýfu
3. Borgarstjórinn fullur og blótandi
4. Væri búinn að pakka niður
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari er upptekinn þessa dagana.
Hann leikur fyrsta píanókonsert
Brahms með Sinfóníuhljómsveitinni í
Hörpu í kvöld og annað kvöld og í
næstu viku kemur hann fram með
hinum heimsþekkta Philip Glass í
Hörpu og Gautaborg. Víkingur leikur
á þeim tónleikum sex af 20 etýðum
tónskáldsins á móti Glass og Maki
Namekawa sem leika sjö etýður hvort
fyrir sig.
Þá hefur hann undanfarna mánuði
verið að æfa mörg þekktustu píanó-
verk Johanns Sebastians Bach. „Já,
ég hef verið að læra allar stóru hljóm-
borðssvíturnar og Goldberg-
tilbrigðin eftir Bach,“ segir hann og
hyggst leika tilbrigðin, sem eru í
uppáhaldi hjá mörgum tónlistarunn-
endum, bæði hér á landi og erlendis.
Þá muni tónleikagestir fá að heyra
svíturnar smám saman.
Morgunblaðið/Kristinn
Víkingur Heiðar æfir
Goldberg-tilbrigðin
Myndlistartvíeykið Libia Castro og
Ólafur Ólafsson slær ekki slöku við og
sýnir verk sín víða um lönd. Í dag verð-
ur opnuð í MuseumsQuartier í Vínar-
borg sýningin „Places of Transition“
með verkum þeirra og átta annarra
listamanna.
Ólafur og Libia voru fulltrúar Ís-
lands á Feneyjatvíær-
ingnum fyrir þrem-
ur árum og hefur
þeim nú verið
boðið að sýna á
19. tvíæringnum
í Sydney í Ástr-
alíu síðar á
árinu.
Libia Castro og Ólaf-
ur Ólafsson sýna í Vín
Á föstudag Suðaustanátt, víða 13-18 m/s. Snjókoma N-til á land-
inu í fyrstu, annars rigning eða slydda. Minnkandi sunnanátt.
Á laugardag Sunnan 5-10 og þurrt N-lands, en gengur í suðvestan
13-18 með slyddu eða rigningu á S-verðu landinu. Hiti 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 8-13, slydda eða snjókoma í fyrstu og
síðan él. Hægari vindur og úrkomulítið A-til á landinu. Kólnandi.
VEÐURÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Stemningin á leikjum Leeds klikkar
aldrei,“ segir Ársæll Óskar Stein-
móðsson, formaður Stuðnings-
mannaklúbbs Leeds United á Íslandi
og einn af stofnfélögum klúbbsins, en
framundan er ferð á leik Leeds og
Huddersfield í B-deild ensku knatt-
spyrnunnar á Elland Road 1. febrúar
næstkomandi.
Þó Leeds United sé ekki í sviðsljós-
inu um þessar mundir láta stuðnings-
menn liðsins engan bilbug á sér finna
enda sannfærðir um að frægðarsólin
eigi eftir að skína á ný. Í stuðnings-
mannaklúbbnum eru um 550 skráðir
félagar, að sögn Ársæls, og þar af um
260 til 270 sem greiða árgjald. „Það
telst mjög gott miðað við stöðu liðs-
ins,“ segir Ársæll.
Stuðningsmannaklúbbur Leeds á
Íslandi var stofnaður í nóvember
1997 og voru Jón Örvar Arason og
Gísli Hlynur Jóhannsson helstu
frumkvöðlarnir. Ársæll segir að fé-
lagar komi frá öllum landshornum og
áberandi sé hvað margir séu frá
Húsavík, Siglufirði og Neskaupstað. Í
því sambandi nefnir hann að Hafliði
Jósteinsson á Húsavík hafi verið
stuðningsmaður Leeds á Íslandi
númer eitt í yfir 50 ár. „Hann hefur
alla tíð verið grjótharður og fór í
fyrsta sinn með okkur til Leeds fyrir
þremur árum, þegar hann hélt upp á
sjötugsafmælið sitt. Þá fór 53 manna
hópur á leik Leeds og Coventry.“
Sameiningartákn
Þegar sýnt er beint frá leikjum
Leeds í sjónvarpi mæta félagsmenn
stuðningsmannaklúbbsins í Ölver,
Sportbarinn í Glæsibæ, og þar er að-
alfundurinn haldinn árlega. Klúbb-
urinn heldur úti heimasíðu, leeds.is,
og reynir að standa fyrir ferð til
Leeds árlega auk þess sem golfmót
er haldið á hverju ári og stundum
árshátíð. „Leeds er mjög skemmtileg
borg að heimsækja, falleg borg og
flottur miðbær,“ segir Ársæll. „Það
tekur ekki nema klukkutíma með lest
frá flugvellinum í Manchester og það
er tilvalið að skreppa til Leeds í helg-
arferð og taka leik í leiðinni.“
Á sjöunda og áttunda áratug lið-
innar aldar var Leeds United með
eitt besta lið Englands undir stjórn
Dons Revie. Þá var reglulega sýnt frá
leikjum liðsins í sjónvarpi en minna
hefur verið um beinar útsendingar
frá leikjum Leeds undanfarin ár. Ár-
sæll minnir samt á að nýlega hafi þrír
leikir verið sýndir á stuttum tíma en
því miður hafi það allt verið tapleikir.
Það dragi samt ekki úr krafti félaga í
stuðningsmannaklúbbnum. „Ég hef
séð Leeds spila í þremur
deildum og það hefur alltaf
verið mikil stemning. 2009
fórum við til dæmis með 30
manna hóp á leik Leeds
og Huddersfield í C-deild
eða 3. deild og þá voru
32.000 manns á vellinum.
Stemningin var eins og á
leik í úrvalsdeild.“
Bjartsýnir stuðningsmenn Leeds
Eru sannfærðir um að risinn láti að
sér kveða í ensku úrvalsdeildinni á ný
Morgunblaðið/Golli
Aðalfundur Nokkrir félagar í Stuðningsmannaklúbbi Leeds United á Ölveri. Ársæll Óskar Steinmóðsson, formaður, lengst vinstri.
Ársæll Steinmóðsson segir að
stuðningsmenn Leeds séu sann-
færðir um að risinn eigi eftir að
láta að sér kveða í úrvalsdeild á
ný. „Þegar liðið kemur aftur upp
í úrvalsdeild fjölgar í klúbbnum
hjá okkur, menn koma út úr öll-
um skúmaskotum, því stuðn-
ingsmennirnir leynast víða,“
segir hann. Formaðurinn bætir
við að þó að stuðningsmennirnir
komi úr öllum áttum og fylgi
ýmsum liðum á Íslandi samein-
ist þeir um Leeds. „Það eru
auðvitað létt skot á milli
manna en við erum allir
vinir og lífið heldur áfram.
Þetta er bara fótbolti, eitt
af áhugamálum okkar.“
Stuðningur í
öllum hornum
LEEDS UNITED