Morgunblaðið - 23.01.2014, Síða 59

Morgunblaðið - 23.01.2014, Síða 59
MINNINGAR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014 Það er með mik- illi virðingu og þakklæti sem ég kveð hana ömmu mína og nöfnu, Ingibjörgu Guð- mundsdóttur. Þakklæti fyrir að hafa átt hana fyrir ömmu öll mín fimmtíu æviár og fyrir þær góðu tilfinningar sem minningarnar kalla fram, hlýjuna og umhyggj- una sem hún veitti mér. Ég hef á mínum fullorðinsárum svo oft hugsað til baka til þess góða tíma þegar ég var barn og fékk að upp- lifa sveitina hjá Ingu ömmu og afa mínum, Þórarni Þorfinnssyni, á Spóastöðum í Biskupstungum. Býlið hefur alla tíð verið rekið af miklum myndarskap. Vinnudag- arnir voru langir og verkefnin fjölbreytt enda kýr, kindur, hæn- ur, hestar og hundur, landið stórt, tækin mörg, veiðiá, borað eftir heitu vatni og grænmetis- rækt. Afi var oddviti í sveitinni og þeim var báðum umhugað um velferð sveitunga sinna. Þjóðveg- urinn lá í gegnum hlaðið og það var mikill gestagangur, vinnufólk og fjöldi barna sem fékk að dvelja þar. Verkaskiptingin var hefð- bundin; amma sá um heimilið; þrif og þvotta, matseld og bakst- ur, og hún prjónaði og saumaði. Hún var með fallegan blómagarð og átti seinna gróðurhús þar sem hún ræktaði rósir og vínberjavið. Afskorin blóm stóðu gjarnan í vasa sem annaðhvort voru úr garðinum eða úr gróðurhúsinu. Hún fór í berjamó þegar það var hægt og það voru borðuð bláber með rjóma og svo sultað og saft- að. Gæði jarðarinnar voru vel nýtt. Ég var höfð með í fjöl- breyttum verkunum og virðingin fyrir afa og ömmu var mikil og mig langaði að leggja mig fram til að standa undir þeirra vænting- um, enda hljóp ég oftast mínar sendiferðir. Þarna fékk ég að upplifa margt og mörg voru tæki- færin til að læra. Hún amma var næm og kom til móts við mínar þarfir án þess að það þyrfti að orða það. Ég minn- ist þess að mér fannst nú stund- um meira spennandi að vera í úti- verkunum en í inniverkunum. Í eitthvert skiptið var sólskin og allir í heyskapnum nema ég sem var að hjálpa ömmu inni. Amma skynjaði hvar áhuginn lá og sagði að þegar við værum búnar að brjóta saman þvottinn væri gott að ég færi og hjálpaði til úti. Hún vildi að ég fengi að fást við það sem vakti áhuga minn og aldrei skammaði hún mig. Amma var mjög umhyggjusöm og þægileg kona, hjálpsöm, ofurblíð og natin við börn, ætlaði öllum gott og tók öllum vel. Sem barn hugsaði ég að ef eitthvað kæmi fyrir pabba og mömmu þá vildi ég fá að búa hjá ömmu og afa. Afi lést árið 1984 og var hann þá 73 ára. Amma var því ekkja í 30 ár og síðustu 15 árin dvaldi hún á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði þar sem vel var hugs- að um hana. Þar tók hún þátt í fé- lagsstarfinu og prjónaði öllum lausum stundum; síðustu árin eldhúshandklæði, þvottapoka og borðklúta. Hún lést á Ási á 98. aldursári á friðsælan hátt með tvær elstu dætur sínar hjá sér. Ég vil fyrir hönd okkar systkin- anna, Ólafs Tryggva og Ýrar, þakka Ingu ömmu fyrir allt hið góða sem hún færði okkur. Ingibjörg Gísladóttir. Ingibjörg Vilhelmína Guðmundsdóttir ✝ Ingibjörg Vil-helmína Guð- mundsdóttir fædd- ist 12. júní 1916. Hún lést 13. janúar 2014. Útför hennar fór fram 18. janúar 2014. Nú hefur hún Inga frænka mín á Spóastöðum kvatt okkur í síðasta sinn, aldurinn var farinn að segja til sín og árin tæplega níutíu og átta ollu því að margar hafa gleði- stundirnar verið og einnig sorgarstund- irnar. Það hefur að vísu verið þannig með þau systkinin frá Innri- Hjarðardal að þau hafa öll náð háum aldri nema Helga systir þeirra, sem dó ung. Guðmundur Ingi skáld á Kirkjubóli segir í ljóði um heimilið í Hjarðardal, við útför Sigríðar Hagalínsdóttur mömmu Ingu: Þar uxu tíu bjartleit börn í röð með brek og fjas sem móðurhjartað skildi. Og þú tókst öllum hlutum hæg og glöð, þitt hjartans ráð var alltaf bros og mildi. Og hvað sem brást, með vissu það ég veit, á vinsemd þína bar ei nokkurn efa. Ég held að engin önnur sem ég leit jafn innilega kynni að fyrirgefa. Líklega hefur þetta verið veganestið sem Inga frænka fékk þegar hún hélt úr átthög- unum fyrir vestan, þar sem Þor- finnur gnæfir við himin og inn- lögnin er jafn örugg og að nýr dagur rísi að morgni, í ferðalag sem nú er lokið, ferðina að Spóa- stöðum. Ég átti því láni að fagna að vera bæði um sumar og vetur þar og þar lærði ég margt sem hefur komið mér vel á lífsleið- inni. Vinnusemi var í hávegum höfð og alltaf næg verkefni á stóru búi. Það var tilbreyting að koma að Spóastöðum sem lá um þjóðbraut þvera í orðsins fyllstu merkingu. Þar var gestkvæmt og margan manninn sá ég þar í fyrsta sinn, suma aldrei aftur, en sveitungana því oftar, því Þórir var oddviti sveitarinnar. Þetta var samt öðruvísi en ég átti að venjast frá þéttbýlinu í Auðs- holti, þar sem barnafjöldinn var meiri og túnið allt leikvöllurinn. Þegar ég spurði Ingu frænku um sögur að vestan sem mamma hafði sagt mér bæði sannar og meira sannar fannst mér Inga frænka heldur draga úr, hún vildi að staðreyndirnar réðu ferðinni. En marga hluti sagði hún mér þegar við sátum tvö ein. Samgangurinn milli Spóastaða og Auðsholts var talsverður enda frændsemi og vinskapur milli bæjanna, bæði pabbi og Þóri af gömlu Auðsholtsættinni og pabbi hafði verið vetrarmaður á Spóa- stöðum hjá frænda sínum og ekki minnkaði frændsemin þegar mamma kom að Spóastöðum til Ingu systur sinnar og átti eftir að giftast út að Auðsholti Og nú þegar daginn er örlítið farinn að lengja og myrkrið er á undanhaldi fyrir ljósinu kvaddi hún Inga okkur – hvíldinni fegin. Nú er henni Ingu frænku minni búin hvíla austur á brún gamla kirkjugarðsins í Skálholti við hliðina á honum Þóra, þaðan sem aðeins er steinsnar út að Spóa- stöðum. Og með þessum orðum kveð ég hana frænku mína og ekki kæmi það mér á óvart þó að efst í blómabrekkunni stæði hár og grannvaxinn maður ögn lotinn í herðum með örlítið bros á vör og hann rétti Ingu frænku höndina og þau leiddust inn í upprás hækkandi sólar. Gils Einarsson Það er mikið lán að kynnast góðu fólki, njóta nærveru þess og hlýju og öðlast í tímans rás ein- læga vináttu þess og góðvild. Þannig er mér innanbrjósts þeg- ar ég rita hér nokkur orð í minn- ingu Ingibjargar Guðmundsdótt- ur, fyrrverandi húsmóður á Spóastöðum í Biskupstungum. Ungur man ég þá tíð að beðið var með óþreyju eftir vorinu, þessum dásamlega tíma, þegar allt lifnaði við. Skólinn loksins bú- inn og sauðburður á næsta leiti. Það var ekki laust við að manni þætti Ólafur Ketilsson aka nokk- uð hægt á rútunni sinni á leið austur fyrir fjall, en farþegarnir, óþreyjufullir strákpjakkar, vildu komast sem fyrst í sveitasæluna, þar sem vorblærinn vakti vonir um ævintýralegt sumar. Sumar eftir sumar átti ég þess kost að dvelja í sveit hjá þeim heiðurs- hjónum Þórarni og Ingu. Það var heldur ekki amalegt að fá að vera þátttakandi í sveitastörfunum og sjá hversu vel búskapurinn gekk fram frá ári til árs. Tengsl mín við fólkið á Spóastöðum eru sprottin af þeirri einföldu stað- reynd að móðir mín, Ásthildur, réð sig í kaupavinnu hjá Þórarni og Ingu þegar hún var ung stúlka og var hjá þeim í mörg sumur. Þeirra góðu tíma minnist hún oft með þakklæti og hlýju. Ingibjörg á Spóastöðum var vestfirsk yngismær sem flytur á flatlendið á Suðurlandi og býr bónda sínum gott heimili og elur honum sex mannvænleg börn. Það var því í nógu að snúast þeg- ar ég strákur úr Hafnarfirði ásamt fleirum bættust í hópinn. Eins og kálfur á vori, sísvangur og malandi, spyrjandi um allt milli himins og jarðar, já og ef- laust hefur verið lítið gagn að stráknum til að byrja með. Aldrei fann ég þó annað en þá hlýju og það vinarþel sem einkenndi Ingu mína alla tíð. Henni var annt um að öllum liði vel og margar voru þær stundirnar sem ég gat leitað til Ingu minnar í blíðu og stríðu. Fyrir það verð ég ævarandi þakklátur. Inga skynjaði líka fljótt að hjá þeim hjónum undi ég hag mínum vel og ófáir eru þeir sem heyrt hafa mig vitna til þeirra sæmdarhjóna og góðra búskaparhátta á Spóastöðum, fyrr og nú. Í desember árið 1984 færði Inga mér fyrsta bindi úr bókaflokknum Sunnlenskar byggðir, en þar er fjallað um Tungur, Hreppa og Skeið. Þessa bók tek ég mér oft í hönd til að rifja upp gagnmerkar upplýsing- ar um bændur og búalið. Enn á ég þess kost að fara austur að Spóastöðum og dvelja þar í sveitasælunni og njóta þess að sjá afrakstur þeirra sem lögðu grunn að myndarlegum bú- rekstri á Spóastöðum. Reyndar ekki í hlutverki kúasmalans sem forðum, læt nú nægja að dásama umhverfið úr sumarhúsi á Brúar- árbökkum. Með þakklæti og virðingu kveð ég Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Blessuð sé minning hennar. Magnús Gunnarsson. Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, við mættum margt muna hvort öðru að segja frá. Prýðið þér lengi landið það, sem lifandi guð hefur fundið stað ástarsælan, því ástin hans alls staðar fyllir þarfir manns. Faðir og vinur alls, sem er, annastu þennan græna reit. Blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. Vesalings sóley, sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig. Hægur er dúr á daggarnótt. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt! Þessar fögru ljóðlínur Jónasar Hallgrímssonar vil ég gera að yf- irskrift minni þegar ég kveð aldna vinkonu, Ingibjörgu Guð- mundsdóttur, sem hefur verið kölluð á vit æðri máttarvalda. Ung fluttist hún suður yfir heiðar úr Önundarfirðinum. Á hlaðinu á Spóastöðum tók á móti henni hið fagra útsýni Vörðufell- ið, Hestfjallið, Mosfellið og Brúaráin himinblá sem liðast í farvegi sínum kannski ekki alveg eins tignarlegt og umhverfið sem hún ólst upp í. Hún var hjartahlý kona, mikill dugnaðarforkur, hannyrðakona mikil og yndi hafði hún af rækt- un, má segja að Ingibjörg hafi haft græna fingur, hún naut þess að rækta falleg blóm. Fallegi garðurinn á Spóastöð- um og litla gróðurhúsið báru þess glöggt merki hvað öllu var hag- anlega fyrirkomið. Það var mikið gæfuspor fyrir Þórarin að hitta Ingibjörgu. Þau byggðu upp og ræktuðu jörð sína myndarlega, svo er enn í dag þar sem sonurinn Þorfinnur og synir hans hafa tekið við búskap. Dæturnar eiga allar sína sælu- reiti á Spóastöðum, þar kemur í ljós hvað Ingibjörg hafði leið- beint þeim vel með að fegra um- hverfið. Hún tók virkan þátt í starfi sveitarinnar. Heimili þeirra stóð ávallt opið, gestrisnin var mikil því starf oddvitans var krefjandi og margir þurftu að leita til hans. Hún bauð upp á kaffi í borðstof- unni og voru málin rædd og kruf- in til mergjar. Hún hafði gaman af að spila og minnumst við þess þegar Skálholtssókn hélt spila- kvöld en þá skiptust bæirnir á að halda þau, hún naut sín vel að taka þátt í þeim. Það voru ófáar ferðir farnar á milli Skálholts og Spóastaða. Mikil og góð sam- vinna var á milli þessara tveggja bæja og aldrei slitnuðu tengslin, þau voru órjúfanleg heild. Við systur nutum þess að vera send- ar í pössun á Spóastaði og var það alltaf tilhlökkunarefni að fá að gista þar, ógleymanlegar stundir. Síðustu árin dvaldi Ingibjörg á Ási í Hveragerði. Við mæðgur hittum hana á „Blómstrandi dög- um í Hveragerði“ með dóttur sinni, faðmlagið var hlýtt og geymum við það í huga okkar. Við fjölskyldan frá Skálholti biðjum góðan Guð að láta nýárs- sólina lýsa í hug og hjörtu ykkar á sorgarstundu. Börnum Ingibjargar og fjöl- skyldum þeirra sendum ég inni- legar samúðarkveðjur. Kristín Björnsdóttir. Nú er fallin frá húsmóðirin á Spóastöðum þar sem ég var svo lánsamur að fá að vera í sveit sem krakki og unglingur. Hún og Þór- arinn hálfpartinn ólu mig upp á sumrin og sýndu mér mikla manngæsku og þykir mér því rétt að minnast hennar lítillega. Ég byrjaði að vera í sveit hjá þeim upp úr 1960, fyrst um sinn í skamman tíma en síðar heil sum- ur. Ingu aðstoðaði ég mest varð- andi garðinn, vökvun og þess háttar. Garðurinn var henni til mikils sóma eins og allt annað er hún kom nærri. Oft var þó tölu- verður atgangur milli okkar strákanna, sem hún leysti af stakri prýði. Oft sagði Inga mér sögur að vestan, úr Önundarfirði, þaðan sem við vorum ættuð. Bæði var um að ræða gamansögur af fólk- inu, sem og sögur af mannlífinu fyrir vestan. Það voru miklar ánægjustundir að hlusta á hana þar sem ég var einnig ættaður þaðan og þekkti sæmilega til. Hún sýndi mér mikla hlýju og væntumþykju og var mér mjög mannbætandi, sem ég get seint fullþakkað. Aðstandendum hennar sendi ég samúðarkveðjur. Sæmundur Þ. Magnússon. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, EINAR HELGASON, Grenimel 19, Reykjavík, lést á Landspítalanum, Fossvogi, þriðju- daginn 14. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 24. janúar kl. 15.00. Hulda Marinósdóttir, Marinó Einarsson, Margrét S. Hansdóttir, Árni Vilhjálmsson, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BÁRA ELÍASDÓTTIR, Goðabraut 3, Dalvík, lést þriðjudaginn 14. janúar á dvalarheimilinu Dalbæ. Jarðsungið verður frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 25. janúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Dalbæ, Dalvík. Sture Karlsson, Vignir Árnason, Petra Árnason, Þorsteinn Árnason, María Sigurjónsdóttir, Elías Árnason, Svandís Hannesdóttir, Friðrika Árnadóttir, Sigurður Bjarnason og fjölskyldur. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÖRGÍNA ÞÓREY JÓHANNSDÓTTIR frá Stóragerði, Óslandshlíð, Skagafirði, lést miðvikudaginn 8. janúar á Heilbrigðis- stofnuninni á Sauðárkróki. Útförin hefur fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Þórður Eyjólfsson. ✝ Einlægar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUNNLAUGS E. BRIEM, fv. yfirsakadómara í Reykjavík, Boðaþingi 22, Kópavogi, og virðingu sýnda minningu hans. Hjördís Á. Briem, Valgerður Margrét Briem, Guðmundur Einarsson, Kristinn Briem, Kolbrún Sigurðardóttir, Gunnlaugur Briem, Eva Briem Galambos, Áslaug Briem, Tómas Jónsson og barna- og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA GUNNARSDÓTTIR, andaðist miðvikudaginn 22. janúar að Dvalarheimilinu Grund. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Pálmi Ingólfsson og Guðrún Ingólfsdóttir. ✝ Móðir okkar, SIGRÍÐUR VALDEMARSDÓTTIR, Böðvarsgarði, Fnjóskadal, sem lést 15. desember verður jarðsungin frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 25. janúar kl. 13.00. Jarðsett verður í heimagrafreit. Börn og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.