Morgunblaðið - 23.01.2014, Blaðsíða 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
EINFÖLD ÁKVÖRÐUN
VELDU
ÖRYGGI
FYRIR ÞIG OG ÞÍNA
Smiðjuvegi 68-70, Kópavogi 544 5000
Hjallahrauni 4, Hfj 565 2121
Fitjabraut 12, Njarðvík 421 1399
Eyrarvegi 33, Selfossi 482 2722
www.solning.is
– UMBOÐSMENN UM LAND ALLT –
Þú paSSaR HaNN
VIÐ PÖSSUM ÞIG
Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkurHjólastillingarDekkjaverkstæði Bremsuklossar Peruskipti
driving emotion
KORNADEKK
JEPPADEKK JEPPADEKK
ICE CONTACT VIKING CONTACT 5 I*PIke W419 I*cePt IZ W606 COURSER MSR COURSER AXT
driving emotion
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Ingvar E. Sigurðsson er einn ástsæl-
asti leikari þjóðarinnar. Hann leikur
nú um þessar mundir burðar-
hlutverk í leikritinu Jeppi á Fjalli
sem gengið hefur vonum framar og
sýnt verður í Hofi á Akureyri hinn 1.
og 2. febrúar. Á milli sýninga undir-
býr Ingvar sig fyrir hlutverk sitt í
kvikmyndinni Everest sem Baltasar
Kormákur leikstýrir og er tekin upp
í svissnesku Ölpunum og í London.
Blaðamaður tók Ingvar tali og ræddi
við hann um Jeppa, rússneska fjalla-
garpinn sem hann leikur í Everest,
listina og velgengnina.
Jeppi er besta skinn
Jeppi á Fjalli er leikrit eftir Lud-
vig Holberg sem fyrst var sett á svið
árið 1722. Það hefur slegið rækilega
í gegn hjá landsmönnum og bæta
hefur þurft við sýningum. Þessar
vinsældir koma Ingvari hins vegar
ekki á óvart. „Margir höfðu enga trú
á þessu verki og töldu það vera vit-
leysu að dusta rykið af svona gömlu
verki. En eftir að hafa lesið nýju
þýðinguna og hitt leikhópinn þá sá
ég fljótt að þetta ætti eftir að ganga
upp. Þó að það megi kalla þetta vit-
leysu þá er einnig verið að takast á
við siðferðilegar spurningar um
hvað sé rétt og rangt, til dæmis
hvernig beita megi valdi. Þó að þetta
sé skrifað áður en lýðræði kom til
sögunnar á Vesturlöndum er alltaf
verið að glíma við sömu spurning-
arnar. Mér þykir alltaf vænna og
vænna um Jeppa. Hann er í rauninni
besta skinn og er ginntur í að vera
leiksoppur,“ segir Ingvar.
Tónlistin í samtölunum
Tónlistin gegnir veigamiklu hlut-
verki í verkinu en lög og texti eru
samin af Megasi í samstarfi við
Braga Valdimar Skúlason. Ingvar
syngur því mikið í verkinu en hann
er ekki óvanur söng. „Ég hef sungið
síðan ég var barn. Ég var í barna-
kór, kirkjukór og karlakór. Þá var
ég einnig í kór Leiklistaskólans og í
söngnámi þar. Starf leikarans og
söngvarans er náskylt. Við erum
alltaf að kljást við röddina og túlka
eitthvað með ýmsum áherslum og
blæbrigðum. Sjálfur nálgast ég leik-
listina mikið út frá tónlistinni. Ég
hugsa senur út frá takti og það er
mikilvægt að gefa ekki aðeins hugs-
uninni að baki orðunum gaum held-
ur líka tónlistinni í setningunum og
samtölum. Það er auðveldlega hægt
að klúðra verki geri maður það
ekki.“
Ingvar segist hafa forðast að líkja
eftir Megasi þegar kom að söngnum.
„Það getur verið að söngurinn hafi
verið í hans stíl fyrst þegar verkið
var sýnt. Megas semur alla textana
sem eru mjög stór hluti af tónlistinni
auk þess sem við erum á vissan hátt
líkir. Það er því auðvelt að verða
óvart svolítið eins og hann. Söngur-
inn hefur þó þróast meira eftir því
sem á líður og maður reynir að gera
texta hans að sínum. Megas er æði-
slegur og krefjandi tónlistarmaður
en á sama tíma mjög innihaldsríkur.
Það er hægt að fara í ótal áttir með
lög hans.“
Lærir rússnesku fyrir hlutverk
Þegar Ingvar er ekki uppi á sviði í
hlutverki Jeppa þá er hann að undir-
búa sig fyrir tökur á stórmyndinni
Everest sem byggist á sönnum at-
burðum og fjallar um leiðangur
þaulvanra fjallgöngumanna sem
lenda í hremmingum uppi á Everest
árið 1996. Ingvar leggur mikla
áherslu á að kynna sér söguna og
persónuna, Anatoli Boukreev, sem
hann kemur til með að leika.
„Menn eru enn að spyrja sig hvað
gerðist þarna og hvers vegna þessir
vönu menn tóku slíka áhættu. Eftir
því sem ég les meira um Boukreev
þá kemst ég að því að þetta var mjög
merkilegur maður sem var þarna á
öðrum forsendum en aðrir. Hann
var eini Rússinn í hópnum og var al-
mennt ekki sáttur við að verið væri
að græða á fjallaleiðöngrum sem
þessum en eftir að Sovétríkin féllu
og hann hætti að njóta fjárstuðnings
frá ríkinu varð hann að gerast fjalla-
leiðsögumaður til þess að geta kom-
ist á fjöll. Þrátt fyrir að hafa bjargað
lífi nokkurra þarna þá sætti Bouk-
reev gagnrýni fyrir að hafa verið
þarna á öðrum forsendum en sumir
ætluðust til af honum. Ég ætla hins
vegar að verja minn mann út í hið
óendanlega.“
Ingvar segir að undirbúningurinn
sé bæði krefjandi og gefandi. „Ég
þarf að læra rússnesku og kem jafn-
vel til með það að þurfa að syngja á
rússnesku. Hver einasti Rússi mun
auðvitað sjá í gegnum það hvað sem
ég vanda mig mikið en ég verð þó að
sýna að ég hafi lagt mig allan fram.
Þá þarf ég einnig að læra á allan út-
búnaðinn því þó að ég hafi gengið á
fjöll hér heima þá kann ég ekki á all-
ar þessar græjur enda er ekki sama
fjall og fjall.“
Má ekki stoppa lengi
Aðspurður hvað sé framundan
segir hann allt vera óráðið.
„Manni fellur alltaf eitthvað til.
Það má þó ekki líða langur tími á
milli verkefna. Ekki vegna þess að
ég sé vinnualki heldur vegna þess að
leikarastarfið er láglaunastarf. Það
er ekkert grín að vera leikari á Ís-
landi. Þó að maður hafi mikið að
gera þá má ekki stoppa lengi. Það er
bara þannig.“
Ingvar leggur mikla áherslu á að
takast á við krefjandi verkefni og
þroska sjálfan sig sem leikara. Þá
gegnir undirbúningurinn mjög stóru
hlutverki.
„Mér finnst gaman að vinna með
skapandi fólki og reyna á kraftana
hvort sem þeir eru líkamlegir eða
andlegir. Oft hef ég mesta ánægju af
undirbúningsvinnunni og með aldr-
inum verður það sífellt erfiðara að
vera óundirbúinn.“
Þykir ekki fínt að hæla sér
Ingvar er hógvær þegar kemur að
velgengninni. Hann hlaut riddara-
krossinn á nýársdag en er lítið að
hugsa um slíkar viðurkenningar.
„Þetta var mjög einlæg og falleg
athöfn á Bessastöðum og mér þótti
vænt um þetta en maður fer ekkert í
vinnuna með einhver verðlaun eða
viðurkenningar í huga. Ég var bara
alinn þannig upp. Ég ólst upp um-
vafinn ást og hlýju og það að hæla
sér þykir ekki fínt í minni fjöl-
skyldu.“
Ingvar segir velgengnina vera
blöndu af tilviljunum og rétta hugar-
farinu. „Maður þarf að vera réttur
maður á réttum stað. Velgengni mín
er ekki bara frá mér komin heldur er
ég háður velvilja annarra eins og
leikstjóra, leikara og líka minna nán-
ustu.“ En hvar sér Ingvar sig í fram-
tíðinni? „Ég er ekki með neinar
ákveðnar hugmyndir. Ég hugsa
bara með hlýju til framtíðarinnar og
vona að ég verði fullorðinn, hraustur
og að allt verði í lagi hjá okkur,“ seg-
ir Ingvar.
Ingvar á fjalli
Jeppi á Fjalli sýnt á Akureyri Tekur á ýmsum siðferðilegum spurningum Undirbúningurinn
fyrir Everest Ólst upp umvafinn ást og hlýju Velgengnin háð tilviljunum og velvilja margra
Morgunblaðið/Kristinn
Næsta skref Brátt hefjast tökur á stórmyndinni Everest. Ingvar veit ekki hvað tekur við þegar þeim lýkur. „Ég hugsa bara með hlýju til framtíðarinnar.“