Morgunblaðið - 23.01.2014, Síða 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2014
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti fimm mótmælendur biðu
bana, fjórir þeirra af skotsárum, þegar lög-
reglumenn réðust á götuvígi mótmælenda í
miðborg Kíev í gær. Þetta eru fyrstu dauðs-
föllin í götumótmælunum í borginni frá því að
þau hófust fyrir tveimur mánuðum vegna
þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnar Úkraínu að
hætta við samning um aukið samstarf við Evr-
ópusambandið.
Mótmælendur í miðborg Kíev köstuðu grjóti
og eldsprengjum að lögreglumönnum sem
svöruðu með því að beita táragasi, kasta högg-
sprengjum og skjóta gúmmíbyssukúlum. Þús-
undir manna hafa tekið þátt í mótmælunum
síðustu þrjá daga og tekist á við svipaðan fjölda
lögreglumanna.
Viktor Janúkovítsj, forseti Úkraínu, ræddi í
gær við leiðtoga stjórnarandstöðunnar, þeirra
á meðal hnefaleikakappann Vítalí Klítsjkó,
sem er nú vinsælasti stjórnmálamaður Úkra-
ínu. Ekki var vitað hvort viðræðurnar hefðu
borið árangur.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar virtust
ekki geta haft mikil áhrif á þá mótmælendur,
sem höfðu sig mest í frammi í átökunum við
lögregluna, og þeir lýstu ekki yfir stuðningi við
árásir þeirra á lögreglumenn.
Janúkovítsj forseti hvatti mótmælendur til
að taka ekki þátt í ofbeldi „pólitískra róttæk-
linga“ og vottaði fjölskyldum þeirra sem létu
lífið samúð sína. Mylola Azarov, forsætisráð-
herra Úkraínu, sagði að róttækustu mótmæl-
endurnir væru „hryðjuverkamenn“.
Hermt er að flestir þeirra mótmælenda, sem
ganga harðast fram í átökunum, séu í nýrri
hreyfingu ungra hægriöfgamanna sem nefnist
Hægri geirinn. Hreyfingin er skipuð jafnt
rússnesku- sem úkraínskumælandi stjórnar-
andstæðingum sem nota hjálma og andlits-
grímur til að verja sig og beita bareflum í átök-
um við lögregluna. Margir félaga
hreyfingarinnar í Kíev koma úr röðum ungra
rússneskumælandi fótboltabullna og þjóð-
ernissinna.
Flestir mótmælendanna í Kíev eru andvígir
því að Úkraína gangi í tollabandalag með
Rússlandi, Hvíta-Rússlandi og Kasakstan, eins
og rússnesk stjórnvöld hafa beitt sér fyrir.
Ólíkt öðrum mótmælendum í Kíev eru flestir
félaganna í Hægri geiranum andvígir því að
Úkraína gangi í Evrópusambandið. Hreyfingin
lítur á mótmælin í Kíev sem tækifæri til að
koma úkraínska ríkisvaldinu fyrir kattarnef og
hefja uppbyggingu nýs ríkis, að því er fram
kemur á fréttavef BBC.
Hundruð manna hafa særst í átökunum, auk
þess sem minnst fimm hafa látið lífið. Átökin
hafa vakið mikinn óhug meðal Úkraínumanna
sem hafa aldrei orðið vitni að slíkum blóðs-
úthellingum í mótmælum, að meðtalinni rauð-
gulu byltingunni árið 2004 sem fór friðsamlega
fram að mestu.
Stjórnin sökuð um að
koma á lögregluríki
Ráðamenn í öðrum löndum hafa vaxandi
áhyggjur af átökunum í Kíev. Jose Manuel
Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, varaði í gær við því að hún myndi
meta „hugsanlegar aðgerðir“ gegn úkraínsk-
um yfirvöldum. Bandaríkjastjórn ógilti í gær
vegabréfsáritanir nokkurra Úkraínumanna
sem tengjast átökum öryggissveita og mót-
mælenda í nóvember og desember, að sögn
bandaríska sendiráðsins í Kíev í gær.
Yfirvöldin byggja aðgerðir sínar á nýjum
lögum sem banna nær hvers konar mótmæli í
landinu. Lögin kveða meðal annars á um að
mótmæli fyrir utan opinberar byggingar varði
allt að fimm ára fangelsi og mótmælendum er
bannað að vera með hjálma eða andlitsgrímur.
Andstæðingar laganna segja að með þeim sé
stjórnin að koma á lögregluríki.
AFP
Stál í stál Konur úr röðum mótmælendanna fyrir framan lögreglumenn við þinghúsið í Kíev þar sem hörð átök geisuðu í gær. A.m.k. fimm menn biðu bana og hundruð manna særðust.
Mannskæð átök í Kíev vekja ugg
Blóðug átök vekja mikinn óhug meðal Úkraínumanna Stjórnvöld hvetja mótmælendur til að taka
ekki þátt í ofbeldi „róttæklinga“ Ungir hægriöfgamenn á meðal þeirra sem hafa sig mest í frammi
Kenna vestrænum ríkjum um
» Forseti framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, Jose Manuel Barroso, var-
aði yfirvöld í Úkraínu við því að hún kynni
að grípa til refsiaðgerða gegn þeim
vegna átakanna í Kíev.
» Rússar sökuðu hins vegar vestræn ríki
um að hafa kynt undir óeirðum í Kíev.
„Lögmæt yfirvöld Úkraínu standa
frammi fyrir utanaðkomandi íhlutun í
innanríkismál landsins,“ sagði Grígorí
Karasín, aðstoðarutanríkisráðherra
Rússlands.
Átökin í Kíev hófust eftir að ríkis-
stjórn Úkraínu tilkynnti 21. nóv-
ember að hún hefði ákveðið að slíta
viðræðum um aukið samstarf við
Evrópusambandið og auka þess í
stað samstarfið við Rússland.
Stjórnarandstæðingar, sem vilja að
Úkraína gangi í Evrópusambandið,
boðuðu þá til götumótmæla.
Tugir þúsunda manna tóku þátt í
mótmælum á Sjálfstæðistorginu í
Kíev 24. nóvember og fámennari
mótmælafundir voru haldnir í öðr-
um borgum. Hermt er að allt að
hálf milljón manna hafi tekið þátt í
mótmælum í Kíev 1. desember.
Hundruð manna særðust þá í átök-
um við lögreglu og margir mótmæl-
endur réðust inn í ráðhús borgar-
innar. Um 200.000 manns söfnuðust
saman á Sjálfstæðistorginu á
sunnudaginn var eftir að þingið
samþykkti lög sem banna nær
hvers konar mótmæli.
Deilt um hvort auka eigi samstarfið við
Evrópusambandið eða Rússland
AFP
Hörð átök Mótmælendur takast á við lögreglumenn í miðborg Kíev. Mótmælendur
beittu m.a. eldsprengjum í átökunum og lögreglumenn hleyptu af byssum.