Morgunblaðið - 07.02.2014, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 38. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Stundum á klósettinu 30 sinnum á dag
2. Hvað gerði hann við líkið?
3. Handtekin eftir 37 ár á flótta
4. Hoffman fórnarlamb fíkniefnabanns
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Safnanótt verður haldin hátíðleg í
dag með ýmsum viðburðum í söfnum
höfuðborgarsvæðisins og er hún
hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík. Af
mörgum forvitnilegum viðburðum
má nefna þá sem boðið verður upp á í
Borgarskjalasafni. Þar verður m.a.
flutt frumsamið dansverk, Syndirnar
sjö, kl. 20.30, eftir nemendur og
kennara Klassíska listdansskólans,
sérsniðið fyrir húsakynni safnsins.
Þá verða einnig sýnd skjöl úr safni
Klúbbs 44 sem starfsmenn töldu að
hefði verið leynikarlaklúbbur en kom-
ust að því að hann var í raun klúbbur
eiginkvenna pípulagningamanna.
Ljósmynd/Christopher Lund
Dansverk sérsniðið
fyrir skjalasafn
Eistneska söngkonan Tui Hirv er
orðin áberandi þátttakandi í íslensku
tónlistarlífi en hún flutti hingað til
lands í fyrra. Á dögunum kom hún
fram með Caput á Myrkum músík-
dögum og flutti meðal annars verk
eftir sambýlismann sinn, Pál Ragnar
Pálsson. Hirv hefur á undanförnum
árum komið oft fram með Kammer-
kór eistnesku fílharmóníunnar og ný-
verið hlaut upptaka með flutningi
kórsins á verkinu „Adam’s Lament“
eftir Arvo Pärt Grammy-
verðlaun í Bandaríkj-
unum fyrir bestan
flutning kórs á liðnu
ári. Verkið er samið
fyrir kór og tvo ein-
söngvara og er Tui
annar þeirra, í
hlutverki
engils.
Grammyverðlauna-
hafinn á Íslandi
Á laugardag Norðaustan 13-18 m/s og slydda eða snjókoma
norðvestantil, annars víða mun hægari og él, en bjartviðri
suðvestanlands. Hiti nálægt frostmarki.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 10-18 m/s, en 18-23 á Vest-
fjörðum í kvöld. Víða slydda eða snjókoma, en hægari og léttir til
suðvestanlands seinni partinn. Hiti yfirleitt 0-7 stig, mildast syðst.
VEÐUR
„Mér er farið að líða betur.
Ég er með mun minni verki
núna. En ég get ekkert sagt
um það ennþá hvort ég mun
keppa aftur eða hvort ferl-
inum er lokið, þetta er svo
nýskeð,“ sagði skíðakonan
María Guðmundsdóttir. Allt
útlit er fyrir að hún hafi slit-
ið krossband í hné öðru
sinni á ferlinum þegar hún
meiddist í stórsvigskeppni í
Þýskalandi á mánudaginn.
»4
Veit ekki hvort
ferlinum er lokið
Haukar halda sínu striki í úrvalsdeild
karla í handknattleik og eru áfram
með fimm stiga forskot eftir öruggan
sigur á Akureyringum á Ásvöllum í
gærkvöld. Eyjamenn eru í
öðru sæti eftir að hafa
lagt Framara að
velli í Safamýr-
inni og Sturla
Ásgeirsson
tryggði ÍR sigur
á FH í Kaplakrika
með marki úr
vítakasti undir
lokin. »2-3
Haukarnir gefa ekkert
eftir á toppnum
KR-ingar leika til úrslita á Reykja-
víkurmóti karla í knattspyrnu sjötta
árið í röð næsta mánudagskvöld.
Þeir sigruðu Fylki, 3:1, í undan-
úrslitum í Egilshöllinni í gærkvöld
en fyrr um kvöldið hafði Fram sigrað
Val, líka 3:1, og verður því mótherji
Íslandsmeistaranna í úrslita-
leiknum. KR hefur þó tapað úrslita-
leikjunum undanfarin þrjú ár. »1
KR í úrslitaleikinn
sjötta árið í röð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sjómenn, útgerðarfyrirtæki og aðr-
ir sem hlut eiga að máli leggja eðli-
lega mikið upp úr góðri nýtingu
sjávarfangs. Jón Pétursson, stýri-
maður á Vigra RE, leggur sitt af
mörkum, en hann hefur, með leyfi
Ögurvíkur, útgerðar frystitogarans,
fengið að hirða ýmsa furðufiska eða
sjaldséðar tegundir, sem hann hef-
ur gefið Oddfellow-stúku sinni til
styrktar góðu málefni. Nemendur
við Hótel- og matvælaskólann í
Kópavogi hafa síðan matreitt aflann
í sérstakri fiskiveislu stúkunnar.
Félög og félagasamtök þurfa á
ýmsum fjáröflunum að halda til
þess að standa undir eigin rekstri
eða til þess að styrkja góð málefni.
Mörg íþróttafélög og góðgerð-
arsamtök eru til dæmis með þorra-
blót, skötuveislur og kúttmaga-
kvöld. Jón segir að í fyrra hafi hann
stungið upp á því að halda fiski-
veislu og bjóða upp á furðufiska eða
sjaldséða fiska sem fjáröflun fyrir
Oddfellow-stúkuna Leif heppna, þar
sem hann er félagi. Framtakið hafi
heppnast vel og því hafi hann
ákveðið að leggja til afurðir í aðra
veislu, sem verður í lok mánaðarins.
Veisla fyrir 145 manns
„Við erum stöðugt að reyna að
finna fjáröflunarleiðir og í fyrra
datt mér í hug að það gæti verið
sniðugt að vera með veislu og bjóða
upp á fisk sem menn þekktu ekki,“
segir Jón um uppátækið. „Jafn-
framt fengum við Hótel- og mat-
vælaskólann í lið með okkur og
þannig fá nemendur
tækifæri til þess að mat-
reiða sjaldgæfar teg-
undir. Fiskiveislan
mikla varð til og í fyrra
vorum við með tegundir
eins og stinglax og lang-
hala. Nú bjóðum við til
dæmis upp á langhala, ferska tinda-
bikkju og geirnyt eða rottufisk. Í
fyrra mættu 85 manns og nú
stefnum við á að halda 145 manna
veislu. Eðlilega er ekki mikið af
hverri fisktegund í boði en við reyn-
um að haga því þannig til að allir fái
að smakka á sem flestum teg-
undum.“ Hann bætir við að til þess
að geta boðið upp á fulla máltíð sé
bætt við á veisluborðið algengum
tegundum eins og þorski, karfa,
rauðsprettu, makríl og síld.
Jón segist hafa augun opin fyrir
sjaldgæfum fiskum í hverjum túr,
en megnið af afurðunum í veisl-
urnar hafi hann fengið í tveimur
túrum í hvort sinn. „Þetta hefur
mest veiðst á djúpslóð,“ segir hann
og áréttar að Vigri leiti víða fanga
allt í kringum landið.
Furðufiskar og fjáröflun
Fiskiveisla
kemur öllum við-
komandi til góða
Morgunblaðið/RAX
Afli Jón Pétursson, stýrimaður á Vigra, hefur augun opin fyrir sjaldgæfum tegundum og furðufiskum.
Margir furðufiskar og sjaldgæfir
fiskar hafa veiðst við Ísland. Sjó-
menn hafa verið iðnir við að
bera slíka fiska á land og býr
Hafrannsóknastofnun m.a. að því
auk þess sem skólar
og nemendur hafa
notið góðs af.
„Geirnytin er einna
skringilegasti fisk-
urinn sem við bjóð-
um upp á,“ segir
Jón Pétursson um
hlaðborðið í fiskiveislunni miklu
en áréttar að tegundin sé þó
ekki eins sjaldgæf og ætla
mætti. „Við fáum alltaf eitthvað
af henni, allt að 50 kíló í hali, en
fiskurinn með hala getur orðið
um 50 til 60 sentimetra langur.
Síðan er það stinglaxinn, sem
fæst á djúpslóðinni og er mjög
bragðgóður. Þessi fiskur er á
portúgölsku frímerki en stinglax
þykir herramannsmatur í Portú-
gal og á Spáni.“
Stinglaxinn bragðgóður
MARGAR TEGUNDIR SJALDGÆFRA FISKA VIÐ LANDIÐ