Morgunblaðið - 07.02.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.02.2014, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014 Samstilltir söngfuglar Allar deildir Leikskóla Seltjarnarness, um 200 börn, komu saman á Eiðistorgi í gær til að gleðja gesti og gangandi með söng og hljóðfæraleik í tilefni af Degi leikskólanna. Ómar Reykjavík er höf- uðborg allra lands- manna og því eðlilegt að íbúar landsins láti í sér heyra þegar fjallað er um grundvallarþætti í skipulagi borgarinnar. Borgaryfirvöld áforma nú að ganga nærri svæðinu sem við köllum Geirsgata og Kalkofns- vegur eða Austurhöfn, sem auglýst er til kynn- ingar um þessar mundir. Á grannsvæði Seltirninga, við Vesturhöfnina, nálægt Slippnum og Grand- anum, er eitt af alvar- legri dæmunum um ríkjandi óraunsæi og skammsýni. Þarna ligg- ur Mýrargata, sem margir Seltirningar eiga óhjákvæmilega leið um oft á dag, og því eðlilegt að þeir láti sig þróun svæðisins miklu skipta. Vaxandi fjöldi at- vinnufyrirtækja er á svæðinu, að ógleymdu ol- íugeymasvæði höfuðborgarinnar í Örfirisey, sem margir tugir olíu- flutningabíla aka frá og til með farm sinn hvern virkan dag. Tvær meginumferðarrásir tengja allan vesturbæ Reykjavíkur og Sel- tjarnarnes við vegakerfi borgarinnar. Annars vegar er það Mýrargata, Geirsgata/Kalkofnsvegur og hins vegar Hringbraut. Hringbraut þolir illa meiri umferð. Gatnaframkvæmdir á þessu svæði skal vinna í samráði við Vegagerðina. Seltjarnarnesbær hefur sent inn at- hugasemdir sem snerta umferðarör- yggi á þessu svæði. Tryggja verður umferðaröryggi Vesturbæinga, Sel- tirninga og annarra höfuðborgarbúa sem um þetta svæði keyra, hjóla eða ganga. Tillaga sem nú liggur fyrir um breytingu á „deiliskipulagi Aust- urhafnar, gatnamót Geirsgötu og Kalkofnsvegar“ er algjörlega óraunsæ, tillagan gerir ráð fyrir minna umferðaröryggi. Hefur til- lagan verið borin undir Vegagerðina til umsagnar? Tryggja verður að borgarbúar komist greiðlega á milli borgarhluta og neyðarrýming borgarhverfa verð- ur einnig að vera framkvæmanleg, þótt vonað sé í lengstu lög að til slíkra aðstæðna komi ekki. Núverandi áform borgaryfirvalda auðvelda ekki bílaumferð um Geirsgötu, Kalkofns- veg og Mýrargötu, heldur þvert á móti þrengja að henni. Hér skal heitið á forystumenn höf- uðborgarinnar að þeir bregðist ekki hlutverki sínu, taki tillit til framkom- inna ábendinga og athugasemda. Fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu þarf að vinna betur, sannreyna þarf hvernig umferðarflæði verður og leggja ofuráherslu á öryggi íbúa. Eftir Ásgerði Halldórsdóttur »Hefur tillagan verið borin undir Vega- gerðina til umsagnar? Ásgerður Halldórsdóttir Höfundur er bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Skipulagsmál, óraunsæi og skammsýni hjá borgaryfirvöldum Miðvikudaginn 5. febrúar sat ég áhugaverðan fund Félags at- vinnurekenda um framtíðar- horfur í íslensku efnahagslífi. Yf- irskriftin var; „Hlúum að viðskiptum og velferð“. Á fund- inum var rætt um starfsumhverfi fyrirtækja og samkeppnismál frá ýmsum ólíkum sjónarhornum. Sjónarhorn smærri fyrirtækja var ráðandi á fundinum, en allt of oft eru það hagsmunir stærstu fyrirtækjanna sem ráða umræðu um samkeppnismál. Þessi fundur var góð til- breyting frá því. Umræðan var öll á uppbyggilegum nótum og gefur fyrirheit um að áhersla atvinnulífsins á mikilvægi virkrar samkeppni sé sífellt að styrkjast. Frá hruni hefur Samkeppniseft- irlitið talað fyrir því að virk samkeppni sé skil- virkasta tækið til að flýta endurreisn atvinnu- lífs og auka framleiðni í innlendu atvinnulífi. Átak Félags atvinnurekenda undir einkunn- arorðunum „falda aflið“ byggist á sömu hugs- un og er dæmi um það hvernig atvinnulífið get- ur skapað stjórnvöldum jákvætt aðhald. Engin velferð án samkeppni Einn ræðumanna, Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnarformaður EVU og Sinnum, fjallaði um hvernig samkeppnishugsun í heilbrigðisþjón- ustu getur snúið margra ára vörn í sókn. Sókn sem koma mun samfélaginu öllu til góða. Að mati Samkeppniseftirlitsins er þetta eitt brýnasta verkefnið sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir. Án samkeppnishvata í heilbrigð- isþjónustu og öðrum opinberum rekstri mun okkur ekki takast að standa vörð um velferðarkerfið til framtíðar. Nágrannar okkar ann- ars staðar á Norðurlöndum eru búnir að átta sig á þessu og hafa verið að innleiða samkeppnis- hugsun í opinberan rekstur á ýmsum sviðum. Hér á landi má ekki minnast á þetta án þess að hið hræðilega orð „einkavæðing“ gleypi alla umræðuna. Málshraðinn og Ólafur apótekari Annar ræðumaður, Ólafur Adolfsson apó- tekari, fjallaði um samkeppnislöggjöf frá sjón- arhóli minni fyrirtækja. Kvartanir hans leiddu til þess að Samkeppniseftirlitið sektaði Lyf og heilsu um 130 m.kr. fyrir misnotkun á mark- aðsráðandi stöðu árið 2010. Hæstiréttur stað- festi að lokum brotin og 100 m.kr. sekt. Ákvörðunin (nr. 4/2010) og meðferð málsins fyrir áfrýjunarnefnd og dómstólum gefur góða mynd af þeim átökum sem eiga sér stað um samkeppnismál á Íslandi í dag. Löng bið eftir úrlausnum Samkeppniseft- irlitsins var Ólafi hugstæð. Ég deili með hon- um þeim áhyggjum. Við sem þar vinnum erum sífellt að leita að leiðum til að koma í veg fyrir tafir af völdum fyrirtækja sem sæta rannsókn. Einnig leitum við aðferða til að hraða málum hjá okkur að öðru leyti. Dæmi um það er að mjög mörg mál sem við höfum skoðað frá hruni hefjast á forathugun. Slík forathugun gefur okkur færi á að leggja fyrsta mat á málið og forgangsraða því áður en lengri máls- meðferð hefst. Í mörgum tilvikum enda mál eftir forathugun með tilmælum eða viðvör- unum til fyrirtækja sem kvartað er yfir. Barnið og brunnurinn Við í Samkeppniseftirlitinu deilum líka áhuga á fyrirbyggjandi leiðbeiningum með iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Ragnheiður El- ín Árnadóttir vék að þessu hlutverki Sam- keppniseftirlitsins í sínu ávarpi. Eftirlitið hef- ur síðustu ár lagt sig eftir þessu með ýmsum hætti. Heimasíðan, fésbókin, tvítið, ráðstefnur, leiðbeiningafundir og stuttmyndagerð eru dæmi um þetta. Síðustu mánuði hefur Sam- keppniseftirlitið boðið stjórnendum fyrirtækja á námskeið um bannreglur samkeppnislaga. Ákvarðanir og álit fela líka í sér mikla leiðbein- ingu. En betur má ef duga skal og á næstunni mun eftirlitið setja fram aðgerðaráætlun um þetta. Að ausa Atlantshafið Vandinn er sá að aðgerðir á þessu sviði líkj- ast pínulítið því að ausa Atlantshafið, einkum þegar horft er til fjárveitinga í málaflokkinn. Mér er til efs að margir geri sér grein fyrir því hversu mikil eftirspurn er eftir afnámi sam- keppnishindrana á Íslandi í dag. Þess vegna munum við, þessar 24 manneskjur sem störf- um í Samkeppniseftirlitinu, aldrei standa und- ir ýtrustu væntingum ykkar hinna, þótt ýmsu verði komið í verk. Verkefnið er einfaldlega það stórt í samanburði við fjárveitingarnar. Beittar tennur Umræðan á vettvangi Félags atvinnurek- enda gefur vonir um að samtök í atvinnulífinu, Samkeppniseftirlitið og önnur stjórnvöld geti tekið höndum saman með það að markmiði að efla samkeppni á Íslandi. Þar geta allir lagt hönd á plóg. Samtök í atvinnulífinu geta skap- að aga á sínum vettvangi með því að líða ekki samkeppnislagabrot í sínum röðum og stjórn- völd geta innleitt hugarfar samkeppni sín á meðal. Og Samkeppniseftirlitið á að vera fljótt, leið- beinandi og vel tennt. Mikilvægasta skylda þess er að skapa varnaðaráhrif með því að uppræta brot fyrirtækja og hindranir opin- berra aðila með sektum og annarri íhlutun. Brot á samkeppnislögum er m.a. aðferð fyrir- tækja til þess að koma tjóni hrunsins yfir á við- skiptavini sína og þar með neytendur. Við megum aldrei falla í þá gryfju að sýna slíkri rányrkju skilning eða linkind. Hrunið kenndi okkur öllum að eftirlitsstofnanir eiga að hafa beittar tennur og nota þær. Annars hlustar enginn og allt fellur í sama farið. Eftir Pál Gunnar Pálsson »Umræðan á vettvangi Fé- lags atvinnurekenda gefur vonir um að samtök í atvinnu- lífinu og stjórnvöld geti tekið höndum saman um að efla samkeppni. Páll Gunnar Pálsson Velferð, samkeppni og beittar tennur Höfundur er forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.