Morgunblaðið - 07.02.2014, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ég er löggiltur hálfviti, hlusta á
HLH og Brimkló,“ söng Bubbi
Morthens í laginu „Rækjureggí“
með Utangarðsmönnum árið 1980
og sendi forsprakka hljómsveitanna,
Björgvini Halldórssyni, væna sneið.
Síðan eru liðin mörg ár, eins og seg-
ir í öðru góðu lagi, og Bubbi og
Björgvin orðnir mestu mátar. Bubbi
og Björgvin kitluðu forvitni útvarps-
hlustenda í byrjun viku með dular-
fullum útvarpsauglýsingum en í
þeim hringir Björgvin í Bubba og
spyr hann m.a. hvort hann hlusti
stundum á HLH og Brimkló. Bubbi
svarar því játandi og segir Björgvin
honum þá að hann sé löggiltur.
Í gær var hulunni svipt af við-
burðinum sem var verið að auglýsa:
tónleikum sem Björgvin og Bubbi
halda saman í Eldborg í Hörpu 5.
apríl nk. ásamt hljómsveit. Á þeim
munu Bubbi og Bo flytja eigin lög og
lög hvor annars. Hver hefði trúað
því að það myndi gerast fyrir 34 ár-
um?
Björgvin og Bubbi hafa þó komið
saman á tónleikum áður, Bubbi söng
á jólatónleikum Björgvins 2012 og
Björgvin lék á munnhörpu á ára-
mótadansleik Ríkissjónvarpsins á
gamlársdag 1986, við söng og gít-
arleik Bubba, að áeggjan Bubba.
Bubbi rifjar upp fyrrnefndan ára-
mótadansleik í samtali við blaða-
mann. „Björgvin er einn af betri
munnhörpuleikurum bransans, það
vita ekki margir en hann er ofboðs-
lega flinkur munnhörpuleikari.“
Mikil tilhlökkun
„Það er helvíti mikil tilhlökkun,“
segir Bubbi um tónleikana í Eld-
borg en um þrjú ár eru liðin frá því
þeir Björgvin fengu þá hugmynd að
halda saman tónleika. Bubbi segir
æfingar ekki hafnar en þeir séu
farnir að setja saman lagalista. „Ég
vil ekki upplýsa hvaða lög ég syng
eftir Björgvin en það á eftir að koma
á óvart og ég get lofað því að fólk á
eftir að gapa yfir sumum lögunum
sem Björgvin mun syngja eftir mig
og þá sérstaklega einu lagi.“
– Mig grunar að HLH og Brimkló
komi við sögu í því …
Bubbi hlær. „Það verður alla vega
saga til næsta bæjar.“
– Það er langt síðan þið slíðruðuð
sverðin.
„Já, já. Við Björgvin fórum að
hafa samband 1994 eða -5, fórum að
hittast og veiða saman. Það má nú
kannski segja að það hafi aldrei ver-
ið einhvers konar stríðsástand á
milli okkar, af og frá, en það var
klárlega núningur,“ segir Bubbi
kíminn. Ekki megi gleyma því að
menn velji sér iðulega hæsta fjallið
til að klífa og hreykja sér á.
Of lítil fyrir Elvis
Bubbi segir að þá Björgvin hafi
langað að syngja ákveðin lög eftir
hvorn annan og rætt þau sín á milli.
„Ég veit ekki hvort fólk gerir sér al-
mennt grein fyrir því en Björgvin er
mjög flinkur lagasmiður, hefur sam-
ið slatta af lögum þótt fólk þekki
hann kannski betur sem flytjanda.
Ég held að lagasmiðurinn Björgvin
fái að njóta sín í Hörpu,“ segir
Bubbi.
– Er Eldborg nógu stór fyrir ykk-
ur tvo í einu?
„Já, ég held að Eldborg sé nógu
stór fyrir okkur tvo en hún hefði ver-
ið of lítil fyrir Elvis,“ svarar Bubbi.
– Sem er að fara að troða þar upp!
„Steindauður,“ segir Bubbi og
hlær innilega.
– Þið verðið þó ekki einir á svið-
inu, ekki má gleyma hljómsveitinni.
„Það er rosa flott lið með okkur,
valinn maður í hverju rúmi,“ segir
Bubbi en hljómsveitina skipa Þórir
Úlfarsson hljómborðsleikari, Þórir
Baldursson sem leikur á Hammond,
gítarleikararnir Jón Elvar Haf-
steinsson og Guðmundur Pétursson,
Benedikt Brynleifsson trommuleik-
ari og Eiður Arnarsson bassaleikari.
Grínistinn Ari Eldjárn verður kynn-
ir. „Hann verður örugglega með
uppistand,“ segir Bubbi um Ara og
bætir því við að mögulega muni Ari
taka í gítar og flytja „Stál og hníf“.
„Ég get lofað
því að fólk á
eftir að gapa“
Bubbi Morthens og Björgvin Hall-
dórsson halda tónleika saman í Hörpu
sdfsdfsdf
Glaðhlakkalegir
Bó og Bubbi snúa
bökum saman í Eld-
borg 5. apríl.