Morgunblaðið - 23.01.2014, Síða 14
VIÐTAL
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Inni við beinið er ég kannski sveita-
maður í mér,“ segir Grímsnesingur-
inn Magnús Kjartansson tónlistar-
maður. Í flestra vitund er hann
tengdur Keflavík, enda af bítlakyn-
slóð þess bæjar. Langt er síðan
Magnús flutti þaðan og árin í Norð-
urbænum í Hafnarfirði urðu mörg.
Áhugi á hrossum og löngun að
komast í nýtt umhverfi – réðu því að
Magnús og Sigríður Oddsdóttir eig-
inkona hans reru á ný mið. Þau leit-
uðu lengi eftir jarðnæði og teiknuðu
upp ýmsar hugmyndir. Lendingin
varð sú að byggja heilsárshús í
Grímsnesi ekki langt frá Kerinu, þ.e.
í landi Snæfoksstaða. Lóðin er við
sumarbústaðalönd fjölskyldu Sigríð-
ar. Var afi hennar síðasti ábúandi á
Snæfoksstöðum áður en Skógrækt-
arfélag Árnesinga eignaðist jörðina.
Bætir og kætir
„Við erum alflutt í sveitina. Verk-
efni mín í tónlistinni eru þannig að ég
get sinnt þeim að stórum hluta hér.
Svo er ekki nema um klukkutíma
akstur í bæinn,“ segir Magnús sem
stjórnar tveimur kórum í Reykjavík
og þeim þriðja í Keflavík. Sigríður
hefur lengi verið flugfreyja hjá Ice-
landair. Tekur vinnulotur en á milli
koma svo ágæt frí. Fyrir vikið hentar
þeim ágætlega að búa utan borgar.
Um það bil 25 ár eru síðan Magnús
og Sigríður hófu landnám sitt í
Grímsnesinu. Þar höfðu þau unað sér
við gróðursetningu þar til þau létu
teikna hús og hófst bygging þess árið
2011.
„Það ýtti á mig að komast í annað
umhverfi að ég fékk hjartaáfall fyrir
réttu ári,“ segir Magnús. „Í kjölfar
þess fór ég í hjartaþræðingu og var
nokkra daga á sjúkrahúsi. Eftir út-
skrift gerði ég mér fyrst ljóst hvert
ástand mitt var orðið við áfallið. Var
oft slappur, mæddist fljótt og var
orðinn alltof þykkur. Þetta var eins
og ég hefði borðað fleiri kíló af írsku
smjöri, sem hurfu með aðhaldi og
breyttum lífsstíl. Og stresslítið um-
hverfið í sveitinni bætir og kætir.“
Kórar þurfa ný viðfangsefni
Magnús, sem er 62 ára, hefur
komið víða við í tónlistinni. Var í
hljómsveitum eins og Trúbroti, Óð-
mönnum og Júdasi. Einnig Brunalið-
inu, HLH-flokknum, Sléttuúlfunum
og fleirum. Eru ónefndar sýningar,
sjónvarpsþættir, tónleikar og svo
mætti lengi telja. Í seinni tíð hefur
Magnús í æ ríkari mæli snúið sér að
kórstjórn og útsetningum og undir
hans stjórn syngur Flugfreyjukór
Icelandair, Sönghópur Suðurnesja
og Brokkkórinn sem er skipaður
hestafólki á höfuðborgasvæðinu og
víðar.
„Kórstarfið er skemmtilegt og að
vinna með fólki sem hefur músíkina í
blóðinu. Hins vegar þurfa kórar á Ís-
landi stöðugt ný og nútíma viðfangs-
efni,“ segir Magnús. Vegna þessa
segist hann nú beina kröftum sínum í
æ ríkari mæli að útsendingu þekktra
íslenskra dægurlaga, svo þau hæfi
kórum. Af lögum sem Magnús hefur
farið um höndum í þessu skyni eru til
dæmis Ferðalok (Ég er kominn
heim) sem Óðinn Valdimarsson
söng; Samferða eftir Magnús Eiríks-
son, Bláu augun þín eftir Gunnar
Þórðarson við texta Ólafs Gauks og
Lítill drengur Vilhjálms Vilhjálms-
sonar. Það lag samdi Magnús á sín-
um tíma en textann gerði söngvarinn
ástsæli.
„Ungt fólk í kórstarfi langar að
glíma við eitthvað annað en Brennið
þið vitar eða Hraustir menn, sem
Karlakór Reykjavíkur og Guð-
mundur Jónsson tóku svo frábær-
lega um árið að enginn toppar það.
Og svo eitthvað nýtt gerist og efnis-
skrárnar verði við hæfi nýrra kyn-
slóða eigum við margar frábærar
perlur,“ segir Magnús.
Viðfangsefnum útsetjarans lýsir
hann þannig að stundum þurfi að
færa lög eða einstaka raddir milli
tóntegunda, finna hvar hljómum má
bæta við. Síðast en ekki síst þurfi sá
sem útsetur að skynja hvar hjartað
slái í hverju lagi; hin grípandi lína og
stef eru það sem fangar athygli
hlustans.
Með klára á húsi
Þegar Grímsnesið og mannlíf þar
ber á góma er stundum talað um
Grímsævintýri með vísan til sagn-
anna skemmtilegu sem allir krakkar
lásu forðum daga. Í lífi Magnúsar er
upphaf Grímsævintýrisins fyrst og
fremst hestamennskan.
„Afi og frændur mínir í Keflavík
héldu hross. Þannig komst ég á
bragðið. Það var svo fyrir um sautján
árum sem ég byrjaði í þessu af al-
vöru. Núna er ég með klára á húsi
hjá nágrönnum mínum í Miðengi í
Grímsnesi. Þá er ég með nokkur
hross í vetrarbeit sem sótt eru undir
vorið. Og það er fátt skemmtilegra
en útreiðartúrar með góðu fólki.
Fyrir utan tónlistina finnst mér
hestamennskan gefa lífinu gildi.“
Grípandi línur í Grímsævintýri
Keflavíkurpopparinn fluttur á Snæfoksstaði úr Hafnarfirði Hjartaáfall hvatti til breytinga
Þrír kórar og gömul lög útsett að nýju Margar perlur Hestamennskan gefur lífinu gildi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sveitafólk Magnús og Sigríður Oddsdóttir, kona hans, við húsið sem þau reistu í Grímsnesinu, skammt frá Kerinu.
Músík „Verkefni mín í tónlistinni eru þannig að ég get sinnt þeim að stórum
hluta hér,“ segir Magnús Kjartansson sem er með mörg járn í eldinum.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Skapandi opinber þjónusta
Afhending nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu
föstudaginn 24. janúar 2014 kl. 11:45-14:00
á Grand hótel Reykjavík
Skráning: www.stjornsyslustofnun.hi.is, þátttökugjald 5400.- , hádegisverður innifalinn.
1. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra flytur ávarp.
2. Dr. Marga Pröhl framkvæmdastjóri European Institute of Public Administration EIPA.
3. Dr. Hilmar Bragi Janusson forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
4. Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og Valgerður Stefánsdóttir
forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra en verkefni
þeirra komust í úrslit Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna í opinberum rekstri 2013
(European Public Sector Awards).
5. Afhending nýsköpunarverðlauna. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra.
Fundarstjóri: Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Félag forstöðumanna ríkisstofnana
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
Nýtt tengivirki Landsnets á Stuðl-
um í Reyðarfirði var tekið í notkun
í gær. Samhliða hefur Stuðlalína 1
verið spennuhækkuð. Þessar fram-
kvæmdir eru fyrsti áfanginn í að-
gerðaáætlun Landsnets til að auka
getu raforkukerfisins á Austur-
landi. Þarna er verið að mæta auk-
inni eftirspurn eftir raforku hjá
fiskimjölsverksmiðjum eystra, þar
sem olíukötlum hefur verið skipt út
fyrir rafskautakatla.
Á Stuðlum var fyrir 66 kV úti-
tengivirki og þar fer einnig fram
afhending á raforku til Rarik, sem
er dreifingarfyrirtæki orku eystra.
Nú hefur verið bætt við 132 kV úti-
tengivirki á sömu lóð ásamt tveim-
ur 132/66 kV aflspennum.
Stuðlalína 1 er 132 kV jarð-
strengur sem liggur frá tengivirki
Landsnets á Hryggstekk í Skriðdal
að tengivirkinu á Stuðlum. Streng-
urinn var tekinn í notkun árið 2005
og er nú 132 kV spennu.
Stuðlavirki Páll Björgvin Guðmundsson
bæjarstjóri Fjarðabyggðar tekur endur-
bætt tengivirki formlega í notkun.
Settu straum á
Stuðlavirkið í gær