Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Qupperneq 23
Omega fitusýrur fyrirbyggja meðal annars ýmsa bólgu- og hjarta-
sjúkdóma ásamt því að efla bæði sjón og taugaboð til heila. Þær eru
einnig taldar góðar við þunglyndi, geðhvarfasýki, ADHD og jafnvel
lesblindu. Að auki viðhalda þær raka í húðinni og gera hana mjúka.
Hollar fyrir alla
12.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Ánægjuleg tíðindi bárust frá embætti landlæknis í vikunni ergreint var frá upplýsingum um fæðuframboð á Íslandi fyrirárið 2012. Þar kom fram að framboð ávaxta og grænmetis
jókst umtalsvert á árinu. Það vakti einnig sérstaka athygli mína
að framboð á grænmeti hefur aldrei verið meira en nú, ekki einu
sinni á útrásarárinu mikla 2007.
Alls jókst framboð á fersku grænmeti úr 47,2 kg/íbúa árið 2011
í 50,9 kg/íbúa árið 2012. Framboð á ferskum ávöxtum jókst einnig
á milli ára úr 61 kg/íbúa í 64,4 kg/íbúa.
Heildargrænmetisframboð er nú orðið
meira en það var 2007 þegar það var mest
en ávaxtaframboðið er ennþá minna en það
var þá.
Þessi grænmetisvísitala virðist fylgja
efnahagsástandinu ágætlega því framboð á
þessum vörum dróst verulega saman árin
2008 og 2009 en hefur vaxið allar götur síð-
an.
Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun telja
sérfræðingar að enn megi gera betur. Við
eigum enn langt í land með að ná takmark-
inu um 5 skammta, eða 500 grömm, af
grænmeti og ávöxtum á dag en við erum greinilega að þokast í
rétta átt.
Slæmu fréttirnar eru hins vegar þær að sykurframboð eykst á
milli ára. Neyslan var 47,7 kg/íbúa árið 2012 en það eru um 920 g
á hvern íbúa á viku. Gosdrykkir eiga drjúgan þátt í hinni miklu
sykurneyslu, en gosdrykkjaneysla (gos- og vatnsdrykkir með bæði
sætu- og bragðefnum) er óhóflega mikil hér á landi eða um 146
lítrar/íbúa árið 2012. Sykurneysla á Íslandi er mikil í samanburði
við önnur norræn ríki. Minnst er hún í Noregi og Finnlandi, um
30 kg/íbúa árið 2012.
Þetta er að sjálfsögðu slæm þróun enda vita flestir að mikil
drykkja á sykruðum drykkjum eykur líkurnar á ofþyngd og offitu.
Auk þess sem slíkir drykkir geta valdið tannskemmdum og gler-
ungseyðingu. Best væri að sleppa þeim alfarið eða a.m.k. tak-
marka neyslu á þeim. Mælt er með því að drekka vatn, sem er
eins og allir vita besti svaladrykkinn.
Framboð grænmetis á Íslandi
70
60
50
40
30
20
10
Kíló á mann árlega (án tillits til rýrnunar)
Grænmeti alls
Þar af ferskt
grænmeti
56-60 61-65 66-70 71-75 76-80 81-85 86-90 91-95 96-00 01-05 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
heimild: Embætti Landlæknis
Ár
GÓÐÆRI Í
GRÆNMETI
Heilbrigt líf
JÓN HEIÐAR
GUNNARSSON
Kempa dagsins er Valdís Þóra Jónsdóttir golfari. Hún
er margfaldur Íslandsmeistari í golfi og leggur stund á
háskólanám í Texas þar sem hún spilar einnig með
golfliði skólans. Hún er mjög íþróttalega sinnuð og
lagði stund á fótbolta, karate og sund hjá ÍA áður en
hún valdi golfíþróttina fram yfir annað.
Gælunafn: Valde.
Hversu oft æfir þú á viku? 5-6 sinnum líkamsrækt og
5-7 sinnum golf á undirbúningstímabili eins og núna.
Hvernig æfir þú? Í golfinu er ég aðallega að spá í
tækni varðandi sveifluna á þessu tímabili, halda putt-
strokunni í lagi og 20-100 m höggum varðandi tilfinn-
ingu fyrir lengdinni. Í líkmsræktinni geri ég allskonar
styrktaræfingar fyrir bæði stóru og litlu vöðvana, þol-
æfingar og sprengikraft, og legg mikla áherslu á teygj-
ur.
Henta slíkar æfingar fyrir alla? Nei, það er rosalega
misjafnt hvað hentar einstaklingum. Sumir leggja
meiri áherslu á líkamsræktina en aðrir leggja meiri
stund á golfið. Ég reyni að hafa þetta svolítið blandað.
Hvernig er best fyrir nýliða að koma sér af stað?
Byrja hægt, ekki sprengja sig á fyrstu vikunni.
Hver er lykillinn að góðum árangri? Þolinmæði og
þrautseigja. Ekki gefast upp þegar á móti blæs því lík-
urnar eru að það muni blása oftar á móti.
Hvað er það lengsta sem þú hefur hlaupið? Þegar ég
var í fótboltanum gat ég hlupið ansi mikið og hljóp
einu sinni nánast allan hringinn í kringum Akrafjallið
góða.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira?
Bara byrja. Fyrsta skrefið er alltaf erfiðast og það er
gott að hafa einhvern með sér til að hvetja mann
áfram. En um leið og maður byrjar þá er þetta bara
gaman!
Líður þér illa ef þú færð ekki reglulega útrás fyrir
hreyfiþörfina? Já, ég get orðið mjög pirruð í skapinu ef
ég fæ ekki góða
útrás reglulega.
Enda er það fyrsta sem ég geri ef það fýkur í
mig að fara í ræktina. Manni líður bara betur
þegar maður fær 45-60 mín. af smá útrás.
Hvernig væri líf án æfinga? Leiðinlegt. Hvað á mað-
ur eiginlega að gera þá?
Hvað er það lengsta sem hefur liðið á milli æfinga
hjá þér? Ætli það sé ekki núna um jólin. Var í fríi frá
18. des og núna til 4. jan. Enda finn ég fyrir því núna!
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí?
Bara misjafnt, fer út að hlaupa, út að hjóla, labba á
fjöll stundum þegar frændi minn dregur mig með sér.
Bara allskonar, mikilvægt að hafa fjölbreytni í þessu.
Ertu almennt meðvituð um mataræðið? Já, ég er það
nú en ég er forfallinn pepsi max-sjúklingur! Er komin í
nammibann núna og stefni á að hætta í gosinu líka.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Jógúrt, fisk,
kjúkling, grænmeti og brún hrísgrjón er svona það
helsta en ég þarf aðeins að taka mig á.
Hvaða óhollustu ertu veik fyrir? Pepsi maxi, blandi í
poka og brauði!
Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyrir þig?
Bara betri líðan.
Hver eru heimskulegustu meiðslin sem þú hefur orð-
ið fyrir? Hér er hörð samkeppni! Ég hoppaði einu sinni
í sundlaug og braut á mer löppina, hoppaði vitlausum
megin við 4 feta skiltið og á pall sem var aðeins 1 fet á
dýpt, mjög vandræðaleg og heimskuleg meiðsli. Meidd-
ist einnig í úlnliðinum einu sinni þegar ég var að sveifla
fjarstýringunni á meðan ég horfði á sjónvarpið.
Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar? Vant-
ar fjölbreytnina.
Hver er besti íþróttamaður allra tíma? Michael Jor-
dan, Lebron James, Christiano Ronaldo, Messi, Tiger
Woods. Það eru svo margir sem maður getur talið upp
í mismunandi íþróttum.
Hvað var hátindur ferilsins? Ætli það sé ekki þegar
ég fékk boð um að taka þátt í móti á Evróputúrnum
eftir að hafa verið með besta skor stelpna í Faldo-móti
í Brasilíu.
Mestu vonbrigðin? 18. holan á Íslandsmótinu 2013.
Skemmtileg saga frá ferlinum?
Ég keyrði út á Seltjarnarnes í sumar til að fara á
æfingu hjá Nökkva Gunnarssyni og áttaði mig á því
þegar ég var komin út á nes að ég hefði gleymt golf-
settinu mínu inni bílskúr heima á Akranesi!
Skilaboð að lokum? Ef þig dreymir
um það, ekki gefa það upp á
bátinn! Veist aldrei
hversu langt þú nærð
nema með því að
reyna.
ÍÞRÓTTAKEMPA VIKUNNAR VALDÍS ÞÓRA JÓNSDÓTTIR
Slasaði sig á sjónvarps-
fjarstýringu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valdís Þóra
Jónsdóttir golfari
* „Sigurvegarar eru ekki skapaðir í ræktinni. Það semskapar þá er eitthvert afl sem býr innra með þeim.Slíkt afl getur verið þrá, draumur eða framtíðarsýn.“
-Muhammad Ali
Nánari upplýsingar á www.heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Oft er talað umMagnesíum sem„anti –stress“ steinefni
því það róar taugarnar og hjálpar okkur að slaka á. Magnesíum stjórnar og virkir um
300 ensím sem gegna mikilvægum hlutverkum í eðlilegri virkni líkamans. Það er
nauðsynlegt fyrir frumumyndun, efnaskipti og til að koma á jafnvægi á kalkmyndun
líkamans og fyrir heilbrigða hjartastarfsemi. Magnesíum er líka afar hjálplegt við
fótaóeirð út af vöðvaslakandi eiginleikum þess. Mjög gott er að taka magnesíum í
vökvaformi fyrir svefn til að ná góðri slökun og vakna úthvíldur.
Magnesium vökvi
• Til að auka gæði svefns
• Til slökunar og afstressunar
• Hröð upptaka í líkamanum
• Gott til að halda
vöðvunummjúkum
Virkar strax